Tíminn - 22.03.1962, Blaðsíða 2

Tíminn - 22.03.1962, Blaðsíða 2
Þakkarávarp ásamt örfáum varnar- orðum til Málfríðar Einarsdóttur Hversu hlýt ég ekki að vera fullur iðrunar og sjálfsmeðaumkv unar. Ætti ég ekki ag biðja op- inberlega afsökunar á tilveru minni, þegar um mig hefur vcrið uppkveðinn sá dómur á prenti af skáldkonu (?) cinni, að ég sé að eyðiléggja menninguna? Eg tel sjálfsagða kurteisi að þakka, því að mig hefur aldrei órað fyrir, að ég yrði svo áhrifa- mikifl maður. Sunnudaginn 18. þ.m. birtist heilsíðugrein í Þjóðviljanum und ir fyrirsögni.nni: „Guð varðveiti okkur nú fyrir menningunni't og er tilefni þennar þýðing mín á söngvum í söngleiknum ,My fair Lady“. Á höfundur greinarinnar ekki nógu sterk orð til að lýsa því, hve þýðingin sé mikill leir- burður, illa stuðluð og rímuð og segir, að hver sem hefði farið með slíkan s'káldskap í gamla daga „hefði ilmsvifalaust verið rekinn út, en fyrst spurður, hvort hann vœri orðinn alveg vitlaus.“ Þetta er þungur dómur, og frú sú sem hann hefur kveðið upp, og getur sjálfsagt staðið við hann, ætti að hafa margt til brunns að bera. í fyrsta lagi hlýt ur hún að vera sæmilega hagorð. f öðru lagi hafa nokkra málakunn áttu og í þriðja lagi einhverja þekkingu á tónlist. Auk þessa má vænta, að grein- arhöfundur hafi kynnt sér söng- leikinn gaumgæfilega, borið ís- lenzku þýðinguna saman við frum textann, og jafnvcl þýfðingar á öðrum Norðurlandamiálum. Rétt látur dómari kynni.r sér jafnan málin frá sem flestum hliðum. Aumur sakborningur reynir að sjálfsögðu að verja sig frammi fyrir hinum réttláta og stranga dómara. Ákæruatriði eru mörg, og verða hér varla öll upp talin. Fyrsta ákæruatriði: Höfundur hefur þýtt þennan texta þannig: Loksins ákvað ég að láta hana kynnast allri hetjugetu hans. Eg brá mér frá og þá bað hann hana um dans. Hann með brögðum hugði snar, sig hljóta að fiska, hver hún var. Frúnni, sem settist í dómara- sætið hefur hér örlítið yfirsézt, sem sagt sleppt tveim línum þarna á milli, og samkvæmt handriti Þjóðleikhússins og þýðanda hljóð ar þetta svo, tekið innan úr miðj um söng: Loksins ákvað ég að láta hana kynnast hetjugetu hans. ■ Eg brá mér frá og þá bað hann hana um dans. Ásýnd hans var æst og rjóð eftir gólfi svitaslóð. Hann með brögðum hugði snar sig hljóta’ að fiska hver hún var. Það er ekki mitt að finna að því, þótt greinarhöfundur gerist nú háyfirdómari, og geri lítið úr því, sem ritdómarar blaðanna sögðu um þýðingu mína. Telur hún sig sjálfsagt þess umkomna, og hafa meiri þekkingu á þessu efni en þeir allir til samans. Annað ákæruatriði: „Söngtextipn, sem .prentaður var í Sunnudagsblaði Mbl. fyrir rúmri viku (?) er allmjög frá- brugðinn því, sem hann er í sér- prentun, sem leikhúsgestum var úthlutað." Síðan er látið að því liggja, að þýðandinn hafi farið „með textann í smiðju á síðustu stundu.“ Sakborningur játar: í fyrsta lagi: Síðan ég hóf þýðinguna á söngleik þessum, hef ég gert ótal breytingar og meira að segja brot ið svo mikið af mér að gera mörg uppköst að sumum söngvunum, þótt ekki hafi tekizt betur til. Svona er mannskepnan ófullkom- in. Sakborningur játar: í öðru lagi. Að hafa brcytt orðum og jafn- vel heilum setningum, á stöku stað frá því slitur úr þýðingunni birtist í Sunnudagsblaði Mbl., og jafnvel eftir að æfingar voru hafnar. Hvílíkt afbrot. Eg vil alls ekki efast um, að greinarhöfundur sé það betur af guði gerð en ég, að hún þurfi aldrei að breyta stafkrók í þeim þýðingum scm hún hefur gert, frá fyrsta uppkasti. Sakborningur ncilar, að hafa farið með texta í aðra en sína eig in „smiðju.“ Þriðja ákæruatriði: Bragarhættinum er ekki haldið. Sakborningur játar: f fyrsta lagi. Að hann sé ekki svo vel að sér í bragfræði, að hann geti gert sér grein fyrir, undir hvaða brag arhætti ýmsir söngvanna í „My fair Lady“ eru ortir á frummál* inu, en vill til upplýsingar grein- arhöfundi, sem sé dómaranum, benda á. að nótur eru mismun- andi stór merki, sem gefa til kynna lengd tóna, áherzlur, hraða o. fl. og afmarka því algjörlega, að hægt sé að nota annan bragar hátt á íslenzku en á frummálinu. Sakborningur játar: í öðru lagi. Að sér hafi láðst að leita sér fræðslu um bragarhættina í „My fair Lady“ t.d. hjá greinarhöf- undi, sem sýnilega veit lengra en nef hennar nær, þar sem hún meira að segja getur upplýst, að Vala Kristjánsson eigi eftir að muna þessa texta í þau 60 ár, „sem hún kann að eiga ólifuð.“ Þrátt fyrir mikía aðdáun á hin- um frábæra dugnaði og hæfileik- um Völu Kristjánsson, get ég alls ekki vænzt þess, að hún muni syngja þessa texta mína fram til 82. ára aldurs. Fjórða ákæruatriði: „En textinn er ekki aðeins óná- kvæmur, heldur varla þekkjanleg- ur. Hér er sýnishorn úr fimmta at- riði, fyrsta þætti: Eliza: The rain in Spain stays mainly in the plain. Þýð.: Á Spáni hundur lá við lund á grund. Higgins: Now once again, where does it rain? Þýð.: Og hvar lá hundur þar á grund? Eliza: On thc plain! On the plain! Þýð.: Lá við lund. Lá við lund. Til skilningsauka fyrir greinar- höfund og lesendur blaðsins læt ég nægja að sýna, að sænski þýðand- inn, Gösta Rybrant, leysir þennan vanda á mjög líkan hátt og undir- ritaður. Eliza: (Talar hægt en rétt). En spansk rav klev bland sav och rev en annan ra. Higgins: Vad nu? Eliza: (Syngur), Den spanska rav en rev en annan rav. Higgins: Var var det raven gick och klev? Eliza: Ibland sav, ibland sav. Higgins: Och denna spanska ráv I Eliza: Han rev en ráv. Sakborningur játar: Hér er ekki um þýðingu að ræða, heldur er textinn umsaminn, til þess að hann geti gegnt sínu hlutverki í söngleiknum. Hér er um orðaleik eða rímleik að ræða, sem verður að fela í sér möguleika á hvaða máli sem er, til kennslu á röng- um framburði í réttan. Eg tel mig engan sérfræðing í að þýða söngleiki. Það er eins með þá sem anr.að, andlegt og verklegt, að það er alltaf hægt að laga og bæta. Góð ráð vil ég gjarna þiggja, þótt ekki 'Sé í „smiðju" farið. Sér- staklega væri ég greinarhöfundi þakklátur, ef hún lumaði á/ein- hverri „nákvæmari“ þýðingu á „The rain in Spain, stays mainly in the plain“. Pósthólf mitt er 196. Síminn er í símaskránni. Greinarhöfundur segir: „Látum þetta nú vera. Þetta má kallast skáldaleyfi, Það er lakara, sem ég tilfæri hér næst. GUTTORMUR SIGURBJÚRNSSON, skattstjóri Er rétt að leggja yfir- skattanefndirnar niður? Fyrir Alþingi því, sern nú sit- ur lig.gur frumvarp til laga um tekjuskatt og eignarskatt. Veigamesta breytingin sem þetta frumvarp gerir ráð fyrir frá gildandi skattalögum, er á skipulagi skattkerfisins. Þannig er ætlunin að skipta öllu landinu í átta skattumdæmi með einum skattstjóra í hverju og leggja jafnframt niður allar undirskattanefndir. Um rétt- mæti þessa má vitanlega deila, og þá sérstaklega um það atriði hvort rétt sé að láta þessi skatt- umdæmi miðast við kjördæmin, eins og frumvarpið gerir ráð fyrir — og einnig um það hvort þau eigi að vera fleiri eða færri. Hins vegar blandast mér ekki hugur um að hér er um að ræða þróun, sem hófst fyrir allmörg- um árum eða um 1952 þegar landinu var skipt í eftirlitsum- dæmi, sem hverjum starfandi skattstjóra var falin umsjón með, en þau umdæmi fylgja nokkurn veginn þeim skattum- dæmum, sem nú er lagt til að upp verði tekin. Eins og áður segir, þá er lagt til í frumvarpinu að allar undir- skattanefndir verði lagðar niður og störf þeirra að mestu falin skattstjórum. En frumvarpið gerir einnig ráð fyrir að yfir- skattanefndirnar verði lagðar niður og þar á ekkert að koma í staðinn, nema hvað skattstjór- um eru falin sum af störfum þeirra, önnur falla algjörlega niður. Það niá eflaust deila um gagnsemi af störfum hinna ein- stöku yfirskattanefnda — en hvað ég þekkl til þá er hún ótví- ræð — og gæti ég fært nánari rök að því. Áttundi kafli frumvarpsins hefst á 58. gr. svohljóðandi: „Heimilt er skattstjóra að taka til greina umsókn skattþegns um, lækkun tekjuskatts, þegar svö stendur á sem hér segir: 1. Ef veikindi, slys eða manns- lát hefur skert gjaldþol skatt- þegns verulega. 2. Ef skattþegn hefur veruleg út- gjöld haft vegna menntunar barna sinna, eldri en 16 ára. 2. Ef á framfæri skattþegns eru börn, sem haldin eru lang- vinnum sjúkdómum eða eru fötluð eða vangefin og valda framfærendum útgjöldpm umfram venjulegan fram- færslukostnað. Nú fellst skatt stjóri á umsókn framfær- anda, og skal hann þá eiga rétt á tvöföldum barnafrá- drætti vegna barna þessara, sbr. 16. gr. 4.*Ef skattþegn hefur foreldra eða vandamenn sannanlega á framfæri sínu, má veita sama frádrátt og fyrir börn. Áður en beitt er heimildum þessarar greinar, skal skattstjóri athuga sérstaklega, hvort um ó- venjumikla eyðslu sé að ræða hjá umsækjanda. Skattstjóri getur af eigin hvötum veitt lækk un sþmkvæmt þessari grein. Ríkisskattstjóri skal fylgjast sér- staklega með lækkunum sam- kvæmt þessari grein og sjá til þess, að samræmis sé gætt.“ Ég tek þessa grein frumvarps- ins sem dæmi vegna þess að í henni eru flest ákvæði gildandi skattalaga, sem heyra undir úr- skurð yfirskattanefnda. Nú hef ég ekki ástæðu til að ætla annað en að skattstjórar felli sína úrskurði samvizkusam- lega og eftir beztu vitund, þó er þeim með þessu ákvæði falinn meiri trúnaður en þekkist ann- ég hygg, þótt víðar væri leitað. ars staðar á Norðurlöndum og, Hliðstæðu mun vera að finna í bandarískri skattalöggjöf, en þess ber vel að gæta að þar er, meðal milljónanna, kunnings- skapurinn minni og refsiákvæð- in við að gefa skattyfirvöldum rangar upplýsingar, mjög ströng. Það vill nú svo til, að í öllum hinum ráðgerðu skattumdæm- um eru þrír sýslumenn og bæjar- fógetar, að einu undanteknu — Vesturlandsumdæmi — en þar eru fjórir (Vestmannaeyjar munu eiga að verða sjálfstætt skattumdænri) samkv. gildandi skattalögum, þá eru bæjarfóget- ar og sýslumenn formann yfir- skattanefndanna og flestir þeirra hafa unnið þessi störf ár- um saman. Eins og sést við lestur kvæða 53. gr. frumvarpsins sést, að ekki verður alltaf úrskurðað eftir köldum lagabókstafnum einum saman, þar þarf líka að koma til nokkur staðarleg þekking á högum skattborgaranna. Þessi þekking hlýtur að verða mun minni hjá skattstjórum og und- ir- og yfirskattanefndiim áður. Þetta bil álít ég að mætti brúa með því að halda ákvæðinu um yfirskattanefndir, sem yrðu jafn margar og skattumdæmin og skipaðar sýslumönnum og bæj- arfógetum umdæmanna, sem eins og áður segir, hafa reynslu og þekkingu á þessum störfum. ú ’ "n'ustig í stað tveggja hljótr :.dta að vera skattborgur- unum nokkurs virði. Laun þessara skattanefnda geta varla orðið það’ há. að um verulegt kostnaðaratriði verði að ræða. Á þetta vildi ég benda með þessum fáu orðum, en í stuttri blaðagrein er ekki hægt að beita öllum þeim rökum, sem liggja til þess að ég tel. mikið óráð að fella niður ákvæðið um yfirskattanefndir — hér er því aðeins vakin athygli á þessu atr- iði til umhugsunar þeim, sem um mál þessi fjalla. TÍ MI Higgins: Look at her, a prisner of the gutters. Condemned by evry sylable she utters. By right she taken out and hung for the cold-blooded murder of the English tongue“. Síðan er birt svohljóðandi þýð- ing á þessari vísu, sem á að vera eftir mig: Því málfarið má spegilmynd af manngerðinni kalla og maðurinn dæmist eftit því, hvort tal er laust við galla. Hin r'étta enska óttast ég, að lær- ist seint og einnig, að Bretar tali hreint og beint. (tal) Svo talsmátinn sé ekki1 ei- lifðarplága heyrn og sál. Sakborningur játar: Það er satt. Þetta er nú laþara. En sér til varn- ar vill hann gela þess, að hér er um tvær vísur að ræða, ólíkar að anda, efni og „bragarhætti“. í handriti þýðanda og í hinum fjölrituðu eintökum leikhússins, hljóðar þýðingin á þessa leið: Higgins: Sjáið þessa. Gatan hennar hæli. Hlustið á. Slíkt mæli líkist væli. Að réttu lagi hengja hana ber. Hún hreinræktaður tungumorð- ingi’ er. Og nú spyr sakborningur: Hvernig er hægt að skýra það, að hinum umvöndunarsama grein- arhöfundi og stranga dómara, skuli hafa yfirsézt þama? Að vísu er áð- ur búið að fullyrða, að textinn sé „ekki 'aðeins ónákvæmur, heldur varla þekkjanlegur". Og þótt ég sé ekki góður þýðandi, vænti ég þess, að enginn haldi mig svo af-- leitan, að hvorki meiningin, né eitt einasta orð, sé líkt frumtextanum. Þetta er engin krossgáta. Skýr- ingin er afar einföld, en mjög ó- heppileg fyrir ákæranda minn, greinarhöfund, en gæti orðið til þess, að þýðandinn yrði ekki dæmd ur í lífstíðarútlegð frá „menning- unni“. Enski textinn er 1. erindi í söng prófessors Higgins í 1. þætti, en ís- lenzki textinn, sem greinarhöfund- ur birtir sem þýðingu vísunnar, kemur ekki fyrr en í miðjum söngn um. Þar á milli hefur verið talað og sungið. Aftur á móti er textinn „Því málíarið má spegilmynd af manngerðinni kalla o. s. frv.“ það fyrsta úr þessum söng, sem prent- að er í prógrammi Þjóðleikhússins. Þar eru sumir söngvarnir prentað- ir í heilu lagi, en aðcins kaflar úr öðrum. Þetta hlýtur að vekja leiðinlegan grun um það, að höfundur greinar- innar í Þjóðviljanum, hafi ekki, um leið og hún tók dómvaldið sér í hendur, kynnt sér nægilega vel öll málsskjöl, eins og þó mætfi æría af hinum stranga tón í ákæru- skjali hennar, „Guð varðveiti o. s. frv.“. Þótt greinarhöfundi hafi skrikað fótur á ritvellinum, skulum við, sem grein hennar höfum lesið, enn standa í þeirri trú, að hún geti ekki aðeins rifið niður þýðingu söngleikja, heldur einnig fram- kvæmt 'uppbyggingarstarf á því sviði. Undirritaður hefur þýtt nokkra söngleiki og óperur fyrir Þjóðleik- húsið o. fl. undanfarin ár. Fyrir tveim árum var ég ákveðinn í að hætta þessu, en illa gekk að fá nokkurn til að taka að sér þctta erfiða og sýnilega vanþakkláta starf. Þá lét ég tilleiðast að þýða tvo sönglciki, siðast „My Fair Lady“. En nú sé ég, að hægt er að létta af mér þungum krossi. Eg er greinar'höfundi innilega þakklátur fyrir að fela ekki leng- ur ljós sitt undir mælikeri, hvað þekkingu varðar um söngleiki, bragarhætti, rím, nákvæma þýð- ingu o. fl. Hef ég því hringt til Þjóðleikhússtjóra og bent honum á frú Málfríði Einarsdóttur til að þýða næsta söngleik, sem Þjóðleik húsið sýnir, í þeirri einlægu von, að henni megi takast betur en mér. Egill Bjarnason. N, fimmtudaginn 22. marz 1962 /

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.