Tíminn - 09.03.1962, Page 4
Skymflhjálp
í sveitunum
Canaveralhöfði, 7. marz.
Héðan var í dag skotið gervi-
tungli, sem á að taka betri mynd
ir af sólinni en hingað til hafa
fengizt. Það mun einnig veita ýms
ar þarfar upplýsingar um sólina,
bæði um sólbletti og einnig um á-
hrif sólar á geimför og geimfara.
Læknaskipti
Blönduósi, 2. anarz.
Læknisskipti fara nú fram á
Blönduiósi, og mun Hannes Finn-
bogason, sem hefur verið þar lækn
ir að undanförnu, hætta, og í hans
stað kemur Ólafur Guðmundsson. '
Hannes Finnbogason hefur verið
læknir á Blönduósi undanfarin 2
ár og notið þar mikilla vinsælda.
Þykir mönnum ill't að sjá hann
hverfa á brott, enda er hann talinn
mjög góður skurðlæknir. Hannes
mun nú taka við störfum á Lands-
spítalanum.
í stað Hannesar kemur nú Ólaf-
ur Guðmundsson, sem hefur stund
að nám í Svíþóð undanfarin 6 ár.
T í MIN N, föstudagiim 9. marz 1962
r
Búnaðarþing hefur samþykkt
j ályktun varðandi skyndihjálp
við heimilisstörf í sveitum,
þar sem stjórn Búnaðarfélags
íslands er falið að láta gera til
raun 1 þessa átt.
Mál þetta var tekið til umræðu
samkvæmt erindi Hafsteins Snæ-
lands, en í erindi hans er þessari
skyndihjálp lýst þannig, að hana
eigi að veita vegna veikinda eða
annarra forfalla fyrirvinnu á heim
ili, og að sú hjálp eigi að standa
í allt að tíu daga. Að þekn tíma
liðnum, þurfi heimilið aðstoðar við
lengur, á annars konar hjálp að
leysa hina af hólmi, enda tíu dag
ar taldir nægja til að útvega frek
ari aðstoð.
Ályktun Búnaðaiþings hljóðar
svö:
„Búnaðarþing viðurkennir nauð
syn og mikilvægi þess, að unnt
verði að tryggja atvinnurekstur
Krakkar kveikja í
Klukkan rétt fyrir tvö í gær var
slökkviliðið kvatt að Sogabletti 7
í Reykjavík. Þar höfðu krakkar
kveikt í spýtnarusli, sem stóð uppi
við hús. Mönnum þar á staðnum
tókst að kæfa eldinn, en síðar kom
í ljós, að hann hafði náð að læs-
ast í milligólf í húsinu, sem er
járnvarið timburhús. Milligólfið
var einangrað með spónum, og
varð slökkviliðið að rifa upp tals-
verðan hluta gólfsins, til þess að
ráða niðurlögum eldsins og urðu
af því talsverðar skemmdir á hús-
inu.
Klukkan rúmlega hálffimm var
slökkviliðið síðan kvatt að Hlíð-
arvegi 5 í Kópavogi, mannlausu
timburhúsi. Krakkar höfðu kveikt
í sinu þar skammt frá, og barst
eldurinn að húsinu, töluvert magn
aður. Mátti vart tæpara standa, að
hann yrði slökktur, áður en hann
kæmizt í húsið.
Washington, 7. marz.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
tilkynnti í dag, að NATO-ríkin
hefðu yfirleitt tekið vel í að taka
þátt í banninu á útflutningi mikil-
vægra vara til Kúbu.
New York, 7. marz.
Mesti stormur vetrarins herjaði
í dag á austurströnd Bandaríkj-
anna. Þúsundir hafa orðið að yfir- i
gefa heimili sín vegna flóða. 20 |
hafa farizt og fleiri er saknað. 35
hús á Long Island skoluðust út í
sjó.
bænda og heimilisafkomu með
því að skipuleggja vinnulijálp i
forföllum húsbænda e®a vinnu-
fólks. — Fyrir því felur Búnaðar
þing stjóm Bunaðarfélags ís-
lands að stuðla að því, að eitt-
hvert búnaðarsambandanna geri
á þessu ári tilraun í þessa átt,
sem síðar gæti orðið, ef vel tæk-
izt til, fyrirmynd að frekari að-
gerðum í þessu efni.“
NEMENÐUR
SKEMMTU
FQRELDRUM
Á foreldramóti, sem fjórði
bekkur Gagnfræðaskóla verk-
náms hélt föstudaginn 2. marz,
sýndu nemendur úr þriðja og
fjórða bekk nokkra leikþætti
og þjóðdansa. Var þessu prýði-
Iega tekið hjá foreldrunum, og
virtust þeir skemmta sér prýðis
vel. Upphaflega voru þessi
skemmtiatriði flutt á árshátíð
skólans, en voru svo endurtekin
fyrir foreldrana. Guðmundur
Jónsson, nemandi í þriðja bekk
Gagnfræðaskóla verknáms, tók
þessar skemmtilegu myndir á
föstudaginn. —
Myndln efst til hægri sýnir
atriði úr Manni og konu. Lengst
til vinstri er Sigurður bóndi í
Hlíð, leikinn af Magnúsi Axels-
syni úr 4. bekk, þá sést Ástríð-
ur vinnukona, Magnea Tómas-
dóttir úr 3. bekk og lengst til
hægri er smalinn, leikiun af
Sigurði Runólfssyni úr 3. bekk.
— Myndin neðst til hægri er úr
sænskuin Ieikþætti, sem kallast
Feluleikur ástarinnar, eftir
Eskaen. Til vinstri er skáldið
Hrímfoss, Ieikið af Sigurði
Karlssyni úr 3. bekk, en til
hægri frú Blorn, en hana lék
dama úr fjórða bekk, Margrét
Oddsdóttir. Myndin neðst til
vinstri sýnir stúlkur úr 4. bekk
dansa þjóðdansa á foreldramót-
inu.
I