Tíminn - 19.05.1962, Blaðsíða 16
Laugardagur 19. maí 1962
113. tbl.
46. árg.
Sveinn Svemsson, meðlimur í fulltrúaráði Sjálfstæðisfé-
Iaganna í Reykjavík segir frá vinnubrögðunum við upp
stillingu íhaldsins og skorar á sjálfstæðisfólk að hegna
| flokknum með fylgistapi.
,ÞETTA VORU ALVEGIINS OG
JÁTNINGAR í AUSTURVEGI'
Það er á vitorði allra í bæn-
um, hvílíkt upplausnarástand
ríkir nú í herbúðum Sjálf-
stæðisflokksins eftir bola-
brögð þau, sem notuð voru við
framboð flokksins í Reykjavík
og rutt af listanum 6 af þeim
tíu bæjarfulltrúum, sem sátu í
bæjarstjórn síðasta kjörtíma-
bil. Margir Sjálfstæðismenn
ræða um þetta, og táknrænt
dæmi um viðhorfið er það,
sem Sveinn Sveinsson, Skúla-
götu 74, hefur um þetta að
segja. Sveinn hefur verið mjög
virkur liðsmaður Sjálfstæðis-
flokksins í þrjá áratugi, setið
i fulltrúaráðinu í Reykjavík
fram að þessu, að hann sagði
sig úr því, og ekki legið á liði
sínu við kosningar. Tíðinda-
maður blaðsins hitti hann að
máli í fyrradag, og ræddi þessi
mál við hann ,og honum fór-
ust orð á þessa leið:
— Mér er þaS ekkert launungar-
mál, að þótt ég sé nú búinn að
vinna fyrir Sjálfstæðisflokkinn við
hverjar kosningar í 30 ár, og hafi
verið virkur Sjálfstæðismaður og
ekki dregið af mér, er nú svo kom-
ið, að í þessum kosningum get ég
ekki og ætla ekki að styðja Sjálf-
stæðisflokkinn. Ég vil þó taka
fram, að þetta er ekki vegna þess,
að ég sé andvígur grundvallar-
stefnu Sjálfstæðisfloksins, svo sem
stuðningi við einstaklingsframtak,
en ég tel gerðir flokksforystunnar
orðnar með þeim hætti, að þar sé
allsráðandi valdabarátta og eigin-
hagsmunastreita.
— Ég nefni sem dæmi uppstill-
ingu flokksins hér í Reykjavík. Þar
er 5 eða 6 bæjarfulltúum rutt af
listanum, og eru margir þeirra á-
reiðanlega beztu fulltrúar flokks-
ins í bæjarstjórn og ekkert út á
þá að setja, heldur hið gagnstæða,
og þeir njóta trausts flokksmanna.
Það eru þær aðferðir, sem notað-
ar voru til að bola þessum mönn-
um af listanum, sem ég vil mót-
mæla. Allir vita, að í prófkjöri því,
sem fram fór, tóku þessir menn
þátt og kepptu þar um sæti, en þeg
ar á fulltrúaráðsfund er komið,
er Höskuldur Ólafsson, varafor-
maður ráðsins, látinn tilkynna það
með sínum sterkasta rómi, að allir
þessir menn hverfi af listanum að
eigin ósk!! Þetta er alveg eins og
játningar í austurvegi, þar sem
menn eru látnir játa því, sem er
Fimm systkin, börn hjón-
anna Vigfúsar Jónssonar frá
Atli er hress
Atli Ingvarsson, sem var í flug
vélinni, sem fórst um daginn á
Korpúlfsstaðatúni, liggur nú í
Landakotspítalanum og líður hon
um mjög vel eftir atvikum. Rann
sókn er jafnframt hafin á orsök-
um slyssins, en erfitt er að segja
til um þær, því enn bendir allt
til þess, að ekki hafi neitt bilað
í vélinni, er hún hrapaði.
Richard Thors læknir veitti blað
inu í gærkveldi upplýsingar um
líðan Atla. Hann var skorinn upp
við innvortis meiðslum, strax og
hann kom í sjúkrahúsið. Auk inn
vortis meiðslanna var hann tals-
vert meiddur á höfði. Atli hefur
alltaf verið með rænu, síðan hann
kom í sjúkrahúsið, og hann hefur
einnig jafnað sig alveg andlega.
Sigurður Jónsson hjá loftferða-
eftirlitinu stjórnar rannsókn slyss
ins. Hann sagði blaðinu í gær-
kveldi, að komið hefði i ljós,.að
allir stýrisvírar hefðu verið 1 lagi.
Vélin reyndist líka í lagi. Hún var
sett í gang í dag og gekk eins og
ekkert hefði i skorizt. Á þessu
stigi málsins er ekkert unnt að
fullyrða um orsakir slyssins, en
beðið er eftir því, að Atli verði
I svo hress, að hann geti skýrt frá
gagnstætt áður yfirlýstum vilja.
— Ég tel, sagði Sveinn enn frem
ur, að sto’órn fulKjrúaráðs Sjálfstæð
isfélaganna í Reykjavík sé orðin
svo einræðiskennd, að engu tali
taki. Áður var þar allt frjálslegra
og menn ræddu þar málin og
þurftu ekki endilega að vera alltaf
á sömu skoðun. En nú tekur varla
maður til máls, og forystumenn-
irnir segja_ þar aðeins fyrir verk-
um.
Birgir Kjaran hefur þar nú öll
völd, og auðsætt er, að með þess-
um einræðisaðgeiðum við uppstill-
inguna er hann að þreifa fyrir sér
um það, hvað má bjóða mönnum,
og hvað unnt sé að gera í skjóli
þess sterka meirihluta, 10 fulltrúa,
sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði
síðast,
Takist þessum mönnum þetta án
þess að flokkurinn tapi í kosning-
unum, þá vitum við á hverju við
(Frambald a 15 síðuí
Iðu og Sólveigar Snorradóttur
frá Þórustöðum, er bjuggu í
Þorleifskoti í Laugardælasókn,
hafa nú áformað að reisa nýja
kirkju í Laugardælum.
Þrjú þeirra systkina, Magnús,
Snorri og Ingveldur, eru búsett
hér í Reykjavík, en tvær systur,
Kristín og Þórhildur, í Laugar-
dælasókn. Foreldrar þeirra og
einn bróðir, Guðjón, hvíla í kirkju
garðinum í Laugarlælum.
BlaSið ræddi fyrir skömmu við
Sveinn Sveinsson
annan bræðranna, Magnús, húsa-
smíðameistara, um þessi bygging-
aráform, og sagði hann, að hafizt
yrði handa í sumar og kirkjan
reist, ef sóknarnefnd og jarðeig-
andi, sem er Kaupfélag Árnesinga
veita heimild til þess. Þá sagði
Magnús, að komiS gæti til mála
að fleiri aðilar léðu þessari bygg-
ingu lið.
Bjarni Pálsson, skólastjóri iðn
skólans á Selfossi, er nú að teikna
kirkjuna, sem verður af svipaðri
stærð og gamla kirkjan, 60—70
fermetrar, en hún var rifin fyrir
4—5 árum.
Fimm sysfkin byggja
kirkju í Laugardælum
ÞórSur Björnsson
KVEÐJA
ÞÓRDAR
Að loknum dagskrárstörfum á fundi borgarstjórnar Reykja-
víkur í fyrrinótt kvaddi Þórður Björnsson, borgarfulltrúi Fram
sóknarflokksins, sér hljóðs og bað bókunar á eftirfarandi
kveðjuorðum frá sér:
— Þegar ég nú hverf úr borgarstjórn Reykjavíkur
eftir 12 ára veru hér, vildi ég mega nota tækifærið í lok
þessa síðasta fundar borgarstjórnar, sem ég sit, og þakka
forseta borgarstjórnar og borgarfulltrúum öllum sam-
veruna.
Vér borgarfulltrúarnir höfum deilt um margt á liðn-
um árum. Sá ágreiningur hefur nánast aðeins verið um
leiðir, en markmið verið sameiginlegt: Hamingjusamir
íbúar í glæsilegri höfuðborg hins íslenzka lýðveldis.
Ég veit, að ég mæli fyrir munn vor allra, er ég læt
það verða mín seinustu orð hér í borgarstjórn að óska
Reykjavík og Reykvíkingum giftu og gengis á öllum
ókomnum árum. —
Þórður Björnsson..
--- -------- -- ----------B
SJÁLFROÐALIÐAR:
Nú er aöeins vika til kosninga, og enn er eftir að inna mikla
vinnu af höndum. B-listann vantar því sjálfboðaliða til starfa nú
þegar. Stuðningsmenn B-listans. Hringið strax í aðalskrifstofuna,
Tjarnargötu 26, og látið skrá ykkur til starfa. Allar hjálparhend
ur eru vcl þegnar .Sjálfboðaliðar, látið B-listanum í té allan
þann tíma, sem þið mögulega getið, eftir að daglegum skyldu-
störfum er lokið. Munið, að ein vika er skammur tími. Símar
skrifstofunnar eru 1-55-64, 2-47-58, 2-41-97 og 1-29-42.
BIFREIÐAEIGENDUR:
Áríðandi er, að þeir bifreiðaeigendur, sem geta ekið fyrir
B-listann á kjördegi, láti skrá sig fyrir mánudagskvöld á svæða-
".krifstofunum. sem auglýstar eru á bls. 6.