Tíminn - 09.03.1962, Side 3
35 far-
ast i
Atlants-
éveðri
NTB-Portsmouth, Virginia,
8. marz.
Að minnsta kosti 35 manns
hafa farizt og 6000 manns
misst heimili sín í einu mesta
Fárviðri 40 ára, sem nú geng-
ur yfir Atlantshafið, Á austur-
strönd Bandaríkjanna hefur
skaðinn orðið mestur og er
metinn á 100 milljónir dollara.
Fjöldi skipa lenti í erfiðleikum
undan strönd Bandaríkjanna. Olíu
skipið Gam frá Liberíu brotnaði í
tvennt og var búizt við, að það
sykki á hverri stundu undan Norð-
ur-Carolina. Mestum hluta áhafn-
arinnar hafði þá verið bjargað um
borð í nærstödd skip, sem komu
til hjálpar. Skrokkur amerísks
vitaskips beyglaðist allur, er skip-
ið fékk á sig 10 metra háa sjói.
Fleiri skip höfðu beðið um aðstoð.
í Englandi á strönd Cornwall
braut veðrið varnargarða, svo að
sjórinn streymdi inn í þorpin
Penzance og Newlyn. Hundruð
manna urðu að flýja úr húsum
sínum, en sjórinn velti um götu-
Ijósunum og fyllti kjallarana af
sandi. Járnbrautarstöð Penzance lá
undir vatni.
Á Frakklandsströnd náðu flóð-
bylgjurnar 15 metra hæð. Þær
brutu vatnsleiðslur og rafleiðslur
og eyðilögðu vegi sums staðar.
Þetta er ítalski blaðamaður-
inn Nicola Caracciolo, sem
einn allra ítölsku starfs-
bræðra sinna í Alsír hunds
aði hótanir leynihersins
OAS, og fór ekki úr landi,
þrátt fyrir skipanir OAS,
sem fannst blaðaskrif ítal-
anna vera sér neikvæð. Hin-
ir ítalamir 11 höfðu sig á
brott, en Carcciolo sat sem
fastast í Algeirsborg, unz
blað hans þorði ekki öðru
en að skipa honum að koma
beim.
Fylgzt er af
samningu
Þótt minna sé rætt um Efna
hagsbandalag Evrópu nú en
fyrir nokkrum vikum, er víða
um Evrópu þingað um það af
kappi. Ýmis lönd eiga viðræð-
ur við bondalagið um mögu-
leika á fullri aðild eða ein-
hvers konar aukaaðild. Einnig
þinga sömu lönd sín á milli um
samræmdar aðgerðir til þess
að standa traustari fótum
gagnvart bandalaginu. Loks
eru stöðugir fundir innan EBE
sjálfs um áframhaldandi þró-
un þess, en þar ber víða margt
í milli, einkum um stefnpna í
landbúnaðarmálum.
■ A miðvikudaginn undirrituðu
Bandaríkin og EBE mjög víðtækan
samning um gagnkvæma frjálsari
verzlun, sem meðal annars þýðir
talsverðar tollalækkanir á ýmsum
vörum. Verðmæti þeirra vara, sem
tollar verða lækkaðir á, verður um
2800 milljónir dollara á ári.
Stærsti liðurinn eru bílar og vara-
hlutir í þá.
Hlutlausu ríkin þinga
Sérfræðingar frá hinum hlut-
lausu ríkjum Fríverzlunarsvæðis-
ins, Svíþjóð, Austuiríki og Sviss,
eru nú á fundum í Rötvik í Dal-
arna i Svíþjóð til þess að ræða
samningana við EBE. Þessi þrjú
ríki hafa fyrir nokkuð löngu ákveð
ið að samræma allar aðgerðir sín-
ar í sambandi við EBE. Reikna
þau með því, að sem heild nái þau
hagstæðari samningum, en öll hafa
þau farið fram á samninga um
aukaaðild en ekki fulla aðild. Þau
hafa m. a. litinn áhuga á stjórn-
málalegu einingunni, sem EBE-
ríkin eru fylgjandi.
Sumir telja einnig, að frumvarp
sérfræðinganefndar Norðurlanda-
ráðsins, sem birtist 16. febniar s. 1.
um miklu nánari samvinnu Norður
landa á sem flestum sviðum, sé
meðal annars til að treysta bönd
þessara ríkja, áður en þau fara að
semja hvert í sínu lagi við EBE.
Þótt norræn samvinna hafi áram
saman verið ofarlega á baugi, er
þetta í fyrsta sinn, sem formlegt
uppkast að heildarsamningi er
gert.
Erfiðar viðræSur Breta
Þing Friverzlunarsvæðisins sat á
fundum í Geneve um síðustu helgi.
Þar lagði Heath, aðstoðaratanríkis
ráðherra Breta,. fram skýrslu um
viðræður lands síns við EBE. A
þessum fundum var saruþykkt að
halda áfram að vinna að tollalækk
unum innan Fríverzlunarsvæðisins,
þótt þessi lönd séu nú að semja
við EBE.
Viðræður Breta við EBE hafa
nú staðið yfir mjög lengi. Eins og
búizt var við í upphafi, hafa þær
dregizt talsvert á langinn, enda
ber sums staðar talsvert á milli.
Bretar hafa líka átöðugt samband
við Samveldisríkin, þar sem þau
eiga mikilla hagsmuna að gæta í
Öryggi flugvalla
(Framhald at t síðu).
ófulinægjandi og óviðunandi að-
staða til að slökkva eld, ef með
þarf, og er það í sannleika sagt
há prósentutala. Þó að tækninni
fleygi fram og öryggið aukist ár
frá ári jafnt í sambandi við flug
samgöngur og annað, er hættan
á slysförum og mistökum alltaf
fyrir henjji, og þess vegna hnykkir
mönnum við, þegar þeir uppgötva
að öryggisútbúnaður er ýmist eng
inn eða ófullnægjandi á 92 af þeim
96 stöðutr, bir' sem þeir eiga kost
á að lenda. Þetta er svo alvar-
legt ástand, að meðan það er ó-
breytt eru flugvellir þessir næst-
um lokaðir, hvað örygginu viðvík-
ur.
sambandi við mögulega inngöngu
Breta í EBE.
— sem beðið er me3
eftirvæntingu
Flest rikin, sem sótt hafa um
viðræður við EBE, fylgjast af
áhuga með viðræðum Breta við
bandalagið. Á árangri þeirra við-
ræðna veltur t. d. mjög afstaða
Danmerkur og Noregs, sem einnig
hafa sótt um viðræður, sem miði
að fullri aðild.
Einnig Svíar fylgjast vel með
þessum viðræðum. Telja þeir, að
heppilegur árangur af samningum
Breta og ekki síður Bandaríkja-
manna við EBE geti ef til vill leitt
til alþjóðlegra og siðar bindandi
forms á bandalaginu.
Ósamkomulag innan EBE
Viðræðurnar við EBE eru erfið-
ari fyrir þá sök, að ekki hefur
náðst fullt samkomulag innan
bandalagsins um mörg grundvall-
aratriði. Stendur deilan venjulega
milli Frakklands og Vestur-Þýzka-
lands, bæði í landbúnaðarmálum
og öðrum málum. A þriðjudaginn
var haldinn fundur í ráðherraþingi
bandalagsins um frekari tollalækk
anir, en samkomulag náðist ekki,
svo að málinu var frestað til 21.
marz.
Spánn í EBE?
Spánn hefur nýlega sótt um við-
ræður við EBE um aðild. Sú um-
sókn hefur vakið talsverða athygli
á Vesturlöndum, þar sem Spánn
er oftast talinn einræðisríki. Jafn-
aðarflokkar og aðrir vinstri flokk-
ar í EBE-löndunum hafa mótmælt
því, að Spánn verði tekinn inn, en
vestur-þýzka stjórnin er hins vegar
talin því fylgjandi. Ráðherraþing
EBE veitti á þriðjudaginn umsókn
Spánar viðtöku, en nokkuð kulda
legar en umsóknum annarra ríkja.
NIÐU RLAGNINGAR-VERK-
SMIDJA Á SIGLUFIRDI
í gær tók til starfa á Siglu*
firSi ný verksmiðja, niðurlagn-
ingarverksmiðja Síldarverk-
smiðja ríkisins, verksmiðju-
stjórinn hefur verið ráðinn
ÓJafur G. Jónsson.
Verksmiðjan, sem nú tók til
starfa, er aðeins hluti af enn
stærri verksmiðju, og er bygging-
in einn fjórði af því, sem siðar
mun verða. Teikningar gerði Sig-
valdi Thordarson arkitekt, en Páll
Jónsson sá um byggingarfram-
kvæmdir, og var byggingin reist
á 5 mánuðum.
í þessari nýju niðurlagningar-
verksmiðju er ætlunin að fram-
leiða gaffalbita í 5 mismunandi
kryddsósum: vínsósu, lauksósu,
tómatsósu, dillsósu og ávaxtasósu.
Notaðar verða 2 dósastærðir, 40
gr og 90 gr. Einnig verða lögð
niður heil flök í vinsósu í 2 og
18 flaka dósum.
Dósiraar eru framleiddar I
Stavangri, miðar litprentaðir í 4
litum, en teikningu og áletrun
gerði Atli Már. Vörumerkið er
Sigló, og var það valið með það
fyrir augum, að minna fólk á þann
stað, sem um áratugi hefur verið
miðstöð síldariðnaðár.
Sildarvei'ksmiðjur rikisins fengu
norskan sérfræðing, Bent T. Björn
sen frá Stavangri til þess að kynna
fólki handbrögð við flökun og
skurð síldarinnar,- en sérfræðing-
ur þessi hefur um margra ára
skeið unnið við niðurlagningar-
vei'ksmiðjur i Noregi.
Síldin til
Síðastliðið sumar var sild sér-
staklega valin til þessarar fram-
leiðslu, sem nú er að hefjast, en
ætlunin er að leggja niður um
400 tunnur. Fyrst \j stað mun aðal
lega vera um framleiðslusýnishorn
að ræða, og verða þau send til út-
landa, én einnig mun eitthvert
magn verða boðið til sölu á inn-
lendum markaði.
Sá maður, sem mest hefur séð
um framkvæmdir við undirbúning
og byggingu verksmiðjunnar, er
Viihjálmur Guðmundsson, tækni-
legur framkvæmdastjóri Síldar-
verksmiðja ríkisins. Kostnaður við
þessar framkvæmdir mun vera orð
inn 2 og hálf milljón króna.
Vilhjálmur bauð fréttamönnum
að koma og líta á verksmiðjuna
í gær, og skýrði þeim frá öllum
gangi mála í því sambandi. Síðan
tók Sigurjón Sæmundsson, bæjar
stjóri, til máls og árnaði verk-
smiðjunni allra heilla í framtíð-
inni, og að máli hans loknu tók
Jóhann Þorvaldsson, ritstjóri Ein-
herja á Siglufirði, til máls, þakk-
aði hann fyrir liönd fréttamann-
anna boðið í verksmiðjuna og flutti
síðan árnaðaróskir frá fréttamönn
um. — B.J.
f gær voru sett nokkur
met á sundmótinu. Úrslit í
200 m. skriðsundi, Christer
Bjarne 2.11.0, II. Guðm.
Gíslason 2.13.4. 200 m.
bringusund karla Hörður B.
ÍR. 2.39.0, sem er íslands-
met. Guðan Gíslason setti
íslandsmet í 200 m. fjór-
sundi karla, 3.25.7. Hann
setti einnig íslandsmet í 50
m. flugsundi á 29.5 sek.
Bjarne vann hann á 29.2
sek. Drengjamet í 50 m.
flugsundi setti Davíð Val-
garðsson frá Keflavík á
30.8 sek.
Sekt
og
strand
Réttarhöld í máli skipstjórans á
enska togaranum Ross. Archer
héldu áfram í fyrrakvöld þar til
kl. að ganga 1, og viðurkenndi
skipstjórinn sekt sína.
Albert Frederich Hilldrith skip
stjói’i viðurkenndi öll ákæruatriði,
og kvaðst hann harma framkomu
sína og biðjast afsökunar. Málsbæt
ur voru þær, að hann hafði drukk
ið lítið eitt af áfengi eftir komuna
til Siglufjarðar, án þess þó að hafa
talið sig vera ölvaðan. Einnig
kvaðst hann hafa verið illa fyrir-
kallaður eftir að hafa staðið í
brúnni 12 tíma vegna óveðurs og
vélarbilunar, en togaiinn kom inn
til Siglufjarðar til þess að láta
gera við vélina.
Réttarhöldunum lauk síðan seint
í gær, með því, að skipstjórinn
var dæmdur í 10.000 kr. sekt, og
látinn laus mcð þvi að hann
greiddi hana. Geoffrey Roberts, sá
sem veitti Siglfirðingnum áverk-
ann með flösku var dæmdur í 3000
kr. sekt og 6 þús. króna skaðabæt-
ur fyrir rúðubrot og áverkann,
sem hann veitti piltinum. En öðr-
um skipsmönnum fjórum að tölu,
sem einnig tóku þátt í áflogunum
fyrir utan Diddabar, var veitt á-
minning.
Togarinn Ross Aroher sigldi svo
frá Siglufirði um kl. 20 í gær-
kvöldi og hélt út á fjörðinn, en
þegar fréttaritari blaðsins á Siglu
firði hafði tal af blaðamanni um
klukkan 21, sagði hann að togar-
inn væri strandaður fyrir austan
fjörðinn.
Hafði hann tekið niðri stuttu
eftir að hann fór frá Siglufirði.
en tveir bátar, Hringur og Hrefna
voru komnir á strandstað, og hugð
ust reyna að draga hann á flot.
B.J.
T í MIN N, föstudaginn 9. marz 1962
3