Tíminn - 18.08.1962, Qupperneq 9
und .Bærinn liggur í skjóli mót
norðri og þaðan er fagurt út-
sýni til Romsdalsfjallanna sunn
an fjarðarins. Mun Molde vera
einn mesti ferðamannabær
Noregs. Molde kemur fyrst við
sögu um 1350. Árið 1742 fær
bærinn kaupstaðaréttindi og í
dag er þar rekin mikil verzl-
un, aðallega útflutningur sjáv-
arafurða, og iðnaður; klæða-
gerð, véla- og húsgagnasmíði.
Björnstene Björnsson var nem
andi í skóla í Molde á sínum
tíma og hafa Moldebúar reist
honum minnismerki í hjarta
bæjarins. Ibsen sótti fyrirmynd
ir til „bæjar rósanna“, eins
og hann er oft kallaður, og
Alexander Kjelland var þar
amtmaður. Þjóðverjar brenndu
miðhluta bæjarins í loftárás
árið 1940. Bæjarbúar minnast
þess stoltir, að Hákon konung-
ur og ríkisstjórn hans flýðu
einmitt til Molde og voru þar
um stund, þar til haldið var
þaðan á skipi til Norður- Nor-
egs. Svo vel vildi til, að kvöld-
ið sem við vorum í Molde, var
ur til um 200 eyja og skerja
með hinum undarlegustu nöfn
um, svo sem Djöfullinn, Mann-
dráparinn, Presturinn o.s.frv.
en aðeirjs er búig á einni þeirra
o0- það er hún sem eyjaklasinn
dregur nafn sitt af. Grip er
minnsti en þéttbýlasti hrepp-
ur Noregs með um 480 íbúa
á ferkílómetra. Stórsjóar hafa
oftsinnis skolað öllum bygging
um á eynni burt, nema kirkj-
unni, hún hefur staðið öll á-
hlaup síðan hún var byggð á 14.
öld. íbúarnir lifa allir á fiskveið
um og fiskvinnslu. Ekkert vatn
er í eynni nema það sem safn-
ast í rigningum. í þurrkasumr-
um verður oft að ná í vatn til
Kristiansund. Þekktasta útflutn
ingsvara þeirra Gripverja eru
þurrkaðir sundmagar, sem
þykja herramannsmatur víða
um heim. Allt fram til ársins
1897 voru Gripverjar skatt-
frjálsir og nutu ekki kosninga
réttar.
En eigum við nú ekki að
hverfa til Þrándheims eða Nið-
aróss? Þar áðum við í tvo daga.
Ferðafólkið í glaða sólskini og góðu skapi uppi á Dalsnibba.
„Skjærgárdsfestival“ í Bud, en
það er nokkru norðar. Bud er
800 manna fiskibær. Hátíðin
stóð í þrjá daga og'sóttu hana
15 þúsund manns. Dansað var
á bryggjunni og þar hafði ver-
ið sett upp veitingahús og gátu
gestirnir veitt sér sjálfir í soð-
ið, en látið veitingahúsið um
matreiðsluna.
Næsti áfangastaður var Krist
iansund. íbúar rúm 17 þúsund.
Bærinn er byggður á þremur
eyjum, og er hið sama um hann
að segja og Ándalsnes og Molde
— Þjóðverjar eyddu þar um
800 húsum. Þrátt fyrir það, að
mestur hluti gamla bæjarips
hyrfi, hefur hann haldið sér-
kennum sínum. Frá Kristian-
sund er fluttur út stærstur
hluti af saltfiskframleiðslu
Norðmanna, og þar eru mörg
og stór frystihús. Úr turni
slökkvistöðvarinnar sést til eyj
arinnar Grip, sem liggur þar
í 14 km. fjarlægð. Nafnið tek-
Dómkirkjan I Niðarósi, séð frá
norðaustri.
Þá erum .við komin í Syðri-
Þrændalö^ og þaðan héldum
við aftur suður á bóginn. Niðar
ós er þriðja fjölmennasta borg
Noregs. íbúar um 60 þúsund
Borgin stendur við ósa Niðar
og segir Heimskringla að Ólaf-
ur Tryggvason hafi fyrstur lát-
ið gera þar bæ, Kaupang. Telja
sumir að það hafi verið árið
997, þótt aðrir dragi þá sögn í
efa. Allt um það, þá hefur bær-
inn við ósa Niðar verig mið-
stöð Þrændalaga strax p. Vík-
ingaöldinni í sambandi við fylk-
isþingið á Öra. Niðarós var kon-
ungasetur fram á 13. öld, og
árið 1152 varg bærinn erki-
biskupssetur og lutu íslending-
ar erkistólnum þar allt fram
til siðaskipta. Dómkirkjan í
Niðarósj er það markverðasta
sem þar er að sjá. Bygging
hennar hefst við stofnun erki-
stólsins 1152. Hún er úr höggnu
grjóti og hig mesta listaverk,
hvar sem á er litið. Utan hafn-
arinnar er lítil eyja, sem nefn-
ist Munkholmen. Þar var klaust
ur á miðöldum, en síðar virki
og fangelsi á stundum. Nú er
Munkholmen einn vinsælasti
baðstaður Niðarósbúa. Fórum
við þanga-g öll og þar þreytlu
þeir Baldvin og Árni kapp-
sundið. Auk þess fór þar fram
keppni í boðhlaupi' milli far-
þega beggja bílanna. Lið Páls
bar sigur úr býtum eftir harða
keppni, en mitt lið álasaði
mér fyrir að hafa ekki dæmt
Baldvin sigurinn j sundinu,
hann hefði -sýnilega verð á und
an. Bíður það úrskurðar Ijós-
myndar, sem sýnd verur þátt-
takendum í haust, þegar þeir
koma saman til skemmtifundar.
Myndina tók bandarískur mað-
ur, sem með okkur var, Mr.
Sommerfelt. Hann var í mín-
um bíl og fullyrti einnig a3
Baldvin hefði unnið. En mynd-
in mun sýna hið rétta, þegar
þar að kemur.
Gaman hefði verið að fara til
Stiklastaða, þar sem Ólafur
helgi féll 1030, en þess var
enginn kostur. Þess er og eng
inn kostur að telja það allt upp,
sem markvert er að sjá j Nið-
arósi, þar er af svo mörgu að
taka. Þaðan var haldið eftir
Gaulardalnum til bæjarins
Rörps, sem er á heiðum uppi
suður af dalnum. Á 17. öld
fannst þarna kopar, og um
langt skeið var þar mikill
námagröftur. Nú eru námurnar
næstum þrotnar, en ferða-
mannastraumur er mikill til
Kirkjan I Röros, byggð 1784.
bæjarins og hann þekktur vetr-
aríþróttaslaður. Námamennirn-
ir hafa áður fyrri átt við ótrú-
lega erfið kjör ag búa og vitna
þar um 250 ára gömul hfbýli
þeirra við Sleggveien. Sjö ára
gamlir urðu námamannasyn-
irnir að fylgja feðrum sínum'
til starfa í námunum Höfund-
ur Bör Börson, skáldið Johan
Falkberget, hefur búið í Röros
og ritað um lífið j námunum.
Se&ir nú fátt af ferðum okk
ar fyrr en við komum til Lille-
hammer. Leiðin frá Röros ligg-
ur í gegnum Austurdali í Heið-
merkurfylki. Þar er allt viði
vaxið, enda mesta skógarhöggs-
fylki landsins. Áin Glomma lið-
a-st þar um dalinn og eftir
henni er trjánum fleytt alla
leið til Sarpsborgar og Friðriks
stað við ósa árinnar. sem er
lengsta og vatnsmesta á Nor
egs, 556 km. Lillehammer er i
200 km. fjarlægð frá Osló, og
stendur við norðurenda stærsta
vatns Noregs.-jMjösa, þar sem
Guðbrandsdalur hefst. og er í
Upplandafylki. Við gistum þar
í tveim háfjallahótelum ofan
vig bæinn og efndum þar til
kveðjuhófs, þar eð næsta dag
myndi hópurinn tvístrast í
Ósló og ekki hittast aftur fyrr
en í flugvélinni, er haldið yrði
heimleiðis. Var margt til gam-
ans gert og sannaðist þar, að
íslendingar þurfa engan undir-
búning til þess að vera skemmti
legir.
Ekki get ég skilið svo við
Lillehammer, að ég geti ekki
hins merka byggðasafns, stofn-
stofnuðu af A. Sandvig tann-
lækni árið 1887 á Maihaugen.
Safnið þróaðist úr því að gera
lítið byggðasafn landsins með
75 húsum af ýmsum gerðum.
Hlutverk þess er að draga fram
skýra mynd af hinni gömlu
menningu Dalanna og lifnaðar-
háttum fólksins þar fyrr á öld-
um. Þá er ag finna í Lille-
hammer, Bjerkebæk, heimili
Sigrid Undsets.
Næsla morgun héldum við í
mínum bíl til Eystri-Gausdal
og heimsóttum Aulestad, heim-
ili Karoline og Björnstene
Björnson. Sonardóttir Björn-
sons beið okkar á hlaðinu og
dró íslenzka fánann að húni á
viðhafnarstönginnj um leið og
Pramhalfl a 13 síðu
Tveir stæðileglr, Daníel Helga-
son og Baldvin Þ,
■I
i T í M I N N, laugardagu.ain 18. ágúst 1962.
h. -