Tíminn - 21.03.1962, Qupperneq 5
Samvinnumenn
mikílli sókn s USA
Starfsemi samvinnufélaga í
Bandaríkjunum færist stöðugf
í aukana með hverju árinu,
sem líður. Og á árinu 1959—
'60 fengu bændur þar í landi
samvinnufélögunum meira af
afurðum sínum til sölu og
dreifingar en nokkru sinni
fyrr. Jafnframt keyptu þeir
meira af nauðsynjavörum sín-
um hjá samvinnufélögunum
en nokkru sinni fyrr.
Á árinu jókst einnig sala sam-
vinnufélaganna á landbúnaðar-
vörum um 2V2% og nam hún
9,294 millj. dollara, á sama tíma
jókst sala félaganna til bænda
um 1 y2% og komst upp í 2,408
millj. dollara.
Samvinnufélög Bandaríkjanna
eru stöðugt að færa út kvíarnar
og taka rekstur nýrra fyrirtækja
í sínar hendur. Þess má geta, að
77% félaganna sjá um sölu nauð
synjavara til handa bændum,
71% hafa með höndum sölu og
dreifingu og 60% félaganna
hafa yfir að ráða flutningabíl-
um og geymsluhúsnæði og sjá
auk þess um þurrkun og mölun
korns og um úðun akra og ann-
ars. Auk alls þessa sjá félögin
um lánastarfsemi og tryggingar
fyrir bændur.
Mjólkurvörur eru stærsti lið-
urinn í s'öiu samvinnufélaganna
Sviptur mál-
flutningsrétti
Fyrir nokkru var kveðinn
upp dómur í Hæstarétti í opin-
beru máli, sem ákæruvaldið
höfðaði gegn Einari Gunnari
Einarssyni hdl. og Andrési Val
berg, sölumanni, vegna brota
á almennum hegningarlögum.
Voru þeir báðir dæmdir í 4
mánaða fangelsi, og ennfrem-
ur var Einar Gunnar sviptur
rétti til málflutnings fyrir hér-
aðsdómi, en þeim einnig gert
að greiða sakarkostnað í hér-
aði og áfrýjunarkostnað fyrir
Hæstarétti.
Andrés Valberg var starfsmað-
ur á fasteignasöluskrifstofu héraðs
dómslögmannanna Einars Gunn-
ars Einarssonar og Guðlaugs Ein-
arssonar. Hlutverk hans var m. a.
að afla umboða frá aðilum, sem
vildu selja fasteignir, og leita síð-
an tilboða í þær, en lögfræðistörf
og samningsgerðir í sambandi við
fasteignasöluna hafði Einar Gunn-
ar Einarsson sjálfur á hendi. I
máli því, sem hér er um að ræða,
var ákærði Andrés Valberg, sakað
ur um misferli við milligöngu um
sölu húseignanna Þrastargötu 7
og Njálsgötu 58B í Reykjavík.
í júlí 1958 fól Gunnar Jónsson
fasteignasölunni að selja húseign
sína, Þrastargötu 7. Andrési barst
síðan vitneskja um, að Jóhannes
Helgason, útvarpsvirki, vildi kaupa
eignina fyrir 160.000,00 kr., en
I vissi einnig, að Gunnar mundi sam
þykkja að selja húseignina lægra
verði. Sá hann sér þá leik á borði
að koma á bráðabirgðakaupum og
hagnast sjálfur á sölunni. Fékk
hann nú kunningja sinn, Guðvarð
Skagfjörð Sigurðsson, til að gera
Gunnari Jónssyni tilboð í eignina.
Samþykkti Gunnar að lckum að
selja Guðvarði hana fyrir 110,000,
100 kr„ enda var honum þá (10.
sept. ’58) ókunnugt um 160.000 00
kr. tilboð Jóhannesar Helgasonar.
Síðan seldi fasteignasöluskrifstof-
an Jóhannesi húseignina fyrir
160.000,00 kr„ en mismuninn, kr.
50.000,00, kvaðst Andrés Valberg
hafa ætlað að hirða handa sjálfum
sér. Ekki þóttu nægilegar sannan-
ir vera fyrir hendi til að dæma
Andrés Valberg fyrir misferli í
sambandi við milligöngu um sölu
húseignarinnar Njálsgötu 58B.
Einari Gunnari Einarssyni var
kunnugt um bæði tilboðin, Jóhann
esar og Guðvarðs. Gerði hann upp
kast að tilboði, þar sem Gunnar
býðst til að selja Guðvarði húseign
ina fyrir 110.000,00 kr. með tiltekn-
um greiðsluskilmálum. Segir Ein-
ar, að Gunnar hafi síðan undirrit-
að tilboðið sem tilboðsgjafi, en
(Frambaia a 15 síðu
Samningur um dreif-
ingu félagsbókanna
Stjórn Hins íslenzka bók-
menntafélags boöaði til blaða-
mannafundar í síðustu viku.
Félagið hefur nú gert samning
við Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar um, að hún ann-
ist dreifingu og sölu félags-
bókanna. Bækur ársins 1961
urðu síðbúnar, þar sem félag-
ið hefur að undanförnu unnið
að ýmsum breytingum á starf-
seminni, en mörg verkefni eru
framundan.
Forseti félagsins, Matthías Þórð
arson, fyrrv. þjóðminjavörður, lézt
milli jóla og nýárs, en dr. Einar
Ólafur Sveinsson hefur gegnt störf-
um hans síðan og mun gera, unz
kosningar fara fram í vor. Matthí-
as Þórðarson var um árabil bóka-
vörður félagsins og sá um dreif-
ingu félagsbókanna og hafði unnið
mikið og óeigingjarnt starf fyrir
félagið. þegar hann lézt. Dr Einar
Ólafur sagði, að stjórnin hefði
lengi haft hug á því að kynna bet-
ur starfs.emi félagsins, þar sem
mikið hefði verið sþurt, hverjar
á vörum frá bændum, og nemur
sala þeirra 3,056 millj. dollara,
síðan kemur korn og sojabaunir,
sem selt er fyrir 1,929 millj., bú-
peningur fyrir 1,471 millj. og
baðmull fyrir 607 millj. Bændur
keyptu fóðurbæti fyrir 886 millj.
dollara frá samvinnufélögunum
á árinu 1959—60, og á sama tíma
keyptu þeir oliu fyrir 596 millj.
og tilbúinn áburð fyrir 334 millj.
Flest eru samvinnufélögin í
Minnesota, þar næst í Wiscons-
in og síðan í Iowa, en sala sam-
vinnufélaganna í Kaliforníu varð
hæst aö krónutölu, síðan komu
félögin í Minnesota, og í þriðja
sæti voru félögin í Iowa.
Meðlimatala samvinnufélaga í
Kaliforníu jókst um 13% á síð-
asta ári, og á sama tíma jókst
sala þeirra um 25%.
Á síðasta ári komust þrjú lána
fyrirtæki samvinnufélaganna í
viðbót í eign bænda, og eru þá
aðeins eftir 12 félög af þeim 487
lánastofnunum samvinnufélag-
anna, sem í landinu eru, er ekki
hafa enn endurgreitt lán frá
Bandaríkjastjórn. Skuld þessara
12 félaga nemur nú aðeins 475
þúsund dollurum, og er hún hef-
ur verið greidd, munu þau einn-
ig komast í eigu bænda. Það
var fyrst árið 1933, að hópur
manna kom á fót með styrk frá
ríkinu lánastofnun fyrir bænd-
ur, og var ætlunin, að þessi
stofnun lánaði bændum fé til
skamms tíma með hæfilegum
vöxtum. Þessar lánastofnanir
samvinnufélaganna komu fram
með raunhæfa áætlun um end-
urgrélðslu lánanna, og nú lána
þau bændum allt að 2,7 milljón-
um dollara á ári. Meðlimatala
þessara lá.nastofnana samvinnu-
félaganna' er nú orðin 520 þús-
und.
1
félagsbækurnar væru og hvar þær
væru fáanlegar. Nú hefur stjórn-
in gert samning þann við Bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar,
sem að ofan getur, og munu bæk-
urnar verð'a þar á boðstólum. Auk
þess mun verzlunin annast dreif-
ingu þeirra til félagsmanna. Verða
þær bornar út í Reykjavík og ná-
grenni, en sendar í póstkröfu út á
land. — Frá fyrstu tíð hefur fé-
lagið haft bókageymslu á dóm-
kirkjuloftinu ,en hefur nú verið
sagt upp geymslunni, þar sem hún
verður tekin til annarra nota. Gerð
hefur verið úttekt á öllum bókum,
sem þar voru og hefur farið mik
ill tími í það og ýmis störf í sam-
bandi við hið breytta skipulag, sem
getið hefur verið, og af þessum
sökum urðu ársbækurnar 1961 síð
búnari en skyldi, 135. árg. Skímis
er þó kominn út. Skírnir er elzta
tímarit á Norðurlöndum og helzta
vísindarit í húmanistískum fræð-
um hérlendis. Ritstjóri er nú Dr.
Halldór Halldórsson. Önnur árs-
bókin verður um Baldvin Einars
son eftir Nönnu Ólafsdóttur Þess
skal getið, að félagið hefur nú
fengið aðra bókageyinslu í stað
kirkjuloftsins.
• TIMINN, miðvikudaginn 21. marz 1962
Þessar óvenjulegu myndir tók Runólfur Elentínusson á sunnudaglnn var
niSur við Hafnarhúsið í Reykjavík. Þar hafðí smyrill sleglð nlður dúfu
og var að gæða sér á henni, þegar Runólf bar að með myndavélina. —
Smyrillinn var svo spakur, að hann hreyfði sig ekki, fyrr en Ijósmyndar-
inn var kominn fast að honum, þá ætlaði hann að fljúga burt, en hafðt
þá fest klærnar svo fast í dúfuna, að hann gat ekkl losað sig við hana.
Um svipað leytj bar þar að ungan mann með þykka og góða vetlinga,
og handsamaði hann fuglinn og hétt honum, meðan slðasta myndin var
tekln. Síðan var smyrlinum sleppt og þá var hann fljótur að fljúga úr
augsýn. — Á efstu myndinni er hann að gæða sér á krásinni, en á mið-
myndlnni er athygljn tekin að beinast meira að Runóífi en dúfunni. —
\ D