Tíminn - 28.03.1962, Síða 6

Tíminn - 28.03.1962, Síða 6
HVAÐ SAGÐl HANN ÞESSI UM GENGIÐ 1950? Ólafur Jóhannes- son vltnaði í gær til ræðu, sem Gylfi Þ. Gíslason viðskipta- og bankamálaráð- herra flutti á Alþingi 1950, þeg ar til umræðu var frumvarp um gengisskrán- ingu og I því var ákvæði, er fellt var niður, að Landsbanklnn skráðl gengið í samráði við ríkis- stjórnina. Gylfa Þ. Gíslasyni fór. ust þá orð á þessa leið um þetta: „Þá er gert ráð fyrlr í því í 2. gr. frv., að Alþingl afsall sér þýð ingarmiklu valdl, sem það hefur haft allt frá 1924 til að ráða gengi krónunnar og að Landsbankanum verði fengið það I hendur. Eg álít, að það konii ekki til mála, að Alþingi afsali sér þessum rétti. Sérstök ástæða er til að gagn- rýna, hvernig komizt er að orði í niðurlagi þessarar greinar, en þar seglr með leyfi hv. forseta: „Landsbanka íslands er skylt að takb sérstakloga tll athugunar gengisskráningu íslenzkrar krónu, þegar almenn breyting verður á kaupgjaldi, önnur en sú, sem kveðið er á um í lögum þessum". — Nú er hagfræðingum þeim, sem undirbjuggu þetta frumv, auðvitað Ijóst, að kaupgjald get. ur haft áhrif á gengi, en þeim hlýtur líka að vera Ijóst, að þar er aðeins um að ræða einn þátt af mörgum, sem áhrif hafa á gengið — og alls ekki hinn mikll vægasta, heldur eru það markaðs skilyrði og framleiðslugeta þjóð- arinnar t heild. — En hvað á það (Framhald á 5 síðu) f neðri deild mælti Björn Fr. Björnsson fyrir nefndarálitum við 4 frumv. í sambandi við breytingu á ákæruvaldi, þ. e. saksáknara ríkisins. Var þeim öllum vísað til 3. umr. Frumv. um ráðstafanir vegna ákvörð- unar um nýtt gengi var til 3. umr. Þetta mál hafði verið ræt‘ á kvöldfundi í fyrrakvöld og stóð sá fundur til kl. 12,30 og voru umræður fjörugar. Til máls tóku í dag: Skúli Guð- mundsson, Jóhann Hafstein, Björn Pálsson og Lúðvxk JÓsepsson. Frumvarpið var sam þýkkt með 20 afckv. gegn 15 og afgreitt til efri deildar. Frum- varp um tekjustofna sveitar- félaga var til 2. umræðu. Fyrir nefndarálitum mæltu Birgir Finnsson, Hannibal Valdimars son og Jón Skaftason: Fundi var frestað kl. 4 í ræðu Hanni- bals mið'ri og hófst fundur að nýju kl. 5. Ekki eru tök á að greina frá umræðum um þetta mál. — f efri deild mælti G.Þ. G. fyrir frumv. um vernd barna og uli.lnenna, frumv. um verkamannabústaði var af- greitt til nd. Frumvarp um vegagerð á Vestfjörðum og á Austurlandi var vísað frá. Til máls tóku við umræðuna um það mál Sigurvin Einarsson, Hermann Jónasson og Bjart- mar Guðmundsson. — Fundi var slitið og nýr fundur settur og tekið fyrir frumvarp um Seðlabankann og töluðu þeir Gylfi Þ. Gíslason og Ólafur Jó hannesson. Frumvarpið til staðfestingar á bráðabirgðalögunum um ag af- henda Seðlabankanum gengis- skráningarvaldið var til 1. umr. í efri deild í gær. Gylfi Þ. Gísla son bankamálaráðherra fylgdi frumvarpinu úr hlaði. Gylfi sagðist mótmæla þvi, að stjórnarsikráin hefði verið brotin með útgáfu laganna. Kauphækk- unin í sumar hefði valdið 800 millj. króna tekjuauka hjá laun- þegum og allt hefði snarast um, ef ekkert hefði verið gert. 300 milljónir af þessum 800 taldi ráð herrann að stöfuðu af flutningi milli launaflokka og vegna nýrra starfsmanna í þjóðfélaginu. Frá- leitt væri að bera kaupgreiðslur einnar atvinnugreinar saman við vaxtabyrðina. Út í loftið væri að bera vaxtabyrði skuldugra fyrir- tækja saman við launagreiðslur þeirra. Það' verður að líta á vaxta gjöldin í þjóðfélaginu f heild. Þau eru ekki nema um 500 milljónir og þótt allir vextir væru strikaðir út, þá niundi það ekki vega upp á móti kauphækkuninni. Af þessu hljóta allir að sjá, hvílík regin fjárstæða það er, að vextirnir út af fyrir sig skipti nokkru máli fyrir afkomu atvinnuveganna í sambandi við kauphaekkunina miklu. — Enn fremur boðaði ráð- herrann vaxtalækkun á næstunni. Ólafur Jóhannesson vakti at- hygli á, að ráðherrann hefði talið brýna nauðsyn bera til þes« að taka launahækkanirnar aftur af launafólki og að ráðherrann hefði j kallað hinar hóflegu kauphækk-1 anir verkafólks tilræði við þjóð- félagið. Þag hefðu einhvern tíma þótt tíðindi, þegar málsvari Al- þýðuflokksins kallaði óhjákvæmi- legar og sjálfsagðar launabætur verkafólks tilræði. Efni þeirra bráðabirgðalaga, sem hér væru til umræðu er það eitt að taka gengisskráningarvald ið af Alþingi og færa í' hendur Seðlabankanum. í formála fyrir lögunum er hins vegar gefig í skyn, að efni þeirra sé allt ann- að, því að þar telur forseti fs- lands fram röks-emdir ríkisstjórn arinnar fyrir því að nauðsynlegt sé að laíkka gengið. Þessi bráða- birgðalög benda því á þá nauð- syn, að forseti fslands hafi sér við hlið stofnun eða st.jórnarskrár- nefnd, sem hann getur skotið mál- um til og leitað álits hjá um, t.d. bráðabirgðalögum, og kannað hvort þau brjóti í bága ýið stjórn arskrána. Það vill svo til að í stjórnarskránni eru einföld og skýr ákvæði um útgáfu bráða- laga og þessi ákvæði eru um það, að einungis sé heimilt. að gefa út bráðabirgðalög;J þegar liauðsyn beT til. Enginn, rjiQfuri rAre^st sér til að halda því fram, að' brýná nauðsyn hafi borið til að taka gengisskráningarvaldið af löggjaf anum og færa það Seðlabankan- um. Ríkisstjórnin bér hins vegar fram þau rök, að brýna nayðsyn hafi borið til ag fella gengið. Því er reyndar algerlega mótmælt, en það kemur þessu máli ekki við, því að það er sitthvað að taka gengisskráningarvaldið úr hönd- um Aíþingis og að lækka gengið, og það er ókleift með öllu að halda því fram að nokkra nauðsyn hafi borið til að gefa út bráða- birgðalög um að svipta Alþingi valdi um gengisskráningu. — — Viðskiptamálaráðherra hefði reynt að röksfyðja þetta með þvi, að segja, að þar sem ríkisstjórnin hafði vald til að fella gengið gat hún alveg eins gefi.ð Seðlabank- anum þetta vald. Vald bráðabirgða löggjafans er takmarkað í stjórn arskránni og framsal opinbers valds er óheimilt. Það geta svo verið skiptar skoðanir um það, hvar sé heppilegast að gengis- skráningarvaldið sé, en það hagg- ar engu um það, að bráðabirgða- lögin brjóta í bága við stjórnar- Skrána. ffins vegar lít ég svo á, sagði Ólafur Jóhannesson, að Seðlabankinn verði ag vera sjálf- stæðari og óháðari en hann er nú, ef láta á hann fara með þetta vald, því að hann er nú hreint verkfæri ríkisstjórnarinnar. Á s.l. Alþingi voru sett ný lög um Seðlabanka fslands. Stjórnar- stuðningsmenn voru mjög ánægð- ir með þessa löggjöf og töldu hana mjög fullkomna og í þeim lögum eða í sambandi við þá laga setningu var. hvergi minnzt á að fela bankanum gengisskráningar- valdið, heldur var þvert á móti undirstrikað í greinargerð með frumvarpinu, að löggjafinn skyldi fara áfram með það vald. Alþingi^ var því nýbúið að staðfesta þann vilja sinn, ag halda gengisskrán- ingarvaldinu hjá sér. Ástæðan til þessarar bráðabirgðalagasetning- ar kann að vera sú, að með því hafi verið reynt að sigla nokkrum þingmönnum fram hjá óþægileg- um boðum, ekki sízt þingmönn- um Alþýðuflokksins sumum Með þessu hefðu þeir þótzt losna und an ábyrgð af gengislækkuninni. Þá vitnaði Ólafur til ummæla Stefáns Jóh. Stefánssonar 1950, þáverandi formanns Alþýðuflokks ins og ummæla núverandi við- skiptamálaráðherra þag sama ár um gengislækkunarvaldið og sér- staka grein í frumv. er þá var til umræðu, en kveðið var á um að Þjóðbankinn skráði gengig í sam ráði við ríkisstjórnina. Þetta á- kvæði var fellt niður og undir- strikaði löggjafinn þar enn vilja sinn til að hafa gengisskráningar valdig í sínum höndum. Uminæli G.Þ.G. eru birt hér fyrir ofan. — Ólafur Jóhannesson sagði. að það gæti ýmsum fundizt það undar- legt, með tilliti til þessara um- mæla. að það skyldi vera ráðherra Alþýðuflokksins, sem nú mælir manna mest með því að gengis- skráningarvaldið sé tekið af lög- gjafanum. Gengisbreyting er svo róttæk aðgerð. sem kemur við alla þjóðfélagsþegna og hefur svo mikla röskun í för með sér, að hana má alls ekki framkvæma fyrr en leitað héfúr verið allra ráða annarra, sem að sama gagni geta komið, en eru léttbærari og raska ekki eins miklu. Brýna nauð syn og óumflýjanlega þörf verður dili að bera til gengislækkunar, en því var síður en svo til að dreifa að þessu sinni. Ólafur Jóhannesson hafði ekki lokið ræðu sinni kl. 4,30 er hann gerði hlé á máli sínu og umræð- unni var frestað. Vísuðu f rá frumv. um auk- inn stuðning við vegagerð á Vestfj. og Austurlandi Frumvarp Framsóknarmanna um lántoku til aukins stuðnings vig vegagerð á Vestfjörðum og á Austurlandi var til 2. umr. í ed. í gær. Bjartmar Guðmundsson mælti fyrir nál. meirihl. sam- göngumálan. Meirihluti nefndar- innar viðurkennir, að þörf sé á auknuim framkvæmdim í vega- gerð á Austurlandi og Vestfjörð- um. En slík þörf er fyrir hendi um allt land. Þar sem vegalögin eru nú í endurskoðun telur mhl. ekki tímabært að samþykkja frum varpið og ber fram frávísunar- tillögu. Þeir Sigurvin Einarsson og Hermann Jónasson andmæltu harðlega þessari málsmeðferð. Sögðu þeir m.a., að ekki færi milli mála, að tveir landshlutar, Vest- firðir og Austurland, væru verr settir en önnur héruð með vega- samgöngur. Hlutur þessara lands fjórðunga hefur ekki fengizt bættur til jafns við önpur héruð með venjulegum fjárveitingum, og ekki eru horfur á að svo geti orðið á næstunni. Um aðra leið er því ekki að ræða en leita eftir láni til að sinna þessum brýnu verkefnum. Því hefur verið borið við, að ekki sé gerlegt að leggja vegi fyrir lánsfé. Þessari mót- báru verður ekki komig við leng- ur, þar sem ríkisstjórnin hefur sjálf gengið fram fyrir skjöldu og tekið 10 milljón króna lán, sem er fyrsti áfangi af stærra láni til að leggja Keflavíkurveg- inn. — Það er og haldlítil rök- semd ,að samþykkt þessa frum- varps hindri éndurskoðun vega- laga. Verði þeirri stefnu, sem birtist í afstöðu stjórnarflokk- anna til þessa frumv haldið fram, horfir ískyggilega um jafnvægi í byggð landsins og BJÖRN PÁLSSON upplýsti á Alþingi í gær út af ummælum Gylfa Þ. Gíslasonar um verðlag á landbúnaðarvörum í- Dan- mörku, að 1. fl. dilkakjöt kostaði þar í heildsölu 7. ágúst s.l. kr. 35.75 en hér óniðurgreitt 29.45. f Noregi kostaði dilkakjöt í heildsölu kr. 43.86, en í smásölu kr. 62.20 Nautgripakjöt væri einum þriðja dýrara í Noregi og hrossakjöt meira en tvöfalt dýrara. Mjólk kostaði kr. 5.32 í Danmörku, kr. 5.53 í Noregi en 6.88 kr. hér á landi. í Danmörku fá bændur lán til langs tíma 70—80 ára, með 2—3% vöxtum. — Björn sagði, að gehgislækk- unin hefði ekki verið nauðsynleg vegna gjaldeyrisstöðunnar, því að ríkisstjórnin hefði getað lækkað niðurgreiðslur eða fram- lög til fjölskyldubóta. Ríkisstjórnin befði hins vegar valið geng- islækkunarleiðina til að afla ríkissjóði tekna með hækkuðum tollatekjum og gengismismun. Eðlilegra hefði verið að auka tekjur ríkissjóðs með þvf að koma f veg fyrir smygl og tollsvik. Þá hefðu útflutningsgjöld á sjávarafurðum verið stórhækkuð í Ieiðinni. Þau væru skv. þesgu frumvarpi af f.o.b.-verði: 1. Til Fiskveiðasjóðs 1.8 % 2. Til Stofnlánadeildar eða Fiskveiðasjóðs (frá 1. 1. 1962) 1.8 % 3. Til Hlutatryggingasjóðs 1.25 % 3,Til Fiskimálasjóðs ' 0.3 % Samtals 5.15% — og eru þá ótalin ýmis siíiágjöld. I Þetta þýðir, að 10—11% af aflaverðmæti er tekið til lánastofn- ana ríkisins og útvegsmanna fá engu að ráða um vaxtakjörin. Björn dró í efa, að þessar aðfarir væru löglegar og með ein- hverju móti yrðu útvegsmenn og sjómenn að velta þessu af sér. Ékki væri það sök útgerðarmanna og bænda þó rekstrarfjárþörf in væri aukin með endurteknum gengisfellingum. Björn sagð- ist mótmæla þessu frumvarpi og greiða atkvæði á móti því. t T í M I N N, miðvikudagur 28. marz 1962.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.