Tíminn - 18.08.1962, Blaðsíða 7

Tíminn - 18.08.1962, Blaðsíða 7
~~ iMíint— Utgefandi: F R AMSOKN ARFLOKICURINN Framkvæmdast.ióri Tómas Arnason Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson fáb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G Þorsteinsson Fullt.rúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Auglýs- ingastjóri: Sigurjón Davíðsson Ritstjórnarskrifstofur i Eddu- húsinu. afgreiðsla. auglýsingar og aðrar skrifstofur i Banka- stræti 7 Simar: 18300—18305 Auglýsingasími: 19523 Af. greiðslusimi 12323 - Áskriftargjald kr 55 á mánuði innan. lands. í lausasölu kr. 3 eintakið. — Prentsmiðjan Edda h.f. — Ihaldsstefnan Höfuðeinkenni íhaldsstefnu er sú trú íhaldsmanna, að kaupgeta á hámarkí og almenn fjárfesting leiði til verð- bólgu og efnahagsörðugleika og því beri að koma í veg fyrir mikla aukningu á peningatekjum almennings. Mikil framleiðsluaukning er þyrnir í augum íhaldsmanna, því að hún hefur í för með sér mikla eftirspurn eftir vörum og vinnuafli og við slíkar aðstæður er erfitt að halda kaup- getunni niðri. — Rótin að baki þessari stefnu er þó auð- vitað sú, að það eru stóriðjuhöldar auðhringanna og auð- menn, sem eru kjarninn að baki íhaldsstefnunni í öllum löndum heims, og þeir vilja auka áhrif sín, takmarka fjármagnið sem mest á fárra höndum, þ. e. í eigin hönd- um. Ör uppbygging og almenn fjárfesting fjöldans minnk- ar áhrif þessara manna, dreifir efnahagsvaldinu, ýtir und- ir framtak hinna mörgu einstaklinga til beinnar þátttöku í framleiðslunni. Þess vegna eru íhaldsforkóflar andvíg- ir en bera fyrir sig ýmsu svo sem gjaldeyrisstöðu, greiðslu- jöfnuði og þó fyrst og fremst verðbólgugrýlu og ekki er ástæða til að ætla annað en þeir trúi á mótbárur sínar — sumir hverjir. Andstæðan Andstæð íhaldstefnunni er sú stefna að vilja hafa kaupgetuna eins mikla ,og framleiðslan frekast getur bor- ið og örva uppbyggingu sem mest með ýmsum ráðum og stuðningi ríkisvalds við einstaklinga og félagssamtök almennings til að koma upp nýjum atvinnufyrirtækjum, skapa þannig stöðuga uppbyggingu, sem tryggir að sem mest af auknum peningatekjum almennings fari til upp- byggingar og skili enn aukinni framleiðslu og meh'i gjaldeyrisöflun eða spari gjaldeyri með framleiðslu innlendra neyzluvara. Með því að örva hið almenna, frjálsa einstaklingsframtak til þátttöku í framleiðslu fer sem stærstur hluti af hinum auknu peningatekjum til uppbyggingar og nýrrar verðmætasköpunar en kemur ekki nema að nokkrum hluta fram sem eftirspurn eftir erlendum vörum. Þetta er djörf stefna, sem getur haft erfiðleika í för með sér og stundum er tefl^ á tæpasta vaðið, en reynsla frá mörgum löndum sannar, að þessi stefna þarf ekki að hafa verðbólgu í för með sér, ef réttum úrræðum ríkisvalds er beitt til að brúa þau bil, sem kunna að myndast. Nýjasta dæmið Þessari djörfu stefnu hefur verið fylgt á íslandi und- anfarna áratugi — eða síðan 1927 og var að skapa hér eitt bezta og réttasta þjóðfélag heims, þar til íhaldsstefn- an var aftur leidd til öndvegis og hin svokallaða „viðreisn“ hófst. Eðli „viðreisnarinnar“ dylst engum, sem nokkurt skyn ber á efnahagsmál. Hið mikla góðæri undanfarið hefur tafið „viðreisnina“ og komið í veg fyrir eins mikinn samdrátt á spmum sviðum og „viðreisnar“-menn vildu og góðærið veldur þeim áhyggjum. Og þá er ákveðið að herða enn á lánasamdrættinum til framleiðslunnar. Jó- hannes Nordal bankastjóri, einn helzti vikamaður „við- reisnarinnar“ er sendur fram og látin segja í nafni Seðla- bankans, að nú steðji hætta að ,,viðreisninni“ vegna þess að orðið hafi almennar kauphækkanir undanfarið og þetta sé líklegt til að auka eftirspurn eftir vörum, örva fjár- festinguna og framkvæmdir almennings — og er það hættuleg „þensla“ að dómi ríkisstjórnarinnar óg hag- spekinga hennar. — Þetta er nýjasta dæmið og þurfa menn órækara vitni um hina afturhaldssömu íhaldsstefnu í landi „viðreisnarinnar“? T í M I N N, laugardagurinn 18. ágúst 19K2. Tvær útkljáðar styrjaldir í hinum stóra blaðaheimi New York Times og Beaverbrook iávarður standa af sér atlögur UM ÞESSAR mundir eru á ferð inni tvö mál, annað í Banda- ríkjunum og hitt í Bretlandi, er vakið hafa verulega athygli i blaðaheiminum og eru fyrir þá sök bæði athyglisverð og lærdómsrík, að þau hafa sýnt fram , að siðferði er jafn nauð- synlegt í allri samkeppni og drengskapur í íþróttakeppnum. Það er hið annars svo virðu- lega biað New York Herald Tribune, sem aðili er að hinu bandarfska máli. Blaðið hefur um alllangt skeið átt í nokkr- um fjárhagsörðugleikum, sem m. a. stafa af því, að það er hvergi nærri jafnoki hins þekkta blaðs New York Times í því að sanka að sér auglýsing- um. N. Y. Times er eldra blað en N. Y. Herald Tribune og af mörgum talið bezta og áreið- anlegasta blað heims. Það er prentað undir kjöroiðinu: All j the New’s That’s Fit to Print — það vill segja eitthvað á þá leið, að í því góða blaði séu prentaðar allar þær fréttir, sem séu þess virði að nefnast því nafni. Það var Donald Rogers, sem skrifar um verzlunarmál í Her- ald Tribune, er mest var ó- ánægður með forskot Times i auglýsingaveltunni og hann gat ekki stillt sig um að láta til skara skriða, ef verða mætti til þess að minnka muninn að nokkru eða öllu leyti. Hann vildi gera öllum auðjöfrum Bandaríkjanna ljós þessi sann- indi: Sá, sem ekki er á þínu máli, er andstæðingur þinn. Og þess vegna, hélt Rogers áfram, ber öllum verzlunar- og iðju- höldum og þekkja fjanda sína í blaðaheiminum — og ekki nóg með það, heldur og að hafna þeim á borði en veita í þess stað betur vinum sínum. Það hefði getað haft alvarlegar af- leiðingar fyrir hið frjálsa orð í Bandarikjunum, ef Rogers hefði tekizt að koma af stað átökum ofe klofningi. Sannleik- urinn er nefnilega sá, að mill- jónerarnir í Wall Street, Eisen- hower-republíkanar og yfirleitt hinir voldugri atvinnurekendur líta á Herald Tribune sem sinn sanna málsvara vegna íhalds- samra sjónarmiða í verzlunar- málum og efnahagsmálum yfir- leitt, Times er frjálslyndara í skoðunum. Það verður ekki talið stuðningsblað demókrata en hefur þó þorra atvinnurek- enda þeirra sín megin en teygir sig einnig langt inn í raðir hinna stóru iðjuhölda og auð- manna. Það hefur sem sé víðari auglýsendahring og þess vegna það forskot sem Rogers sárn- ar svo mjög og vildi minnka. ÞETTA mál átti eftir að koma til kasta þingsins og það er erf- ilt að segja fyiir um hvaða ráða Times hefði talið sér nauð synlegt að grípa til, ef ekki hefi komið fram á sjónarsviðið piaður nokkur, en hjó á hnút- inn. Og þessi maður var eng- inn annai en John Hay Whitn ey, margmilljónari og eigandi Herald Tribune Whitney keypti blaðið fyrir nokkrum árum og lét þá af stöðu ambassadors í Lundúnum til þess að taka að sér það hlutverk að koma Her- ald Tribune á réttan kjöl. en ------------- BEAVERBROOK LÁVARÐUR það hafði þá um nokkurt skeið verið með fjárhagslega slagsiðu. Whitney er bæði greindur maður og heiðarlegur. Honum þótti miður frumhlaup blaða- manns síns og lýsti því skorin- oit yfir, að Herald Tribune gæti ekki leitazt við að rétta hlut sin með svo auðvirðilegum að- ferðum og Rogers legði til. — Whitney skrifaði forystugrein í blað sitt, þar sem hann baðst afsökunar á orðum Rogers og sagði síðan: Við óskum þess, að fólk auglýsi í blaði okkar vegna gildi þes-s sem auglýs- JOHN HAY WHITNEY ingablaðs og ekki af nokkrum öðium ástæðum. Merkilegt nokk, þá lciddi mál þetta ekki til brottrekstrar Rogers frá blaðinu. Hann held- ur áfram að skrifa greinar sín- ar um viðskiptamál eins og ekk- eit hafði í skorizt og er áfram jafn hatrammlega íhaldssamur í sínum skoðunum. Fyrir skömmu kallaði hann Kennedy forseta pólitískan rekkjunaut stéttasamtakanna og kallar stefnu hans í efnahagsmálum samsafn heimskulegustu hug- mynda, er nokkru sinni hafi fram komið í Bandaríkjunum En styrjöldina um auglýsendur undir forskriftinni: með eða á móti — hefur Rogers lagt á hilluna. sennilega fyrir fullt og allt og það er mikilvægast af öllu. EN UM líkt leyti og þessu fór fram í Bandaríkjunum stakk svipað má) upp kollinum i Bret landi. en hér var það BBC og nokkrir vinsælir menn þeirrar stofnúnar er hlut áttu að máli BBC flytur nokkrum sinnum þátt er nefnist: Nokkrar spurn- ingar og er þessi dagskrárliður mjög vinsæll og mikið á hann hlustað. Þar kom fyrir skemmstu fram Boothby, lávarð ur, sem er vel þekktur stjórn- málamaður og útvarpsmaður. Og hann slepptj fram af sér beizlinu við Iok þáttarins, er hann hóf æðisgengnar árásir á blöð Beaverbrooks lávarðar: Daily Express, Sunday Express og Evening Standard. Nú er það auðvitað svo, að hverjum manni er frjálst að láta sér finnast svo um þetta blað og hitt, sem honum bezt þóknast, en Boothby. lávarður, gekk feti framar. Hann taldi Beaverbook, lávarð, og allt hans lið nánast ótínt glæpahyski og lávarðurinn væri að auki ekki Breti heidur Kanadamaður. Og aumingja kanadíska þjóðin komst í leiðinni ekki undan því að á henni skyllu nokkrar mið- ur skemmtilegar athugasemd- ir frá hinum ofsareiða Boothby, lávarði. BBC hafði ekki haft tækifæri til þess að fara yfir mál Booth- by, lávarðar áður en því var útvarpað. en varla var útsend- ingunni lokið er forystumenn BBC gerðu sér ljóst. að hér höfðu verið framin háskaleg afglöp. er gátu haft í för með sér ófyrirsjáanlegar afleiðing- ar fyrir framtíð BBC. NÚ VAR ákveðið að grípa til þess ráðs að ómerkja orð lá- varðarins. þótt töluð orð verði jú ekki svo gott aftur tekin. BBC samdi og lét lesa langa yfirlýsingu, þar sem menn beygðu sig í lotningu fyrir Beaverbrook, lávarði. og báðu hann og starfsmenn hans au* mjúklega afsökunar á ásökun- unum í þeirra garð Allt var reynt að gera svo lávarðurinn og menn hans fengju uppreisn æiu. Einkum lét BBC í ljós sáran harm vfir þeim stóryrðum Boothby. lávarðar. að Beaver- brook. lávarður, hefði aðeins gert Englandi tjón og að hann hefði aldrei átt að fá leyfi til þess að koma inn i landið. Hér sagði BBC, að staðreyndum hefði verið snúið við allhrapa- lcga, því Beaverbrook hefði gert Englandi allt hugsanlegt gang, ekki sízt á hinum erfiðu tímum 1940, og Broothby lávarð ur, var mjög hryggur yfir hama gangi sinum og kvaðst reiðu- búinn til þess að ómerkja öll sín orð. sem væru jú gagnvart Beaverbrook, lávarði. hvert öðiu ósannara Hann bað auk þess lávarðinn auðmiúklega af- sökunar á frumhlauni sínu EN ÞAÐ var mikiH misskiln ingur hjá BBC og Boothby lávarði að ætla að allar þess- ar auðmjúku yfirlýsingar myndu duga til þess að fá þetta leiðinlega má) út úr heiminum, gleymt og grafið. Að vísu fór Beaverbrook. lávarður. sjálfur fremur hægt í sakirnar, en rit- stjórar hans vildu hins vegar ekki una öðrn en hreinsa af sér | þann skít er Broothhv távarð ur, hafði á þá kastað Þeir jj höfðuðu því allir meiðvrðamál. | og enda þótt oft geti liðið vik ur og mánuðir og jafnvel ár. þar 1 til slík mál eru tekin til með- i Frarohald á 13. síðu £ z

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.