Tíminn - 24.12.1961, Qupperneq 1

Tíminn - 24.12.1961, Qupperneq 1
 Herlið S. þ. skýfur á hunda í Elísabethville SJÁ 3 . SÍÐU 325. tbl. — Sunnudagur 24. desember 1961 — 45. árg. Er búið að finna íslenzka „My fair Lady? Sjá baksíðu Og í þeirri byg8 voru fiárhirðar úti í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim óg dýrð Drottins ljóm> aði í kring um þá, og urðu þeir mjög hræddir. Og engillinn sagði við þá: Verið óhræddir, því sjá, eg boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum: því að yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu. Og í sömu svipan var með engiinum fjöldi himneskra hersveita, sem lofuðu Guð og sögðu: Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með þeim mönnum, sem hann hefir velþóknun á. Og er englarnir voru farnir frá þeim til himins, sögðu hirðarnir hver við annan: Vér skulum fara rakleiðis til Betlehem og sjá þennan atburð, sem orðinn er og Drottinn hefur kunngjört oss. Og þeir fóru með skyndi og fundu bæði Maríu og Jósef, og ungbarnið liggjandi í jötunni. En þegar þeir sáu það, skýrðu þeir frá því, er talað hafði verið við þá um barn þetta. Og allir, sem heyrðu það, undruðust það, sem hirðarnir sögðu þeim. En María geymdi öll þessi orð og hugleiddi þau með sjálfri sér. Og hirðarnir sneru aftur og vegsömuðu og lofuðu Guð fyrir alt það, er þeir höfðu heyrt' og séð, eins og sagt hafði verið við þá. (Lúk., I. 8—21.) ÓSKAR LESENDUM SÍNUIVl 06 ÖLLUM LANDSMÖNNUM GLEÐILEGRA JÓLA Þetta eru nokkrlr af þelm póstmönnum, sem hafa boriS út rúma hálfa milljón bréfa í Reykjavík fyrir þessi jól. Fjöldi aöstoSarmanna hafa veriö ,fengnir til hjáipar, og póstburðurinn hefur gengið vel. Það má með sanni segja, að póstmenn beri öðrum fremur hitann og þungann af öllum jóiaundirbúningi, og þeir eru margir kílómetrarnir, sem þeir hafa gengið áður en hátíðin hefst. nokkuð BJÁ 3. SÍÐU

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.