Tíminn - 19.05.1962, Page 1

Tíminn - 19.05.1962, Page 1
Fólk er beðið að athuga, að kvöldsími blaðamanna er 1 8303 SÖLUBÖRN Afgreiðslan í Banka- stræti 7 opnuð kl. 7 alla virka daga LEYNIÞRÆÐIR AFHJÚPAÐIR Mönnum blöskrar óheil- indi Sjálfstæðisfl. að kjósa Einar Olgeirsson foringja kommúnista í stjórn eins stærsta og mikilvægasta fyr irtækis þjóðarinnar, á sama tíma og Mbl. er stútfullt dag eftir dag af áróðri gegn kommúnistum. Skrípaleikurinn, sem leikinn var á eftir, nær ekki að breiða yfir hin sterku tengsl, sem Einar Olgeirsson og kommúnist ar hafa við Sjálfstæðisflokkinn, heldur afhjúpuðust leyniþræð- irnir nú erin einu sinni, en skammt er siðan og mönnum enn í fersku minni, er Bjarni Benediktsson sendi Einar 01- geirsson sem sérstakan sendi- mann sinn til Helsingfors, eftir að hann og Morgunblaðið hafði kallað skrif Þjóðviljans um Finnlandsmálin svívirðilegt níð- ingsbragð við bræðraþjóð okk- ar, Finna, er hún átti í erfið- leikum á örlagastundu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft þann hátt á við kjör í Sogs stjórn, að láta verða sjálfkjörið. Hefur íhaldið aðeins stungið upp á tveimur mönnum og kommúniStar stungið upp á hin um þriðja, og þeir þrír sjálf- kjörnir án atkvæðagreiðslu. Átti að sjálfsögðu að hafa sama háttinn á nú. Þórður Björnsson bæjarfulltrúi Fram- sóknarflokksins stakk hins veg- ar upp á fjórða manninum, Birni Guðmundssyni, þótt fram boðið væri vonlaust. Gerði hann það svo atkvæðagreiðsla yrði að fara fram og í ljós kæmi, hvort Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði ekki að bæta þriðja manni á lista sinn. — Er Þórður hafði gert uppástungu sína, bætti Geir borgarstjóri þriðja nafn- inu á lista sinn, nafni Tómasar Jónssonar borgarlögmanns. En til að halda samkomulagið við félaga Einar, lánaði Sjálfstæðis flokkurinn honum eitt atkvæði til að tryggja honum setu í stjórninni. Listi Sjálfstæðisfl. fékk 9 atkv., listi kommúnista 4 atkvæði, listi Framsóknarfl 1 atkvæði, en fulltrúi Alþýðufl. sat hjá við atkvæðagreiðsluna. Það er því augljóst og óum- deilanlegt, að einn fulltrúi Sjálf stæðisflokksins greiddi Einari Olgeirssyni atkvæði. Fráleitt er að halda því fram, að um mis- tök hafi verið að ræða, en það var gert í skrípaleiknum, sem á eftir kom. Listar flokkanna við atkvæðagreiðslur í borgarstjórn inni eru ávallt eins merktir, listi Sjálfstæðisfl. er ætíð D- listi og er fráleitt að halda því fram, að borgarfulltrúar Sjálf- stæðisfl., sem búnir eru að vera mörg ár í borgarstjórninni þekki ekki listabókstaf Sjálf- stæðisflokksins. Mbl. auglýsir það ekki svo lítið þessa dag- anna, að það sé D-listinn og fer ekkert milli mála. AU löngu eftir að kosning hafði farið fram, forseti lýst hana lögmæta og Einar Olgeirs son rétt kjörinn í stjórn Sogs- virkjunarinnar, búið var að bóka kjör hans í gerðarbók borgarstjórnar, og búið að af- greiða annan dagskrárlið fóru (Framhald á 15. sfðu) EFTIR HÓTANIR OG SVIKABRIGZL URÐU MORGUNBLAÐSRITSTJÓRARNIR ALLT í EINU HUÓDLÁTIR OG HOGVARIR MENN „ÞaS voru hljóðir og hóg- værir menn", sem birtu í Morg unblaðinu í gær fréttina um samkomulag verkamanna og atvinnurekenda á Akureyri og Húsavík um nýja kjarasamn- inga. Fréttin birtist i smá- klausu undir eindálka fyrir- sögn, eins og sýnt er með Ijós- mynd hér í blaðinu. Tvímælalaust má þó telja þetta samkomulag einn stærsta atburð, sem hefur gerzt hér um margra mánaða skeið. Með þessu samkomulagi er lagður grundvöllur að verulegum kjarabótum og vinnufriði. Mætti vel álykta af þessu, að Mbl. teldi varðveizlu vinnu- friðarins ekki neitt stórmál og kjarabætur alþýðu þó enn mínna. Þessi ,,hógværð“ Mbl. á hins vegar sína skýringu. Þótt ríkis- stjórnin væri búin að látast meðmælt kauphækkun til hinna láglaunuðu, gerði hún allt sem hún gat til að koma í veg fyrir samkomulag. Hún reyndi eftir megni að spilla fyrir því, að samkomulag næð- ist nyrðra og gekk meira að segja svo langt að láta Mbl. heimta lögbindingu til að koma í veg fyrir það. Daginn, sem samið var, birtust þau um- mæli í forustugrein Mbl., sem fylgja hér ljósmynduð þar eru þær kjarabætur, sem samið var um, en kallaðar hvorki meira né minna en „áhlaup kommúnista á hendur hinu ís- lenzka þjóðfélagi“! Af þeim ummælum Mbl. geta menn bezt ráðið, hvort samkomulag hefði náðst á Ak- ureyri, ef stefna ríkisstjórnar- innar hefði fengið að ráða. Mbl. í gær sýnir bezt, hvert hið rétta hugarfar er. Af því ættu launastéttirnar að geta mikið lært. A3 ofan er síðasta setningin úr aðalleiðara Mbl., daginn áður en samningar tókust. Hér til hliðar er svo eindálkurinn um stórfelld ustu frétt síðustu mánuðina. — Hann ber því vitnl að það var hógvært Mbl., sem kom í gær, — daginn, sem þeir voru að hugsa sig um, hvernig þeir skyldu reyna að klóra sig yfir „áfallið" VIVNDVV.ITENDl!R :i Aknroyrf Verkolýtefétftfr Akure.yrar feéJAt fnmdf i faerkvfdrti. Á báff- urn fnndjimun vor saunþykkt eamkwuulajfiff, sefu sauintasa- nofndir Wffrf Þíhóu nnff. VoW- ur kuupUækktuiín nofckru mínnl en faríð hafðí verif>' fr.uu : . ■ . ... -VMMMtje i ~ llækkar fcaupið fra4*% off npp á 10% cittr fiobknw, «n þd cr nndvifftð InnlftUfu w 4«. k»™ hmkkun, som koma áttl tU fnun kvftMUÁa hsnu 1. júni. „EINS OG JATNINGARIAUSTURVEGI” sjá bls. 16

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.