Tíminn - 31.07.1962, Blaðsíða 4

Tíminn - 31.07.1962, Blaðsíða 4
 •k Á SUNNUDAGSMORGUN var skátamótið á Leirunum á Þingvöll im sett. Veður var því miffur ekki sem bezt, fyrr en líffa tók á dag' inn. Um kvöldiff var haldinn varffeldur og þá sýndu a. nokkrir ína erlendu gesta þjóffdansa. Á myndinni er sundlaugin, sem bu- er viff aff þátttakendur eigi eftir aff færa sér í nyt, ef veffur leyfir. I svo er þaff maturinn. Þaff virðast allir ánægffir meff þaff, sem fram reitt, og sumir virffast horfa löngunaraugum á brauffbakkann, sem rinn er aff. Alltaf er gaman aff borða í útilegu, og ekki sízt þegar rffið er búiff til úr trjáboium, bundnum saman með snúrum. (Ljósm.: TÍMINN RE). in tnj II n in i-rmu ninna Verður hann tekinn af lífi á föstudag? Nýtt Chessman-mál virðist nú vera í upp- sígiingu í Bandaríkjun- um, og hefur þetta mál þegar vakið mikla at- hygli þar vestra. Þann 3. ágúst á að fullnægja dauðadómi yf ir 32 ára gömlum negra Paul Crump, en hann situr nú í dauðaklefan- um í San Quentin-fang- elsinu í lllinois, dæmd- ur fyrir morö, En nú verl svo til, að á degi hvexjum berast yfirvöldunum náðunarbeiðnir frá hinum ó- skildustu aðilum og nú, er dómsdagurinn nálgast, rignir slíkum bréfum beinlínis yfir valdamenn. Segja kunnugir, að þessum viðbrögðum fólks sé einungis hægt að jafna viff'úlfa þytinn, sem varð í sambandi við mál Cary Chessmans, en barátta hans og örlög munu flestum f fersku minni. Krefjasf náöunar Það er fyrst og fremst breyt- ing sú, sem orðið hefur á hin- um dauðadæmda, Paul Crump, þau 9 ár, sem hann hefur setið bak við lás og slá, aðeins stein- snar frá hinum ógnvekjandi rafmagnsstól, sem hefur valdið því, að lögfræðingar, fanga- verðir, læknar, þjóðfélagsfræð ingar og hjúkrunarkonur, hafa tekið höndum saman um að reyna allt, sem í mannlegu valdi stendur til aff bjarga sakborningnum frá rafmagns- stólnum. Af fátæku foreldri Paul Crump er fæddur í negrahverfi Chicagó-borgar og af fátæku foreldri kominn. Fað ir hans yfirgaf konu sína og börn, þegar Crump var sex ára og skildi heimilið eftir f vol- æði. Crump hóf nám í mennta- skóla, en var rekinn eftir eins árs námsdvöl, og aðeins sextán ára að aldri lenti hann á stofn- un fyrir vandræðabörn. Nokkru seinna var Crump handtekinn ásamt nokkrum öðrum piltum, sem höfðu fram- ið rán og skotig einn mann til bana. Allir glæpamennirnir voru grímuklæddir, en einn þeirra fullyrti við réttarhöld, að það hefði verið Paul Crump, sem skaut manninn. Dæmdur saklaus? Við yfirheyrslur hjá lögregl- unni játaði Crump að hafa skotig manninn, en við réttar- höldin drá Crump játningu sína til baka, og sagði, að lög- reglan hefði neytt sig til að gefa falska játningu með a-lls konar ofbeldisaðgerðum og ógn unum. Þrátt fyrir þetta var Ci-amp dæmdur sekur og hlaut lífláts- dóm. Öll þau níu ár, afm Crump hefur setið í fangelsinu, hefur hann statt og stöðugt haldig fram sakleysi sínu, og með aðstoð lögfræðinga hefur honum tekizt að fá málinu frestað 41 sinni, og að síðustu komið því f kring, ag hæsti- réttur Bandaríkjanna fjallaði um málið. Fjórtán sinnum hefur aftöku verið frestað á síðustu stundu, en nýr aftökutími ákveðinn jafnóðum. Einu sinni kom úrskurðurinn um ag aftökunni yrði frestað aðeins sjö klukkustundum fyr- ir örlagastundina. Eitt mikilvægt atriði skilur þó á millf þessa máls og Chess- mans-málsins. Það er hin mikla breyting, sem orðið hefur á hin um dauðadæmda svertingja, PAUL CRUMP I þau níu ár, sem hann hefur beðið dauðans. Góöum gáfum gæddur Lögfræðingur Crumps hefur sent fylkisstjórninni náðunar- beiðni, sem, þótt undarlegt megi virðast, er ekki byggð á staðhæfingunni um sakleysi Crumps, heldur vitnisburði fólks, sem þekkir Crump og skýrir frá hinum miklu hæfi- leikum og gáfum, sem hinn dauðadæmdi er gæddur. Framhald á 13. síðu 4 TÍMINN, þriffjudaginn 31. júlí 1962

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.