Tíminn - 22.03.1962, Qupperneq 1

Tíminn - 22.03.1962, Qupperneq 1
Ritstjórnarskrif- stofur Tímans eru í Edduhúsinu við LindargÖfu Afgreiðsla, auglýs- ingar og gjaldkeri Tímans er í Bankastræti 7 INGÓLFU R JÓNSSON, landbúnaSar. og raforkumálaráð- herra, maðurinn, sem sagði í Vísl, þann 9. marz síðasMiðinn: „Hóla- skóla verður ekki lokað". — Nú ríkir þar hálfgert neyðarástand, Rafmagnslaust síðan á föstudag — starfsfólk segir upp vistinni — ráðherra sagður hafa óskað eftir lausnarbeiðni Gunnars — Dísilrafstöð fæst ekkigreidd! DIMMIR OG DAUFLEGIR DAGAR í HÓLASKÓLA Þau tíðindi gerðust á Hólum í Hjaitadal síðast liðinn föstu- dag, að staðurinn varð raf- magnslaus. Hefur hann verið það síðan, en blaðið frétti í gærkveldi að þá hefði fyrir skömmu tekizt að koma vara- rafstöð í gang, sem nægir til að hita upp húsin, svo ekki eru skemmdir á þeim yfirvofandi þótt frysti. Á Hólum eru 25— 30 manns, sá yngsti 5—6 mán- Hólar í Hjaltadal — kaldur og djmmur staður. ÞINGNEFND FÆR EKKIAD SJA REIKNINGA BRIMNESS Tíminn hafði spurnir af því í gær, að fjármálaráðherra Gunnar Thoroddsen myndi hafa neitað þíngnefnd þeirri, sem hefur ríkisreikninginn fyrir 1960 til athugunar, um aðgang að gögnum og athuga- semdum ríkisendurskoðanda (E.B.) við endurskoðun á skiptum fjármálaráðuneytis- ins og Axels Kristjánssonar í Rafha, og bókhald togarans Brimness. Er hér um algert einsdæmi að ræða í þingsög- unni. Tíminn sneri sér til Karls .Kristjánssonar alþingismanns, ifúlltrúa Framsóknarflokkslns í fjárhagsnefnd efri deildar, en nefndin hefur haft ríkisreikn- inginn til athugunar að undan- förnu. og spurðist fyrir um sann- leiksgildi þessarar lausafregnar. Karl Kristjánsson sagði, að þetta væri alveg1 rétt. Minnihluta fjár hagsnefndar hefði verið neitað um aðgang að þessum gögnum, endurskoðunargjörðum ríkisbók- ara (E.B.) við fjárreiður og rekst ur togarans Brimness. Hins veg- ar kveðst Karl hafa fengið að sjá fyrri skýrslur um þetta mál, þ.e. gögn þau, sem yfirskoðunar- menn byggðu athugasemdir sín- ar á, en þeir höfðu talið þser skýrslur með öllu ófullnægjandi og höfðu krafizt frekari skýr- inga. Karl Kristjánsson sagði, að þetta væri algert einsdæmi í þingsögunni, kvaðst ekki vita um neitt dærhi slíks. Það má teljast furðulegt. að fjármálaráðherra skuli svo mik- ið sem láta sér detta í hug, að Alþingi samþykki ríkisreikning, sem yfirskoðunarmenn hafa gert svo róttækar athugasemdir við. Neita svo að gefa þingnefnd kost á að kanna málið til botns og athuga endurskoðunargerðir rík isbókara á þeim atriðum, sem yfirskoðunarmenn hafa athuga- semdir við. Eins og sakir standa er fráleitt að Alþingi geti sam- þykkt ríkisreikninginn. og því ber skylda til að kanna til hlít- ar og fá fullnægjandi skýringar við athugasemdum yfirskoðun- armanna, en yfirskoðunarmenn eru sérstakir trúnaðarmenn Al- þingis. ^ , „, aða gamall, og hefur fólkið hafzf við í skólahúsinu, sem hægt er að hita upp frá kyntri miðstöð. Allt annað á staðnum byggist á notkun raf- magns, og hefur t. d. ekki ver- ið hægt að nota mjaltavélar í fjósi. Pólkið hefur orðið að notast við litla kósangasvél við matseld, og hefur verið erfitt að matbúa handa svo mörgum á svo fátæk- legu tæki. Stöku kennarar hafa búið svo 'vel að geta eldað mat handa sér og sínum á prímusum. Dagsbirtan notuð Ellefu námssveinar eru enn í skólanum og hefur rafmagnsleys- ið valdið truflunum á kennslu. Til þess að nota birtutímann sem bezt, hefst kennsla nú tæpum klukkutíma fyrr en áður, eða klukkan sjö að morgni. Vólar, sem notaðar eru við verklega kennslu, svo sem spiíðar, hafa eðlilega ver ið óvirkar sökum rafmagnsskorts- ins, og hefur því sú kennsla verið i molum. Lestur nemenda utan kennslu hefur einnig verið erfið- leikum háður, þar sem þeir hafa orðið að lesa við kertaljós. Segja upp vistinni Þá er svo korriið, að ráðskona og tveir fjósameistarar staðarins hafa sagt upp vistinni. Þótti fjósa meisturunum nóg að kveðið, þegar þeir þurftu að hirða sextíu og fjðgurra gripa fjós án mjaltavéla, og ekki útlit fyrir bót á ástand- inu í bráðina. Tímanum er ekki kunnugt um ástæðuna fyrir upp- sögn ráðskonunnar, en það liggur í augum uppi, að það þarf ekkert smáræðis sálarjafnvægi til að ann ast matseld handa svo mörgum á lítilli kósangasvél. Gunnarsendur suður Gunnar Bjarnason, skólastjóri, kom hingað til Reykjavíkur í fyrra dag, sendur af kennurum staðar- ins til að tala máli fólksins við landbúnaðarráðuneytið, sem hefur til þessa daufheyrzt við öllum beiðnum um fé til lagfæringar á rafmagninu. Gunnari mun ekki hafa orðið neitt ágengt enn, og það eina sem hefur breytzt síðan myrk ur seig yfir Hólastað á föstudag, er, að rafvirkja frá Hofsósi tókst að koma vararafstöðinni af stað fyrst í gærkveldi, svo húsum þeim sem hituð voru upp með rafmagni yrði forðað frá skemmdum ef frysti. Svo lánlega vildi til að frost hefur ekkert verið síðan á föstu- dag. • Dísilstöð í húsi Gunnar skólastjóri mun sjálfur hafa gengið i það í.Áaa§La% fá díselrafstöð til Hóla, til að nota hana þar í vetur. Gömul vatnsraf- stöð er á Hólum og orðin ótrygg, eins og dæmin sanna. Nú gerist það í málinu, að landbúnaðarráðu neytið synjar um greiðslu fyrir díselmótorinn, svo hann hefur ver- ið geymdur í húsi þar á staðnum til þessa dags, ónotaður. Ekki hef- ur- fengizt neitt loforð fyrir greiðslu enn, og horfur á að reynt verði að láta þetta slarka svona' til vorsins. í stað þess að sinna beiðni Gunnars um greiðslu fyrir mótorinn, svo hægt hefði verið að tryggja staðnum rafmagn, hefur Tíminn fyrir satt að Ingólfur Jóns spn, landbúnaðarráðherra, liafi í næst siðustu ferð Gunnars til Reykjavíkyr bent honum á, að hann skyldi segja af sér skóla- stjórastöðunni, hvað Gunnar mun hafa gert að orðum ráðherrans töluðum. Sendimaður kennara Það er því ekki hinn fyrri valda maður staðarins, sem nú gengur fyrir Hólamálaráðherra, og biður um varanlegt rafmagn til vors handa sínu fólki, heldur sendimað- ur seinþreyttra kennara, sem vilja ekki una fásinni landbúnaðarráð- herra í garð skólans. Þessi mæni- ás skólans, kennaraliðið, hefur ekki farið að dæmi ráðskónunnar og fjósameistaranna, og gefizt upp, heldur þrauka þeir nú í myrkrinu norður þar, og bíða ár- angursins af ferð Gunnars, sem allt eins getur orðið erindisleysa. Neitað um greiðslu Tíminn hringdi í Ævar Hjartar son, kennara á Hólum í gær, og (Framhald á 3. síðu). Cunnaf- Ejz-rr-cn, skólastjóri I — hefur ssgi af sér starfi ■>/ i i

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.