Tíminn - 19.06.1962, Blaðsíða 4
Gleðin skein, en solin ekki
Framhald af 16. síðu.
— Tókst þú ekki mikinn þátt í I
félagsmálum, Björn?
— Mitt helzta starf í vetur var
við skólablaðið Muninn, og ég hef
að mörgu leyti haft ánægju af fé-
lagsstarfseminni í skólanum. Þetta |
er yfirleitt ágætis fólk að vinna
með, og ég efast ekki um, að þær j
minningar, sem maður eignast um
þau störf, verða manni ekki til
minni ánægju en aðrar síðar meir.
— Eru menn duglegir að skrifa
1 menntaskóla?
Það er fámennur hópur, sem
s-tundar það, en þessi fáu eru dug-
legir.
— Ertu ekki ánægður með eink-
unnina?
— Jú, jú — sérstaklega er ég
ánægður með, að mínar hæstu ein-
kunnir skuli vera í íslenzku munn-
legri og sögu. Hins vegar hefði i
maður auðvitað viljað gera betur, I
én mér þykir jafnvel vænzt um
einkunnina í íslenzkum stíl.
— Hvað er svo í deiglunni í
haust? |
— íslenzk fræð'i við Háskóla ís-
lands, enda er áhuginn mestur hjá
mér fyrir þeim.
— Varst þú í heimavist?
— Já, ég hef búið í vistinni alla
mína skólatíð í M.A. Þar er gott
að vera, enda mikið hægt að læra
þar í umgengnisháttum og þar af
leiðandi þroskandi að búa þar.
— Heldurðu, að þú saknir skól
ans?
— Það setti að mér hroll í
haust, þegar ég gerði mér grein
fyrir því, að þetta yrði síðasti vet
urinn minn hér, og ég get ekki
sagt, að mér líði betur nú, þegar
hann er liðinn.
María Þorsteinsdóttir frá Hofs-
ósi brást vel við, þegar hún var
beðin um viðtal:
— Hvort kanntu betur við hvítu
dragtirnar eða svörtu?
— Þær hvítu.
— Hvers vegna?
— Okkur finnst þær hentugri
en svartar. Við getum notað þær
hvítu miklu meira, og svo er sum
arið fram undan. Svart er svo
jarðarfararlegt.
— Varst þú ekki í máladeild?
— Jú.
— Hvaða fög þóttu þér skemmti
legust?
— Mér fannst mjög gaman að
latínu og líka frönsku. Og náttúru
fræðinni í vetur. Ég ætla nefni-
le.ga í læknisfræði í haust. Þess
vegna finnst mér svo gaman að
„fysiologi“.
— Ekki hefurðu byrjað í
menntaskóla með það íyrir aug-
um?
— Hálfvegis. Mig er lengi búið
að langa í læknisfræði. Það er ekki
alveg ákveðið enn þá, en ég býst
við því.
— Hvað ætlarðu að gera i sum-
ar?
— Ég veit það ekki enn þá.
Kannski fer ég í síld.
— Til Siglufjarðar?
— Sennilega.
— Er það af ævintrýaþrá? ,
— Nei, bara peninganna vegna.
Ég er að hugsa um að ráða mig
kannski á skrifstofu, en fá svo að
skjótast í síld líka.
— Heldurðu, að þú saknir M.A.?
— Áreiðanlega. Ég held, að ég
finni það bezt í haust. „Partir,
c’est mourir un peu“, eins og
Frakkar segja. Það er víst sann-
leikur.
—bjp.
Kynna sér sauðfjárræki
Framhald af 16. síðu.
skýrir íslenzkan sauðfjárbúskap í
meginatriðum. Heimsókn að Keld
uip, þar sem Páll A. Pálsson, yfir
dýralæknir skýrir starfsemi stofn-
unarinnar. Ekið að dælustöð Hita-
veitu Reykjavíkur.
Fimmtudaginn 21. júní: Ferð til
Borgarfjarðar. Komið verður við
á Hvanneyri og litazt um þar, en
aðalerindið er að skoða tilrauna-
búið í sauðfjárrækt að Hesti. Mun
Stefán Aðalsteinsson tilraunastjóri
og Pétur Gunnarsson, settur for-
stjóri Búnaðardeildar annast mót-
tökur og fræðslu, auk bústjórans
á staðnum. Ekið verður að Reyk-
holti og þaðan suður Uxahryggi
um Þingvelli til Reykjavíkur.
Föstudaginn 22. júní og laugar
daginn 23. júní verður farið aust-
ur yfir fjall og búskapur skoðað-
ur þar á nokrum stöðum, við leið-
sögn Hjalta Gestssonar, ráðunaut
ar Búnaðarsambands Suðurlands,
o.fl. kunnáttumanna. Lengst verð-
ur farið að Gunnarsholti og Geysi.
Gist verður á Laugarvatni.
Á laugardaginn verður komið
svo snemma til’ borgarinnar, að
ferðafólkið fái tíma til þess að
litast ofurlítið um áður en Hekla
leggur til hafs kl. 6. '
Þátttakendur í ferð þessarri eru
sem sagt 23. Af þeim eru 15 karl
menn norskir og 6 konur, 1 maður
sænskur og kona hans. Meðal þátt
takenda eru auk sauðfjárbænda,
ráðunautar, bændakennarar og
aðrir framámenn í búnaði.
Hösgagna-
smiðir
Vantar húsgagnasmiS
eða mann vanan inn-
réttingum.
Gunnar Guðjónsson,
sími 32850.
SKom ®
OKTAVJA
Fólksbíll
FELICIA
Sportbíll
1202
Stotionbíll
1202
Ö5'Wt Sendibíll
LÆGSTA VERÐ
bila í sambærilegum stærðor-og gæðaflokki
TÉKKNESKA BIFREIDAUMBOÐID
IAUGAVEGI 17Í - SÍMI 5 78 31
Ármannsstúlkurnar hafa löngum skemmt áhorfendum sínum með
fallegrl’ leikfimi, og brugðu ekki þeim vana sínum að þessu sinni.
— Þessa mynd tók Ijósmyndari Tímans RE á Laugardalsvellinum.
Ávarp fjallkonunnar flutti að þessu sinni Kristbjörg Kjeld, leikkona.
Ljósmyndari Tímans, GE, tók þessa mynd af henni, eftir að hún
hafði flutt ávarpið.
Laos, framh. af 3. síðu
tekið við lausnarbeiðninni, getur
nýja stjórnin hafizt handa.
Haft var eftir vestrænum sendi-
manni í Vientiana í dag, að hann
myndi ekki sofa rólegur fyrr en
afsagnarbeiðnin hefði verið skrif-
uð og lögð fyrir konung.
Prestastefnan
Fra: ’ ald af 1. siðu.
heirns sýnd í 1. kennslustofu há-
skólans. Frú Auður Eir Vilhjálms-
dóttir, cand. theol, flytur útvarps-
erindi um kvöldið.
Á morgun verður hlé á störfum
prestastefnunnar vegna aðalfund-
ar Prestafélags íslands á Þingvöll-
um. Á fimmtudaginn tekur presta-
stefnan síðan aftur til starfa.
Trúlotunarhringar
Fljói afgreíðsla
GUÐM ÞORSTEINSSON
gullsmiSur
Bankastræti 12
Sírm 14007
Sendum gegn póstkröfu.
17. júní
Framhald af 1. síðu.
veður þegar leið á daginn — sam-
kvæmt upplýsingum veðurstofunn
ar.
Hátíðahöldunum á Akureyri var
aflýst, því veðurútlit þótti efcki
sem bezt. Hins vegar var komið
bezta veður þegar hátíðahöldin
áttu að hefjast samkvæmt áður til
settum tíma. Klukkan 8 um kvöld
ið var svo haldin útisamkoma á
Ráðhústorgi, en ekki dansað úti að
þessu sinni. Á Dalvík, Ólafsfirði
og Húsavík fóru hátíðahöldin fram
að _m_estu samkvæmt áætlun.
Á ísafirði áttu hátíðahöldin að
fara fram á Eyrartúni, en var
frestað vegna kulda. Síðari hluta
dagsins var gott veður, og voru
þá ræður fluttar af tröppum Al-
þýðuhússins og skemmtiatriði
fóru fram. í fleiri kaupstöðum
vestra var hátíðahöldunum frest-
að af sömu örsökum.
Austanlands var dumbungsveð-
ur og heldur kalt. í Néskaupstað
var þó byrjað með skrúðgöngu
barna kl. 1,30, en hátíðin var hald
in við sundlaug bæjarins. Héraðs
búar héldu skemmtun á Eiðum.
í Vestmannaeyjum var þurrt og
gott veður og fóru hátíðahöldin
fram samkvæmt áætlun. Keppt
var í handbolta og fótbolta og dans
að inni um kvöldið.
Gagitfræðaskólf Ak.
Framhald af 9. síðu.
um verðlaun, þótt eigi væru þau
afhent nú við skólaslit.
Loks afhenti skólastjóri braut-
skráðum gagnfræðingum skirteini
þeirra, flutti þeim nokkur kveðju
og hvatningarorð og sagði síðan
skóla slitið.
4
T í M I N N, þriðjudagurinn 19. júní 1963.