Tíminn - 08.07.1962, Page 3
í
Friðrik Ólafsson skrif ar um
Lokaþáttur áskorendamótsins
Enda þótt nokkur sé um liðið,
síðan Áskorendamótið í Curacao
var til lykta leitt, er ekki sjáan-
legt, að áhugi manna fyrir því
hafi nokkuð dofnað. Enn þá hafa
fáar skákir, úr hinum spennandi
lokaumferðum, náð að koma fyrir
augu lesenda og er það hlutverk
þáttarins^í dag að ráða einhverja
bót á þessu. Verður þá fyrst fyrir
valinu afar lífleg skák, sem tefld
var í 23. umferð. Það er Petrosjan
sem á þarna við landa sinn Korc
hnoj og með sigri sínum í skák-
inni tókst honum að ná Keres,
sem fram að þessu hafði haft for-
ustuna í mótinu.
Hv: Petrosjan Sv: Korchnoj
Ensk byrjun.
1. c4—c5, 2. Rf3—Rf6, 3. d4
—cxd, 4. Rxd4—g6 (Eftir þennan
leik og þann næsta fær byrjunin
á sig svipmót Griinfelds-varnar,
sem er ein eftirlætisbyrjun Korch
noj. Önnur leið, sem til greina
kom, var 4. -—Rc6, 5. Rc3—e6, 6.
Rdb5—Bb4, 7. a3—Bxc3, 8. Rxc3
—d5 og svartur hefur fyllilega
jafnað taflið). 5. Rc3—d5, (Hér
er talið, að hvítur eigi aðeins um
tvær leiðir að velja, þ.e. 6. cxd5
eða 6. e3. Petrosjan er hins veg-
ar á annarri skoðun, enda er hann
ekki vanur að binda sig við það,
sem í byrjanabókum stendur).
6. Bg5 (Þessi hvassi leikur hleyp
ir talsverðu lífi í skákina). 6.
dxc4 (Einnig kom sterklega til
greina að leika hér 6. —Re4, sem
er einn af lykilleikjunum í Griin-
feldsvörn. Hvítur á þá vart annað
svar en 7. Rxe4 (7. cxd5?—Rxc3
8. bxc3—Dxd5 og svartur stend-
ur vel) 7. —dxe4 8. Dd2 (Ekki 8.
e3??—Da5f) 8. —Bg7. Svartur má
vel við sinn hag una). 7. e3—
Da5(?) (Upphafið að erfiðleikum
svarts. Öruggt og gott var 7. —
Bg7) 8. Bxf6 (Hvítur telur ekki
eftir sér að láta biskupinn af
hendi fyrir riddarann, enda er
hann langt á undan í liðskipan
sinni). 8 —exf6 9. Bxc4—Bb4 10.
Hcl—a6 (Það er nú þegar orðið
Ijóst, að hugmynd svarts með 7.
—Da5 var algjörlega röng. Hvitur
hefur að vísu orðið að láta biskupa
parið af hendi, en í staðinn hef-
ur svartur orðið að taka á sig
tvípeð, auk þess sem hann er langt
á eftir í liðskipan sinni. Til að
firra frekari vandræðum ætti
svartur nú að kosta kapps að
hrókera sem fyrst. Hann álítur þes
þó ekki þörf og reynir fyrst að
tryggja aðstöðu sína á miðborð-
inu. Þessarar dirfsku sinnar (eða
kæruleysis?) á hann eftir að iðr
ast sárlega) 11. 0-0—Rd7 12. a3—
Be7? (Enn þá leikur Korchnoj sér
að eldinum. Eftir 12. —Bxc3 13.
Hxc3—0-0 hefði hann enga ástæðu
til að örvænta, enda þótt staða
hvíts sé þó töluvert betri. Bisk-
upaparið er sem sé alltaf leiðin
til lífsins). 13. b4!—De5 (Eftir
13. —Dxa3 14. Rd5, hótar hvítur
hvoru tveggja í senn 15. Rc7f og
15. Hal ásamt 16. Ha2. Reyni
svartur hins vegar að forða drottn
ingunni til heimkynna sinna, dyn
ur yfir biskupsfórnin á f7: 13.
—Dd8 14. Bxf7f—Kxf7 15. Db3f
—Ke8 16. Re6—Db6 17. Rd5 og
hvítur vinnur auðveldlega). 14.
f4! (Svarta drottningin fær hvergi
griðastað. Að drepa á e3 nú væri
hreint sjálfsmorð). 14. —Db8 (Það
gildir víst einu, hvert drottning-
in fer). 15. Bxf7f! (Þessi fórn
er búin að vofa yfir í langan
tíma, en Petrosjan fórnar ekki,
fyrr en áhrifin eru algjörlega eyði
leggjandi) 15. —Kxf7 16. Db3t
—Ke8 17. Rd5—Bd6 18. Re6
(Ekki er ástandið beint glæsilegt!)
18. —b5 19. Rdc7t—Ke7 20. Rd4
—Kf8 (20 —Bxc7 21. Rc6f var
ekki til frambúðar heldur).
21. Rxa8. Hér^ gafst svartur upp
saddur lífdaga. .LíWegasta áfram-
haldið væri 21. —Dxa8 22. De6
—Be7 Hc7 og hvítur vinnur létti-
lega.
4»
Sláttur hafinn
Svalbarðsströnd, 5. júlí.
Sláttur er hér almennt byrjað-
ur, en spretta hefur verið með
lélegra móti í ár. Svipað var sett
niður af kartöflum og verið hef-
ur. En nú er um það bil búið að
selja allar þær kartöflur, sem
hér voru ræktaðar í fyrrasumar.
Alls fóru 125 lestir af kartöflum
héðan til útflutnings.
Ný sundlaug hefur verið opnuð
og er hún 12 og hálfur metri á
lengd, og er að hefjast í henni
sundnámskeið fyrir unglinga og
börn úr byggðarlaginu. Einnig er
hafin hér bygging nýs kaupfélags-
húss, og verður það með svipuðu
sniði og kaupfélagshúsið á Borð
eyri. Mikil nauðsyn var að fá hér
nýtt hús, þar sem gamla húsið er
um 60 ára gamalt. — Nokkuð er
unnið að vegabótum í hreppnum.
En hreppurinn lánaði 500 þúsund
krónur til þessa verks. SJ
Tófur aðsópsmiklar
Rangavallahreppi, 4. júlí.
Mikið hefur verið um tófur í
Rangárvallasýslu það sem af er
vorinu, og hafa þær gert mikinn
usla i lambfé bænda. Við áttum
fyrir nokkru tal við tvo menn í
Rangárvallahreppi og sagðist þeim
svo frá:
— Eg hef misst 30 lömb í vor
og eitthvað af fullorðnu og er
þetta svipað og í fyrra, sagði
Sverrir á Selsundi undir Heklu.
— Svo virðist sem um sama dýrið
hafi verið að ræða í flest skiptin.
Hér hafa fundizt 4 greni á litlu
svæði. Lítið er um það að tófan
leggi í gömul greni, enda nóg um
aðra staði í hrauninu. Minkurinn
flæddi hér yfir fyrir nokkrum ár-
um, á meðan var nóg um fugla-
líf, en hefur lítið borið á honum
að undanförnu.
Haraldur á Hólum í Rangárvalla
hreppi hefur verið skytta í mörg
ár: — í vor hef ég unnið 11 yrð-
linga og 5 íullorðin dýr, og ég
veit um 3 greni, sem ég ætla að
athuga. Eg held að aðalástæðan
fyrir þessum mikla tófufaraldri
sé sú, að fyrir nokkrum árum var
hætt að eitra rjúpuna, sem er
ein aðalfæðutegund tófunnar. í
stað þess var farið að eitra smá-
brauðmola og kjötbita, og hefur
ekki ein einasta tófa fundizt dauð
síðan.
Stirt tíSarfar
Hólmavík. 5. júlí.
Tíðarfar hefur verið stirt, það
sem af er sumrinu, spretta er lé-
leg, og sláttur er ekki hafinn enn
sem komið er. — Atvinna er næg,
aðallega við fiskvinnsluna. Nokkr
Ir smábátar eru gerðir út héðan,
en engin mun fara á síld, þar eð
bátarnir eru of litlir til þess að
leita langt á miSin. Smásíldarafli
hefur verið góður og síldin fryst
jafnóðum í frystihúsinu, í beitu.
— Væntanlega verður nú tekið
til við að ljúka framkvæmdum
við höfnina innan skamms, en til
þess vantar þó nægan mannafla.
HS
Andrí út á síld
Bíldudal, 5. júlí.
Bíidudal, 5. júlí.
Atvinna er hér næg sem stend-
ur. Eitt skip, Andri, er gerður út
á síld og er skipstjóri á honum
Snæbjörn Arason frá Bíldudal. —
Vélskipið Pétur Thorsteinsson
hefur hins vegar verið leigt ríkinu
til síldarleitar. — Kaupfélagið
gerir nú út 4 dragnótabáta og
enn fremur er Jörundur Bjarna-
son með dragnót. Fjórir bátar eru
með línu og handfæri. Allur afli
er unninn í hraðfrystihúsinu —
Rækjuvinnsla er engin, og verður
ekki fyrr en í október í fyrsta
lagi. — Niðursuða á grænmeti og
kjöti mun senn fara að hefjast
í niðursuðuverksmiðjunni. —
Nokkuð er um byggingar hér í
kauptúninu. Hafin er bygging
barnaskólahúss, og er lokið við að
steypa grunninn, einnig eru nokk
ur íbúðarhús í smíðum. P.Þ.
Fé beitt a tun
Frai hald af 1. síðu. •
anfarin ár. Er því nauðsynlegt að
afla meiri heyja, ef ekki á að þurfa
að fækka búpeningi. Margir bænd-
ur hafa í hyggju að bera ríflega á
af Kjarna milli slátta.
Hólar í Hjaltadal: Sæmilega
spratt í síðustu viku. Tún eru mik-
ið kalin víða í Skagafirði. Þó lít-
ur út fyrir sæmilega sprettu þar
sem skemmdir eru ekki miklar.
Heyskapur byrjar 10 til 14 dög
um síðar en í meðalári vegna þess
hversu seint sprettur. Sláttur er
víðast hafinn, en ekki af fullum
krafti. Á Hólum er búið að hirða
fyrstu töðuna, með ágætis verkun.
Eyjafjörður: í sveitum framan
Akureyrar er spretta víða sæmi-
lega góð. Sláttur byrjaði í seinna
lagi, en þurrkar eru ágætir og hey-
skapur í fullum gangi.
Grýtubakkahreppur: Horfurnar
eru mjög slæmar og hafa ekki ver-
ið verri síðasta áratug. Sums sfað-
ar er svo mikið kal, að allt að
helmingi túnanna er skemmdur.
Byrjað er að slá á einstaka bæ.
Reykjadalur: Víðast er byrjað að
beyja. Spretta er yfirleitt léleg og
á mörgum bæum mikið um kal-
skemmdir. Á einum stað er 18
dagsláttu tún dauðkalið.
Norður-Þingeyjarsýsla: Vorið og
r -- sem af er sumri hefur verið
mjög kalt. Nok'krir bændur byrj-
uðu túnaslátt í þessari viku, en al-
mennt er heyskapur ekki hafinn.
Til samanburðar má geta þess, að
túnasláttur hófst all víða um 25
júní í fyrra og árið 1960 viku fyrr.
Það er einnig víða mikið um kal-
skemmdir og hljóta þær að draga
mikið úr heyfeng, og er útlit fyrir
að ýmsir bændur þurfi að fækka
á fóðrum vegna lítillar sprettu,
Sömu sögu e rað s gajevísiet
Sömu sögu er að segja í sveitum
Þar hefur spretta verði treg og
víða kal í túnum.'
105 farasi
Framhald af 1. síðu.
tíma, og hafði viðkomu í Róm,
Singapore og Bankok, en síðasti
áfangastaður var Bombay, eins og
áður segir.
Þótt enn séu ekki óyggjandi
fréttir fyrir hendi um afdrif þot-
unnar, telja þó flestir fullvíst, að
hún hafi farizt, og er sérstaklega
á það bent, að flugvélin hafði ekki
eldsneyti nema til þriggja klukku
stunda flugs, en 15 klukkustundir
voru liðnar á hádegi í dag, frá því
■síðast heyrðist frá henni.
Flugstjóri í þessari ferð var
einn þekktasti flugmaður Alitalia.
Olíubrákin
ai hverfa
Eftir fyrsta skeifingarkastið
vegna olíunnar úr LW Haskell
í Hvalfirði, kemur í Ijós að lýs
ingar á tjóni af völdum henn-
ar eru mjög orðum auknar og
hafa meira stjórnast af ótta
við tjón en að það hafi raun-
verulega orðið. Skýrsfa kafar-
ans leiðir í Ijós, að lítil hætta
er á frekari leka. Olíubrákin
er nú að mestu horfin.
Vcgna ðhugnanlegra blaBalýs-
l inga á æðarfuglsdauða af völdum
| olíunnar og stöðugt vaxandi leka
' fóru forráðamenn Olíufélagsins
upp í Kjós og Hvalfjörð í fyrra-
dag. Enga olíubrák var þá að sjá á
sjónum hvorki við flakið né frá
því, og virðist olíunni hafa skolað
á land næstum allri á sömu stöð-
um. Þessir staðir eru frá Staupa-
steini og nokkuð inn eftir, og er
þar ekkert æðarvarp hvort sem
er, mest urðir og klettar. Við
Brynjudal og Botnscjal hafði engin
olía komið á ströndina, en nokkuð
á svæðinu frá kísilnámi Sements-
verksmiðjunnar og inn að Þyrli.
Á fimmtudaginn stóð vindur inn
fjörðinn og barst þá nokkur olía
inn að Hvalveiðistöð, en í fyrradag
hvessti mjög af norðri og er svo
að sjá, að olían hafi þá rekig á
land á fyrrgreindum stöðum.
Olíufélagsmenn færðu húsfreyj-
uni í Hvammi í Kjós eintak af
Vísi, þar sem haft er eftir henni
að „hræðilegt hafi verið um að lit-
ast. Æðarfuglarnir voru flestir
dauðir og þeir voru að drepast,
sem eftir voru. Æðarkollum leið
mjög illa. Margar voru dauðar, en
þær sem lifðu þjáðust mjög mikið.“
Furðaði hún sig mest á því, hvað
þeim Vísismönnum varð mikill mat
ur er úr því, er hún sagði þeim, að
hún hefði séð fáeina dauða æðar-
unga í fjörunni. Starfsmenn í kís-
ilnnámi Sementsverksmiðjunnar
drógu einnig úr sögum um æðar-
dauðann, sögðust hafa séB tvo, þrjá
unga dauða í fjörunni.
Starfsmönnum í Hvalfirði ber
saman um það, að þegar allt kem-
ur til alls, sé þetta ekki meiri olíu-
brák en oft gerist, þegar stór skip
landa oliu þar, en þá fer alltaf
eithvað í sjóinn, þótt eftir megni
sé reynt að forðast það.
Kafarinn upplýsir, að LW Has-
kell liggi á 18 faðma dýpi og
alveg á kafi að framan í aur, eins
og rótað hafi verið að honum með
jarðýtu. Telur hann ólíklegt, að
meira leki út í gegnum lúkarinn,
sem er fullur af sjó og aur, en
bendir á þann möguleika, að olíu-
brákin hafi mest komið úr vélar-
rúminu, bæði smurolía og diesel-
olía. Litlar líkur eru taldar til þess,
að báturinn hreyfist, þótt veður
versni. en fremur til þess, að
hann grafist þarna smám saman
í aur og verði þar með úr sögunni
fyrir fullt og allt.
I Frá Húsmæðrakennara-
skóla íslands
Umsóknafrestur um skólavist næstu námstímabil,
er útrunninn 1. ágúst n.k.
Skólastarfið hefst 15. sept.
Skólastjóri.
T í M I N N, sunnudagurinn 8. júlí 1962.
3