Tíminn - 01.02.1962, Page 6

Tíminn - 01.02.1962, Page 6
111 iliililiiilli ít— r—i • !!!!!!! n V 1 íf:* >í í.í. .•.. S »*** Krr J KLINNAí n! !!l!!!l lljl l!ll ' ÆSH OJNNAr í ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRA FRAMSÓKNARMANNA RITSTJÓRI: HÖRÐUR GUNNARSSON Aukin tómstunda- og æskulýðsstarfsemi Grein sú, eftir ritstjórann, sem hér fer á eftir birtist í Nútímanum, blaði Stórstúku íslands, síðast liðið haust. Var grein þessi svar hans við spurningu, sem Nútíminn lagði fyrir unga menn úr öllum stjórnmálaflokkum. Spurningin var þessi: Hvað teljið þér að þurfi að gera til að bæta ástandið í áfengismálum þjóðarinnar? | - er ein leiSin til jiess að bæta ástand- ið í áfengismálum þjóðarinnar Því ber ekki að neita, að nokkur vandkvæði eru á að svara þepsari spurningu, enda spannar hún víðtækt og marg slungið vandamál, áfengis- vandamálið. Ég mun ekki ganga fram í þeirri dulinni, að þau svör, sem ég gef hér, séu einhlít til lækningar, en ég tel eðlilegt að sem fiest sjónarmið og tillögur komi fram í þessu máli. Það fyrsta, sem þarf að breytast, er almenningsálitið. Almenningsálitið er það afl, sem lyft getur Grettistökum, þegar það beinist í réttan far veg, og það ætti að verða ríkj andi skoðun, að áfengisnotk- un sé hverjum manni til minnkunar. En almennings- álitið hefur sofið. Jafnvel fregnir af geysilegum tjónum, stór-slysum og mannlátum af völdum áfengis, svo að ekkí sé minnzt á svallsamkomur víða í tilefni af því, að Samband bindindisfélaga í skólum hefur starfað í þrjátíu ár 16. marz n.k. og allan þann tíma verið með athyglisverðustu þáttum í starfi skólaæskunn- ar, þykir Vettvangnum hlíða að geta samtakanna að nokkru, i dag, 1. febrúar, á baráttudegi þeirra, og birtir einnig ávarp sambandsins. 1. febrúar ár hvert hefur Samband bindindisfélaga í skólum, bindindissamtök skólaæskunnar, helgað sér sem sérstakan baráttudag til framgangs stefnumála sinna. Hefur svo verið undanfarna áratugi, allt frá árinu 1934, en 21. október 1933 fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla um af nám áfengisbannlaganna frá 1909. Voru þau tvíþætt, ann- ars vegar aðflutningsbann, er kom til framkvæmda 1. jan. 1912, og hins vegar áfeng issölubann, sem tók gildi 11. jan. 1915. Lögin voru þó ekki óbreytt til 1934, því f.rá árinu 1922 var heimilt að flytja til landsins hin svonefndu Spán arvín, létt vín með áfengis- styrkleika allt að 21%. Áfengi íór að flytjast til landsins að nýju eftir afnám bannlag- laganna á árinu 1935, enda hafði einkasala ríkisins notað síðari hluta árs 1934 til undir búnings þeirri framkvæmd. Eins og fyrr er sagt ákvað Samband bindindisfélaga í skólum að gjöra 1. febrúar ár hvert að baráttudegi samtak anna. Þegar sú ákvörðun var tekin, var sambandið enn ungt að árum, stofnað 16. marz 1932. Allar stundir síð- an hafa samtökin staðið í fylkingarbrjósti þeirra afla, sem stuðla vilja að vaxandi heilbrigði og menningu æsk- unnar og landsmanna allra. Störf sín hefur Samband bind indisfélaga í skólum unnið i kvrrþey, en hefur þó aldrei skirrzt við að taka einarð- j lega afstöðu og láta að sérj kveða á opinberum vettvangi i þeim málum, sem tilgangi þess varðar. Þá hefur baráttu dagur samtakanna 1. febrúar verið ljós vottur þess, að þau eru síung, framsækin en reynslurikari í samræmi við aukin árafjölda. H.G. um land, sem landsfrægar hafa orðið, nær tæpast lengra | en rétt að ýta við almennings álitinu á meðan þetta eru dagskrármál, en síðan sofnar það aftur. Seint vaknar sá, sem aldrei vaknar, segir mál- tækið. Það verður að vekia almenningsálitið, þar sem full sannað virðist, að það vakni ekki af sjálfsdáðum. Fyrsta sporsins í þessa átt er tvímæla- j laust að krefjast af ríkisvald- inu. Ríkisstjórnin, Alþingi og ríkisstofnanir ættu ag vera í fylkingarbrjósti baráttunnarj við áfengið, og veita ekki í op inberum samkvæmum, mót- tökum eða samkomum, á- fenga drykki, enda hygg ég, að flestum skattþegnjpn þyki nóg um þær íij—So piilljónir króna eða meir, sem eytt er árlega í þessú skyni af fram angreindum aðilum og hlnta upphæðarinnar betur varið í aðrar framkvæmdir landi og þjóð ti.1 hagsældar. Einnig verður ríkisvaldið að auka og HÖRÐUR GUNNARSSON margfalda aðstoð sína við bindindishreyfinguna, svo að hún geti leyst hlutverk sitt sem bezt af hendi, ag fylgja eftir skrefi ríkisvaldsins, til árangnrs. Því aðeins er bind- indishreyfingin megnug þess, i að vinna að mannbótastarfi sínu, eins og eðlilegt getur talizt, að ríkið styðji hana og og styrki ósínkt. Ég hygg að engum kæmi til hugar að svipta slökkviliðið fjárstuðn- ingi og leggja það niður. bótt stórbruni ætti sér stað. sem það vegna manníæðar' og tækjaskorts réði ekki við, heldur efla á alla lund. Gagn stæð hugmynd hefur þó mynd azt í hugum ýmissa um bind- indishreyfinguna og þeir segja, að vegna þess ástands í áfengismálum þjóðarinnar, sem ríkir í dag, ætti fyrsta sporið að vera til lausnar vand anum, að leggja bindindis- hreyfinguna niður, hennar sé vandinn. Ég vil taka það fram, að ég lít á bindindis- hreyfinguna sem „eina heild, þótt innan hennar séu mörg félög með mismunandi starfs hætti. Öll vinna þau að sama markmiði og, ef vegið er að einni grein hreyfingarinnar, er verið að veikja hana og vega að henni í heild. Þegar bindindishreyfingin yrði lögð niður, myndi að sjálfsögðu leggjast niður um leið það starf, sem hún hefur unnið við að gera sem flesta að betri bióðfélagsþegnum. Til þessa má því ekki koma. Annað sem bæri að gera, er að styð.ia sem bezt þá aðila, sem efla vilja heilbrlgðar, áfengislausar skemmtanir yngra sem eldra fólks, ferða- lög og tómstundastarf. Þær tilraunir, er gerðar hafa ver- ið hér í Reykjavík, sanna, að grundvöllur er fyrir þetta starf, aðeins þarf einhvern að (Framhald a 12 siðu) Eyðslusemi og óhóf fylgir ávallt í kjölfar hvers kyns óreglu Avarp Sambands bmdindisfélaga í skéhm á bmdindisdaginn; L febrúar Samband bindindisfélaga í skólum var stofnað í Mennta skólanum í Reykjavík 16. marz 1932 og verður því 30 ára gamalt á þessu ári. f tilefni þessara tímamóta vill stjórn sambandsins rifja upp í fáum orðum tildrögin að stofnun samtakanna og viðgang þess á undangengn- um þrem áratugum. „Ef fólkið í skólunum lærir að fara skynsamlega með fjár muni sína, heilsu og gáfur, þá lærir öll þjóðin það,“ sögðu vitrir menn og þeir, sem stofn uðu bindindisfélögin töldu sjálfsagt að reyna þetta. Þeir sögðu, að heilsuhreysti og heilbrigði byggðust á tvennu: annað væri m. a. að drekka ekki áfengi og reykja ekki. Hitt væri að kappkosta allt það, sem héldi heilbrigðiiini við og stældi líkamann, stunda leikfimi, sund, göngur kappleiki ýmiss konar, vera mikið úti, reyna hæfilega á sig. Á þennan hátt töldu þeir unnt að halda vanheilsunni burtu. Og, þegar þeir, bindindis- mennimir, í skólunum, bentu á, að eyðslusemi og óhóf fylgdi ævinlega í kjölfar drykkjuskapar og hvers kyns óreglu, vakti það svo mikla at hygli, að lá við blóðugum ó- eirðum. í þessu andrúmslofti urðu fyrstu bindindisfélögin í skól- um til, hið fyrsta var stofnað í menntaskólanum í Reykja- vík en síðan fleiri í öðrum skólum. Mættu félögin mikilli andstöðu þegar i upphafi, og urðu þau að heyja langvinna og harða baráttu fyrir til- verurétti sínum, en þeirri bar áttu lyktaði alls staðar með sigri bindindismanna. Þegar bindindisfélögin höfðu ^ starfað um nokkurt skeið i 1 mörgum skólum Reykjavíkur, J i sáu forvígismenn þeirra, að þeim var nD.uðsynlegt að mynda samtök, stcrk samtök, ! sem með sameinuðum átök- um allra bindindisfélaganna myndu vinna stórum meira gagn, en ef þau ynnu dreifð. Myndi þá hvert félag vinna eftir sem áður í sínum skóla, en öll ynnu þau innan ramma þessara samtaka og undir yfir stjórn þeirra. Þannig varð Samband bindindisfélaga í skólum til. Á þessum þrjátíu árum hef- ur starfsemi samtakanna ver- ið fjölbreytileg og með ýmsum hætti. Ríkastur þáttur starf- seminnar hefur þó fræðslu- starfið verið, öll árin. Það hef ur einkennzt af fræðslukvöld um og erindaflutningi um bindindismál fyrir æskufólk. þá hafa hinir færustu menn verið fengnir til að fara út um land í fyrirlestraferðir um bindindismál og til að kynna sambandið. Hafa ferð- ir þessar gefið jóða raun. Haldin hafa verið skemmti- kvöld og kaffifundir og efnt til íþróttamóta. Einnig hefur blaðaútgáfa verið fastur liður í starfsemi sambandsins og þar verið ritað um bindindis- mál og birtar greinar úr ýms- um skólablöðum. Samband bindindisfélaga í skólum hefur átt því láni að fagna, að til forystu hafa val- izt framsæknir menn og á- ræðnir, en þó forsjálir, sem hafa óhikað lagt í, á stund- um, langvinna baráttu til framgangs stefnumálanna. En sigur hefur ekki jafnan unn- izt með atfylgi forystumann- anna einna heldur komið til samstarf og einhugur allra fé lagsmanna. Hlýtur svo ávallt að verða. Stjórn Sambands bindindis félaga í skólum þakkar öllum þeim, sem unnið hafa að mál- um samtakanna eða stutt á annan hátt á fyrstu þrjátíu árum starfstíma þeirra. Stjórn Sambands bindindis félaga í skólum hvet.ur alla félagsmenn til ag vinna að því, að 30. ár samtakanna verði S.B.S.-ár. TÍMINN, fimmtudagur 1. febrúar 1962

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.