Tíminn - 14.12.1961, Blaðsíða 12

Tíminn - 14.12.1961, Blaðsíða 12
12 T í MIN N, fimmtudaginn 14. desember 1961 Jólabækur viö allra hæfi Krossfiskar og hrúðurkarlar - bók Stefáns Jónssonar fréttamanns sem allir hafa gaman af. - Hvalur framuntlan fyrir sjómenn unga og aldna. - í helgreipum hafs og auðnar, fyrir alla sem ævintýrið þrá. - Á flótta og flugi, spennandi unglingabók. - Undrið mesta - frábær bók um dulræn efni. - Ástin sigrar, óskabók allra kvenna. - Hús hamingjunn- ar, hver er sá, sem ekki vill eignast það? 'O'MS S 0 M og hrúðurkarlar Ný athyglisverð bók eftir Stefán Jónsson fréttamann. Bók þessi er sérstæð og að allra dómi mjög skemmtileg og vel skrifuð. Margir þjóðkunnir menn koma við sögu og Stefán kemur víða við í frásögn sinni. Krossfiskar Undrið mesta SJÁLFSÆVÍSAGA ameríska miðilsins Arfhur Fords í þýðingu sr. Sveins Víkings. er komin út á íslenzku. Þetta er tvímælalaust einhver merkasta bók um sálræn efni, sem út hefur komið hér á landi. Erlendis hefur bók þess vakið mikla hrifningu og lof gagnrýnenda. Þær staðreyndir gnæfa ofar öðrum á æviferli Arthur Fords, að hann ★ „sá“ dánarlista í stríðinu, áður en þeir voru birtir ic vann með Sir Arthur Conan Doyle og Sir Oliver Lodge að því að koma á þéim starfsháttum hjá atvinnumiðlum, að þeir stæðust ströngustu gagmýni ★ réð hið fræga „Houdini-dulmál“, sem hinn alkunni bragða- refur notaði til að sanna sig fyrir konu sinni ir sigraðist á afleiðingum slyss, sem næstum því varð honum að aldurtila, og þar af leiðandi eitur'lyfjaneyzlu, fyrir andlegar lækningar ir hlaut viðurkenningu frægra háskólamanna og lærdómsmanna starfaði með fjokkum presta frá ýmsum trúarfélögum að því að kanna þátt skyggni, dulheyrna og spávizku í trúarreynslu manna UNDRIÐ MESTA er sannkölluð jólabók. Hvalur framundan Hefur löngum verið talin ein bezta bók sem skrifuð hefur verið um hvalveiðar um öll heimsins höf. Um hana sagði Rudyard Kipling: .Kæri herra Bullen! Það er stórkostlegt, ég á ekkert annað orð. Ég hef aldrei lesið neitt, sem jafnast á við þessar lýsingar á dásemdum hinna leynd- ardómsfullu sjávardjúpa; og ég álít ekki heldur, að nein bók hafi brugðið jafn björtu Ijósi yfir allt hvalveiðistarfið, og samtímis sýnt okkur jafn margar sannar myndir af sjómannslífinu. Þér hafið bruðlað með efni, sem hefði verið nóg til að skrifa um fimm bækur, og ég óska yður hjartanlega til hamingju. Þér hafið lokið 'uin dyrunum að alveg nýjum heimi. Rottingeam. þann 22. nóv. 1898. Yðar einlægur, Rudyard Kipling.“ Ægisútgáfan. í helgreipum hafs ©g auðnar er hörkuleg og æsispennandi frá- sögn kafbátsforingja. Sagan gerist í hrikalegu umhverfi á Náströndinni. Ósvikin karlmannabók. / Ástin sigrar Hugljúf og spennandi ástarsaga. Barátta hjúkrun- arkvenna um ástir læknisins. Sígilt viðfangsefni. Áreiðanlega óskabók allra kvenna. Ástin sigrar í jólapakka frúarinnar, þá er jóla- skapið tryggt. i Hús hamingjunnar Já, hver vill ekki eignast þaö. Þessi yfirlætislausa bók segir, fiá ungpm hjónum, sem fundu leið til að eignast Hús hamingjunnar. Þetta er skemmti- leg bók og auk þess má nokkuð af henni læra. Bókaúfgáfan Smári

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.