Tíminn - 22.03.1962, Qupperneq 6

Tíminn - 22.03.1962, Qupperneq 6
 MNGFRÉTTIR Leitað samvinnu við Kanada og USA um rannsóknir á landafundum íslendinga í Yesturheimi Þórarinn Þórarinsson mælti í gær fyrir þingsályktunartillögu, er hann flytur ásamt þeim Sig- urvin Einarssyni, Ágúst Þorvalds syni og Gísla Guðmundssyni um landafundi íslendinga í Vestur- heimi. Tillagan kveður á uiþ að ríkisstjórnin leiti samvinnu við ríkisstjórnir Kanada og Banda- ríkjanna um rannsóknir varð- andi landafundi íslendinga í Vesturheimi á 10. og 11. öld. Þórarinn sagði, að í Græn- landssögu, þeirri heimild. sem talin væri merkust um landa- fundi íslenzkra manna í Vestur- heimi, segði eins og kunnugt væri, að Bjarni Herjólfsson hefði fyrstur norrænna manna séð meginland Norður-Ameríku. Leif ur Eiríksson hefði farið í slóð hans og fengið hjá honum upp- lýsingar. Leifur hefði svo fundið Helluland, Markland og Vínland um 1000. Þorfinnur karlsefni gerði tilraun til íandnáms þar vestra en varð frá að hverfa. Að undanförnu hefur verið allmikið rætt erlendis og hér- lendis um landafundi íslendinga í Vesturheimi á öldum fyrr. Menn eru ekki á eitt sáttir, þótt einróma álit fræðimanna sé að íslendingar hafi komizt norður fyrir 50. breiddarbaug. Nú eru ís- lendingar orðin siglingaþjóð að nýju, en hér er um einn glæsi- legasta þáttinn í siglingasögu þjóðarinnar að ræða, og er eðli- legt að íslendingar láti sig þetta mál miklu varða og láti ekki út- lendinga eina um rannsóknir á þessu sviði. Mikill áhugl ríkir fyrir málinu hérlendis og t.d. hefur Farmanna- og fiskimanna samband Islands kosið sérstaka nefnd til að vinna að málinu. Norðmaðurinn Helge Ingstað var hér á ferð fyrir skömmu, en hann hefur unnið að fomleifa- 68 millj. í rík- isábyrgðir 1961 Gunnar Thoroddsen svaraði í gær fyrirspurn frá Þórami Þór- arinssyni um greiðslur ríkissjóðs vegna ríkisábyrgða á árinu 1961. Fyrirspum Þórarins var svo- hljóðandi: Vegna hvaða fyrir- tækja eða stofnana varð ríkis- Þíngstörf í gær Fundur var í sameinuðu Alþingi í gær. Fjármálaráð- herra og viðskiptamálaráð- herra svöruðu fyrirspurnum frá Þórarni Þórarinssyni um gjald af gj aldeyrisleyfum og greiðslur vegna ríkisábyrgða á siðasta ári. Getið er um þessar fyrirspurnir hér á síð- unni. Bjartmar/ Guðmunds- son hafði framsögu fyrir til- lögu er hann flytur ásamt nokkrum öðrum þingmönn- um um verndun ísl. arnarins. Auk þess tók til máls við það dagskrármál Friðjón Þórðar- son. Benedikt Gröndal hafði framsögu fyrir þingsályktun- artillögu um löggjöf um út- flutningssamtök og urðu nokkur /orðaskipti milli hans og Skúla Guðmundssonar um málið. Alfreð Gíslason, bæj- arstjóri hafði framsögu fyrir þingsályktunartillögu um aukið geymsluþol síldar. Þór- arinn Þórarinsson mælti fyr- ir tillögu um að leitað verði samvinnu við stjóm Banda- ríkjanna og Kanada um rann sóknir á landafundum Islend- inga í Vesturheimi á 10. og 11. öld og menntamálaráð- herra ræddi málið einnig. sjóður að greiða áfallnar ábyrgð- ir á árinu 1961, og hve mikil varð greiðslan vegna hvers ein- staks þeirra á því ári? Hve mik- ið hefur verið greitt fyrir hvert þeirra samtals áður? Gunnar Thoroddsen sagði það of langa upptalningu að fara að geta um hvem einstakan aðila, sem greidd hefði verið ríkis- ábyrgð fyrir, en taldi að þing- menn myndu geta fengið upplýs- ingar um það hjá ríkisbókhald- inu. Gaf hann lieildaryfirlit um greiðslurnar og taldi þær hefðu numið um 68 milljónum á árinu 1961. Greiðslurnar voru sem hér segir: Til hafnargerða 8.9 millj. áður fallnar greiðslum fyrir árs- lok 1960, 27.1 eða samtals 36 millj. Vegna frystihúsa 14 millj. áður 10.8 eða samtals 24.9 millj. Vegna síldarverksmiðja 1.6 millj. áður greitt 28.9 eða samtals 30.6 millj. Vegna togaraútgerðarfé- laga 15.4 millj., áður 34.1, sam- tals 49.5 milljónir,. Vegna 10 tog ara 10.4 millj., áður 33.6 eða sam tals 43.9 milljónir. Vegna aust- ur-þýzkra skipa 17.9 milljónir, áður 2.8 eða samtals 15.7 milljón ir. Vegna ræktunarsjóðs 2.8 miilj ónir í heild. Vegna samgangna á sjó 0.1 milljón, áður 6.1, samtals 6.2 millj. Vegna samgangna í lofti 0.2, áður 5 5 millj., samtals 5.7 milljónir. Vegna Marshali- lána 1.9 milljónir, áður 5.2 eða samtals 7.1 miljón.' Á árinu 1961 voru því greidd- ar 68 milljónir. en í heild nema rikisábyrgðagreiðslurnar samtals um 223 milljónum. Þórarinn Þórarinsson sagði, að þessi hækkun á ríkisábyrgða- greiðslunum stafaði af efnahags aðgerðum ríkisstjórnarinnar. rannsóknum á Nýfundnalandi. Nú mun í ráði að ísl. fræðimenn sláist í för með leiðangri hans á þær slóðir á sumri komanda. Helge Ingstað bindur rannsókn- ir sínar við einn stað, og eru þær því mjög takmarkaðar. Nauðsynlegt væri hins vegar að taka málið upp á breiðum grund velli og eðlilegt og æskilegt að leita samvinnu við stjórnvöld þeirra landa, sem hér eiga hlut að máli, þ.e. Bandaríkjanna og Kanada. Gylfi Þ. Gíslason sagði, að þegar Helge Ingstað var hér fyr ir nokkrum vikum, hefði verið afráðið að þrír ísl. fræðimenn slægjust í för með honum og ríkissjóður bæri kostnaðinn. Sagðist ráðherlrann ekki telja timabært að samþykkja þessa tillögu. Ráðlegra væri að bíða og sjá hverju fram yndi hjá Ingstað áður en frekar væri að- hafzt. Þórarinn Þórarinsson sagði, að það væri án efa rétt ráðið að taka þátt í leiðangri Helge Ing- stað, en það þarf ekki að koma í veg fyrir samþykkt þessarar tillögu. Rannsóknir Ingstað eru mjög, takmarkaðar og geta t.d. ekkert skorið úr um það. hvort islenzkir landafundamenn hefðu komið til austurríkja Bandaríkj- anna. Engin ástæða er því að bíða eftir niðurstöðum Ingstað, því að nauðsynlegt er að hefja rannsóknir og athuganir á breið- um grundvelli, ef nUuðsynlegur árangur á að nást, og því eðli- legt og sjálfsagt að leita eftir samvinnu við Kanada og Bánda- ríkin, enda ekki að efa, að slíkri málaleitan verður tekið vel af stjórnvöldum þessara landa. Á Þ Viðskiptamálaráðherra svaraði í gær fyrirspurn frá Þórarni Þórarinssyni um innheimtu gjalds af gjaldeyris- og innflutnings- leyfum, hve bankarnir hafi haft miklar tekjur og hvemig þeim hefði verið varið. Þórarinn sagði, að í lögunum frá 1960 væri kveðið á um að þetta gjald mætti vera allt að 1%, en hann og fleiri hefðu talið það of hátt, en ekki verið þá á það fallizt. Gylfi Þ. Gíslason upplýsti, að aðeins hefði verið innheimt 14% gjald, þótt heimild væri fyrir 1%. Tekjur af gjaldinu hefðu numið 4,2 milljónum. 2 milljónir af því rann í ríkissjóð til að standa straum af verðlagseftirliti, en rekstur gjaldeyrisdeildar bankanna kostaði 2,1 milljón. Kostnaður við rekstur innflutn- ingsskrifstofunnar kostaði 1959 4,3 milljónir og taldi ráðherr- ann að sparazt Iiefðu rúmar tvær milljónir við að leggja skrif- stofuna niður, jafnframt sem það hefði orðið neytendum í hag. — Þórarinn sagði, að þessi samanburður væri ekki einhlítur þar sem innflutningsskrifstofan hefði haft með höndum gagna- söfnun og skýrslugerð um innflutningsmál, sem gjaldeyris- deild bankanna hefði hins vegar ekki. Mergurinn málsins væri hins vegar sá, að þeir, sem sögðu, að 1% væri allt of hátt gjald, hefðu haft rétt fyrir sér, það væri helmingi lægra og bæri að fagna því að svo væri. Mótmælum rignir yfir Alþingi frá togarasjómönnum vegna kröfu togaraeigenda um að vökulögin verði afnumin. I greinargerð með frv. Daníels Ágústínussonar um breyting á lögum um söluskatt segir m.a., að skv. 7. gr. laganna sé útfarar- þjónusta undanþegin söluskatti, en hins vegar segja leiðbeining- ar ráðherra til innheimtumanna, að „sala á líkkistum og lík- klæðum sé söluskattsskyld“. Er þá spurningin: Hvað er undan- þegið söluskatti við hinztu ferð skattþegnanna úr þessum heimi? Einhvern tíma hefði þessi skattheimta þótt ganga nokkuð langt. En það virðist ekki ofsögum sagt af skattaæði núverandi ríkis- stjórnar. Af þessu dæmi má þó sjá, að fjármálaráðherra hefur nokkra ástæðu til að leggja áherzlu á, að söluskattsfarganið verði kallað „slðasta-stigs-söluskattur"! Stjórnarliðið neitar algerlega um að framlengja umsóknarfrest fyrir bændur um breyting á lausaskuldum í löng lán. Bera þeir stjórnarliðar því við í fyrsta lagi, að enginn vafi sé á því, að allir þeir, sem þörf hafa haft fyrir þessa aðstoð, hafi sótt um, þóR ekki væri víst hvort þeir hefðu nokkuð upp úr því. f öðru lagi segja þeir, að ef umsóknarfresturinn yrði framlengdur nú, mypdi það tefja málið og draga það á langinn, því að þá yrði að taka upp samninga við bankana að nýju og semja um nýja upphæð. Ekki er nú lógikkin orðin mikil lijá þeim blessuð’um. Fyrst segja þeir, að það geti ekki verið annað en allir hafi sótt sem þörf hafa fyrir og síðan í næstu andrá, pð ef leyft verði að sækja aftur, þá muni berast innsóknir um slíkar fúlgur, að taka verðl upp samninga við alla bankana að nýju og slíkir samningar muni jafnvel geta tekið marga mánuði. Ekki eru þeir nú alveg vissir um, að allir hafi sótt sem þörf hafa fyrir — eða hvað eru mennimir að fara? Skattheimta um skör fram Daníel Ágústínusson mælti í fyrrad fyrir frumv. um breyt- ing á Iögum um söluskatt. — Frumvarp þetta flutti hann einnig á síðasta þingi og var þá greinargerð þess birt í heild hér í blaðinu. Frumvarpið fjall a' um að undanþiggja sölu- skatti: Vinnu með skurðgröf- um, jarðvinnsluvélum og hvers konar vegagerðarvélum, vinnu- við viðgerðir á landbúnaðarvél um og vegagerðarvélum, rekst- ur þvottahúsa, sjúkrahúsa, bæj ar- og sveitarfélaga og sam- vinnuþvottahúsa og samkomur ungmennafélaga, íþróttafélaga, kvenfélaga, skátafélaga, bind- indisfélaga og annarra menn- ingarfélaga. Enn fremur allar samkomur annarra aðila, scm haldnar eru til ágóða fyrir líkn- ar- og menningarstarfsemi. Furðulegt má teljast, að starf semi búnaðarfélaga og ræktun arsambanda skuli vera sölu- skattskyld. Ræktunarframkv. búnaðarsambandanna eru sam- vinnustarf margra bænda og gerðar á kostnaðarverði. Með jarðræktarstyrkjum greiðir svo ríkissjóður hluta af kostnaðin- um. Það er þvi óhugsandi, að ræktunarframkvæmdir bænda geti nokkura tlma orðið tekju- stofn fyrir ríkið, eins og ætlazt er til með lögunum um sölu- skatt. Sama er að’ segja um söluskatt á vegagerðarvélar. Hann er ekkert annað en skerð- ing á fjárveitingum til vega- mála. Viðgerð á skipum og flug vélum er undanþegin sölu- skatti. Með öllu er óeðlilegt að hið sama gildi ekki um land- búnað'arvélar, því að annars er atvinnuvegum mismunað. Rekstur sjúkrahúsa er nú undanþeginn söluskatti, en hins vegar eru þvottahús sjúkra- húsa, bæjar- og sveitarfélaga og annarra opinberra aðila sölu skattsskyld. Þvottur er svo mikilsverður þáttur í rekstri sjúkrahúsa, að þrð mætti eins leggja skatt á matinn í sjúkra húsunum, skurðaðgerðir, mynda tökur og fl. Sama gildir um þvottahús annarra heilbrigðis- stofnanna og elliheimila. Þetta er því fráleitara, þegar þess er gætt að flest eða öll sjúkrahús Iandsins eru rekin með halla og njóta þar að auki daggjalda frá ríkissjóði. — Víðar er pott ur brotinn i lögunum. Útfarar þjónusta er t.d. undanþegin söluskatti, en hins vegar ekki sala á Iíkkistum og likklæðum. — Þá má segja, að einnig taki út yfir, að þegar fólk kemur saman til gleðskapar og skiptir sameiginlegum kostnaði niður á þátttakendur, þá skuli samt vera skylt að greiða söluskatt af mannfagnaðinum. TÍMINN, fimmtudaginn 22. marz 1962

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.