Tíminn - 22.03.1962, Page 12
Miíljónatjón í frystihúsbruría í Kópavogi
í gærmorgun kom upp
eldur í frystihúsinu vi<S
Fífuhvammsveg í Kópa-
vogi, og eyíSiIag<Sist lang-
mestur hluti hússins og
vélakosts, sem í því var.
NokkucS af frystum fiski,
sem geymt var í húsinu,
skemmdist ekki og var
hann fluttur í frystihús í
Hafnarfirði.
Eldsins varð vart rétt fyrir
Ormabæli
á Eyrar-
bakka
Á fundi Búnaðarþingsmanna
og blaðamanna með starfsmönn-
um landbúnaðardeilda atvinnu-
deildarinnar í fyrrakvöld, skýrði
Ingólfur Davíðsson, grasafræð-
ingur, frá því, að verstu jurta-
sjúkdómarnir, sem íslendingar
ættu í höggi við,.væru kartöflu-
sjúkdómarnir, hnúðormasýki,
stöngulsýki og kartöflumygla. Þó
að markvisst sé unnið að því, að
sýktir garðar verði lagðir niður
og nokkuð hafi þannig áunnizt
í baráttunni gegn sjúkdómun-
um, eru þessi dæmi; að nýsýktir
garðar hafa fundizt, m.a. í sum-
ar, sem leið. Ingólfur ferðaðist
um landið og rannsakaði mat-
jurtagarða sl. sumar. Á Eyrar-
bakka er mesta og hættulegasta
hnúðormasvæði ‘ landsins, og
virðast ékki önnur ráð tiltæki-
leg til að eyða þar hnúðormin-
um en leggja garðana rfiður og
svelta ormana.
klukkan sjö, og hafðist ekki að
ráða niðurlögum hans fyrr en milli
klukkan 9 og 9,30. Var þá þakið
fallið, vélar að mestu ónýtar og
mestur hluti hússins. Er verðmæta
tjón talið í milljónum.
Þetta er í annað sinn í vetur,
sem eldur kemur upp á þessum
stað. í nóvember s.l. kviknaði í
þurrkhúsi þar, og brann það mjög
mikið ásamt því, sem í því var.
Myndu langflest brenna!
Fyrir réttum 10 árum fór Bárð
ur Daníelsson, verkfræðingur, á
vegum Brunabótafélags íslands
milli flestra eða allra fiskvinnslu-
stöðva og frystihúsa við Faxaflóa
og kynnti sér ástand þeirra með
tilliti til eldhættu og brunavarna.
Að þeirri ferð lokinni lét hann
svo um mælt, að ef ekki yrði veru-
lega og varanlega um bætt, myndu
langflest þessi hús brenna á næstu
15—20 árum.
VantaSi eldvarnarveggi
Blaðið hafði í gær tal af Bárði
og spurði hann, hvort þetta væri
rétt, og kvað hann svo vera. Sagði
hann, að allflest húsin hefðu átt
það sameiginlegt, að í þeim væru
ekki eldvarnarveggir eða eldvarn
arhöft, til þess að koma í veg
fyrir að eldur færi eins og í sinu
um alla bygginguna, þótt hann
kæmi upp. Erlendis, sagði Bárð-
ur, er það í lögum að ekki megi
Vera nemá ákveðið flatarmál milli
eldvarnar-hafta í slíkum bygging-
um.
Gott hjá HB og Co.
Þá sagði hann, að raflagnakerf
ið hefði víðast hvar verið langt
fyrir neðan allar hellur, og frá-
gangur við kyndingatæki og önn-
ur veigamikil tæki langt fyrir neð
an það, sem bruna-málalöggjöfin
segir fyrir um. Hann benti frysti-
húsaeigendum á það, sem aflaga
fór, og -hafði umboð til þess að
bjóða þeim lægri iðgjöld, ef því
yrði kippt í lag, sem hann bað
um. Flestir tóku vel í það, en
færri framkvæmdu, nema Harald-
ur Böðvarsson og Co á Akranesi,
og sagði Bárður, að umgengni og
frágangur á húsum HB og Co
(Framhald á 5. síðu).
Bruninn í Kópavogi í gaermorgun.
1
verðlaun
Geysileg aðsókn liefur verið að
Málaraglugganum, þar sem tíma-
ritið Samvinnan kynnir verðlauna-
samkeppnina: Hvað heita þessar
-konur. Vei'ðlaunasamkeppni þessi
felst í því að þekkja 7 þjóðkunnar
konur og segja.fyrir hvað þær eru
þekktar. Mjög nýstárlegum verð-
launum er heitið, eða 50 brúðum á
ýmsum tegundum íslenzkra þjóð-
Ös vlS Málaragluggann I gær.
búninga. Annað nýmæli í sambandi
við verðlaun þessi er að Samvinn-
an tekur að sér að senda brúðurn-
ar í nafni vinnanda til hvers sem
hann óskar. Þannig geta t.d. for-
eldrar látið senda börnum sínum
verðlaunin, sem þannig mundu
koma að óvöJum í sumargjöf. Get-
raunaseðill til útfyllingar er - í
fréttabréfinu sem er fylgirit Sam-
vinnunnar.
I Málaraglugganum er líka smá
sýnishorn af hinu fjölbreytta efni
sem Samvinnan hefur flutt lesend
um sínum það sem af er þessu ári.
í marzhefti Samvinnunnar kenn-
ir margra giasa og má þar nefna
greinina, Að leysa verkföll er
þjónusta við „erindreka heims-
kommúnismans“, eftir ritstjórann
Guðmund Sveinsson. Þurfa um-
bótamenn að svelta, nefnist grein
sem Páll H. Jónsson skrifar, kvæð-
ið Benedikt á Auðnum, eftir Einar
H. Guðjónsson. Þá var Sölvhóll ...
Örlygur Hálfdánarson ræðir við
Harry Frederiksen. Annar hluti
greinarinnar - Fyrir minni kvenna,
eftir Guðmund Sveinsson! I Sam-
vinnunni birtast að jafnaði mjög
vandaðir og fræðar.di Húsmæðra-
þættir, og í þetta sinn er sagt frá
og kennd ný tegund handavinnii er
nefnist Rya-saumur. Jóhann Hjálm-
arsson ritar um mexikanska skáld-
ið Octavio Paz, og einnig er þar
kvæði eftir hann í þýðingu þeirra
Ara Jósefssonar og Jóhanns Hjálm-
arssonar. Til samanburðar á hinum
nýrri skáldskap og hinu hefð-
bundna formi skáldskapar birtist
Ríma eftir Sveinbjörn Beinteins-
son. Hendrik Ottósson skrifar á
sérkennilegan og skemmtilegan
hátt um smá atvik í Reykjavík og
er það þriðji þáttur. í tómstundum
heitir fastur þáttur í blaðinu, og í
tveim síðustu blöðum hefur Tor-
ben Frederiksen skrifað um smá-
fiskarækt, skýrt frá helztu atrið-
um í sambandi við eldi fiskanna,
gróður í fiskabúrunum og lýst al-
gengustu fiskategundunum. Síðast
en ekki sízt skal minnast á lit-
mýndir, sem fylgja grein Torbens
og gefa glöggt til kynna stærð, lög-
un og íit fiskanna. Torben starf-
rækir á vegum blaðsins sérstakan
bréfaskóla, þar sem hann veitir
bréfriturunum hvers konar um-
beðnar upplýsingar um smáfiska-
ræktun. í blaðinu er að jafnaði
framhaldssagan og verðlaunakross-
gáta.
Forsíðumyndin er í fjórum lit-
um, tekin aí Örlygi Hálfdánarsyni.
Forsíðan þetta árið er tileinkuð
60 ára afmæli Sambandsins og 80
ára afmæli Kf. Þingcyinga.
ÞEIR SEM FENGIÐ HAFA MIÐA í HAPPDRÆTTI F.U.F. FRU
BEÐNIR AÐ GERA SKIL SEM FYRST í TJARNARGÖTU 26