Tíminn - 18.10.1961, Qupperneq 6
6
TÍMINN, miSvikudaginn 18. október 1961
MINNING:
BJörgviei Vigfússon
Kefiissföðum
Á þeim árum, sem Björgvin
Vigfússon hóf búskap að Ketils-
stöðum, íéllu verzlunarviðskipti
Hlíðarbænda mest til Seyðisfjarð-
ar. Þá var enginn bílvegur kominn
um Fjarðarheiði eða Jökulsárhlíð-
ina, og varð ekki á því breyting
fyrr en löngu síðar. Fóru því allir
vöruaðdrættir fram á hestum, en
fyrir kom ,þó, þegar mikil vand-
ræði urðu af vöruskorti að vetri
eða vori, að vörur voru fluttar sjó-
leiðina á allstórum vélbát frá Seyð-
isfirði að Keri, sem er bri'mlend-
ing við Hlíðarfjöll nyrzt við Hér-
aðsflóa. Máttu slikir- flutningar
teljast til undantekninga, því að
ekki þótti fýsileg sjóleið fyrir
Víkur, Borgarfjörð og Héraðs-
flóa að keri og óvís fær lending
þar eftir svo langa siglingu, þótt
fært væri talið, þegar upp var lagt
frá Seyðisfirði.
Nokkru síðar en Björgvin hóf
búskap sin*n, tófc ég við Kaupfélagi
Borgarfjarðar og vann hjá mér
fyrstu árin, meira og minna, vinur
minn og skólabróðir, Magnús Guð-
mundsson frá Sleðbrjótsseli í Jök-
ulsárhlíð. Mun það hafa verið að
hans frumkvæði, að Björn, bróðir
Magnúsar, sem þá bjó og býr enn
rausnarbúi á föðurleifð þeirra
bræðra, og Björgvin á Ketilstöðum
leituðu eftir auknum viðskiptum
fyrir Úthlíðarmenn við Kf. Borg-
arfjarðar, en áður höfðu átt sér
stað nokkur vetrarviðskipti þeirra
um Unaós, sem var vöruuppskip-
unarstaður kaupfélagsins austan-
vert við Héraðsflóa, en þangað
sóttu þeir á vetrum á þessum ár-
um og löngu síðar nokkuð af nauð-
synjum, þegar ísar voru og gott
sleðafæri um „Eyjar“.
Varð að samkomulagi milli þess-
ara manna og kaupfélagsins, að
reynt skyldi að halda uppi vöru-
fiutningum frá Borgarfirði á Ker
á vori hverju og síðla sumars.
Tvennt féð mestu um, að í
þetta var ráðizt. Fyrst það, að
borgfirzkir sjómenn voru ýmsu
vanir og ægði ekki að fara frá
Borgarfirði með hafnlausri strönd
á fullfermdum bátum, opinni
trillu með hlaðinn uppskipunarbát
í eftirdragi, alla leið að Keri, sem
er tæplega fært nema í stöðugri
landátt. Hitt var, að Bjöfgvin tók
að sér vörumóttöku og alla forustu
á Keri. Á þeim árum var enginn
sími í Úthlíð nema á Ketilstöðum
hjá Björgvin, og við hann hafði því
kaupfélagið allt samband um þessi
viðskipti og vöruflutninga. Það
lenti því í hlut hans, með aðstoð
Björns frænda hans að Sleðbrjóts-
seli, að annast um viðskiptin af
hálfu Úthlíðarmanna. Safna vöru-
pöntunum hjá þeim, sem tóku þátt
r þessum viðskiptum, en það voru
aðallega bændur utan Kaldár, sjá
um, að vorull væri á sínum-tíma
tilbúin til flutnings og annað, sem
flytja þurfti frá bændum til Borg-
arfjarðar. Þá féll það í hlut Björg-
vins, að segja fyrir um sjóleiði á
Ker, smala saman mönnum af
næstu bæjum til uppskipunar og
veita henni forstöðu. Oft var af
mikilli nauðsyn teflt á tæpasta
vaðið með þessa vöruflutninga og
löngum erfitt og vossamt við upp-
skipunina, en allt tókst giftusam-
lega undir öruggri forustu Björg-
vins og bátsverja.
Þessir vöruflutningar og við-
skipti héldust svo ætíð, meðan ég
var við Kaupfélag Borgarfjarðar,
þótt nokkuð yrðu þau umfangs-
minni á síðustu árunum sökum
þess, að þá var skröltfær bílvegur
smátt og smátt lagður út Jökulsár-
hlíðina, og dró þá úr brýnustu
þörfinni á þessum sjóflutningum.
Það lætur að líkum, að ég þurfti
árlega að fara ferðir frá Borgar
firði norður í Jökulsárhlíð í við-
skiptaerindum. Voru þá fastir við-
komustaðir mínir Sleðbrjótssel og
Ketilsstaðir. Var gott að njóta gest
risni og góðrar fyrirgreiðslu á
þessum bæjum, sem aldrei brást,
en mesta iystisemdin var jafnan
að njóta samfylgdar Björgvins um
Úthlíðina og fá að sitja einhvern
gæðing hans, meðan á ferðinni
stóð bæ frá bæ að hitta viðskipta-
vinina. En reiðhestar Björgvins
voru að vonum víðfrægir um
Fljótsdalshérað og næstu fjörðu.
Báru sumir þeiira af öllum hest-
um, sem ég hef þekkt. Og ekki
taldi Björgvin það eftir að skjóta
góðhesti undir mig yfir Hellis-
heiði, eftir að ég var fluttur til
Vopnafjarðar og kaus fyrstu árin,
að fara þá leið á hesti til Héraðs
og Borgarfjarðar.
Með Björgvin sem samferða-
mann fannst mér ætíð leiðin stutt,
þótt um langan veg væri að fara
og á gæðingum hans varð hver
vegur greiður og góður. Björgvin
var í vina hóp hrókur alls fagnað-
ar, greiðvikinn svo að af bar og
höfðingi i lund, og því þótti mér
ætið gott að heimsækja hann og
hans góðu konu.
Björgvin var mikið karlmenni
og fullhugi við hvað, sem við var
að etja og því vel til forustu fall-
inn við hvað eina, þar sem slíks
þurfti við. Og aldrei otaði hann
öðrum fram, en gekk sjálfur fyrir
og valdi sér þá gjarnan erfiðasta
verkið. Var þetta einkenni hans.
hvar sem hann gekk að störfum,
hvort sem það t. d. var við selveið-
ar við eða á sjó, eða sinnti fjár-
gæzlu um kletta og skriður í Ket-
iisstaðalandi.
Og á vorm, þegar allt kallaði að
samtímis, fjárgæzla á sauðburði
og sela- og refaveiðar, en Björgvin
var frábær skytta, var svefn- og
hvíldartíminn oft lítill á Ketils-
staðaheimili, eða svo var það venju
lega á fyrri búskaparárum Björg-
vins. Eins og að líkum lætur, var
Björgvin ör í lund og skjótur til
ákvarðana og athafna. Ekki er ó-
trúlegt, að hann hafi hent það,
sem flesta aðra menn að gera á
lífsleiðinni meira eða minna á hlut
einhverra samferðamanna, þótt ég
þekki það ekki af eigin raun. En
hafi svo verið. þá hef ég engan
mann þekkt, sem mér finnst lík-
legri til að viija bæta þar aftur
um, eftir því, sem í hans valdi
! stóð Slíkur drengur var Björgvin
! Vigfússon
Og nú er þessi garpur til foldar
fallinn. og má segja, að slíkt hafi
orðið fyrir aldur fram, miðað við
endingu hraustra manna nú á tím-
um. Hans mikla bújörð var frá
náttúiunnar hendi mörgum kost-
um búin, en sérlega erfitt að njóta
ýmissa hlunninda hennar til lands
og sjávar.
Björgvin færðist það í fang og
tókst það, studdur af góðri og dug-
mikilli konu og atorkusömum börn
um. En að því kom þó, þegar ald-
ur færðist yfir, að heilsuna þraut,
þótt kjarkur og áhugi bilaði ekki.
Björgvin hef'ði sennilega getað
lengt lífdaga sína um nokkur ár,
ef hann hefði hætt búskap á Ket-
ilsstöðum og lagt niður alla erfið-
isvinnu og búumsvif. En slíkt var
ekki að hans skapi. Hann gat ekki
sætt sig við að lifa sem athafna-
laus aumingi, eins og hann orðaði
það við mig eitt sinn, og ég þekkti
skapgerð hans svo vel, að ég skildi
hann fyllilega í því efni.
Og nú er bóndinn á Ketilsstöð-
um í Jökulsárhlfð horfinn af sjón-
arsviðinu og tjaldið dregið fyrir.
Sex dætur báru kistu föður síns
síðustu skrefin að kirkju sveitár-
innar, þeirrar sveitar, sem honum
þótti svo vænt um og þar sem
hann hafði eytt sinni miklu starfs-
orku í þágu síns stóra barnahóps
og síns sveitarfélags og enn frem-
ur þeirra, sem i framtíðinni fá að
njóta hans miklu umbóta á eign-
arjörð hans, Ketilsstöðum.
Og ég kveð þennan gamla vin
minn hinztu kveðju með virðingu
og þökk fyrir samstarf og ótal
ánægjulegar samverustundir á
liðnum áratugum.
Halldór Ásgrímsson.
Aldrei deyr, þó allt um þrotni,
endurminnlng þess, sem var.
G. Th.
Þegar horft er yfir tímabil, sem
nemur nokkrum árátúgum og þeg-
ar litazt er um, þótt ekki sé víðar
en í einni sveit, þá koma í ljós
stórfelldar breytingar sökum horf
inna og tilkominna einstaklinga.
Tíminn er iðinn og breytinga-
gjarn, og sést meðal annars á því,
að þeir bændur og húsfreyjur, sem
fyrir 40 árum réðu mestu í þess-
ar'i sveit eru flest horfin, dáin.
Það er tímans rás, óstöðvandi, kyn
slóð eftir kynslóð.
Hinn 3. ágúst s.l. barst hingað
frá Landsspítglanum andlátsfregn
Björgvins Vigfússonar bónda, Ket
ilsstöðum. Kom hún að vísu ekki
á óvart, þar sem heilsu hans hafði
mjög hrakað undanfarið, ep þó er
það svo, að við burtför mikilhæfs
stéttarbróðurs, frænda og ná-
granna um fjörutíu ára skeið, að
við eigum erfitt með að sætta okk
ur við minninguna eina saman.
Hann átti mikil ítök í hugum
manná, ungrá og gamalla, og einn
af helztu máttarstólpum sveitar-
innar hafði hann verið full 40 ár.
Björgvin Vigfússon var fæddur
að Fjarðarseli í Seyðisfirði 16.
október 1896. Foreldrar hans
voru Vigfús Ólafsson, Sigurðssonr
ar frá Straumi í Hróarstungu og
Elísabet Ólafsdóttir frá Mjóanesi
á Völlum. Bjuggu þau í Fjarðar-
seli. Vigfús varð skammlífur, lézt
árið 1900, aðeins 35 ára að aldri.
Móðir Vigfúsar, föður Björgvins,
var merkiskonan Guðný Tómas-
dóttir frá Fjarðarseli. Tómas, fað-
ir Guðnýjar og Sveinn bóndi í
Vestdal, Seyðisfirði, voru bræður.
nafnkunnir menn á sínum tíma
áttu margar jarðir og miklar eigr.-
ir. Er frá þeim kominn mikill ætt
leggur, bæði á Héraði og um Aust
fjörðu og víðar.
Eftir lát Vigfúsar fæddist Björg
vin upp með móður sinni til 15
ára aldurs. en fer þá að vinna fyr-
ir sér. Elísabet var mikilhæf kona,
en efnahagur óhægur. Dvaldi
Björgvin ýmist á Héraði eða Fjör*
um fram yfir tvítugsaldur. Árið
1919 fluttist hann hingað í sveit-1
ina, en vorið 1920 kvæntist hann
Stefaníu Stefánsdóttur prests frál
Hofteigi á Jökpldal og fer að búa
á Ketilsstöðum. Fyrir 40 áirum
var búskapur rekinn með nokkuð
öðrum hætti en nú er. Tæki bónd-
ans voru rekan, orfið, hrífan og
kláran, áhöld húsfreyjunnar voru
álíka frumstæð. Með þessum tækj
um varð sveitafólk að sjá sér og
sínum farborða.
Fyrstu búskaparárin eru oft erf-
ið efnalitlum hjónum, en þau voru
bæði dugleg og atorkusöm, jörð-
in var niðurnídd að húsum, en all
góð til heyöflunar og nokkur
hlunnindajörð. En Björgvin vildi
verða efnalega sjálfstæður. Því
var það, að hann lagði kapp á að
nota sem bezt hlunnindi jarðar-
innar af meiri dugnaði en áður
hafði þekkzt. Kom svo, að Ketils-
staðir, sem hafði þótt léleg bújörð
um skeið, komst allt í einu í álit
aftur. Jafnhliða kom hann upp af-
urðagóðu fjárbúi, enda mátti segja
að fé hans lifði í fagnaði þann
tíma, sem það var á húsi. Þá var
hrossahald einnig til fyrirmyndar
svo að af bar. Hann var góðúr
hestamaður og hafði yndi af hest-
um. Ó1 hann upp marga ágæta
gæðinga, tamdi sjálfur, og spar-
aði ekkert til þess að þeir mættu
verða sem beztir. Fengu þeir marg
an mjólkursopann og kornlúkuna.
Er ekki ofsagt, að orðstír þeirra
úrvals gæðinga hafi borizt um Hér
að og nágrannafirði.
Minningin um Björgvin á Ket-
ilsstöðum verður fyrir mínum hug
skotssjónum eitthvað á þessa
leið:
Hann var vel viti boririn, nátt-
úrúgreindur, sem kallað er. Ekki
skólalærður nema úr unglinga-
skóla, en þó vel menntur.
Hann var vel heima í fornum
ritum íslendinga og Ijóðelskur á
fornan og nýjan kveðskap, enda
átti hann mikið safn ljóðabóka og
annarra bóka. Um þjóðmál mynd-
aði hann sér ákveðnar skoðanir,
og hafði að engu hvaðan vindur-
inn blés. Hann var höfðingi heim
að sækja og vildi hvers manns
vandkvæði leysa, þeirra, er til
hans sóttu. Jörðina bætti hann
stórum með ræktun og bygging-
um yfir fólk og fénað. Hann stóð
jafnt báðum fótum í gamla og
nýja tímanum, báru búskaparhætt-
ir hans vott um það. Hann vildi
eigi kasta fyrir borð öllum búskap
arvenjum gamla tímans, sem vel
höfðu reynzt honum á fyrri ár-
um, en vélarnar notaði hann líkt
og aðrir.
Mér virtist, að á síðari árum
ykist alúð hans við vinnuna, en
þegar heilsu hans hrakaði, gengu
verkin þó fram á heimilinu líkt
og áður, að vísu með hjálp barna
hans, sem heima voru. Og þegar
kraftarnir þurru, svo að eigi varð
unnið, heyrðist aldrei æðúuorð.
Hin meðfædda karlmennska Björg
vins Vigfússonar varð eigi buguð.
Vissulega hefur hann hugsað eins
og Skarphéðinn, er hann mælti:
Eigi hræðist ek dauða minn.
Þau hjónin, Björgvin og Stef-
anía, áttu 9 börn. Þau eruý
Elsa Ágústa, gift Geir Stefáns-
syni, Sieðbrjót. Guðný, gift Sig-
fúsi Árnasyni ,Egilsstaðaþorpi.
Þórhalla, gift Pétri Stefánssyni s.
st. Dögg, gift Sæmundi Sveinssyni,
Reykjavíik. Fregn, gift Þorvaldi
Jónssyni, Háafelli. Stefán, kvænt-
ur Birnu Jónsdóttur, Akureyi'i.
Guðmundur, kvæntur Svanhvíti
Hannesdóttur, Egilsstaðaþorpi;
Jónheiður, heima. Björgvin,
heima.
Öll eru þessi systkin myndar-
leg og manndómsleg.
Og að lokum þetta.
Með Björgvini á Ketilsstöðum
er horfinn vitur maður, góður
bóndi, hiklaus í hverri raun, rót-
fastur fslendingur, sjálfstæður að
efnum og hugsun.
Björn Guðmundsson.
Utboð
Tilboð óskast í að framlengja hafnargarðana í Þor-
lákshöfn. Útboðslýsing ásamt uppdrætti fæst í
Vitamálaskrifstofunni gegn 1000 kr. skilatrygg-
ingu.
Vita- og hafnarmálastjóri
ÞAKKARÁVÖRP
Hugheilar þakkir sendum vi3 öilum þeim, er auðsýndu okk-
ur samúð og aðstoð vegna fráfalls og minningarathafnar ástvina
okkar, er fórust með
v/b Helga
frá Hornafirði hinn 15. september 1961.
Sigurborg Ágústsdóttir, Runólfur Bjarnason, Ásdís
Jónatansdóttir, Haukur Runólfsson, Nanna Ólafsdótt-
ir, Ágjst Runólfsson, Ingibjörg Sigjónsdóttir og
börn, Ragna Guðmundsdóttir og börn, Hulda Bjarna-
dóttir, Finnbogi Ólafsson og börn, Steinunn Runólfs-
dóttir og börn, Mafthildur Gísladóttir, Eyjólfur Run-
ólfsson og börn, Sigurborg Einarsdóttir, Páll Páls-
son, Ingunn Pálsdóttir, Jónína Jónsdóttir, Gunnar
Snjólfsson og börn, Sigurborg Gísiadóttir, Jóhann
Kl. Björnsson og börn.
Hjartans þakkir til barna minna, tengdabarna,
ættingja og vina, fyrir gleðistund á 90 ára afmæli
mínu 11. okt. s. 1. Enn fremur þakka ég vina-
'■°ðiur er mér bhrust í tilefni dagsins.
Ketill Helgason,
Álfsstöðum, Skeiðum.
Alúðarþakkir færi ég öllum þeim, sem sýndu mér
'náttu á sjötugsafmæli mínu. með gjöfum, heim-
’ num og hlýjum kveðjum. Guð blessi ykkur öll.
HólmfríSur Bjarnadóttir,
Svertingsstöðum.