Alþýðublaðið - 21.10.1927, Síða 3
ALPVÖUBLAÖltí
5
Gærur og
Garnir
kaupum við háu verði.
i
boðj fræðandi erindi um eitthvert
pað máJ, sem félagjð varðar, og
suk þess aðrar skemtanir, svo
sem upplestur, söngur eða hljóm-
leikar’. Undirbúningsfundi þessum
stýrði 0. Ellingsen kaupmaður,
sem er umboðsmaður „Nord-
mannsforbundet” hér. Þar flutti
T. I. Lövland ræðismaður fyrir-
Jestur um „Einingarhugsjónina í
sögu Noregs“, einkum um at-
burðina 1905, einkar fræðandi og
skemtilegan. Er hann nafnkunnur
ræðumaður og fræðimaður og
hefjr m. a. ritað mjög mikið um
viðburði ýmsa árin 1905 og 1907,
þá er Norðmenn voru að losa
tengslin við Svía.
Það er vert að gefa félagsstofn-
un þessari gaum. Þvílíkan félags-
skap þyrftum vér tslendingar að
hafa erlendis alls staðar þar, sem
íslendingar eru saman komnir.
Kann ske kynnin af þessum nýja
félagsskap verði til þess að ýta
undir stofnun íslendingasam-
bands. X.
Sigurður Eggerz.
í blaði Sigurðar Eggerz skrifar
Sigurður Eggerz um, að Sigurður
Eggerz hafi spurt Sigurð Eggerz
að þvj, hvort Sigurð Eggerz
hafi nokkum tíma hent slikt að
tala við danska eða spænska vín-
sala.
Svaraði Sigurður Eggerz Sigurði
Eggerz, að Sigurðyr Eggerz gæti
ekki munað eftir því, að Sigurð-
ur Eggerz hefði nokkum tíma gert
slíkt.
Sagði Sigurður Eggerz enn
fremur Sigurði Eggerz, að Sig-
urður Eggerz vildi óska þess, að
Alþýðublaðið birti eitt af slíkum
viðtölum Sigurðar Eggerz við vin-
salana.
Alþýðublaðið skai með ánægju
birta þetta viðtal Sigurðar Egg-
erz við Siguxð Eggerz, er birtist
í blaði Sigurðar Eggerz, svo að
Sigurði Eggerz takist að hrista
upp „rykið“ í höfðí Sigurðar Egg-
erz, svo að hann muni eftir við-
tali Sigurðar Eggerz við vínsal-
ana — þrátt fyrir hið „umfangs-
mik!a“ starf í „Sigurdur Eggerz
Bank", eins og dönsk blöð taka
svo skemtilega til orða um bank-
ann, þar sem Sigurður Eggerz
stjórnar Sigurði Eggerz.
Serast feraítaverk ausíur í
MzkaiaMi?
Fyrir mörgum árum vildi það
slys tii í bænum Konnersreuth í
Þýzkalandi, að margir nienn slös-
uðust við húsbrune. Meðal þeirra,
sem meiddust, var ung stúlka,
Therqse Neuman að nafni. Hún
slasaðist mjög mikið og var upp
frá þvi alblind og máttlaus.
En árið 1923 breytti nokkuð um.
Hin franska nafna hennar, ka-
þólska nunnhn Thérese Neuman,
var gerð að dýrlingi 23. apríl 1923,
og þann sama dag varð Therese
Neuman í Þýzkalandi alheil. Hún
stóð upp úr rúmi sínu, sá og
gekk.
Á föstudaginn langa í fyrra
byrjuðu merkileg fyrirbrigði að
gerast á Theresu. Und opnaðist á
síðu hennar, naglaför í lófum og
iljum og smásprungur á enni og
andliti, en blóð rann úr sárun-
um. Hún leið miklar þjáningar, og
slíkt hefir endurtekið sig á hverj-
um föstudegi síðan. Therese hefir
læknað marga, er sjúkir voru, og
streyma pílagrímar víðs vegar frá
til Konnersreúth, en hún læknar
engan, sem eigi er sann-kaþólsk-
ur. Sumir álita þetta vera gróða-
brall og pretti úr gistihússeiganda
i Konnersreuth, sem græðir of f jár
á pílagrímunum, en aðrir, helzt
kaþólskir rnernq trúa því, að
kraftaveririn gerist.
Myndir af Theresu með sárin og
einum af þeim s'júklingum, er hún
hefir læknað, eru í sýningahkassa
Alþýðublaðsins.
Khöfn, FB„ 20. okt.
Stjómarskifti í Noregi biða þings.
íhaldið mælir með samsteypu-
stjórn auðvaldsflokkanna.
Frá Osló er simað: Alment er
búist við því, að stjórnarsMfti
bíði, þangað til þing kemur sam-
an í janúarmánuði. Hægriblöðin
, leggja það til, að hægrimenn,
bændaflokkur og vinstriflokkur
myndi samsteypustjórn. Vinstri-
flokkurinn virðist þessu andvíg-
ur. Vinstriblaðið „Dagbladet" álít-
ur, að vsrkamönnum beri að
mynda stjórn.
Óttinn við njósnir af hálfu Rússa.
Frá Berlín er símað: Rftssnesk-
ur lögreglumaður, sem flú’ð hafði
til Lettlands, hefir skýrt frá því,
að njósnir fari. fram af Rússa
hálfu í Lettlandi, og hafi jafnyel
lettneskir embættismenn haft á
h.endi njósnarstörf fyrir Rússa.
Heíir þetta leitt til þess, að þrjá-
tíu og þrír menn hafa verið tekn-
ir höndum og kærðir f^TÍr njósnir.
Þýzkt bókmentaféiag.
Þrósinnis heyrir maður kunn-
ingja sína kvarta um það, hve
fámennið hér úti á hjara veraldar,
andleg' deyfð og tjibreytingaleysi
hamli þroská manna. Eina ráðið
ti! þess að fylgjast nieð mehning-
arstraumum samtíðar sinnar og
ná snerting af skapandi anda og
nýjum Iffsskoðunum er að kynn-
ast ritverkum þeirra, sem fram. úr
skara.
Aðalannmarkinn er sá að velja
Mi réttra höfunda, en það kostar
mikið fé, eríiði og tíma að grafa
uppi það nýtilega úr öllum þeim
kynstrum, sem út eru gefin. Auk
þess eru ritdómar einatt óábyggi-
legir, keyptar auglýsingar.
Til þess að ráða bót á þessu
og til þess, að allur fjöldinn geti
mtt sér kaup og lestur nýtilegra
bóka um fagurfræðileg og vís-
indaleg efni, hafa allmargir af
nútímans slyngustu rithöfundum
og fræðimönnum stofnað bók-
mentafélag, sem einnig annast
bókaútgáfu. Félag þetta gefur út
rit sín á þýzku og heitÍT: „Uiíi-
versum-Biicherei fiir alle“. Áxs-
fjórðungsgjald félagsmeðlima er
Mk. 3,30 (h. u. b. kr. 14,50 yfir
árið), og fá félagsmenn fyrir þetta
gjald:
1. Mánaðarritið „Blatter fiir
alle“ með stuttum ritgerðum eftir
ýmsa ágæta höfunda um skáld-
skap, listir og vísindi. Rit þetta
er hið vandaðasta að frágangi
og skreytt teikningum og ljós-
myndum.
2. Ársfjórðungslega: Eitt skáld-
rit eba vísindarit eftir úrvalshöf-
Jimd. 1 þessum flokki verða ýmsar
bækur, sem ekki verða fáanlegar
annars staðar, að eins fyrir fé-
,lagsmeðlimi.
3. Slysatryggjngu að upphæð
5000 gullmörk.
Félagið hefir nú starfað í tæp
tvö ár og gefið út rit eftir þessa
höfunda naínkunna: Robert Tres-
sae, Max Hermann Neisse, Bal-
sac, prof. Stendahl, Chateaubriand,
Daumier (teikningar), Maxim Gor-
ki, Upton Sinclair, Egon Erwin
Kisch.
Bókaútgáfu- og rit-nefndin er
skipuð þessum rithöfundum, lista-
og fræði-mönnum: Graf Arco,
Henry Barbusse, Johannes R. Bec-
ker, dr. Adolf Behne, Fritz Brup-
bacher, próf. dr. Albert Einstein,
S. M. Eisenstein, Georga Grosz,
Carl Griinberg, Maximilian Har-
den, Alexandra Kollontay, próf.
Kathe Kollvvitz, Egon Erwin
Kisch, dr. Alfons Paquet, Erwin
- Piscator, Freiherr Schönaich, dr.
Helene Stöcker og dr. Armin T.
Wegener.
Þeir, sem vilja láta skrá sig sem
meðljmi pessa bókmentafélags,
geta annaðhvort snújð sér beint
til: Universum-Búcherei fúr alle,
Dorotheenstrasse 19, Berlin NW
7, eða til undirritaðs, sem annast
skráning nýrra félaga.
Vestmannaeyjum, 7. okt. 1927.
ísleifur Högnason.
©aiaæ.
Ungfrú Ruth Hansson danz-
íþróttakennari hélt danzsýningu
með aðstoð tveggja systra sinna
síðasta sunnudag. Sýndu þær
bæði listdanza og skemtunardanz-
ana nýju. Flestum þykir gaman
að danzi, og eins þó þeir danzi
ekki sjólíir. Þarna var líka fult
hús af áhorfendum, sem þökkuðu
skemtunina með lófaklappi. En
það er meira en skemtun að
danzi. Hann glæðir smekk fólks
fyrjr fallegum limaburði, og það
gagn geta menn líka haft af danz-
sýningu. Mér þykir rétt að vekja
athygli á þessu, og jafnframt vildi
ég óska, að oftar væri danzsýn-
ing, til dæmis, að þessi væri end--
urtekin. V. R.
Er hæyí að búa íil
afborðameDn?
Flestir munu kannast við yng-
ingaraðferðir hins pólska læknis
Voronoffs. Eitt sinn setti hann
heiminn á annan endann með
staðhæíjngum sínum um, að hann
gæti gert gamla menn og konur
ung í annað sinn, eins og
Steinach próíessor. Vísindin eru
nú búin að spreyta sig á þessu,
og það má telja svo, að þau hafi
komist að þeirri niðurstöðu, að
staðhæíing Voronoffs sé rétt. En
Voronoff prófessor er ekM aiveg
af baM dottinn með skoðanir sín-
ar um fullkomnim mannsins.
Voronoff hélt nýlega fyrirlest-
ur í Berlín, þar sem hann hélt
því fram, að hann gæti gert úr
barni, sem honum væri fengið í
hendur, afburðamann (geni).
Sagði prófessorinn, að sk.ilyrðið
til, að honum takist þetta, sé það,
að barnið hafi sýnt góða hæfi-
jteika í einhverja vissa átt. Ætlax
hann sér svo að gera á þvi upp-
skurð, og eftir uppskurð.nn seg-
ir hann að barnlð verði að stór-
miklum mun hæiara á því sviði,,
sem náttúra þess standi til.
Fyxir 19 ö'.dum í Austurheimi
eitt aivjk skeði, er seint ég g’eymi,
þá mannsins sonux var saklaus
meiddur,
með sekum tveimur á Mossi
deyddur.