Tíminn - 26.05.1962, Blaðsíða 16
JC!SJ
Laugardagur 26. maí 1962
119. tbl.
46. árg.
KEYPTI FYRIR
FJÓRTÁN ÞÚS.
Rannsóknarlögrcglan hélt upp-
boS á óskilamunum í gær, Upp-
STOKKHOLMUR
- REYKJAVSK
Svart: F. Ekström
■ M 9
áH wé wm.
mi 'éáh w.........
''ý"'/// .JJ, . .^ ■ y
il IS ®1 m
m m m m
Hvítt: F. Ólafsson
32. Heldl — Hc8c7
33. Rc2b4 — Hc7c8
boðið fór fram á baklóðinni við
Fríkirkjuveg 11, uppboðslialdari
var Þórhallur Pálsson og skrifari
Jón B. Jónsson. Haraldur Jóhann-
esson lögregluþjónn sá um upp-
boðið.
Blaðið talaði við Harald, þegar
uppboðinu var lokið, og sagði
hann, að 150—200 manns hefðu
sótt það.
— Þeir voru að skamma okkur
fyrir að halda þetta rétt fyrir
kosningar, sagði Haraldur, og
héldu, að enginn mundi koma, en
það fór á aðra leið. Allt seldist,
allir fóru ánægðir og allir græddu.
Sumir keyptu fyrir stórar uppþæð-
ir, til dæmis fornsali í Hafnarfírði,
sem heitir Jóngeir. Hann keypti
fyr'ir fjórtán þúsund.
Við spurðum Harald, hvaða
hlutir hefðu verið í boði.
— Allt milli himins og jarðar,
sagði hann. — Hjólhestar, skart-
gripir, fatnaður, úr . . . .
— Tanngarðar? spurðum við.
-— Nei, engir tanngarðar. Við
bjóðum þá ekki upp, en ég á eftir
að henda mörgum tanngörðum. 1
Myndin er tekin af Jóni í Listamannaskálanum á fimmtudaginn, og situr hann hér við nýjasta málverkið, er
hann sýnir. Það heitir ,,Sumarnóttin". (Ljósmynd: TÍMINN, GE).
Stærsta sýning Jóns
í gær opnaði Jón Engilberts
málverkasýningu í Listamanna-
skálanum, eftir 10 ára sýningar-
hlé hérlendis, ef frá eru taldar
sýning á bókarskreytingum í
Mokkakaffi í fyrna og sýning á
vatnslitamyiTidum í Iíafnarfirði
sama ár.
Sýningin var opnuö fyrir boðs-
gesti klukkan hálf níu í gær-
kvöldi. Húsfyllir var í skálanum.
Klukkan tvö í dag verður sýning
in opnuð almenningi.
Fréttamenn hittu Jón að máli
á fimmtudaginn, en hann var þá
aö Ijúka við að koma málverk-
unum fyrir á veggjum skálans. —
Þarna eru mörg stór olíumálverk,
gerð á síðustu árum — það síð-
asta nú í vor, og nokkur eldri
verk, meðal annars fjögur, sem
eru eign listasafns rkisins.
Elzta málverkið á sýningunni
er frá 1935. Það sýnir verkafólk
á heimleið að loknum degi. Þetta
málverk er frá sama tíma og
„Kvöld í sjávarþorpi", verk, sem
flestir kannast við og nú er í eigu
ríkisins, en það olli nokkru tauga
stríði þekktra manna á sínum
tíma. „Kvöld í sjávarþorpi“ er
þó ekki til sýnis í Listamanna-
skálanum, enda sagðist Jón aðeins
hafa fengið þau málverk lánuð,
sem hafa veriö lokug niðri vegna
húsþrengsla á safninu.
Jón sagði, að þetta væri eng-
in yfirlitssýning, þótt málverkin
séu frá ýmsum tímabilum. Flest
stærri málverkin á þessari sýn-
ingu hafa verið sýnd erlendis, en
fæst komið fyrir sjónir manna
hér heima. Jón sýndi vatnslita-
myndir eingöngu í Listamanna-
skálanum fyrir tíu árum og bókar
skreytingair í Mokkakaffi og
vatnslitamyndir í Hafnarfirði í
fyrra.
Þetta er stærsta málverkasýn-
ing, sem Jón Engilberts hefur
haldið. Á henni eru 60 verk, þar
af 13 olíumálverk og 30 vatns-
litamyndir, auk bókarskreytinga
og gouacemynda. 55 verkanna
eru til sölu. Sýningartími er frá
14 til 22 daglega til 3. júní.
GLÆSILEGUR FUNDUR
Fjölmennur og glæsilegur B-listafundur var í Stjörnubíói í gærkveldi. —
Sýndi hann, aö Framsóknarflokkurinn á síauknu fylgi að fagna, og að
fólk er ákveðið í að gera sigur hans sem mestan á morgun.