Tíminn - 17.02.1962, Blaðsíða 3
Þetta eru mennlrnlr þrír, sem hafa sefið á leynífundunum með Joxe Alsírmálaráðherra Frakklands um fram
tíð Alsír. Það eru þeir Belkacem Krim (til vlnstri), hinn 39 ára gamll aðstoðarforstæðlsráðherra útlagastjórnai
Serkja, Mohamed Yazid upplýsingamálaráðherra og loks (til hægrl) Lakdar Ben Tobbal, skipuleggjandinn, sem
er innanríkisráðherra útlagastjórnarinnar. — Þeir eru í Genévé á lelð frá samningsviðræðunum.
RNADAR
ÁSTANDí
GUAYANA
NTB—London, 16. febrúar.
f dag var lýst yfir hernaðar-
ástandi í Brezku-Guayana í
Suður-Ameríku, þegar komið
hafði til allsherjarverkfalls til
þess að mótmæla hækkuðum
sköttum og skyldusparnaði.
Sir Ralp Grey landsstjóri lýsti
yfir þessu. Hann hefur einnig
beðið um, að sendar yrðu tvær her
deildir brezkra hermanna til lands
ins og er von á þeim til Guayana
á laugardaginn.
Mörg þúsund manns héldu mót-
mælafund fyrir utan þinghúsið í
höfuðbor'ginni Georgetown, en
allt talsima- og ritsímasam-
band var rofið meðan á verkfall-
inu stóð og flugvöllur borgarinn-
ar var lokaður.
Stjórnmálaandstæðingar Jagans
forsætisráðherra fullyrða, að ríkis
stjórn hans sé kommúnistasinnuð,
en hún neitar því algerlega.
Engar sovézkar
flugvélar
NTB-Berlín, 16. febrúar.
Sovézka heniámsstjómin
í Berlín liefur tekið aftur
kröfu sína um a‘ð mega nota
vissa hluta flugleiðanna
milli Vestur-Berlínar og V-
Þýzkalands til cigin afnota
í þrjár klukkustundir dag
hvern fyrir hádegi.
I mongun voru engar sov
ézkar flugvélar sjáanlegar á
þessum slóðum.
Ofsastormur
NTB-Sundsvall, 16. febr.
Ofsa’/ ;ur stormur herjaði
í dag stóran hluta Norðvest-
ur-Evrópu og olli bæði stór-
tjóní og miklum erfiðleikum
á sacngöngujm. Vitað er um
að minnsta kosti fjórar
manneskjur, sem fórust í ó-
veðrinu.
Múrsteinum rigndi á göt-
um Glasgow í Skotlandi og
viða í Englandi hrundu hús
að heilu og hálfu leyti. Á
Norðurlöndum var veðurofs
inn líka mjög mikill og
geysilegar tafir urðu á allri
umferð.
Skutu á mæðgin
NTB-Berlín, 16. febrúar.
Austur-þýzk lögregla skaut
60 skotum í dag að 25 ára
gamalli móður og fimm ára
barni hennar, sem héldu sig
uppi á svölum við mörkin
milli borgarhlutanna í Ber-
lín. Vestur-þýzkir lögreglu-
menn og brunaverðir hjálp
uðu konunni að stökkva nið
ur af svölunum, þar sem hún
hafnaði í vesturhlutanum.
Hún slapp ómeidd, en barn
ið meiddist lítils háttar. Ekk
ert skota Austur-Þjóðverj-
» anna hitti mæðginin.
Stærsti mótmæla-
fundur í Washington
NTB-Washington, 16. febr.
Um 500 stúdentar söfnuð-
ust sarnan fyrir utan Hvíta
húsið og kröfðust þess af
Kennedy Bandaríkjaforseta,
að hætt yrði við að hefja
aftur kjarnorkusprengjutii-
raunir í andrúmsloftinu.
Sumir stúdentanna fóru
hripgferð til allra 80 sendi-
ráða borgarinnar til þess að
mótmæla öllum kjarnorku-
sprengi.ngum. Þetta er fjöl-
mennasti mótmælafundur,
sem haldinn hefur verið í
Washington í 20 ár. (
Hvalveiðiskipi
hvolfdi við bryggju
NTB-Kiel, 16. febrúar.
Sovézka hvalveiðiskipinu
Vladivostok, sem átti innan
tíðar að fara í sína fyrstu
ferð, hvolfdi skyndilega í
dag í höfninni í Kiel. Margir
verkamenn innilokuðust.
Þeir náðust allir úr skipinu,
en 35 þeirra höfðu fengið
áverka. Vladivostolc er
17.000 tonna skip.
V0PNAHLÉ I ALSÍR
I L0K NJESTU VIKU
Genévé, 16. febrúar.
Verið er að leggja síðustu
hönd á samninga frönsku
stjórnarinnar og útlagastjórn-
ar Serkja í Alsír. Talið er, að
þeir verði gerðir heyrinkunnir
við hátíðlega athöfn í París
eða nágrenni eftir um það bil
10 daga. Algers vopnahlés er
vænzt í lok næstu viku.
Fyrst verður mynduð bráða-
birgðastjórn, sem á að sitja í sex
mánuði, áður en Alsír hlýtur full
komið sjálfstæði. í bráðabiigða-
stjórninni verða sjö menn, þrír
skipaðir af hvorum samningsað-
ila og svo forsætisráðherra, sem
verður valinn með samþykki bæði
frönsku stjórnarinnar og útlaga-
stjórnarinnar.
Ben Bella á oddinum
Samningarnir verða lagðir fyrir
þing serkneskra útlaga þegat í
þessari viku. Um leið og þeir
verða undirritaðir, verða Serkirn-
ir, sem eru í fangelsi í Frakk-
landi af pólitískum ástæðum látn-
ir lausir, þar á meðal hinn 45 ára
gamli A'hmed Ben Bella, sem þyk
ir líklegastur til að verða mesti
áhrifamaður hins sjálfstæða Alsír.
Samningsatriðin
Helztu atriði samkomulagsins
milli Serkja og Frakka eru tálin
vera þessi:
1. Utlagastjórnin ábyrgist líf og
eignir Frakka í Alsír, og Frakkar
munu styrkja Alsír í þess stað með
400 millj-ón dollara efnahagshjálp.
2. Skipting hinna stóru fr'önsku
jarðeigna verður ekki jafn víð-
tæk og útlagastjórnin vildi í
fyrstu. Sennilega verður aðeins
300 stærstu jörðunum skipt upp
milli smábændanna.
3. Frakkland mun halda flota-
stöð sinni í Mers-el-Kebir í tíu
ár, og nokkrum stöðvum í Sahara
þar að auki.
4. Frakkar í Alsír munu fá full-
tiúa á allar löggjafasamkundur,
þótt þeir verði áfram franskir
ríkisborgarar. Síðar verða þeir þó
að velja um, í hvoru landinu þeir
velja sér ríkisfang.
5. Útlagastjórnin lofar að lög-
sækja ekki þá Serki, sem hafa
viljað franskt Alsír áfram.
Hva8 gerir OAS?
í frönsku ríkisstjórninni eru
menn almennt bjartsýnir um, að
þessir samningar komizt klakk-
laust á leiðarenda, en enginn úti-
lokar þó möguleikann á því, að
það slitni upp úr samningunum
á síðustu stundu.
Helzta vandamálið, sem nú virð
ist blasa við, er: Ilvað taka frönsku
landnemarnir til bragðs? Engar
horfur eru á því, að leyniherinn
OAS gefist upp fyrr en í fulla
hnefana.
— ekki á uppgjafarnótunum
í dag hótaði OAS að skjóta alla
herlögreglumenn og varaliðsmenn
sem sæust á götum Algeirsborgar.
Einnig hafa samtökin skipað kaup
mönnum og veitingahúsaeigendum
að neita að láta lögreglumenn fá
nokkrar kjötvömr, og ætla þeir
þannig að æsa lögregluna gegn
hernum.
í dag var hafin sókn í barátt-
unni fyrir því að halda Alsír sem
frönsku landi. Var 24 klukkust.
verkfall boðað í því skyni. Að
sókninni stendur Auguste Arn-
ould, sem hefur stuðning 90 verka
lýðsfélaga, stúdentasamtaka og fé-
laga uppgjafahermanna.
Þótt franska stjórnin og Serkir
semji frið sín á milli, er ekki víst,
að engu skoti veríSi hleypt af eftir
það í Alsír.
þw sm mmm sjá hest mm
~ °ra''
■ ...
Ii / • Haisi ylp
J---- ,\W»OCÓíi //«
FlartMHiyMiJOO'.-bftíJón- Wl /? A
krónyr »í5a*Bt5iM 6lá ’ /> K;
...... ..7...." Olís: 16 mlltiéA lorw i \
\ ' holmlngur notkunar FrakkLT , «
aldfUuíra ALGERlA ;
|__ SAHARA
...............»1
KiarnorkuBlraunir ^
..........\
TÍMINN, laugardagur 17. febrúar 1962.
3