Tíminn - 11.02.1962, Blaðsíða 7

Tíminn - 11.02.1962, Blaðsíða 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason. Frétta- ritstjóri: Indriði G Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Auglýsingastjóri: EgiirBjarnason. Ritstjórnarrskrifstof- ur í Edduhúsinu, afgreiðsla. auglýsingar og aðrar skrifstofur Bankastræti 7 Símar: 18300 — 18305 Auglýsingasími 19523 — Afgreiðslusími 12323 — Prentsmiðjan Ekida h.f. — Askriftargjald kr 55 á mán innan lands I lausasölu kr. 3 eint. Dýru verði keypt Ríkisstjórnin ætlar að rifna af monti út af því að gjald- eyrisstaða bankanna batnaði nokkuð á síðast liðnu ári. Því fer auðvitað alls fjarri að breytingar á gjaldeyris- stöðu bankanna sýni afkomu þjóðarinnar. Ekki fremur en pyngjan ein afkomu einstaklingsins. Þar koma til lán- tökur, eignaaukning og mýmargt fleira. Það er því til minnkunnar hvernig ríkisstjórnin og stjórnarblöðin ræða um gjaldeyrisstöðu bankanna. Gjaldeyrisstaða bankanna batnaði fyrst og fremst vegna metafla úr sjónum, sem hægt var að selja jafn- óðum, enda minnast stjórnarblöðin nú aldrei á aflabrögð- in 1961, þótt þau væru óþreytandi að básúna aflabrest 1960. Á hinn bóginn er það alveg víst, að færri gjaldeyris- krónur komu inn vegna „viðreisnarinnar" en ella hefði verið — því að hún hefur dregið mikið úr framleiðslu þjóðarinnar. Jafnframt hefur „viðreisnin" minnkað innflutninginn og það ef til vill átt þátt í að einhverjar gjaldeyriskrónur stöðvuðust í bili á reikningum bankanna. En sé svo eru þær áramótainneignir dýru verði keyptar. Því hvað er „viðreisnin“ sem þannig hefur „heppn- ast“: 1. Að magna dýrtíðina en halda kaupi og afurðaverði niðri — til þess að slá niður kaupgetuna. (Með gengis- lækkunum, sölusköttum, tollum o. s. frv. 2. Að hækka kostnaðinn við íbúðabyggingar, báta- kaup, vélakaup, ræktun og alla fjárfestingu — en draga úr lánveitingum (frysta spariféð) og hækka vexti. Með þessu er búið að skapa þann gífurlega vanda, að almenningur getur alls ekki lifað af tekjum fyrir venju- legan vinnudag og uppbyggingin í landinu lömuð, nema hjá þeim, sem eru nógu ríkir. Búið er að breyta viðhorf- inu til óhags fyrir almenning frá því sem var 1958. Og nú er fram undan að glíma við þennan vanda. Þetta er dýru verði keypt. Stjórnarskrárbrot ? í umræðum á Alþingi í vikunni færði Ólafur Jóhann- esson sterk rök fyrir því að upptaka ríkissjóðs á verð- bækkun á útflutningsbirgðum vegna gengislækkunarinn- ar væri brot á stjórnarskránni. Löggjafinn hefur um tvær leiðir að velja til skerðingar á eignum manna, þ. e. eignar- nám og skattar. Þegar eignarnám er gert eiga eignar- námsþolar rétt á bótum. Upptaka gengishagnaðarins get- ur ekki verið eignarnám að lögum, því að þeir, sem fyrir þessari eignarupptöku verða eiga engar bætur að fá. Skattar skulu samkvæmt lögum lagðir á eftir efnum og ástæðum gjaldenda. Upptaka verðhækkunarinnar er gerð algerlega án tillits til efna og tekna eigenda útflutnings- birgða og því getur ekki verið um löglegan skatt að ■ræða og benti Óafur Jóhannesson glögglega á, að þessi eignarupptaka kæmi einmitt mjög óréttlátlega niður, þannig að í vissum tilfellum eru fúlgur teknar af eigna- lausum manni, sem er að berjast með atvinnurekstur, og færðar yfir til annars manns, sem er svo ríkur að eignum, að í almannarómi hefur hann fengið viðurnefnið „hinn ríki“, þótt hann láti ríkisábyrgðarlán standa í óskilum og falla á ríkið, en Gunnar Thoroddsen segir að gengishagn- aðurinn eigi að renna til greiðslu á ríkisábyrgðartöpum ríkissjóðs. — Þannig virðist allt benda til þess, að eigna- upptaka verðhækkunarinnar sé stjórnlagabrot. En það er ekki einungis lagarök, sem skortir, heldur verða engin réttlætisrök fundin fyrir þessari eignarupp- töku eins og hún er framkvæmd. Jarðarbúar fá svo að segja alla fæðu sína af svæði, sem nær yf ir fjórðung hnattarins. Áhugi vís indamanna á að nýta hina þrjá fjórðu hluta jarðarinnar til mat- vælaframleiðslu fer þó sívaxandi. Þeir telja líklegt, að mikið af því eggjahvítuefni, sem þarf til að fæða mannkynið í framtíðinni, megi sækja í hin víðáttumiklu höf. Vísindamenn hafa ástæðu til að vera bjartsýnir í þessum efn um. Athuganir hafa leitt í ljós, að það er ekki aöeins meiri fisk ur í höfunum en flesta grunar, heldur má og rækta fisk í vernd uðum svæðum í sjó og vötnum á skemmri tíma og í meira magni miðað við hektara en annars staðar, þar sem þeir eru sjálf- aldir. Fyrir mörgum árum gerðu vis indamenn við haffræðistofnun- ina Woods Hole í norðvestur- hluta Bandaríkjanna athuganir á lífi i sjónum neðan við það dýpi þar sem fiskur er yfirleitt veidd ur. Athuganir þeirra sýndu, að hægt væri að auka heildarfisk afla jarðarbúa verulega á grund velli þess, að gerðar væru reglu- lega mælingar á þessu dýpi, en samkvæmt skýrslum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar S. Þ. var hann 30 milljónir árið 1957. Gerðar hafa verið tilraunir til að hraða vexti fiska með því að bént'úBiirS'í 'ýötn og sjó og örva þáiinig jurtagróðurinn. Við Skot landsströnd voru t. d. byggðar stíflur á löngu og mjóu svæði, svo að ekki gætti þar flóðs né fjöru. Síðan var áburðurinn bor inn í sjóinn á um það bil 7 hekt ara svæði. Fyrsta áratuginn var' blanda af sodiumnitradi og sup erfosfati borin í sjóinn tíu sinn um og annað og þriðja árið var borinn áburöur að auki. Áhrifin komu fljótt í ljós. Þör ungar döfnuðu vel og á þeim lifðu ormar, litlir krabbar og önn ur smádýr, sem flatfiskar átu með góðri lyst, Þar eð fiskarnir fengu miklu meiri næringu en ella, uxu þeir hraðar og urðu hæf markaðsvara á tveimur árum, en það tekur 6 ár, þegar þeir þurfa að leita sér fæðu, þar sem ekki er eins mikiö um hana. Þessi tilraun vakti athygli um allan heim, og bandarískir vís- indamenn hófu ráðageröir um ræktun fiska til manneldis í nokkrum fíóum undan strönd Mainefylkis. Hins vegar hefur verð á áburði og vinnu valdið því að áætlunin hefur hingað til ver ið talin of kostnaðarsöm, en með vaxandi fiskneyzlu og notkun fiskimjöls ætti fiskrækt í sjó aö vera framkvæmanleg ekki síður en fiskrækt í fersku vatni. Af þeim fisktegundum, sem sóttar eru í höfin til manneldis, er síldin og skyldar tegundir, eins og sardínur og ansjósur þýðingar mestar, enda eru þær fjórðung ur heildarfiskaflans í heiminum. Dænii eru þess, að ársaflinn hafi verið tíu þúsund milljón síldir, þ.e.a.s. um þrjár síldir á hvern íbúa jaröarinnar, þó virðist ekk ert ganga á síldarmagnið í sjón um. Síldartorfurnar eru víða risa vaxnar. Einhverju sinni tilkynnti skip um síldartorfu, sem var 6 kílómetrar að lengd og um þrír kílómetrar að breidd og svo þétt að helzt líktist samfelldri hellu. . Af þeim sextán þúsund fisk- tegundum, sem vitað er að lifa i sjónum, eru aöeins um 200 not aöar til manneldis, og aðeins fá ar af þessum 200 svo nokkru nemi. Þessar fisktegundir eru m. a. síld, eins og áður getur, en auk þess þorskur og skyldar teg undir, (ýsa, kolmúli), makríll, lax, túnfiskur, flatfiskur síðustu árin og loks aborri, sem líka er kallaður rauðfiskur. Þessi síðast nefnda fisktegund er Ijósrauð í sárið og vegur um 300 grömm. Til skamms tíma var honum yfir leitt fieygt, þar til einhverjum datt í hug að bragða á honum og fannst hann bragðgóður. Nú er sala á aborra um 90 smálestir á ári. Sérfræðingar starfa nú á veg um Bandaríkjastjórnar að þvi að finna fleiri fisktegundir, sem nýta má til manneldis. Þegar þeir hafa fundið eitthvað nýtt, gefa þeir fiskframleiðendum leið beiningar um, hvernig búa eigi vöruna á markað og stundum gangast þeir fyrir könnunum á vegum neytendasamtaka um vin sældir hennar. í Bandaríkjunum er ársafli á nytjafiski úr sjó og vötnum kringum 1.500.000 smálestir, þar með talinn skelfiskur. Meðal neyzla á hvern íbúa í landinu er 4.5 kíló, að frátöldum úr- gangi. Vatnafiskurinn kemur að nokkru leyti úr stórám landsins en éinnig úr tjörnum, þar sem fiskrækt er stunduð. Fiskrækt er nefnilega orðinri stór þáttur í landbúnaði í Bandaríkjunum og víðar. Oft er hún stunduð í sam bandi við hrísgrjónarækt. í Ala bama í suðurhluta Bandaríkj- anna hafa t.d. 250 hrísgrjóna bændur stofnað samvinnufélag, sem rekur fiskrækt á rúmum 20 þús. hektara stórum landsvæð- um, er vatni hefur verið veitt á. Reynsla þeirra er sú, að land, sem fiskar hafa verið ræktaðir á, gefur af sér allt að helmingi meira af hrísgrjónum en áður. ,Sem dæmi um þetta má nefna tilraunir bónda nokkurs í Arkan sas í suð-austanverðum Banda ríkjunum. Hann veitti vatni yfir hrísgrjónaekrur sínar og ræktaði þar á tveimur árum að meðal- tali 560 kíló af fiski á hektara. Þessar ekrur höfðu áður gefið af sér 49 hektólítra af hrísgrjón- um á hektara, og var þá notaður áburður. Eftir að fiskur hafði verið ræktaöur á þeim í tvö ár, gáfu þær af sér 87 hektólítra á hektara, án áburðar. Fiskrækt bætir ræktarlandið á margan hátt. í fyrsta lagi skilja fiskarnir eftir köfnunarefni og önnur lífræn efni í jarðvegium. Enn fremur depst allt illgresi, því að akrarnir eru undir vatni í tvö ár samfleytt. Þetta er stórt atriöi, því að illgresið er versti óvinur hrísgrjónabóndans, og til þess að eyða því, verður hann að láta akrana standa ónotaða í 1 til 2 ár, þegar hann hefur ræktað hrísgrjón í nokkur ár. Margir sérfræðingar telja, að fiskrækt muni breiðast út og verða stunduð ekki einungis á hrísgrjónaekrunum, heldur einn ig á baðmullar- og sojabaunaökr- um, og alls staðar þar sem auð velt er að kóma því við að veita vatni yfir akrana. Fisktegundir þær, sem mest eru ræktaðar á þennan hátt, eru vatnakarfi, buffalofiskur, steinbítur og ab orri. Bandaríkjastjórn hefur gert á ætlun um ræktun jarðvegs og vatna og hefur hún orðið til þess að auka mjög áhuga manna á fiskveiðum, jafnt til skemmtun ar sem lífsviðurværis. Víða taka bændur þátt í umræddri áætlun og greiðir stjórnin þá helming kostnaðar við byggingu fiskrækt artjarna, og gefur auk þess fisk seiði og lætur í té leiðbeiningar sérfræðinga um, hvernig bezt sé að ala þau upp, þar til þau hafa náð hæfilegri stærö. Aðaltilgangur áætlunarinnar er að koma í veg fyrir spillingu jarðvegsins og safna jafnframt vatni til drykkjar fyrir búfé og til áveitu. En snotur tjörn er til margra hluta nytsamleg, t. d. til iþróttaiðkana, sunds og siglinga og skautaiðkana á vetrum. Loks veitir hún nokkuð öryggi, ef eld ur kemur upp. Nú hafa verið byggðar fiskræktartjarnir á um milljón bóndabæjum í Bandaríkj unum og fer þeim sífjölgandi. Meðalstór tjörn, um hálfur ha. að stærð, gefur af sér 90 kíló af fiski árlega. Áburður er borinn í tjarnir þessar á sama hátt og gert var í áðurnefndri tilraun við Skot- landsstrendur, til þess að örva þörungagrpðurinn. Á honum lifa lirfur, sem er fæða litlu fiskanna en á þeim lifir aborrinn aftur, eða þeir eru veiddir til mann- eldis. DR. BENJAMIN EIRIKSSON: SKA TTAMÁUN Ríkisstjórnin hefur lagt fyrir Alþingi nýtt frumvarp í skatta- málum. Með tilliti til þess hvern ig ástandið er í skattamálunum, má telja víst, að öll nýmæli í því muni vera til bóta. , Eitt a± því sem menn eru yfir- leitt sammála um, er það, að skattar þurfi að vera ákveðnir og eklci handahófskenndir eða tilviljunarkenndir, hvorki álagn- ing þeirra né innheimta. í allri skattalöggjöf okkar undanfarin ár er samt eitt stórt og mikið til viljunaratriði. sem ekki hefur verið leiðrétt. Þar sem málið er ákaflega einfalt, en þýðingarmik ið, vil ég leyfa mér að fara um það nokkrum orðum á opinber- um vettvangi. Við skulum taka dæmið þar sem peningatekjur manna hækka, segjum tvöfaldast Þetta þarf ekki að þýða mikið. vegna þess að verðlagið hefur — segj um tvöfaldazt — á tímabilinu Hver króna, sem menn fá í kaup, er þá aðeins helmingur að gildi við þaö sem hún áður var Að öllu öðru óbreýttu eiga menn þvi að borga tvöfalt fleiri — en helm ingi minni — krónur í skatt, Nú hagar þannig til. að skattstigar eru stighækkandi Af þessu leið ir, að séu skattstigarnir óbreytt (Framhaid á 15 siðu) TÍMINN, sunnudaginn 11. febrúar 1962 /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.