Tíminn - 12.07.1962, Qupperneq 16
I
Fimmtudagur 12. júlí 1962
156. tbl.
46. árg
EINN SPRETTHARÐUR
Hljóömúr-
inn rofinn
á Veilinum
R. B. Moore, aömíráll, yfir-
maður varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli, skýrði blaða-
mönnum frá því í gær, að fyr-
ir dyrum væri að skipta um
gerð orrustuflugvéla á vell-
inum. Teknar verða í notkun
hraðfleygari og nýrri vélar í
stað þeirra sem varnarliðið
notar nú. Nýtileg tæki verða
f
Almúga-
maöur úr
heiöni
í kumlinu, sem fannst um
daginn í Draugklifi yzt á
Snæfellsnesi, var sverð, scm
gefur ýmsar upplýsingar um
manninn, sem beinagrindin
er af. Lagið á sverðinu sýn-
ir, að það er úr heiðni og
einnig, að það hefur ekki
verið neinn liöfðingi, sem
hélt á þvi, heldur almúga-
maður. fburðurinn er eng-
inn, en þetta hefur samt
verið gott sverð til síns
brúks. — Kristján Eldjárn
sagði blaðinu í gær, að
þetta kuml væri merkur
fundur, einkum vegna
sverðsins. Það er nú í
hreinsun, sem mun senni-
lega taka nokkra mánuði.
tekin úr gömlu vélunum og
flutt vestur, en vélaskrokkun-
um verður að öllum líkindum
ekið á öskuhauga.
Þessi skipti á vélum verða kom-
in í kring í haust. Nýju vélarnar
nefnast „Delta Dagger“ og geta
þær farið mikið hraðar en hljöð-
ið og náð mikilli hæð. Vélar þess-
ar þykja góð tæki og þær beztu,
sem nú eru notaðar á flugstöð'v-
um víða um heim. Þær fyrstu
þeirra koma í næsta mánuði.
Hraði og hávaði
Þessar nýju vélar, sem fara með
700—800 mílna hraða á klukku- j
stund, eru skjótari á vettvang,
verði vart við ókennileg farar-
tæki í ratsjám, heldur en eldri
gerðir þær, sem undanfarið hafa
verið í notkun. Þær eru búnar
samskonar vopnum og eldri vél-
ar, en vegna hraða er ekki hægt
að notast við ílugvélamóðurskip
til lendingar. Aðmírállinn var
spurður að því, hvort vélum þess-
um fylgdi ekki aukinn hávaði, en
hann kvað hljóðið frá þeim ekki
valda neinum óþægindum, enda
væri þeim flogið í mikilli hæð.
Kafbátar og kafbátalægi
Moore var spurður, hvort flug-
menn yrðu ekki varir kafbátaferða
í kringum ísland. Hann sagði að
þeir sæu oft til ferða rússneskra
kafbáta, sem væru að æfingum á
Atlantshafi. Við slíkar æfingar
væri ekkeit að athuga, þær væru
reglum samkvæmt og hér við land-
ið hefði þeirra ekki orðið vart að
undanförnu, heldur á úthafinu.
Aðspurður sagði hann, að ekki
væri gott að sjá hverjum vopnum
kafbátarnir væru búnir, enda
væru þeir ekki lengi á yfirborð-
(Framhald á 15. sfðu)
Landsmót hestamanna verður háð á Þingvöllum um helgina. Þeir sem lengst eiga að fara, eru þegar
lagðir af stað með hesta sína til mótsins, en aðrir nota tímann til að æfa gæðingana fyrir keppni, Þessi
mynd er af hesti, sem líklegur er tH að verða einna harðastur á sprettinum um helgina. Hann er eign
Gunnars Magnússonar í Ártúnum. í gær var honum hleypt 800 metra sprett á Rangárbökkum. Vegalengd-
ina hljóp hann á 72 sek. og það keppnislaust. — f dag segjum við frá undirbúningi að lands-
mótinu á bls. © (Ljósm.: Ottó Eyfjörð).
se ra
GJALDHEIMTAN „STOR-
RUKKARI” BORGARINNAR!
Nú fá Reykvíkingar
bráðum að greiða opín-
ber gjöld sín á einum og
sama stað, hvort sem það
er útsvar, þínggjöld eöa
sjúkrasamlagsgjald, því
verið er aó innrétta hús-
næði fyrir Gjaldheimfuna
í Tryggvagöfu, í eystri
helmingi hússins, þar sem
Sjúkrasamlagiö er.
Að vísu verður jafn strangt og
áður að borga opinberu gjöldin, en
óneitanlega verður minna um-
stang við það, þegar þau eru öll
komin á einn stað. Að Gjaldheimt-
unni standa Tollstjóraskrifstofan,
Borgarskrifstfýturnair og Sjúkra-
samlagið. Framkvæmdastjóri henn
ar verður Guðmundur Vignir, lög-
fræðingur hjá borgarverkfræðingi,
en stjórn hennar skipa Einar
Bjarnason, aðalendurskoðandi rík-
isins, Gunnlaúgur Pétursson borg-
arritari og Gunnar Möller Sjúkra-
samlagsstjóri.
Gjaldheimtan tekur að öllum íik
indum til starfa í ágúst, um sama
leyti og skattskráin kemur út.
Hjá Gjaldheimtunni verða sett-
ar niður kassa- og bókhaldsvélar
af gerðinni Boitos. Vélarnar verða
tvær og munu kosta um eina millj.
samtals. Þessar vélar munu leysa
af hólmi kassavélar af Mathisen-
gerð, (þýzkar) sem bærinn hefur
notað í innheimtu útsvara og fast-
eignagjalda. Fyrirtækið sem fram
leiddi Mathisenvélarijar, var lagt
niður skömmu eftir að vélarnar
komu hingað, en þær hafa reynzt
mjög illa, bilað hvað eftif ann-
að, klesst og rúllað skakkt. Annað
þýzkt fyrirtæki, Natzional, hefur
nú tekið við framleiðslu vélanna,
og umboðið Westlund hér tekið
Framhald á 15 síðu
Ein af nýju vélunum, scm eru a3 koma á Völli..
þær fara hraðar en hljóðið.
TVÖ
HÉRAÐS-
MÚT
f Norður-ísafjarðarsýslu
verður mótið haldið laugar-
daginn 14. júlí kl. 9 s.d. í
Bolungarvík.
Ræður flytja:
Helgi Bergs, ritari Fram-
sóknarflokksins,
Hermann Jónasson, fyrrv.
forsætisháðh.
Sigurvin Einarsson, alþm.
Skemmtiatriði:
Einsöngur: Erlingur Vig-
fússon.
Undirleikari: Ragnar Björn
Hinn vinsæli Kvintett Vil-
bergs Vllbergssonar lcik-
ur fyrir dansinum. Söngv
ari er hinn Vinsæli Barði
Óiafsson.
Framsóknarfólk! Fjölmenn-
ið og takið með ykkur gesti.
í Vestur-ísafjarðarsýslu
verður mótið haldið sunnu
daginn 15. júlí kl. 9 s.d. á
Þlngeyri við Dýrafjörð.
Ræður flytja:
Helgi Bergs, ritari Fram-
sóknarflokksins,
Hermann Jónasson, fyrrv.
forsætisráðherra.
Sigurvin Einarsson, alþm.
Skennntiatriði:
Einsöngur: Erl. Vigfússon
Undirl.: Ragnar Björnsson
— Hljómsveit Baldurs Geir
mundssonar.
Framsóknarfólk fjölmennið
á þessa ágætu skemmtun.