Tíminn - 11.02.1962, Blaðsíða 3

Tíminn - 11.02.1962, Blaðsíða 3
 :»!•! ÍI ,-r-ir Fyrir nokkru gaf miSstjórnln í Kongó út átta frímerki til minningar um Dag Hammar. skjöld, sem fórst, þegar hann var aS vinna aS friSi í Kongó. Adoula forsaetisráSherra opn- aSi minningarhátíSina, sem var haldin, þegar frímerkin voru gefin út. Þessi mynd var tekin á póststofu í Leopold- ville vlS þaS tækifæri og sjást frá vinstri; Jason SENDWE, aSstoSarforsætisráSherra, AD- OULA forsætisráSherra, Ferdi nand MUNGAMBA póstmála- stjóri og Svíinn Sture LINN- ER, aSalfulltrúi SameinuSu þjóSanna í Kongó. Merk silfur- skeið Meðal þeirra gripa, scm komið hafa í leitirnar við munasöfnun vegna væntan- legs byggð'asafns Straiula- manna og Húnvetninga, sem getið var um í blaðinu, er forkunnar fögur og vönduð silfurskeið eftir Helga Þórð arson, sem Henderson segir í Ferðabók sinni, að smíðað hafi klukku. Líklega er þetta eini gripurinn, sem safnið' eignast og nokkurn veginn er hægt að sanna, að eftir Helga sé, en hann hefur ver ið frægur smiður, því að í kirkjum hérlendis eru a. m. k. sex silfurbikarar, mcsta völundarsmíð, sem hann hef ur gert að sögn Guðmundar Jósafatssonar, sem er heim- ildamaður blað'sins um þcssi mál. — f dag efnir Húnvetn- ingafélagið í Reykjavík til hlutaveltu í Edduliúsinu til ágóða fyrir byggðasafnið. 1 NTB—París, 10. febrúar. Hinn 19 ára gamli stúdent Marc Schwartz, sem talið var, að OAS-menn hefðu rænt á fimmtudaginn var, er nú kom- inn í leitirnar og segir sínar farir ekki sléttar. Marc kom skyndilega í leitirnar á búgarði nokkrum rúmlega 60 kílómetrum utan Parísar. Þaðan hringdi hann til föður síns, Laur- ent Schwartz prófessors. Foreldrar Marc segjast vera viss um, að honum hafi verið rænt af OAS, því að fjölskyldan hafði á fimmtudaginn fengið sendar hót- anir frá OAS um, að syninum yrði þá rænt. Mundi það koma illa við tyo andstæðinga OAS-hreyfingar- innar, prófessoririn og Debré for- sætisráðherra, sem er náskyldur þessu fólki. I Máíc""s'egir, að tveir menn hafi ráðizt að sér, þegar hann kom j heim á bíl sínum. Hefðu þeir beint j að sér byssum og skipað honum að 'aka með þá í bílnum. Þeir hefðu farið til skógar utan Parísar og verið þar til föstudagskvölds. Þá urðu mannræningjarnir hræddir og hurfu, án þess að taka Marc með sér. rænt? Ekki eru allir sammála um, að þessi saga sé sannleikanum sam- kvæm. Því hefur verið haldið fram, að Marc hafi fengið tauga- áfall, þegar hótanabréfið barst, og falið sig sjálfur úti í skógi. Hann og foreldrar hans halda samt fast við, að um mannrán hafi verið að ræða. Lögreglan hefur tekið málið til rannsóknar. póstsendin FIMM ÞUSUND KRÓNUM STOLIÐ Síðari hluta dags í fyrradag var stolið veski í Verzluninni Kjörgarði, en í því voru 5000 krónur í peningum. Þetta veski var geymt í smáklefa við hliðina á einni verzluninni í húsinu, en í klefa þessum geymdi afgreiðslufólkið dót sitt. Veskið var geymt í handtösku, sem fannst rétt fyrir utan klefann. Líkur benda til, að þarna hafi ver’ið um krakka að ræða. Ef ein- hver kynni að hafa or'ðið var við krakka í nágrenni við verzlunina með óvenjumikla peninga í hönd- um, ættu þeir að láta rannsóknar- lögregluna vita. Seðlaveskið er svart að lit og nýtt. í því voru fjórir þúsund krónu seðlar, einn fimm hundruð króna seðill og hitt smærra. Á tímum seglskipanna var minnsta kosti einu sinni í viku, þó að aldrei væri nema til þess, að sannfæra okkur um að tími segl- skipanna er liðinn. oft vitnaö til þess hversu póst- i samgöngurnar voru dræmar jvið landið. Nú virðist ástandið vera þannig, að litlu muni j þótt nú séu breyttir tímar og jöll farartæki fljótari í ferðum. Skipapóstur frá Evrópu er nú hálfan mánuð á leiðinni, sem er hreint óviðunandi ástand. Þessi tregða stafar af því, að skipafélög þau, sem hafa áætlanir á leiðinni til Evrópu og flytja póst en þau eru Eimskip og Sameinaða, fara svo að segja samtímis yfir haf ið. Eimskipafélagsskip fór með póst í fyrradag héðan og Sameinaða flutti póst héðan í gær. Síðan líð- ur hálfur mánuður og engan skipa póst að fá. Eins og séð verður af þessum upplýsingum, er það hið mesta nauðsynjamál að skipaferð- irnar verði skipulagðar þannig yf- ir veturinn, að pósturinn komi að Mðtmæla verkfaU i París NTB—París. 10. febrúar. Kaþólsku og kommúnistisku verkalýðsfélögin í París hafa kom- ið sér saman um að efna til verk- falls á mánudaginn til þess að mót- mæla hrottaskap lögreglunnar í hinum miklu óeirðum í borginni á fimmtudaginn. Verða samtímis haldnir mótmælafundir gegn OAS, þrátt fyrir bann lögreglunnar. Á mánudaginn verða mennirnir átta, sem létust í óeirðunum, jarð- settir, og efna verkalýðsfélögin til þagnarstundar við það tækifæri. M>. fefenmr Ekki friðhelgui* NTB-Karlsrahe, 10 febr. — Hæstiréttur Vestur-Þýzka lands staðfesti í dag sekt- ardóm yfir rússneska verk fræðinignum Pripolezeff fyr ir njósnir í þágu Sovétrikj anna. Pripolezeff starfaði fyrir verzlimarsendincfnd Sovét- ríkjanna í Köln. Hann var handtekinn í fyrra, þrátt fyrir mótmæli hans og stjórnar Sovétríkjanna, er héldu því fram, að hann hefði friðhelgi erlends sendimanns. Fjórar lögregiusiofur eyðilögSusf NTB-Algeirsborg, 10. febr. í gær vora fj'órar af skrifstofum lögreglunnar í Algeirsborg eyðilagðar gjör samlega, þegar kveikt var í þeiím. Fjöldi skjala varð að ösku einni. Neituöu aö faka viö mótmælum Aibaníu NTB—London, 10. febr. Albanía hefur mót- mælt því við hin Austur- Evrópuríkin í Varsjár- bandalaginu, að Albaníu var ekki boðin þátttaka í síðasta fundi bandalags- ins, sem var haidinn í Praha dagana 30. janúar til 1. febrúar. Formleg mótmælaorðsend- ing hefur verið afhend sendi ráðsriturum Austur-Evrópu- ríkjanna í Tirana, höfuð- borg Albaníu. Þeir lýstu yf- ir því, að þeim væri efni orðsendingarinnar kunnugt, en neituðu að taka við hermi. Tékkneska sendiráðið, er gætir hagsmuna Sovétríkj- anna í Albaníu, síðan þau slitu stjórnmálasambandinu sín á milli fyrir stuttu, neit- § aði líka að taka við mótmæla orðsendingunni, sem átti að fara til Moskva. Sviptur friöhelgi og handtekinn NTB—Praha, 3. febr. Aðstoðarforsætisráð- herra Tékkóslóvakíu hef- ur verið handtekinn og sviptur embætti sínu fyrir misnotkun embætt- is síns, og var annar maður skipaður aðstoð- arforsætisráðherra í hans stað í gær. Rudolph Barak, hinn fyrr- verandi aðstoðarforsætisráð herra hefur verið ákærð- ur fyrir að hafa farið óvar- lega með fé ríkisins og fyrir að misnota embætti sitt. Hann hefur verið rekinn úr kommúnistaflokknum og hefur misst sæti sitt í mið- stjórn flokksins og stjórn- málanefnd. Þjóðþing Tékkóslóvakíu samþykkti í fyrradag að svipta Barak þinghelgi sinni, svo að hægt væri að hand- taka hann og lögsækja síðan. Barak var innanríkisráð- herra landsins frá 1958 til júní i fyrra, er hann var rek- inn. Hann hafði haldið emb- ætti aðstoðarforsætisráð- herra allt til þessa. Hinn nýi aðstoðarforsætis- ráðherra er Jan Pillar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.