Tíminn - 08.07.1962, Side 8

Tíminn - 08.07.1962, Side 8
i JÓNAS GUÐMUNDSSON, styrimaSur: Handhægar athuganir á stðöugleika báta og skipa Hinir tíðu skipstapar, sem virðast stafa af lítilli sjó- hæfni eða öðrum þvílíkum ástæðum, eru mikið rædd- ir manna á meðal. Tíminn hefur snúið sér til Jónasar Guðmundssonar, stýrimanns, og beðið hann að rita um þetta mál og hvað helzt mætti verða til hjálpar. Eftir að íslenzk skip fengu háar lyftingar, mörg þilför, hefur margt óhappið orðið. Stórum skipum á mælikvarða þjóðar, sem réri til fiskj- ar úr steinvörum og brimsöndum, hefur margsinnis hvolft og oft hafa mannslífin týnzt — heilar skipshafnir af vöskum sjómönnum. Hræði- legur grunur grípur oft þá, sem heyra tíðindin í fjarlægð. Og vér spyrjum: Voru þetta mistök? Mistök í mönnun? Mis-tök í lestun? Sjópróf fara fram, en ekkert raunhæft er gert, því að sagan hefur endurtekið sig með árvissu millibili, og í hvert sinn, sem maður sér sæmilega yfirbyggt skip, þá getur maður átt von á, að það sé í síðasta sinn. Nú hefur það enn þá gerzt, að skipi hvolfir að litlu tilefni, að manni hefur skilizt. Fiskibátur með nýtt stýrishús, kraftblökk og fl. er á leiðinni til miða, er hann skyndilega snýr kjölnum upp og það er fyrir hetjuskap hreinan, að skipshöfnin verður til frásagnar að þessu sinni. Skipið og menntun skipstjórnarmanna Þó ábyrgð, mikil ábyrgð, hvíli á þeim, sem teiknar skip fyrir sjó- menn í Norður-Atlantshafi, þá skiptir höfuðmáli, að því sé haldið eins haffæru af hálfu skipstjórnarmannanna og unnt er. Til þess að svo megi verða, er skipager® kennd við stýrimannaskólann. Menntun í skipagerð gerir skipstjórnarmönnum kleift að gera rannsóknir á hleðslu skipsins, eiginleikum þess, stöðugleika og annarri sjóhæfni. Þó „brjóstvitið" sé til ýmissa hluta gagnlegt, er það ekki mjög mikils virði við lestun skipa, og því fer, sem fer. Mistökin hvolfa skipunum eða þegar bezt lætur, valda skemmdum á skipi og farmi, því að skip kann að vera mjög hættulegt ef það er með of þunga kjölfestu, er stíft, eins og það heitir, með farminn illa skorðaðan. Það er þvi margs að gæta, þegar skipin eru lestuð. Til þess að tryggja, að skip séu lestuð, kennir stýrimannaskólinn lestun kaupfara, en hins vegar kennir hann ekki fiskimönnum þessa sjálfsögðu námsgrein. Eg vil, til að forða misskilningi, taka það fram, að samkvæmt reglugerð er skólanum ekki ætlað að kenna þessa námsgrein undir fiskimannapróf og eiga forráðamenn skólans því enga sök á þessu En þetta verður að breytast. Einföld regla Það er vitaskuld erfitt fyrir skipstjóra, sem ekki hefur numið reikn- ingsaðferðirnar, sem til þarf, að ákveða stærð þeiira krafta, er ráða stöðugleika skipsins. Þó er hægt að mæla með einföldum reglum, sem fara má eftir til að finna stærðfræðilega, hvort skipið er í hættu statt. Reglan er miðuð við eina veltuumferð eða þann tíma, er líður frá því að skipið veltur t.d. frá bakborða yfir til stjórnborða og aftur í bakborða. Við tökum þá timann á því andartaki, að skipið byrjar að velta frá stjórnborða yfir í bakborð'a, þar til það hefur aftur stöðv- azt í stjórnborða. Reglan er þá svona. Ef ein veltuumferð tekur fleiri sekúndur en breidd skipsins nemur í metrum, þá er skipið í hættu. Ef ein veltuumferð tekur jafnmargar sekúndur og breidd skipsins nemur í metrum, er skipið með fremur lítinn stöðugleika, en sjóhæft að óbreyttum aðstæðum. Ef veltuumferðin tekur færri sekúndur en breidd skipsins nemur i metrum, þá er stöðugleikinn góður. Þessa reglu geta menn haft til hliðsjónar, þegar þeim verður hugs- að til stöðugleika skipsins. Þá verður að hafa það í huga, hvort t.d. verið að brenna olíu úr botnhylki, eða hvort ís er að hlaðast á skipið, eða einhverjar aðrar ytri ástæður eru fyrir hendi, sem geta haft áhrif á jafnvægi eða stöðugleika skipsins. Þessi regla er til í nákvæmnari útfærslu og er þá MG (við óendan- Iega lítinn halla eða byrjunarstöðugleikinn) R f = 0,8 stuðull fyrir venjuleg skip B = Breidd skipsins í metrum R = Veltuumfei'ð í sekúndum MG er í metrum. (Framhald á bls. 15) I Tristan da Cunha, sem dregur nafn sitt af portú- gölskum aðmírál, Tristao da Cunha, sem fann eyjuna 1506, er 9,6 sinnum 11,2 km að stærð. Hún liggur í Suður-Atlantshafi um 2900 km vestur af Höfðaborg. Brezkt herlið var sett á eyj- una 1815 í sambandi við út- legð og dvöl Napoleons á St. Helena, sem er um 1560 mílur í norðausturátt. Næsta ár var eyjan form- lega lögð undir Bretland og fylgdi brezku St. Helenu- nýlendunni. Árið 1817 var setuliðið flutt á brott, en brezkur hermaður, sem varð eftir með fjölskyldu sinni er í rauninni upphaf að íbúum eyjarinnar. Eina þorpið, sem á eyjunni er, nefnist Edinburgh. Sjóliðar á brezku herskipi virSa fyrlr sér eldsumbrotin á Trlstan. Þegar íbúar Tristan da Cunha sneru heim að loknum kvöld- bænum sunnudaginn 8. októ- ber s. 1., blasti við þeim eyði- legging. Frá því í ágústmán- uffi höfðu þeir stöðugt heyrt skruðninga og fundið titring fara um litlu eldfjallaeyjuna sína, þarna úti á miðju Suður- Atlantshafi. Þetta kvöld mættu þeim opnar dyr og brotnir gluggar, og í görðunum voru djúpar og víðar sprungur. Daginn eftír, á meðan brezki valdsmaffurinn á eyjunni, Pet- er Wheeler, var að ræða við karlmennina um möguleika á því að flytja fólkið á brott frá eyjunni, reis allt í einu upp úr jörðinni bak \*ð-.þorpið gúll, sem varð upphaf^lqkeiffinýnd uðu eldfjalli. Næstu 48 klukkustundir urðu allir á eyjunni, allt frá hinni 85 ára gömlu Jane Lavarello til Margrétar litlu Green, sem aðeins var 5 ára, aff þola martröð skelfingar, ógna og sorgar, en þeir tóku þessu öllu með þögulu hugrekki og miklu jafnaðargeði. Þau þrömmuðu þá 5 kílómetra leið, sem var út á kartöfluakrana, þar sem þau söfnuffust öll saman, á meðan mennirnir reyndu ár- ” angurslaust að koma á flot m strigabátunum sínum. Næsta morgun sneru þau . aftur til þorpsins, sem nú var algerlega mannlaust og náðu til víkur, þar sem sjórinn var ögn stillt- ari, og þaðan var róið út í tvö fiskiskip. Næstu nótt gistu þau á mannlausri eyðiey, Nætur- galaey, en þangað voru þau sótt og flutt um borð í hol- lenzka farþegaskipið Tjisadene. Þau sigldu í vonleysi fram hjá húsunum, sem forfeður þeirra höfðu byggt endur fyrir löngu, fram hjá húsdýrunum og öllu sem þeim var kærast, fram hjá ökrunum, sem þau höfðu strit- að á, í burtu frá eyjunni, sem þau elskuðu öll. Martröðin var um garð geng- in, en önnur martröð beið þeirra. Þau urðu að byrja nýtt líf í heimi, sem var þeim al- gerlega ókunnur og framandi, og sem aðeins einn þeirra hafði svo mikiff sem augum lit- ið áður. Kaldan nóvembermorgun tæpum mánuði síðar lagðist farþegaskipið Stirling Castle aff bryggju í Southampton með eyjarskeggjana um borð. Og nú leit þetta fólk fyrst hinn iðnvædda heim augum á langri ökuferð með áætlunarbílum, sem fluttu það til Redhill í Surrey. Þar hafði þeim verið búin nsamastaður í búðurn, sem samanstóðu af smákofum. Nú sáu þau í fyrsta sinn bíla. áætlunarbíla, lestir, stein- steypta vegi, umferðarljós og lögregluþjóna, stór sveitabýli umkringd háum trjám og víð- áttumiklum ökrum, háreist fjölbýlishús og óendanlegar raðir smærri húsa, sem öll voru eins. Þau sáu götur troð- fullar af bílum og gangandi fólki, búffir fuliar af húsgögn- um, mat og fatnaffi. Þau sáu ungar konur með himinháar ÞaS er engin höfn á eyjunni, og verSur þvl aS flytja allar vörur í land á ferjum, en síSan eru þær fluttar á vögnum upp ti! Edinburgh, eina þorpsins á eyjunni. 8 T f M I N N, sunnudagurinn 8. -júlí 1962

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.