Tíminn - 12.07.1962, Blaðsíða 1

Tíminn - 12.07.1962, Blaðsíða 1
t 156. tbl. — Fimmtudagur 12. júlí 1962 — 46. árg. Starfsfólk Hatta- og skerniabúðarinnar í Bankastræti 14, fékk óvænta heimsókn klukkan ljálf fjögur í gær, er bifreið hlunkaðist á vegginn 1 og braut hann. Tveir gluggar molnuðu við skellinn og glerbrotin dreyfðust innanbúðar og utan, en steinhleðslan milli þeirra gekk inn í húsið. Bifreiðin R-81 var á leið ofan Skólavörðustíg. Hemlabilun var orsökin. (Ljósmynd: TÍMINN, RE) Afgreiðsla, auglýs- ingar og gjaldkeri Tímans er I Bankastræti 7 Muniö að tilkynna vanskil á blaöinu í síma 12323 fyrir kl. 6. í'::: Mjög mikil síld barst til Raufarhafnar í gær, og jafn- vel búizt við að þar yrði lönd- unarbið í dag. Mikill fjöldi báta hafði tilkynnt um komu sína í gærkvöldi. Alls hafði verið tekið á móti 60 þúsund málum síldar á Raufarhöfn í gær, en þá bárust þangað 14 þús. mál. Síldarbræðslan get- ur tekið á móti 6000 málum á dag. Mest af þeirri síld sem nú berst að er austan úr Héraðs- flóa og af Seyðisfjarðardýpi. í gær náði blaðið tali af Jakob Jakobssyni fiskifræðing um borð í síldarleitarskipinu Ægi, sem þá var statt við Strandagrunnshorn. Jakob kvað leitina ganga sæmi- lega, og hefðu leitarskipin nú skipt með sér verkum þannig, að Ægir væri á Vestursvæðinu út af Húna flóa, Pétur Thorsteinsson aUstan j við Langanes og Fanney á svæð- inu frá Langanesi að Kolbeinsey. ' Mikil síld mun vera út af Aust-1 fjörðum, og mega teljast góðar | veiðihorfur þar, sagði Jakob. Meg-; inhluti síldargangnanna virð'ist f I vera fyrir Austurlandi. Síldin er j stygg, og hafa bátar kastað allan sólarhringinn, en litla síld feng- i ið, enda þótt torfurnar hafi ver- ið stórar. Sumt af Austurlandssíld inni er sæmilegt, en annað ekki. Það er góðs viti að stöðugt gengur nýr hluti að Austfjörðunum, síld, sem ekki hefur verið í átumiklum sjó og er því mögur. Þar eð átu- magnið á þessum slóðum fer vax- Framhald á 15. síðu. INDVERJAR OTTAST ÁRÁS KÍNVERJANNA NTB—Hong Kong og Nýju Delhi, 11. júlí. — Óttazt er, að til tíö- inda kunni að draga milli herja frá kínverska al- þýöulyöveldinu og Ind- A HUÐ- KEIPUM SJA 15. SIÐU landi, en báðir aöilar hafa safnað iiði við landa! mærin hjá Tíbet og Kas-j mir. Snemma í dag bárust þær frétt- i ir frá Nýju Delhi, að kínverskar ! hersveitir hefðu umkringt ind- j verska herbækitstöð í Ladakh í Kasmír, og nokkru seinna var skýrt frá því, að kínverskt herlið I hefði einnig setzt um indverska j herstöð í Galwan-dalnum á landa mærum Tíbet og Kasmír. Talið er, að herstyrkur Kínverja sé þarna um 3000 hermenn, sem munu hafa komið frá sjö kínversk um landamæravarðsveitum. Frétta stofan Nýja Kína birti í dag orð- sgndingu til indversku stjórnar- innar, þar sem segir, að Indverj ar undirbúi nú á laun innrás í kínverska alþýðulýðveldið. Pek- ine-stiórn hefur sent indversku I stjórninni harðorða mótmælaorð sendingu, þar sem Indverjar eru sakaðir um að skapa stríðshættu með því að stofna fjórar nýjar herbækistöðvar innan kínversku landamæranna í Sinkiang-hérað- inu og með hinum aukna viðbún- aði indverskra herja við Spangg- ur-vatn í Tíbet. Ástandið þarna á landamær unum er talið mjög alvarlegt, og er loftvarnalið Indlands við öllu búið, ef ske kynni, að Kínverjar létu til skarar skríða gegn indversku herstöðvun- um. Halvard Langc Lange kominn Klukkan hálf átta í gærkveldi lagði Flugfélagsvél af stað frá Fornebu-flugvelli við Osló. Meðal farþega var Halvard Lange, utan ríkisráðherra Noregs, og kona hans. Þau hafa verið boðin í sex daga opinbera heimsókn til ís- lands. Flugvélin kom til Reykja- víkur fyrir miðnætti s.l. Lange fer m.a. út á land og heimsækir Reykholt, Akureyri og Mývatn. Hann hefur oft áður kom ið hingað tjl lands. Lange hefur tekið háskólapróf í sögu og ensku, auk þess sem hann hefur stundað nám í hag- fræðisögu og stjórnlagafræði. — Hann sat mikið í fangelsum naz- ista á stríðsárunum. Hann hefur verið þingmaður síðan 1940, en utanríkisráðherra síðan 1946. — Hann hefur skrifað fjórar bækur. TIL. VÍNLANDS' Kristján Eldjárn, Gísli Gestsson og Þórhallur Vilmundarson fóru í nótt vestur um haf til þess að taka þátt í uppgreftri Helge Ingstad á I Nýfundnalandi. — Ferðalagið leggst vel í mig. Það verður spennandi að taka þátt í uppgreftrinum, sagði Kristj- i án í gær, er hringt var í hann frá ^ I blaðinu. — Samt get ég enga hug- mynd gert mér um, hvernig þetta verður. Ekkert hefur fundizt við uppgröft Ingstads í sumar, en hann befur verið þarna í þrjár vikur. \rifi íslendingarnir verðum þarna í um það bil mánuð, að ég held, en és þori ekki að spá neinu um ár- angurinn. Kristján Eldjárn VEIÐILEIT Á MIÐUM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.