Tíminn - 18.10.1961, Qupperneq 16

Tíminn - 18.10.1961, Qupperneq 16
- ræskir sig ■— fyrr í febrúar árið 1874 upphófst mikið gos í Öskju og fylgdu á eftir jarðskjálftar, sem gengu á með hryðjum út það ár. í febrúar 1875 var farið að Öskju og hafði þá mikið jarðrask orðið þar, og drunur miklar og brestir bárust að eyrum manna. Jörðin var víða sprtmgin, og í gígum og gjám vall glóandi eldleðja, sem þeyttist hátt í loft upp. Þarna hafði orðið mikið jarðfall og gapandi gjár glottu í hrauninu umhverfis það. Og 29. marz varð eitt hið hrika- le^asta eldgos, sem orðið ihefur á íslandi í manna minnum. Askja hleypti sér í tröllsham og spúði eldi, ösku og brennisteini, og engu var líkara en helvíti hefði fæðzt á jörðu, — þrumur öskruðu og drundu, eldingar skutust upp í himininn og myrkrið vaið blý- svart. Fólk af sautján jörðum í Jökuldal efra neyddist til þess að flýja jarðir sínar, því að allt vatn þvarr og askan lá yfir gróðrinum eins og svart líkklæði. Vikur þakti allt svæðið milli Smjörvatnsheið- ar og Berufjarðar og brennisteins- fýlan sveimaði yfir. — og nú Síðan þá hefur Askja látið á sér kræla. Á árunum 1920 til 1926 gaus á nokkrum stöðum við Öskju og hraun rann. Og nú fyrir stuttu hafa myndazt nokkrir gufu- og lehhverir á sprungu við Öskju- vatn. Landsvæðið umhverfis hver- ina er víða sprungið, sums staðar víðum og djúpum sprungum. Úr hverunum vellur heitur og fúll leir. Leiðangur var gerðut til Öskju um daginn eins og kunnugt er a^ fréttum. Fór þá hópur manna á- samt Sigurði Þórarinssyni jarð- fræðingi til Öskju og voru þá gerðar fyrstu athuganirnar. Nú er Tómas Tryggvason jarðfræðingur staddur á svæðinu og fylgist hann með framvindunni, en sumir telja, að hreyfingin, sem þarna hefur oiðið í jarðskorpunni, sé undan- íari hraungoss. Myndirnar Myndirnar á síðunni tók Erling- ur Davíðsson í leiðangri Sigurðar Þórarinssonar. Á efstu myndinni sést niður að einum hvernum. Leir inn hefur myndað stóran, sléttan fiöt fyrir neðah hann. Gufuna leggur úr hvernum til hægri. Á annarri myndinni sést, þegar Jón Sigurgeirsson tekur sýnishorn úr leirlæk og lætur í flösku. Á neðstu myndinni er verið að athuga einn nýja hverinn. Ólafur Jónsson er næstur á myndinni og er að taka myndavélina upp úr bakpokanum. Aðalfundur Framsóknarfélags Reykja- víkur verður haldinn í Framsóknarhúsinu í kvöld, miðvikudagskvöld, og hefst fundurinn klukkan 20,30. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.