Tíminn - 27.02.1962, Qupperneq 2

Tíminn - 27.02.1962, Qupperneq 2
Prédikar, skrifar bækur og syngur Hvarvetna, þar sem hinn 27 ára gamli ameríski söngv- ari og leikari, Pat Boone, kemur tram, ávinnur hann sér aðdáendur í þúsundatali. Drengjaleg og heillandi fram koma hans og fjörlegur söng ur hans, sem þó er laus viS allan æsing og yfirborðshátt, fellur jafnt ungum sem göml um vel í geð. Hrifnæm kven- hjörtun slá hraðar, ef Pat Boone er einhvers staðar ná- lægur. En Pat Boone er fyrst og fremst maður, eiginmaður konunnar sinnar og faðir barnanna sinna. Heimili sitt og fjölskyldu setur hann ofar öllu í lífinu, og sá eig- inleiki hefur ekki sízt átt þátt í því að skapa þennan vingjarnlega og hjartkæra Pat, sem öllum lík- ar vel við. Prédikar í kirkju Pat Boone fæddist í Jackson- ville í Florida 1. júní 1934. Faðir hans er byggingameistari og sunnudagaSkólakennari. Þegar Pat var sex vikna gamall, flutt- ist fjölskyldan til Donelson í Tennessee. Þar bjó hún, unz Pat var sex ára gamall, og þegar á þeim árum var Pat tekinn að sækja kirkju. Þrisvar sinnum í viku sat Pat litli á fjölskyldu- bekknum ásamt foreldrum sínum og systkinum. Eðlilega veittist svo litlum dreng erfiðlega að sitja grafkyrr, meðan á guðsþjónustu stóð, og hlusta með eftirtekt á orð prests- ins, og það kom oft fyrir, að hann kom auga á annan lítinn dreng, sem -sat hjá foreldrum sínum; hinum megin í kirkjunni, og þá tók Pat að benda og gefa frá sér hin furðulegustu hljóð til þess að vekja athygli félaga síns á sér, en það hafði vitanlega truflandi áhrif á presfinn. Þá reis frú Boone á fætur og leiddi son sinn fyrir allra augum fram eftir kirkjunni og alla leið út á kirkjutröppur, þar sem þessi vanstillti litli drcngur, sem ekki gat setið kyrr í guðshúsi, varð að híma messuna á enda, og þegar fjölskyldan kom heim, var ekki laust við, að Pat fengi ákúrur. En Pat segir sjálfur nú, að í kirfcjunni hafi hann einmitt þroskað með sér hæfileika til ein beitingar og hefur það verið hon um til mikils gagns á skólaárun- um. Síðar þróaðist svo með hon- um raunverulegur áhugi á trú- málum, og nú líður enginn sunnu dagur svo, að hann fari ekki á- samt konu sinni og börnum til kirkju. Hann m. a. s. prédikar oft sem gestur við kirkjur. Söng í f jósinu Mesta ánægja Pat Boone á æskuárunum var að leika ræn- ingja og nermenn. Þrisvar sinn- um brotnaði á honum nefið, þeg- ar hann var að leika Tarzan, og oftar reyndist þörf fyrir kunn- áttu móður hans, sem var hjúkr- unarkona, áður en hún giftist. Hið rétta nafn Pats er Charles Eugene, en móðir hans hafði ósk að svo innilega eftir dóttir, sem átti að heita Patricia, að hún, þeg ar hún svo eignaðist son, kallaði hann Pat, svona eins og til þess að bæta upp þessi mistök. Og yngri bróðir hans var kallaður Nick, af því að móður þeirra fannst nöfnin Pat og Nick eiga svo vel saman. Nick hefur einnig sungið inn á plötur undir nafn- inu Nick Todd og þykir allgóður. Þegar Pat var sex ára að aldri, fluttist Boone-fjölskyldan enn bú ferlum, að þessu sinni til Nash- ville, sem einnig er í Tennessee, og þar eyddi hann öllum sínum uppvaxtarárum. Hann var þá þeg ar farinn að hafa gaman af að syngja, og hann dreymdi um að verða einhvern tíma frægur söngvari. Þar sem hann var elzt- ur af systkinunum, kom það í hans hlut að mjólka einu kúna, sem fjölskyldan átti. Hún hét því yndislega nafni Rosemary, og þegar hann sat og mjólkaði Rose mary, söng hann, svo að undir tók í fjósinu. Hann dreymdi, að hann væri að syngja fyrir fullt hús áheyrenda. Hann dreymdi einnig um að syngja inn á plöt- ur, og hann dreymdi um að fara I háskóla. Nokkrum árum síðar rættust allir þessir draumar. Pat Boone með dætrunum sínum fjórum Ljóðið um lindina (í tilefni af ritsmíð ungs manns um atómljóð). Lindin eina, lindin eilífa er langt — óralangt ofar byggðum sögðu þeir. sem ferðazt höfðu langvegu á atomaldarskóm. sögðu þeir, Hana varð eg að finna. Þar — aðeins þar er svölun að fá Fyrir dögun hélt ég úr byggðum, fjarlægðist heimahaga. Lindina vildi eg finna. Hana varð eg að finna. Lindina einu Eg leitaði og leitaði um Almenninga, um Hágöng og Bláfjöll. Eg fór fram hjá Eilífsvötnum, óð yfir Köldukvisl, stökk yfir Bunulæk. Þreytan lagðist á herðar mínar. þorstinn tók fyrir kverkar mér, en eg hélt áfram. Úr Lindinni einu vildi eg drekka. Fram undan var Apalhraun svart og úfið. Inni í þvi miðju ’ var Lindin myrk og djúp — leyndardómsfull. (Framh. á 13. síðu.i Pat og Shirley Hamingjusamt hjónaband Þegar Pat var kominn í háskól- ann, kom í Ijós, að tíminn var hans versti fjandi. Hann varð frægur fyrir að koma of seint á morgnana og þegar tímar voru úti á daginn, fór hann á íþrótta- völlinn og kom ekki heim, fyrr en liðið var á kvöld. Hann kom nokkrum sinnum fram á söng- skemmtunum, en vakti enga sér- staka athygli. Á þessum árum kynntist hann núverandi eigin- konu sihni, Shirley Foley, og gengu þau í hjónaband, þegar Pat var aðeins 19 ára. Þau eru mjög hamingjusöm og eiga fjórar dætur. Fyrir einskæra tilviljun komst Pat í samband við forstjóra þekkts hljómplötufyrirtækis, er gaf Pat tækifæri til að syngja inn á eina plötu hjá fyrirtæki sínu. Annað lagið á plötunni hét „Two Hearts“, sem varð fádæma vin- sælt á svipstundu. Er þá ekkl að sökum að spyrja, að Pat söng inn á hverja plötuna af annarri, og vinsældir hans jukust ört. Hann fiuttist með fjölskyldu sína til New Jersey, og ekki leið á löngu," unz kvikmyndatilboðin tóku að berast í stórum stíl. Diskarnir of dýrmætir Nú býr Pat Boone ásamt fjöl- s-kyldu sinni í Hollywood, og hann hefur stöðugt jafn mikið að geía. Hann er fádæma vinsæll af kunningjum. Og ekki virðast vin- sældir ’nans sem söngvara fara minnkandi. Einhver vinsælasta plata hans, „Love Letters in the Sand“, hefur selzt í meira en 3 milljónum eintaka. En Pat lætur sér ekki nægja að syngja söngva, hann semur þá einnig, Og auk þess hefur hann skrifað bækur. Hann fær daglega bréf í tugatali, sem hafa að geyma spurningar af ýmsu tagi, aðallega varðandi ung dóminn nú á dögum. Hann hefur safnað öllum þessum spurning- um saman og svarað þeim í tveggja binda bók, sem er skrif- uð í eins konar sjálfsævisögu- formi. Og nú fljótlega er von á nýrri bók frá Pat Boone, sem heit ir „A Real Christmas". Pat vinnur yfirleitt ekki minna en 10 tíma á dag. En kvöldunum vill hann helzt eyða heima hjá sér eða einhvers staðar með konu sinni. Shirley finnst ánægju. legt, að Pat sitji hjá henni í eld- húsinu, meðan hún þvær upp eft ir matinn. En hún vill ekki, að hann hjálpi henni, til þess eru diskarnir of dýrmætir, segir hún. Þau halda sjaldan stórkostleg samkvæmi, en það er oft gest- kvæmt hjá þeim. Tíðasti gestur- inn mun vera Elvis Presley. Þeim hjónum þykir mjög gam an að fara stöku sinnum saman út að borða og síðan fara þau gjarnan í kvikmyndahús, þar sem þau vilja helzt sitja á aftasta bekk og haldast í hendur eins og í gamla daga. Hvorugt þeirra reykir eða drekkur, Shirley af því að henni finnst það ókven- legt, Pat af því að hann segist þekkja svp mörg dæmi þess, að úfengis- og tóbaksneyzla hafi eyði lagt menn. Hopað fyrir jákvæSri sfjórnarandstödu Ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp um að lán úr hús- næðism'álastofnun ríkisins verði hækkuð um 50 þús. krón- ur, þannig, að hámarkslán verði 150 þús. krónur á íbúð í' stað 100 þús. króna. — Eins og margoft hefur verið sýnt frain á hér í blaðinu, er ástand byggintgarmála almennings orð ið slíkt eftir áhrif „viðreisn- arinnar", að ókleift er manni með meðaltekjur, að eignast þak yfir höfuðið. Verð 'á meðal íbúð hefur hækkað um á annað hundrað þúsund krónur og greiðslubyrði þeirra sem hundr að þús. krónur hafa Uparaö saman áður en þeir leggja út í það ævintýri að byggja sér íbúð, hefur aukizt um 70% á ári. Eina lánið, sem almennum húsbyggjendum er tryggt, hús- næðismálastjórnarlán, hrökk ekki einu sinni orðið fyrir hækkun þeirri, sem orðið hef- ur á bygigingarkostnaði meðal- íbúðar frá 1958. — Á undan- förnum þingum hefur Jón Skaftason og fleiri þingmenn Framsóknarflokksins flutt frum varp um að hámark lána úr húsnæðismálastjórn yrði hækk að úr 100 þús. krónum í 200 þús. Þeta frumvarp hefur ekki fundið náð hjá þingmeirihlut- anum, þótt mjög væri í hóf stillt og um slíkt réttlætismál að ræða, að enginn gat þrætt óefni stefndi, ef ekki yrði að fyrir hina brýnu þörf og að í gert. En þótt daufar yrðu und- irtektirnar á Alþingi, þá fann þetta frumvarp mjög sterkan hljómgrunn með þjóðinni, svo sterkan, að stjórnin hefur nú neyðzt til að láta undan síga fyrir hvassri ádeilu Framsókn arflokksins, markvissri baráttu misserum saman í þeirn krafti, sem samstillt almenningsálit getur veitt. Nú eru bæjar- og sveitar- stjórnarkosningar í nánd og þetta undanhald stjórnar- flokkanna nú sýnir ef til vill hvað bezt, hve mjög þeir óttast fylgisaukningu Framsóknar- flokksins í þeim kosningum. Þetta er einnig ábending til Framsóknarmanna um að þeir séu á réttri leið og baráttan mun bera árangur, ef þrotlaust verður unnið ,og stjórnarflokk arnir knúðir skrefi fyrir skref frá því markmiði, að skapa hér þjóðfélag fárra ríkra ,er hafa öll ráð margra fátækra í hendi sér. — 50 þús. króna hækkun byggingarlána er rcyndar ekki einu sinni upp í hálfa hækkun byggingarkostnaðarins, en þetta mjakast meðan rétt miðar. Benedikt Gröndal ræðst í Alþýðublaðinu á sunnudag harkalega að Hermanni Jónas- syni og Framsóknarflokknum fyrir að gera samþyklct uim brottför varnarliðsins og segir, að dr. Kristinn Guðmundsson hafi orðið sér til skammar með því að sækja ráðherrafund Atlantshafsbandalagsins þá um árið. Menn fara nú að gerast ýmsu vanir varðandi Alþýðu- blaðið og ritstjóra þess, en nú tekur í linjúkana. Mikið er um komuleysi Alþýðufloksins orð- ið. Hve rækilega hefur ekki verið skorið á milli fortíðar- innar og þess, sem nú er f þeim flokki. Það voru ekki Framsóknarmenn einir, sem gerðu þessa samþykkt. Þing- menn Alþýðuflykbsins greíddu henni allir atkvæði. 1 ölk í Guílbringu- og Kjósarsýsia er heldur ekki búið að glcyma (Framhalo s vl?.n 2 TÍMINN, briðiudaginn 27. fc-brúar 1962

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.