Tíminn - 11.02.1962, Page 16
ÞEIR SVARA
Spurningu Tímans: Eruö þér samþykkur stjórn Rithöfundasambands ís-
I lands í því, að greiöa beri fyrir upptöku efnis í umsögnum um skáidskap
manna?
Sunnudagur 11. febrúar 1962
. ■ .
■;; >;
I INGÓLFUR KRISTJÁNSSON
FRIÐJÓN STEFÁNSSON VILHJÁLMUR S. VILHJÁLMSSON
THOR VILHJÁLMSSON
ÞORSTEINN JÓNSSON
Ingólfur Kristjánsson,
form. Félags ísl. rithöfunda.
Varðandi þessa spurningu
út af ályktun stjórnar Rithöf-
undasambands fslands vil ég
taka það fram, að ég hef ekki
séð umrædda ályktun. En hún
mun til orðin út af deilu Tím
ans og Matthíasar Johannes-
sen vegna birtingar á kvæð-
unt eftir hann í greininni:
„Skyldu bátar mínir róa í
dag“, sem birtist í blaðinu 24.
janúar sl. Samkvæmt upplýs-
ingum frá blaðamanni við
Tímann stendur meðal ann-
ars í ályktun stjórnar Rithöf
undasambandsins að greinin
„geti með engu móti talizt rit
dómur“.
Það virðist því ekki felast í
ályktuninni að verið sé að
mæla fyrir því að tilvitnanir
í skáldverk í ritdómum verði
taldar gjaldskyldar — aöeins
tekið fram að áðurnefnd grein
sé ekki ritdómur, að dómi sam
bandsstj órnarinnar.
Spurning blaðsins er því dá
lítið villandi. En að þessu
framteknu, er mér ljúft að
láta í ljósi skoðun mína á því,
sem er kjarni spurningarinn-
ar, það er, hvort „greiða beri
fyrir upptöku efnis í umsögn
um skáldskap manna?“
Þetta er að vísu lögfræði-
legt spursmál, sem ég er ekki
bær um að svara afdráttar-
laust.
Hins vegar þykir mér frá-
leitt, að nokkrum höfundi
komi til hugar að krefjast rit
launa fyrir tilvitnanir í verk
sín, sem fjallað er um í rit-
dómum — hvort heldur er til
lofs eða lasts höfundinum og
verkum hans.
Allt öðru máli hlýtur aö
gegna, ef heil kvæði eða kafl
ar úr skáldverkum eru birt í
blöðum og tímaritum án nokk
urrar ritrýni á viðkomandi
verkum. Þá virðist eðlilegt, að
höfundarrétturinn nái til þess
með sama hætti og annarra
endurprentana. Enginn bóka-
útgefandi myndi t. d. leyfa
sér að gefa út sýnibók ísl.
ljóða, þar sem upp væru tek
in kvæði margra höfunda án
þess að leita leyfis höfund-
anna og semja um ritlaun.
Nýlegt dæmi um þetta er út-
gáfa Menningarsjóðs árið 1958
á bókinni íslenzk ljóð 1944 til
1953 eftir 43 höfunda; þar var
ekki aðeins leitað heimildar
höfundanna fyrir kvæðunum.
heldur kom og full greiðsla
fyrir, og þó var um endur-
prentun að ræða.
Þó að blöðin geti haft ómet
anlega þýðingu fyrir rithöf-
und — eins og raunar alla
aðra — og séu þeim oft veg-
urinn út á meöal þjóðarinnar
einmitt með ritrýni og kynn-
ingu verka þeirra, mega þau
ekki ætla, að þau geti tekið
sér bessaleyfi fram yfir aðra
útgefendur, ef þau vilja not-
færa sér skáldverk til birting
ar almenningi í dálkum sín-
um.
um.
Friðjón Stefánsson,
fonn. Rithöfundafél. islands.
Spumingin er byggð á röng
um forsendum. Stjórn Rithöf
undasambands íslands mun
ekki halda því fram, að greiða
beri fyrir upptöku efnis í rit-
dómum, en ella beri að greiða
fyrir það. Um það er ég sam-
mála stjórn Rithöfundasam-
bandsins.
]S
Vilhjálmur S. Vilhjálms-
son,
rithöfundur.
— Nei. Um lagalegt gildi
kröfu Matthíasar á hendur
Tímanum get ég ekkert sagt,
en almennt séð, finnst mér
hún ekki ná nokkurri átt. Ef
þetta ætti að vera algild regli
getur það haft útgjöld í för
með sér að vitna í skáld eða
höfunda yfirleitt. Ef samin er
stór ritgerð um bókmenntir
og birt dæmi um skáldskap
höfunda, þá getur höfundur-
inn, eða erfingjar hans, átt
kröfu á hendur útgefandan-
Um þessar mundir þykist
ég, með aðstoð aldraðrar
konu, hafa fundið snjalla
vísu eftir Þorstein Erlingsson,
sem hvergi hefur birzt. Eg
ætla að birta hana í viðtali
við konuna. Ef skoðun atom-
skáldsins ætti að ráða, geta
erfingjar Þorsteins krafið út-
gefanda minn. — Þetta er fá
sinna. Slíkar kröfur koma
fyrst og fremst höfundunum
sjálfum illa. Það er ekki ann
að sjáanlegt, en að krafan sé
sprottin af sárri gremju, sem
mér virðist þó algerlega á-
stæðulaus.
]S
Thor Vilhjálmsson.
rithöfundur.
— Það er sjálfsagt að menn
geti vitnað í efni, sem þeir
fjalla um á prenti, án þess
að verða sektaðir fyrir, eða
látnir borga skemmtanaskatt
af því. En mér finnst að þurfi
að gera greinarmun á tilvitn
un, sem fylgir gagnrýni og
upptöku efnis, sem er haft í
heilu lagi athugasemdalaust,
og ef ekki er um gagnrýiii að
ræða, þá hljóti höfundurinn
að eiga rétt á ritlaunum, en
það er hans að ákveða, hvort
hann notfærir sér það eða
ekki.
Annars hef ég ekki kynnt
mér það mál, sem mér skilst
að hafi vakið þessa spurningu
og get því ekki tekið afstöðu
til þess sérstaka atviks.
Þorsteinn Jónsson,
(Þórir Bergsson), rithöfundur
— Eg tel, að ef það er um-
sögn eða ritdómur um verk
skálda eða rithöfunda, þá eigi
ekki að taka greiðslu fyrir, ef
um tilvitnun er að ræða, hvort
sem er í kvæði eða öðru. Hitt
er annað mál, ef það er eitt-
hvað annað, t. d. ritgerð um
skáldskap, yfirleitt fleiri en
eins manns, þá getur orkað
tvímælis um þetta að mínum
dómi.
]
ísland
og EBE
Framsóknarfélögin í
Reykjavík halda almenn-
an umræðufund í Fram-
sóknarhúsinu, Fríkirkju-
vegi 7, miðvikudaginn
7. febr. k\. 20.30, um ís-
land og efnahagsbanda-
lagið.
Frummælendur verða:
Eysteinn Jónsson, alþm.
og Helgi Bergs, fram-
kvæmdastj.
KAUPA ÞA FIMMTU
Loftleiðir hafa nú fest kaup
|á fimmtu Cloudmasterflugvél-
inni, en hinar fjórar eru „Þor-
finnur karlsefni", „Leifur
Eiríksson", „Snorri Sturlu-
son" og „Eiríkur rauði".
Nýja flugvélin er áf sömu gerð
og hinar vélarnar og keypt eins og
þær af Pan American World Air-
\ýays.
Greiðsluskilmálar hagstæðir
Kaupverð vélarinnar er lítið eitt
lægra en á fyrri Cloudmasterflug-
vélunum og greiðsluskilmálar hag-
stæðir. Tveir hreyflar og nokkrir
varahlutir fylgja með í kaupunum.
Ríkisábyrgðar vegna kaupanna
; var ekki óskað af hálfu seljenda,
(Framh. S 15. síðuA