Tíminn - 18.08.1962, Síða 15
9 héraðsmót
9 héraðsmót, tveir stjórn-
málafundir og eitt kjördæmis-
þing um næstu tvær helgar.
Brún í Bæjarsveit
Framsóknar-
menn í Borgar-
fjarðar s ý s 1 u
halda almennan
stjórnmálafund
að Brún í Bæjar-
sveit sunnudag-
inn 26. ágúst og
hefst hann kl 3
e. h.
Um kvöldið kl. 9 s.d. verður svo
héraðsmót á sama stað.
Ræður flytja Hermann Jónasson
fyr. forsætisráðherra og Daníe]
Ágústínusson.
Gísli Sigurkarlsson skemmtii
með gamanþáttum og eftirherm-
um.
Þá verður einnig dansað.
Helgin 18. og 19. ágúst.
Laugar, S.-Þingeyjarsýslu 18
ágúst kl. 8,30 — Héraðsmót.
Dalvík, Eyjafirði, 19. ágúst kl.
8,30 — Héraðsmót.
Sauðárkrókur, 19. ágúst kl. 8.
— Héraðsmót.
Breiðablik, 19. ágúst kl. 8,30.
— Héraðsmót.
Á öllum héraðsmótunum koma
fram ræðumenn, einsöngvarar og
gamanleikarar. Ennfremur verður
dansað.
Helgin 25. og 26. ágúst.
Siglufjörður, 25. ágúst kl. 8,30.
— Héraðsmót.
Breiðdal, S.-Múlasýslu, 25. ágúst
kl. 9. — Héraðsmót,
Reyðarfjörður, S.-Múlasýslu, 26.
‘ágúst kl. 9. — Héraðsmót.
Reyðarfjörður, 26. ágúst kl. 10
f.h. — Kjördæmisþing.
Laugarbakka, V.-Húnavatnssýslu
26. ágúst kl. 3. — Stjórnmála-
fundur.
Laugarbakka, 26. ágúst kl. '8.
— Héraðsmót.
BreiSdalsvík, S.-Múl.
Á vegum Framsóknarmanna í
Suður-Múlasýslu verður haldið hér
aðsmót í Breiðdal, laugardaginn
25. ágúst, og hefst það kl. 9 s.d.
Ræður flytja alþingismennirnir
Eysteinn Jónsson, form. Fram-
sóknarfloksins og Páll Þorsteins-
son.
Ómar Ragnarsson skemmtir. Að
lokum verður dansað.
Fagur sjoræningi
Framhald ai 1. síðu
list, á milli þess sem auglýsing-
ar voru lesnar.
En bráðlega verSur væntanlega
hulinni svipt frá og gert heyrin
kunn, hverjir sökudólgarnir eru.
Þó er ekki útséð um, nema
mál þetta verði nokkuð umsvifa-
mikið, því ekki liggur á hreinu,
hvort danskir dómstólar eru bær
ir til að f jalla um málið, og meira
segja er ekki víst, hvort aðgerö
ir dönsku lögreglunnar eru í sam
ræmi við alþjóðalög.
Hingað til hefur Mercur siglt
undir fána Líbanons og þá vakn-
ar spurningin um það, hvort
dönskum yfirvöldum sé heimilt
Héraðsmótin um helgina 25.
og 26. ágúst.
Siglufjörður
Framsókn-
a r m e n n á
Siglufirði halda
héraðsmót að Hó-
Höfn, laugar-
daginn 25. ágúst,
hefst það kl.
— Ræður
flytja alþingism.
Björn Pálsson og
Ólafur Jóhannes-
son og Jón Kjartansson, forstjóri.
Erlingur Vigfússon syngur með
undirleik Ragnars Björnssonar.
Gísli Sigurkalrsson fer með
skemmtiþætti og eftirhermur.
Að lokum verður dansað.
Kjördæmisþing
Kjördæmisþing Framsóknar-
manna í Austfjarðakjördæmi kom
ur saman sunnudaginn 26. ágúst
í Félagslundi, Reyðarfirði, og
hefst það kl. 10 f.h.
Fulltrúar eldri- og> yngri manna
úr öllum hreppum kjördæmisins
eiga að mæta, svo og stjórn kjör-
dæmissambandsins og alþingis-
menn flokksins í kjördæminu.
Venjulega hafa svo mætti marg-
ir Framsóknarmenn sem gestir,
á þessum þingum.
Laugarbakka, V.-Hún.
Héraðsmót Framsóknarmanna í
V.-Húnavatnssýslu, verður aðv
Laugarbakka, sunnudaginn 26.
ágúst. Aðalfundir Framsóknarfé-
laganna hefjast kl. 3 e.h., en al-
menn skemmtisamkoma kl. 8 s.d.
Ræður flytja Gísli Guðmunds-
son, alþm, og Indriði G. Þorsteins-
son, ritstjóri.
Erlingur Vigfússon, syngur með
undirleik Ragnars Björnssonar.
Síðan verður dansað.
Reyöarfjöröur
Sunnudaginn 26.
ágúst halda Fram
sóknarmenn á
Reyðarfirði hér-
aðsmót, og hefst
það klukkan 9
s.d. í Félagslundi,
Reyðarfirði.
Ræður flytja
Eysteinn Jónsson
og Vilhjálmur
Hjálmarsson og fleiri.
Ómar Ragnarsson skemmtir. Að
lojcum verður dansað.
Fram vann
í GÆRKVÖLDI sigraöl Fram ís-
firðinga á íslansmótinu í knatt-
að handtaka menn á skipi, sem
rekur starfsemi utan danskrar
landhelgi.
spyrnu með 2:0. Fram or nú efst f
mótinu með 11 stig, næstlr koma Ak-
urnesingar með 10 stig.
T í M I N N, laugardagurinn 18. ágúst 1962.
Kartöflurnar
Framhald al 16. siðu.
á markaðinn fyrir nokkrum dög-
um, og útlitið er þar gott. Á
Hornafirði er spretta heldur hæg-
ari en verið hefur á undanförnum
árum, og kartöflurnar því seinni
á ferðinni.
Ekki verða íslenzku kartöflurn-
ar greiddar niður að þessu sinni..
Rfkisstjórnin tekur ákvörðun um
slíkt í hvert sinn, og í fyrra voru
nýjar kartöflur greiddar jafnt nið-
ur afi krónutölu og þær gömlu,
sem þá voru á markaðinum, eða
um rúmar 2 krónur kg. Kartöflu-
kílóið í ár kostar kr. 8,60 og er
það svipað verð og var á erlend-
um kartöflum fyrst .í sumar.
Úti á landi er kartöfluverðið
hið sama, svo framarlega sem kart
öflurnar eru ekki aðfluttar. T. d.
' "tar kg. af Eyjafjarðarkartöflun
* kr. 8,60 á Akureyri, en verði
Akureyringar að flytja kartöflur
frá Reykjavík leggst á þær flutn-
ingskostnaður.
í sumar hafa verið fluttar inn
kartöflur frá bæði Ítalíu og Belgíu.
Frá ítalíu komu 350 lestjr og 300
lestir frá Belgíu. í júní voru seld-
ar héðan kartöflur til Bretlands,
og var þafi gert til þess að koma
í veg fyrir það, að kartöflurnar
eyðilegðust við geymslu og lands-
menn þyrftu ekki að leggja sér til
munns skemmdar kartöflur, er
.líða tæki á sumarið.
Þess má geta, að kartöfluþjóð
eins og Danir flytja inn nýjar
kartöflur strax í maí ár hvert, t;l
þess að kaupendur geti valið á
milli, hvort þeir vilji heldur nýjar
eða gamlar kartöflur.
Þegar verið var að semja um
sölu á kartöflum til Bretlands,
kom hingað sérfræðingur í þess-
um málum. Leizt honum mjög vel
á hinar svokölluðu bintje kartöfl-
ur, sem ræktaðar hafa verið hér
nokkur undanfarin ár, en eru
holleíizkar að uppruna. Sagði
hann, að hér væri um stórkostlega
möguleika á ræktun útsæðiskart-
aflna að ræða. íslendingar ættu.
að rækta þær í stórum stíl, enda
myndu þeir án efa geta fengið
ágætis markaði fyrir þær erlendis.
Eftir því sem næst verður kom-
izt var heildaruppskeran á land-
inu á síðasta hausti um 130 þús.
tunnur.
i gapastokknum
Framhald l síi,u
borða dögum saman en hrís-
grjón með dálitlu salti.
Lawren: e Baily, sem er maj-
or í bandaríska hernum skýrði
hins vegar frá því, að fyrstu
ellefu mánuðina, sem hann sat
í fangelsi kommúnistanna,
hefði hann notið góðrar að-
hlynningar, en það sem eftir
var fangelsisvistarinnar hafði
hann orðið að dúsa í myrkra-
klefa, þröngum og óvistlegum
í alla staði. Eftir að Wolfkill,
ljósmyndari og félagar hans
tveir, voru handteknir snemma
á siðastliðnu ári, dvöldust þeir
í fangabúðum, sem ungir Path-
et-Lao-hermenn gættu, vopnað-
ir vélbyssum.
Allan fangelsistímann var
illa farið með þá og síðustu
mánuðina voru þeir látnir dúsa
í einangrunarklefum og fanga-
byrgjum, auk gapastokksins.
90 hross utan
(Framba'c a< 3 s.fta.
þeir skemmtilegir, af þvi að þeir
fara á meiri.gangi en hestar ann-
arra landa.
Ekki vildi Ásgeir fara neitt út
i peningahlið málsins, en sagði,
að þessi hrossaverzlun væri hið
mesta argaþras, því að pantanir
hljóðuðu gjarnan upp á hest með
hvítan blett á lendinni, og svb
kæmi harðorð kvörtun, ef blett-
urinn fyndist ekki á skepnunni,
þegar hún væri komin til kaup-
anda.
Vilja meiri síld
Framhald af 16. síðu.
Austur-Þjóðverjar aðallega keypt
Suðvesturlandssíldina, þar eð þeir
vildu ekki mjög feita sild fyrir
þann markað, sem þeir hefðu.
Fyrirtækið Rafgeislahitun sýndi
framleiðsluvörur sínar á sýning-
unni í marz. Sagði framkvæmda-
stjórinn, að nú hefði verið samið
um sölu á hitalögnum í 10 húsa-
samstæður. Værí hér um tilraun
að ræða, en mest væri um kola-
upphitun í Austur-Þýzkalandi og
rafgeislahitunin þar af leiðandi al-
gjör nýjung þar.
Að þessu sinni munu engin ís-
lenzk fyrirtæki sýna í Leipzig, en
bæði SH og Síldarútvegsnefnd,
höfðu ætlað að gera það, en á-
kvörðun um málið var tekin of
seint. Hins vegar hefur verið'
ákveðið, að fyrirtækin sýni á næstu
sýningu.
Kaupstefnan í Reykjavík sér um
að útvega þeim, sem á stefnuna
vilja fara, vegabréfsáritanir, og
um allan undirbúning, ef óskað
er. f vor fóru 40 íslenzkir kaup-
sýslumenn þangað. Ef hægt verður
að fá nægilega þátttöku er í ráði,
að efna til hópferðar kaupsýslu-
manna. Verður flogið til Kaup-
mannahafnar, en farig þaðan með
járnbrautarlest til Leipzig. Síðan
verður dvalizt í 5 daga á hóteli í
borginni, og farið sömu leið til
baka heim. Ferð þessi mun kosta
8500 krónur og er í þeirri upphæð
innifalinn morgunmatur, auk þess,
sem áður er getið. Þátttakendur
verða að vera minnst 10 til 15 til
þess að feðin verði farin.
Á meðan á kaupstefnunni stend-
ur, eru skipulagðar ýmsar ferðir
vrðsvegar um í Þýzkalandi. Allar
eru ferðirnar mjög ódýrar. Dag-
skrá er á hverjum degi, og koma
þar fram margir frægir listamenn.
í vor kom óperan frá Mílanó og
frægir ballettflokkar bæði frá
Tékkóslóvakíu og Rússlandi.
Kaupstefnan í Leipzig er ekki
nýtt fyrirbrigði. Þar hafa verið
haldnar slíkar stefnur í mörg
hundruð ár, eða allt frá því borg-
in var reist, og eftir þrjú ár, eða
árið 1965 minnist kaupstefnan
850 ára afmælis síns.
Frumherji á jörðu niðri
Frainhald af bls 12
ir mjög hratt tilhlaup. Hann
var vel yfir ránni — en var
svo óheppinn, að slá rána úr
okunum á niðurleiðinni. Olymp
iumeistarinn Shavlakadze, sem
lítið hefur látið frá sér heyra
síðan hann sigraði í Róm, varð
í öðru sæti í keppninni, stökk
2,12 metra, og tryggði sér þar
með rétt til að keppa á Evrópu
meistaraniótinu í Belgrad.
dýrðir í
Djakarta
NTB-Djakarta, 17. ágúst.
Mikið var um dýrðir í dag í
Djakarta, er haldinn var hátíðleg-
ur 17. þjóðhátíðardagur I'ndónesíu
of fagnað samningnum við Hol-
lendinga um Vestur-Nýju-Guineu.
Um 20000 annms höfðu safnazt
saman á aðaltorgi borgarinnar og
þar fór frarn mikil hersýning.
Sukarno, Indónesíuforseti, flutti
ræðu við þetta tækifæri og sagði
m. a., ag hann skyldi sjá um, að
í Indónesíu skapaðist ekki nýtt
Kongó-mál, vegna fyrTi ágreinings
um V-N-Guineu, e'n eins og kunn-
ugt er hefur verið undirritaður
samningur milli Hollendinga og
Indónesa um framtíð þess lands-
hluta.
Fóstureyðing leyfS
Framhald ai 1 síðu
ekkert hægt um það að segja,
hvort barn hennar myndi fæðast
vanskapað eða ekki, en hún gæti
ekki afborðið óvissuna. Sænsk yf-
irvöld féllust á þessa röksemd og
byggðu úrskurð sinn á henni.
Hættulegt fordæmi
Það er ekkert einsdæmi, að út-
lendingar leiti eftir slíkri læknis-
aðgerð, sem hér um ræðir, í Sví-
þjóð, en hins vegar leggja sænsk
hcilbrigðisyfirvöld enga dul á það,
að þetta mjög svo mikið umtalaða
Finkbine-mál geti leitt til þess, að
konur hvaðanæva að úr heiminum
taki að streyma til Svíþjóðar til
þess að fá framkvæmdar fóstur-
eyðingar.
Eiginmaður frú Finkbine sagði
í dag, að það versta við þetta allt
saman væri umsfangið, sem orðið
hefði í sambandi við ákvörðun
þeirra hjónanna, og leiðinlegt væri
að þau yrðu þess kannske valdandi
að koma sænskum heilbrigðisyf-
irvöldum í bobba, með því að nú
myndi iolk álíta, að mjög auð-
velt væri að fá framkvæmda fóst-
ureyðingu í Svíþjóð og tæki að
hópast þangað.
Um 3000 fóstureyðingár eru
framkvæmdar á ári hverju. í Sví-
þjóð, lögum samkvæmt, eo talið
er, að tala ólöglegra fóstureyðinga
sé í kringum 10.000 á ári, | ,
Konan mín,
ELINBORG GUÐMUNDSDÓTTIR
andaðist fimmtudaginn 16. ágúst.
Loftur Sigurðsson.
Aðfaranótt 16. ágúst lézt á Siúkrahúsinu Sólvangl, Hafnarfirði,
FRÚ VILBORG J. KJERULF
frá Hábæ f Vogum.
Anna Guðmundsdóttir
Sveinn Pálsson.
Þökkum innllega auðsýnda samúð við fráfell og jarðarför mágs
míns og bróður okkar,
Þórðar Jónssonar ,
Mófellsstöðum, Skorradal.
Guðflnna Slgurðardóttir
og systkinl.
Eiginkona mín,
Þorbjörg Einarsdóttir
Garðastræti 45,
lézt í Landakotsspítala 17. ágúst.
Árgeir Torfason.
15