Tíminn - 28.03.1962, Side 3

Tíminn - 28.03.1962, Side 3
Nú er veriS aS sýna söngleikinn fræga „West Side Story" eSa „Saga úr Vesturbænum", í Kaupmannahöfn. — Söngleikurinn er eftir hinn fræga stjórnanda Bernstein og gerist í hópi „afvegaleiddra" unglinga í skugga- hverfum New York. — ÞaS er bandarískur leikflokkur, sem sýnir Söguna úr Vesturbænum í Falkoner Centr- um í Kaupmannahöfn. ViS komuna til Hafnar fór leikflokkurinn í kynnisferS um borgina. Og á Ráðhústorginu var fólkiS fenglS til þess aS gefa forsmekk aS leiknum — með dansi og söng. Er einbeittur gegn ágengni NTB—New York, 27. marz. í dag birtist í Saturday Ev- ening Post viðtal við Kennedy Bandaríkjaforseta eftir hinn kunna stjórnmálagreinahöf- und George Alsop. Viðtal þetta hefur vakið feikna at- hygli í Bandaríkjunum, því þar kemur greinilega fram stefna Bandaríkjastjórnar undir for- ustu Kennedys að gefa ekki á neinn hátt eftir í deilunum við Sovétríkin. Ummæli Alsops voru í aðalatriðum staðfest síð- ar í dag í yfirlýsingtJ, sem kom frá Hvíta húsinu. Alsop segir Kennedy hafa sagt í viðtalinu, að atvik geti fallið þannig, að Bandaríkin verði að vera reiðubúin til að hefja kjarn- orkustyrjöld, án tillits til afleiðing- anna. Nefndi forsetinn sem dæmi þann möguleika að ráðizt yrði á Vestur-Evrópu. Alsop rséðir ummæli Kennedys og segir m. a., að hin skýra ákvörð- un Kennedys að hætta heldur á kjarnorkustyrjöld, heldur en að gefa eftir í deilunum við Sovétrík- in, hafi bjargað Vestur-Berlín. Alsop segir, að kjarninn í stefnu Kennedys sc, að Bandaríkin verði sjálf að ráða, hvernig þau svari hót unum Krústjoffs, en láta ekki þvinga sig til vissra svara. Kennedy segir annars í viðtalinu, að Bandarikin verði nauðsynlega að halda yfirburðum á kjarnorku- sviðinu, til þess að Sovétríkin geti verið viss um, að Bandaríkin svari með eyðandi kjarnorkustyijöld, ef Sovétríkin koma af stað styrjöld. En Krústjoff má ekki vera of viss um, að Bandaríkin greiði ekki fyrsta höggið, ef um hagsmuni er að tefla, sagði Kennedy. Þannig verður Krústjoff áfram að vera sannfærður um að kjarnorkustyrj- öld borgi sig ekki. Pierre Salinger, blaðafulltrúi Framhald á 5. síðu NTB—Géneve, 27. marz. Fyrsta þætti afvopnunarvið- ræðnanna í Geneve lauk í dag, i Senda her | og flota til Irian NTB — Haag, 2f. marz: í gær varð skyndilega ó- friðvænlegra í Irian-deilu Hollendinga og Indónesa, er slitnaði upp úr leyniviðræð- um deiluaðila í Washington. í dag sendi Holland aukinn herstyrk og flota til Irian og mun hald^ áfram að styrkja aðstöðu sina þar. Óstaðfestar fregnir berast stöðugt um skærur við Irian. Indónesar hafa lýst yfir því, að ekki komi til mála að hefja viðræður á ný, fyrr en Hollendingar samþykki, að Indónesar taki að sér landsstjórn á Irian, en Hol- lendingar vilja eins konar alþjóðlega stjórn á eynni. U Thant, framkvæmda- stjóri S.Þ. sagði í dag, að bandaríski milligöngumaður inn í leyniviðræðunum hefði skorað á Sukarno, Indónesíu forseta, að ganga aftur að samningaborðinu. |og virðast fulltrúarnir vera ánægSir með árangurinn af honum. Nú heldur ráðstefnan áfram störfum sínum sam- kvæmt dagskránni, sem full- trúarnir hafa komið sér saman um. Meðal fulltrúanna er sagt, að ráðstefna 17 ríkjanna muni starfa í marga mánuði og jafnvel árum saman og verði þannig stöðug um- ræðustofnun í deilum austurs og vesturs. Samkomulag um þrennt Aðallega er það þrennt, sem samkomulag hefur náðst um: 1. Ráðstefnan hefur náð hinu rétta andrúmslofti. Af vestrænni hálfu er sagt, að loftslagi kalda stríðsins hafi verið vísað á dyr, með því að forðast hefur verið allt þras. 2. Samkomulag hefur náðst um dagskrána. 3. Samkomulag hefur náðst um að leggja fram áætlanir um al- menna afvopnun og kjarnorkuaf- vopnun í þremur liðum. Það sem helzt er ósamkomulag um er, að Bandaríkin vilja afvopn- un á níu árum en Sovétríkin vilja afvopnun á fjórum árum. Þeir Rusk frá Bandaríkjunum og Gromyko frá Sovétríkjunum hafa ekki færzt neitt nær sam- komulagi í Berlínardeilunni eftir einkaviðræður sínar í Geneve, en Vesturveldin ætla að taka málið upp aftur eftir viku. Toppfundur í maí cSa júní Afvopnunarráðstefnan á að gefa skýrslu um árangur 'Viðræðnanna til Allsherjarþings Sameinuðu þjóð anna fyrir 1. júní næstkomandi. Ekki hefur enn verið rætt í Geneve um möguleika á toppfundi, en margir telja öiuggt, að slíkur fundur verði haldinn í maí eða júní. Macmillan, forsætisráðherra Bretlands, sagði í brezka þinginu í NTB—Algeirsborg, 27. marz. í dag ríkti undarleg kyrrð í Algeirsborg og Oran eftir blóðbaS undanfarinna daga. Allsherjarverkfall Frakka var í fullum gangi og mikil spenna var í andrúmsloftinu þrátt fyr- ir ró á yfirborðinu. Eina lífsmarkið var skröltið í hervögnunum og brynvögnunum, sem óku um göturnar mcð byssum beindum að húsunum umhverfis og suðið í herþyrlunum, sem sveim uðu yfir borgunum. OAS hefur efnt til allsherjar- verkfallsins til þess að minnast Frakkanna, sem féllu í bardögun- um við öryggislögregluna síðast- liðna daga. í Oran virtist svo sem, að for- dag, að brátt mundu verða gerðar mjög afdrifaríkar ákvarðanir, bæði í Geneve og höfuðborgum Vesturlanda. Hann bað jafnframt um að vera ekki spurður nánar um, hverjar þær ákvarðanir væru. I morgun gáfu þeir Rusk og Gromyko út sameiginlega yfirlýs- ingu um viðræður sínar um Berlín- ingjar OAS hefðu ekki jafnað sig eftir áfallið við fréttirnar um hand töku Jouhaud, fyrrverandi hers- höfðingja, sem nú hefur verið flutt ur til Parísar og bíður í fangelsi þess að vera dreginn fyrir dóm. Það kom aðeins til tveggja hryðjuverka í dag, í Oran og Con- stantine. Féllu sjö Serkir og 85 særðust í sprengjuárásum OAS. Einn annar leiðtogi OAS var handtekinn í dag. Það var yfirmað ur OAS í vesturhluta Alsír, Guill- aume liðsforingi, og hefur hann verið fluttur til Parísar. Nýi yfirfulltrúi frönsku stjórnar- innar í Alsír, Christian Fouchet, varaði í dag í útvarpsræðu hina frönsku íbúa landsins við því að styðja OAS, sem kom af stað óeirð um mánudagsins. Ilann kom hvað eftir annað að því í ræðunni, að tilraunir OAS til að hindra vopna- TSJOMBE MEÐ UNDANBRÚGÐ NTB — Leopoldville, 27. marz: Adoula, forsætisráðherra Kongó, kvartaði í dag yfir því, að Tsjombe, Katanga- forseti, færi stöðugt undan í flæmingi í viðræðunum um innlimun Katanga í Kongó. Þeir hafa haldið með sér sjö fundi og sá áttundi verðúr á morgun. U Thant, framkvæmda- i stjóri SÞ hefur fyrirskipað fulltrúum sínum í Kongó að hindra það, að viðræður Ad- oula og Tsjombe fari út um þúfur. hléið væri vonlaus barátta. Fares formaður bráða- birgðastjórnarinnar Abderrahman Fares, fyrrum for- maður Alsírþings, lýsti yfir því í dag, að hann samþykkti að taka við stöðu formanns í 12^ manna bráðabirgðastjórn Alsír. Bráða- birgðastjórnin á að starfa, þangað til þjóðaratkvæðagreiðslan um framtíð Alsír fer fram og á að vera Christian Fouschet yfirfulltrúa frönsku stjórnarinnar í Alsír til aðstoðar. Fares hefur lifað kyrrlátu lífi í París undanfarin sjö ár. Hann hef- ur verið talinn milligöngumaður í samkomulagsumleitunum frönsku stjórnarinnar og þjóðernissinna- stjórnar Serkja. Hann var handtek inn í haust, en var aftur látinn laus fyrir viku. Framhald á 5. síðu imMM^TVrl|nriirni|, inwnifiiiiin! n i ■im Brynvagnaskrðlt eina lífsmarkið T f M I N N, miðvikudagur 28. marz. 1962, 3

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.