Tíminn - 28.03.1962, Qupperneq 15

Tíminn - 28.03.1962, Qupperneq 15
Lært fspp á véiar (FrcmhaJd ai 9 siðu) N.ániskeiðið var eins konar við- gerðarskóli. Byrjað var á vélinni, iþá kom tengsli, gírkassi og síðan vökvalyftukerfið. Enn fremur. var flutt erindi um smurolíu og hjól- barða. Miklar áherzlur voru lagðar á nýjungar í vélasmíði. Mest vorum við í B-414, sem er 40 hestafla diesel-dráttarvél. Þetta er stóri bróðir B-275, gírkassinn er með 8 gírum áfram og tveim aftur á bak, og eru allar dráttarvélarnar með lás á mismunadrifi. Til gamans má geta þess, að árlega eru fluttar þús undir þessara dráttarvéla til Bandaríkjanna og má segja að þar sé IH í Englandi í samkeppni við móðurfélag sitt í Bandaríkjunum. Bandarískir bændur kaupa þess- ar vélar vegna þess, hve sparneytn ar og sterkar þær eru, auk þess sem verð á þeim verður sambæri- legt vegna þess, hve vinnulaun í Englandi eru lág. Seinasta dag námskeiðsins var okkur sýnd skurðgrafa og ámokst- ursskófla á B-275 dráttarvélina og virðist mér þar vera á ferðinni mjög verkleg samstæða. Flogið í þotu — Segðu mér, Eyjólfur, hvað tókst þú mikið af þessum námskeið um? — Eg var hjá Bedford í hálfan mánuð á námskeiðum þar, en tók tvo daga í að kynna mér aðferðir þeirra við réttingar og málningu ásamt Pétri og Vilhjálmi. Verk- stæði mitt hér í bænum sér um afhendingu á nýjum bílum fyrir Bíladeild SÍS og því miður eru bíl arnir alloft dældaðir og skemmd- ir, þegar þeir koma til okkar. Gísli kom okkur þess vegna inn á rétt- ingarnámskeiðið þar sem við lærð- um ýmislegt nytsamt og gagnlegt. Síðan, þegar hópurinn skiptist í London, þannig að nokkrir fóru til Harvester en hinir heim, flug- um við Pétur til Frankfurt. Það var okkar fyrsta flug í þotu, hún var af Caravelle-gerð og fannst okkur það mjög skemmtilegt. Tók flugið aðeins rúman klukkutíma. Hjá Opel vorum við í viku og sáum margt nýtt þó hver bílaverk- smiðja sé annarri lík með margt. Framleiðslan hjá þeim gengur þó allmik'lu hraðara en hjá Bedford, og renna út 1500 nýir Opelar dag- lega. Allt er sjálfvirkt, sem hægt er og stjórnað af rafeindaheilum. Geysistórum vélasamstæðum, sem framleiða ýmsa hluti, svo sem sveifarása, er stjórnað af einum manni. Við' skoðuðum verkstæði Opelumboðsmannsins í Frankfurl, en þar vinna rúmlega 700 bifvéla- virkjar. Sáum við þar, eins og hjá Bedford, vinnutilhögun, sem ekki hefur verið hægt að koma við hér á landi, en hlýtur að koma ef tryggja á bifreiðaeigendum sæmi- lega þjónustu. Einnig ætluðum við að skoða verkstæði umboðsmannsins í Ham- borg en yegna flóðanna þar var okkur ráðlagt að fljúga heim um Kaupmannahöfn. Ánægjuleg ferð — Ekki hefur þetta nú ein- göngu verið seta á skólabekk, lyft- ir þú þeim ekkert upp, Gísli? — Jú, jú, eina helgina lánaði Bedford okkur 40 manna Vagn og bílstjóra og við fórum eina helgi til London. Eg fór með þá niður Thames fljótið, í dýragarðinn, við skoðuðum Tower of London, heim sóttum vaxmyndasafnið, vorum fyr ir hádegi á sunnudaginn á hinum fræga markaði Petty Coat Lane, skoðuðum stríðssafnið og margt fleira sáum við skemmtilegt. Síð- asta kvöldið sátum við boð Inter national Harvester á „Talk of the Town“, sem er einn íburðarmesti skemmtistaður í London og þó að víðar væri leitað. — Er nokkuð fleira, sem þú vilt segja að lokum, Hjalti? — Nei, ekki annað en að við í Véladeild SÍS væntum þess, að ár- angur ferðarinnar muni verða sá, að viðskiptavinir okkar njóti betri og fullkomnari þjónustu nú en áð- ur og er þá tilganginum náð. 2. síðan iFramhald af 2. síðu). og var nokkuð hófsamur á leik- inn. Hlutverkið gaf ekki tilefni til mikilla tilþrifa, og hann var ekkert að bæta þeim ipn í. Sigurður Kristinsson lék bisk- URÍnnnfrá Lax. Hann sýndi lipr- an leik og þægilegan, en ekk- eit minnisstæðan. Valgeir ÓIi Gíslason lék séra Arthur Humprey, og gerði það nokkuð vel. Hann var látlaus meinleysismanngerð, sagði sínar perlur á réttum stöðum og hafði góð svipbrigði. Hann minnti mig talsvert á Don Camillo. Loks var nýliði á sviðinu, Gunnlaugur Magnússon. Hann lék Towers liðþjálfa. Hlutverk hans var lítið, en hann gerði' því allgóð skil. Rak að vísu í vörðurnar einu sinni, en lagaði það fljótt og vel og bar ekki á óstyrk. Framsögn féll prýðilega við þetta hlutverk. Ég hef nú lokið við að tæta þessá leiksýningu í mig, hef bent á það, sem mér þótti áberandi miður fara, en einnig leitazt við að draga fram ljósu hliðarnar. Og mér er óhætt að fullyrða það, að þeir, sem aðeins fara í leikhús til þess að hlæja og hlæja mikið, ættu að fara til Hafnar- fjarðar og sjá Klerka í klípu. sh Farið í leikhús Framhald st 8. síðu. ast menningarstraumar og nýjung- ar í þessum listgreinum út um heiminn, ýmis þjóðleg einkenni í listrænu formi eru kynnt á alþjóð- legum vettvangi. Leikhús þjóðanna gefur með þessu tækifæri til fjöl- þættrar listkynningar, sem skapar heilbrigða samkeppni og metnað og hlýtur að hafa frjóvgandi áhrif og hvetja til nýrra dáða og list- sköpunar. Þetta er í stórum dráttum það, sem Alþjóðaleikhúsmálastofnunin vinnur að. Hún vill á þennan hátt fegra og bæta mannlífið, vinna að samstarfi þjóðanna á sviði lista og menningar, miðla hver annarri af list sinni, þekkingu og reynslu, og skapa með því samúð og vináttu þjóða á milli. Sélur afii (Framihald af 16. síðu). og í gær fóru bátar yfirleitt ekki á sjó. Á laugardag reru 20 bátar og öfluðu samtals 162.4 lesta, allt i net. Þá var Pétur með 16.1 lest, en Þorsteinn Gíslason fékk 12.7 lestir. Á sunnudag reru 22 bátar og öfluðu 130.7 lestk. Hæstur var Pétur með 21 lest, þá Smári með 18,2 lestir og Mummi með 11.1. í fyrradag reru svo 26 bátar og öfl- uðu samtals 141.4 lesta. Þorsteinn Gíslason var hæstur með 9.1 lest, Muninn fékk 8.4 og Guðmundur Þórðarson fékk 8.3 lestir á línu. Stokkseyri Afli Stokkseyrarbáta hefur ver- ið mjög mikill síðustu 10 daga. — Hafa þeir fengið frá 12 og upp í 20 lestir í róðri og þeir aflahæstu jafn vel komizt upp í 26 lestir í róðri. Unnið hefur verið fram að mið- nætti, eða eins lengi og fólk hefur þolað að undanförnu, en töluverð fólksekla er á Stokkseyri. Einnig er aðstaða frystihúsanna til mót- töku á fiski heldur léleg og hefur þetta hvort tveggja tafið nokkuð vinnslu, og einnig orðið til þess að sumt af fiskinum hefur orðið að selja til Hafnarfjarðar og Reykja- víkur. Nokkur saltskortur var á Stokks eyri fyrir helgina, og varð að sækja salt langar leiðir. Til dæm- is voru sóttir 4 bílar af salti alla leið til Akraness og er þetta mjög dýrt og óþægilegt. En nú hefur greiðzt úr þessu, því að saltskip kom til Reykjavikur í síðustu viku. Aflahæstu bátarnir eru Hólm- steinn með 280 lestir og Hásteinn I með 240 lestir. Eyrarbakki Þrír bátar eru á veiðum frá Eyrarbakka, þeir Björn, Jóhann Þorkelsson og Öðlingur. Þeir hafa allir aflað mjög vel að undanförnu eða allt frá 10 upp í 20 lestir í róðri. Vinna er mjög mikil á Eyrar- bakka nú sem stendur og unnið dag hvern fram á miðnætti. Skóla- börn jafnt sem aðrir bregða sér í fiskvinnu á milli þess, sem þeir þurfa að gegna öðrum skyldustörf um. Þorlákshöfn Mokafli hefur verið hjá Þorláks- hafnarbátum að undanförnu, og munu 1200 lestir hafa borizt á land síðustu vikuna. Aflahæsti bátur- inn er nú Þorlákur II með um 400 lestir, er sá afli reiknaður^frá 6. janúar, en mestur hluti hans hef- ur fengizt síðustu tvær vikurnar. Vinna er mjög mikil í Þorláks- höfn, og hefur skólanum þar ver- • ið lokað, til þess að börn geti unn- ið að verkun aflans. Einnig koma margar húsmæður víðs vegar að, meðal annars úr Hveragerði, og vinna þær flestar hálfan daginn. Annars er ekki unnið skemur en til miðnættis dag hvern. Þess má geta, að síðustu viku höfðu pökk- unarstúlkur í frystihúsinu 3000 kr. í kaup. Keflavík Landlega var hjá Keflavíkurbát- um í fyrradag, og afli hefur verið heídur rýr þar að undanförnu. Flestallir bátarnir eru nú búnir að taka net, og eru nú aðeins 3 eftir með línu. Einn þeirra fór á sjó í fyrradag og fékk aðeins 7 og hálfa lest. Fjórir nctabátar fóru einnig á sjó í fyrradag og fékk sá aflaþæsti 9 og hálfa lest. Menningin og békmennfir (Framhald aí 4 siðu) sæmilegur rithöfundur þótt hann byggi búum fleiri en einu og safn aði auði fram hjá ógoldnum list- iðkunum með harðneskju, brögð- um, auðgunarráðahag, hvað eftir annað, veltist í stjórnmálum og tefðist frá iðju sinni af flóttaferð- um og væri að síðustu tekinn af lífi fyrir aldur fram. En þetta má takast enn. ^Vinston Churchill gat orðið meiri orðlistarmaður en væntanlegt er að eldið og friðun- in geri úr flestum, þótt hann hefði í nokkur önnur horn að líta en þau ein að meta orð á móti orði og velta fyrir sér fjandlegum á- hrifum fornra stílbragða. Ritleikn in kom í leitirnar við það að hugsa málefni og skýra frá þeim og þroskaðist við miskunnsemi þá, er tíðkast við samkeppni fréttaritara, en hún er sögð síður stunduð með kjassi og sleikingum en kjafts- höggum og glefsingum. Ber því sízt að verja það með látum og lagakrókum, sem sjálft ætti að geta bitið bein fyrir sig og rutt sér þar til rúms er því hæfir. Sigurður Jónsson frá Brún. VÍBAVANGUR (Framhald af 2. síðu). vekja frekari athygli á hinu „heiðarlegu fréttablaði", að sannleikurinn er sá, að mótmæl in gegn launaskattinum voru samþykkt samhljóða og mót- atkvæðalaust, 4 s'átu hjá. Mbl. getur eflaust skýrt það, livort þcssir fjórir voru þar fremur að bjarga áliti sjálfra sín, eða búnaðarþings. Fiskaflinn Framhald af ö. síðu 189.474 tn. meiri en árið áður. — Þorskaflinn í fyrra var verkaður þannig, að auk ísunar, herzlu og mjölvinnslu voru fryst 144.789 tn (200.031 tn. 1961), en söltunin nam 68.818 tn. í fyrra en 74.865 tn. í hitteðfyrra. Af rækjum og humar voru fryst 2.552 tn. í fyrra, en 2.972 1960. Niðursuða á rækj- um og humar var hins vegar 323 tn. í fyrra, en 338 tn. árið áður. Borgarafundur á Akureyri Framsóknarfélögin á Akureyri efna til almenns borgarafundar um Efnahagsbandalagið n.k. föstu dag. Fundurin,n verður haldinn í Samkomuhúsinu á Akureyri og hefst hann kl. 9 s.d. Frummæl- endur verða þeir Eysteinn Jóns- son, formaður Framsóknarflokks- ins og Helgl Bergs, ritari flokks- ins. — Allir eru velkomnir á fund inn meðan húsrúm leyfir. Búizt er við fyrirspurnum og umræð- urn um þetta stórmál. Jörðin Melar í Klofningshreppi í Dalasýslp er til sölu og laus til ábúðar í næstu fardögum. Semja ber við eig- anda jarðarinnar, Ólaf Kristjánsson, Hátúni 47, Reykjavík. Dieseldráttarvélar Höfum óráðstafaðar nokkrar Ferguson díesel- dráttarvélar TEF-20. Vélarnar eru uppgerðar á verkstæði okkar, og verða til afgreiðslu fyrir lok aprílmánaðar n.k. Áætlað verð ca. kr. 53.000.00. Síðastliðið ár gerðum við upp yfir 30 vélar, sem allar hafa reynzt vel. Ábyrgð er tekin á viðgerð. Kaupfélag Rangæinga. Til sðlu er bókasafn Þorsteins heitins Þorsteinssonar, sýslu- manns. Skrá yfir safnið liggur fyrir hjá undirrituðum um- boðsmönnum. VAGN E. JÓNSSON málflutningsskrifstofa, Austurstræti 9. Sími 14400 og 16766. RAGNAR ÓLAFSSON lögfræði- og endurskoðunarskrifstofa, Lauga- veg 18, 4. hæð. Sími 22293. ' Skrifstofustúlka ■ \ Menntastofnun Bandaríkjanna á íslandi (Fulbright- stofnunin) óskar eftir að ráða stúlku eða konu til skrifstofustarfa. Vinnutími er frá kl. 13.00 til 18.00 5 daga, á viku. Starfið krefst staðgóðrar kunn- áttu 1 vélritun, íslenzku og ensku. Skriflegar umsóknir með upplýsingum um aldur og starfsreynslu sendist í Pósthólf 1059, Reykjavík fyrir 2. apríl n. k. ÞAKKARÁVÖRP Mínar innilegustu þakkir til allra þeirra, er með ýmsu móti sýndu mér sóma og vináttu á sextugs- afmæli mínu. Með kærum kveðjum. Guðmundur Björnsson. Þökkum innilega auSsýnda samúð við andlát og jarðarfö Böðvars Jónssonar, Brennu. Vandamenn. T Í M I N N, miðvikudagur 28. marz. 1962. 15

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.