Tíminn - 17.02.1962, Page 12
;
!■ .
sBSík?, %€
3
I ;
P; s;
. •• '';
111
Axels Andréssonar
minnzt í Skógaskóla
Örn Indriðason varð
Akureyrarmeistari
Akureyrarmót í skautahlaupi
fór fram sl. sunnudag og mánu-
dag. Keppnin fór fram í Stórhólm
anum og hófst ld. 2 á sunnudag,
en seinni hlutinn kl. 9 á mánu-
dagskvöld.
Keppendur voru 13, allir frá
Skautafélagi Akureyrar.
Úrslit urð'u þessi:
500 metrar:
Örn Indriðason 50.0 sek.
Skúli G. Ágústsson 50.7 sek.
Jón D. Ármannsson 52.9 sek.
1500 metrar:
Örn Indriðason 2.42.0 sek.
Skúli G. Ágústsson 2.47.7 sek.
Sveinn Kristdórsson 2.55.0 sek.
3000 metrar:
Örn Indriðason 5.43.3 mín.
Skúli G. Ágústsson 5.43.3 mín.
Sveinn Kristdórsson 6.06.6 mín.
Skúli G. Ágústsson 10.42.5 mín.
Sveinn Kristdórsson 11.10.0 mín.
Akureyrarmeistari í hraðhíaupi
á skautum 1962 varð því Örn Indr
iðason, SA, með sigur á öllum
vegalengdum.
STIG:
Örn Indriðason 221.647 stig.
Skúli G. Ágústsson 230.417 stig.
Sveinn Kristdórsson 240.133 stig.
500 metrar, B-fl.:
Hallgrímur Indriðason 59.8 sek.
Skúli Lórenzson 61.2 sek.
Heimir Tóm i son 69.4 sek.
1500 metrar, B-fl.:
Skúli Lórenzson 3.12.9 mín.
Hallgr. Indriðason 3.15.5 mín.
Heimir Tómasson 3.54.4 mín.
5000 metrar:
Örn Indriðason
STIG, B-fl.:
Hallgr. Indriðason 124.633 stig.
Skúli Lórenzson 125.500 stig.
10.04.3 mín. Heimir Tómasson 147.533 stig.
1
Heimsmeistarakeppni í skauta
hlaupum hefst í Moskvu í dag
Heimsmeistarakeppnin í skauta1 harðri keppni, og ólíklegt að Hol-
hlaupum hefst í dag á Leninleik- j lendingum takist að verja titil
vanginum i Moskvu og eru komn sinn.
ir til mótsins allir beztu skauta-
hlauparar heimsins með heims-
Rússar eiga harðsnúnu liði á að
meistarann van der Grift í broddi skipa og. meðal keppenda þeirra
fylkingar. Búizt er við geysi- eru Merkulov, Evrópumeistarinn
frá Osló-mótinu, Boris Stenin og
Viktor Kositjkin, sem er talinn
beztur Rússanna. Hann keppti
ekki í Osló, en hefur undirbúið
sig vel fyrir þessa keppni.
Kositjkin varð Ólympíumeistari í
5000 m. hlaupi í Squaw Valley —
og annar í 10.000 m. hlaupinu,
með aðeins lakari tíma en Knud
Johannesen. Þá verður sprett-
hlauparinn frægi, Grísjin, í rúss
neska liðinu.
Norðmenn og Svíar senda
jmarga góða menn í keppnina, og
gera Norðmenn sér vonir um að
j Knud Johannesen verði framar-
j lega, en það fer þó mikið eftir
! því hvernig ísinn verður. Knud
er þungur hlaupari og beztur á
hörðum ís. Frá Danmörku er einn
keppandi, Kurt Stillle. Frakkinn
Kouprianoff er talinn hafa mjög
mikla möguleika til sigurs í mót-
inu, en hann er afar jafn hlaup
ari og ræður jafnt við sprettinn
sem löngu hlaupin.
En einn keppandi ,.í mótinu
mun þó draga að sér hvað mesta
athygli, en hann keppir nú í fyrsta
sinn í heimsmeistarakeppninni, og
var algerlega óþekktur fyrir nokkr
um dögum. Það er Kanadamaður-
inn Poul Enok, sem setti nýlega
heimsmet Í 3000 m hlaupi á mót
inu á Harmi. Hann hljóp vega-
lengdina á 4:37,2 mín., sem er
frábær árangur. En Enok náði
einnig ágætum árangri í öðrum
greinum t.d. hljóp hann 5000 m. j
U 8:16,5 mín. en datt í hlaupinu,!
Fyrir nokkrum vikum fór fram
í Skógaskóla undir Eyjafjöllum
afhending verðlaunabikars að af-
loknu haustmóti skólans í knatt-
spyrnu. Bikar þcnna, sem er hinn
ágætasti gripur, gáfu nokkrir eldri
nemendur skólans fyrir fáum ár-
um. Skal hann vera farandgripur
og er keppt um hann á hverju
hausti eða fyrri hluta vetrar. f
skólanum eru fimm knattspyrnu-
lið og tóku þau öll þátt í mótinu.
Að þessu sinni bar A-lig 3.
bekkjar sigur úr býtum og varð-
veitir því bikarinn góða út yfir-
standandi skólaár. Jón Viðar Magn
ússon, fyrirliði hinna sigursælu
knattspyrnumanna, veitti bikarn-
um viðtöku við hátíðlega athöfn.
íþróttakennaii skólans, Snorri
Jónsson, aðstoðaði við fram-
kvæmd mótsins og var dómari á
kappleikjunum.
Jón R. Hjálmarsson, skólastjóri,
minntist við þetta tækifæri með
stuttu ávarpi hins vinsæla knatt-
spyrnukennara Axels Andréssonar
og sýnir þetta vel, að þessi nýliði
er til alls Hklegur. Þá má geta
þess, að frá Kína koma nokkrir
menn, sem hafa náð mjög at-
hyglisverðum árangri.
Myndirnar hér á síðunni feng-
um við sendar frá Politiken, en
þær eru frá Evrópumeistaramót-
inu í Osló. Á þrídálka myndinni
eru verðlaunahafarnir í 5000 m.
hlaupinu. í miðjunni er sigurveg
arinn Robert Merkulov, til hægri
Knud Johannesen, Noregi, og til
vinstri Invar Nilsson, Svíþjóð. og
Andre Kouprianoff, sem urðu
jafnir í þriðja sæti. Á minni mynd
inni sést Robert Merkulov í 1500
m. hlaupinuó.
sem lézt á s.I. sumri. Mælti skóla-
stjóri á þessa leið:
„Axel Andrésson hélt fyrsta
námskeið sitt í Skógaskóla vetur-
inn 1955 og kenndi síðan hér í 3
vikur til mánaðartíma á hverjum
vetri að einum undanteknum. Hér
hjá okkur var Axel ætíð hinn
mesti aufúsugestur og mikill til-
hlökkun ifkjandi í skólanum, þeg-
ar von var á honum. Enda var
koma hans hin ánægjulegasta til-
breyting.
Axel var frábær kennari,
skemmtilegur og duglegur. Stund-
vís var hann með afbrigðum og á-
kveðinn í framkomu. Hann brýndi
fyrir -nemendum sínum nauðsyn
reglusemi, drengskapar og fagurr-
ar framkomu. Hann ræddi við þá
um gildi íþróttanna og fræddi þá
um það, hvernig það fer saman,
að duglegir íþróttamenn hljóti
jafnan að vera drengir góðir. Hug
ur hans var sífellt vakandi fyrir
nauðsyn góðrar þjálfunar og hann
gerði sér grein fyrir og kenndi
nemendum sinum, að enginn get- *
ur vænzt góðs árangurs, nema að
leggja mikið af mörkum í andlegri
og líkamlegri þjálfun og heilbrigð-
um lífsvenjum. Hugur hans var all
ur hjá æskunni og henni helgaði
hann starfskrafta sína mikinn
hluta ævinnar. Hann unni ungu
fólki og fann gleði í því að kenna
því og hjálpa.
Allir, sem þekktu Axel Andrés
son, og þá sérstaklega þeir fjöl-
mörgu, sem voru n^mendur hans
á námskeiðum víða um land, fyrr
og síðar, sakna hans sem duglegs
kennara. góðs vinar og mikils
drengskaparmanns. Hans er gott
að minnast. Friður sé með hon-
um“.
Að loknu ávaipi skólastjóra
heiðruðu nemendur og kennarar
minningu hins látna vinar síns og
skólans með því að risa úr sætum.
TÍMINN, laugardagur 17. febrúar 1962.
É . MMM * ' ''. || ■ j
íi«rirtTTir*i k rjf # j,l»RpTTIRvV # IÞRO TTIR iiiiin
RITSTJÓRI HALLUR SIMONARSON