Tíminn - 28.08.1962, Page 16
KÁRI BORGFJÖRÐ HELGASON
KEYPTIÞORSTEINSAFN
Híð mikla bókasafn Þor
steins Dalasýstumanns hef
ur nú loks verið selt, og
var gengið frá sölunni á
laugardaginn. Kaupandi
er Kári Borgfjörð Helga-
son, kaupmaður, Njáls-
götu 49 í Reykjavík.
Fréttamenn blað'sins hittu hann
að máli í gær og spurðust fyrir
um kaupverðið, en Kári sagði það
hafa orðið samkomulag milli full-
trúa dánarbúsins og sín að lúta
það ekki uppskátt. Aðspurður
hvort hann hefði lengi haft auga-
stað á safninu sagði Kári að hann
hefði í fyrstu gert ráð fyrir, að
ríki eða bær mundi kaupa það,
enda hefði sér ekki dottið í hug,
að safnið kæmist í hans eigu, fyrr
en útséð virtist, að ekkert yrði úr
káupum af hálfu þess opinbera.
Stefán Guðjónsson, fornbóka-
sali, hafði gert tilboð í safnið, en
ekkert varð úr kaupum. Kári gerði
svo tilboð á eftir Stefáni. Því var
ekki hafnað, en samið um annað
tilboð frá honum.
Ætlar ekki að selja
Safnið er nú í vörzlu fulltrúa
dánarbúsins og geymt í Tjarnar-
götu. Kári kvaðst mundu flytja það
heim til sín í næstu viku, en það
verður þá afhent samkvæmt skrá.
Ekki sagðist Kári mundu selja
Þorsteinssafn, ef hann treysti sér
til að halda því. Sjálfur hefur Kári
safnað bókum, en einkum tímarit.
um, og á nú stórt tímaritasafn.
195. tbl. 46. árg.
Þriðjudagur 28. ágúst 1962
FANNST SOFANDI
í GRÓINNI GJÓTU
Rétt eftir klukkan 16 á
sunnudag týndist lítill dreng-
ur frá Loranstöðinni við HelHs
sand. Drengurinn, sem heitir
• •
• •
SOLUSTODVUN?
Búnaðarsamböndin á Suð-
ur- og Vesturlandi boðuðu til
fundar, sem haldinn var í
Borgarnesi í gær og hófst
klukkan tvö. Fundinn sátu
stjórnir allra sex búnaðarsam-
bandanna á þessu svæði og
fulltrúar á Stéttarsambands-
þingi af svæðinu, alls 39 fund-
arfulltrúar.
Auk þess voru mættir Kristján
Karlsson erindreki Stéttarsam-
bands bænda og flestir ráðunautar
búnaðarsambandanna á svæðinu
og 'nokkrir aðrir gestir.
Fundarstjóri var Jóhann Jónas-
son form. Búnaðarsambands Kjal-
arnesþings og fundarritarar Guð-
mundur Ingi Kristjánsson á Kirkju
bóli og Jón Helgason í Seglbúðum.
í upphafi fundar voru flutt tvö
framsöguerindi. Páll Diðriksson á
Búrfelli, form. Búnaðarsambands
ÚRENDUR m VEGINN
Laust fyrir hádegi í gær
tók Halldór Valdimarsson
mjólkurbílstjóri frá Borgar-
nesi eftir liggjandi manni við
vegamótin skammt frá Hjarð-
arholti í Stafholtstungum. Við
nánari athugun sá bílstjórinn,
að maðurinn var látinn.
Sá látni var Þorvaldur Jónsson,
til heimilis að Skipholti 30 í
Reykjavík. Hann var um fimmtugt,
ættaður frá Bessastöðum í Fljóts-
dal. Þorvaldur hafði verið við
smíðar í Hjarðarholti frá því í
vor. í gærmorgun ætlaði hann til
Reykjavíkur, og hljóp við fót
heimaii frá Hjarðarholti fram að
vegamótunum í veg fyrir áætlun-
arbíl, en sú vegalengd er um þrír
kílómetrar. Er talið, að þau hlaup
hafi riðið honum að fullu, en ekk-
ert sá á Þorvaldi þegar hann lagði
af stað.
Lögreglustjórinn í Borgarnesi
flulti líkið til Reykjavíkur.
Suðurlands, talaði um verðlagsmál
landbúnaðarins og Gunnar Guð-
bjartsson á Hjarðarfelli, formaður
Búnaðarsambands Snæfellsness-
og Hnappadalssýslu, um afuröalán
bænda. Nefndir voru kosnar til að
fjalla um bæði þessi mál, og mikl-
ar almennar umræður voru um
þau á fundinum. Kom fram stuðn-
ingur við tillögur bænda í sex-
mannanefnd um verðlagsmál land-
búnaðarafurða haustið 1961, og
lýstu flestir megnri óánægju með
úrskurð yfirdóms í verðlagsmálum
það haust. Margir voru þeirrar
skoðunar, að ef tillögum bænda í
sex-mannanefndinni 1961 fengist
ekki frámgengt, að viðbættum síð-
ari hækkunum, yrði að grípa til
sölustöðvunar nú í haust til að
fylgja. málinu eftir.
Þá var mikið rætt um lánamál
landbúnaðarins og þá érfiðleika,
sem nú steðja að ungum mönnum,
sem ætla að hefja búskap, ef ekki
verður úr bætt, Einn fundarmanna
sagði, að ekki væri hátt reiknað
þótt talið væri, að vei hýst jörð
með búfé og vélum kostaði nú
eina milljón króna, og þyrfti þá
búið að geta staðið undir vöxtum
af því fé.
Ályktanir verða birtar á morgun.
IJóhatm
strauk
- bræddi
úrbíi
NOKKRU eftir miðnætti á
laugardag lagði Tómas Karls-
son skipstjóri á Stokkseyri, bíl
sínum við hús eitt í þorpinu,
og þar eð hann hugðist ekki
staldra þar lengi við, skildi
hann lykilinn eftir í bílnum. —
Þegár hann kom út aftur var
bíllinn horfinn.
Tómas gerði þegar lögregl-
unni á Selfossi aðvart um bíl-
stuldinn, og fór svo sjálfur að
leita hans. Hann fór strax að
Litla-Hrauni, og spurðist þar
fyrir um það, hvort saknað
væri nokkurs fanga. Fékk hann
þau svör, að svo væri ekki.
Lögreglan á Selfossi gerði
strax viðvart lögreglunni í
Reykjavík og Hafnarfirði og
öðrum löggæzlumönnum, og var
allsstaðar farið að litast um
eftir bíl Tómasar.
Klukkan 5,30 á sunnudags-
morgun urðu lögreglumenn í
vegaþjónustunni varir við bíl-
inn undir Ingólfsfjalli. Var
hann á leið í áttina til Selfoss,
en lögreglan á leið til Reykja-
víkur. Nokkurn tíma tók að
snúa við, og auk þess var
skyggni ekki gott, þar eð þoka
var yfir, og sáu lögreglumenn-
irnir ekki meira til bílsins í
bili.
Skömmu síðar fréttist til bíls
ins fyrir ofan Eyrarbakkaveg-
inn, og að lokum fundu lög-
reglumennirnir hann yfirgefinn
við Geirakot. Um 7-leytið fundu
þeir svo ökumanninn, sem var
Jóhann Víglundsson stroku-
fangi af Litla-Hrauni. Jóhann
fór fúslega með lögreglunni að
Litla-Hrauni, og var kominn
inn aftur um 7 tímum eftir að
hann fór þaðan.
Bíll Tómasar var mjög illa
farinn eftir þessa ökuferð, vél-
in hafði brætt úr sér og er gjör-
eyðilögð, enda er talið^að fang
inn hafi ekið bílnum á um 160
km. hraða, að minnsta kosti
hluta af leiðinni. Er tjónið met-
ið á 20 til 30 þúsund, og af
fyrri reynslu manna í þessum
málum, mun eigandi bifreiðar-
innar sennilega verða að bera
þann skaða sjálfúr.
Að sögn fangavarðarins á
Litla-Hrauni litu fangaverðir
Frambald a 15 siðu
Sævar Pétursson, og er aSeins
tveggja ára, fannst ekki fyrr
en um miðja nótt, og þá meo
aSstoS sporhundsins Dúnu,
sem er í eigu flugbjörgunar-
sveitarinnar en Carlsen
minkabani hefur æft hana.
Sævar litli hafði veiið að leika
sér með tveimur öðrum drengjum
á sunnudagin skammt frá heimili
sínu, en þegar líða tók á daginn,
tók fólk eftir því, að hann var horf
inn. Leit var strax hafin, en bar
engan árangur.
Um kl. 18 var ákveðið að leita
til Slysavarnafélagsins um að
senda flugvél til Loranstöðvarinn-
ár. Átti hún að fljúga yfir umhverf
ið, ef vera mætti, að drengurinn
hefði sofnað, en vaknað'i aftur við
flugvéladyninn. Nokkuð var orðið
skuggsýnt, þegar flugvélin kom,
og sást enn hvergi til drengsins.
Nokkru síðar var fengin önnur
flugvél, og flutti hún sporhundinn
Dúnu og lögreglumanninn Bjarna
Bjarnason frá Reykjavík. Dúna
lróf nú leit að Sævari, en þar sem
mikið var af slóðum eftir hann
allt í kring unr stöðina, gekk það
erfiðlega. Að lokum barst leitin
út í hraun, og er hundurinn fór
fram hjá djúpri gjótu lýstu leit-
armenn niður í hana, og þar sást
lítil barnshönd standa upp úr
gróðrinum.
Sævar hafði að öllum likindum
rennt sér niður í gjótuna, sem var
tæpir tveir metrar að dýpt með
grónum börmum. Gjótan var
þröng að ofan, en víkaði þegar
niður kom. Ekki hefð'i Sævar get-
að komizt upp úr henni hjálpar-
laust, og mun að öllum líkindum
ekki hafa heyrzt í honum, þegar
hann fór niður í hana og hann
sofnað skömmu' síðar.
Hátt á annað hundrað manns
tók þátt í ieitinni að drengnum,
bæði frá Loranstöðinni og Hellis-
sandi, og einnig ætlaði hópur
manna að koma frá Ólafsvík til
þess að aðstoða urn nóttina. %
Sævari hafði ekki orðið neitt
meint af dvölinni í gjótunni, en
var orðið nokkuð kalt, þegar hann
fannst. Hann er sonur Péturs Pét-
urssonar símvirkja í Loranstöð-
inni.
SÆVAR PÉTURSSON
BANASLYS A GRENSÁSVEGI
Hemlaförin
37 metrar
Klukkan hálf þrjú á sunnu-
dagsnóttina varð maður fyrir
bifreið á Grensásvegi, móts
við Breiðagerði, með þeim af-
leiðingum, að hann lézt dag-
inn eftir. Hann hét Halldór
Gunnar Sigurðsson, 25 ára
gamall, til heimilis að Sigtúni
59. Hann var prentari að iðn,
og lætur eftir sig eiginkonu.
Bifreiðarstjórinn, sem ók á Hall-
dór, var á léið norður Grensásveg.
Hann hafði verið á skemmtun á
Hótel Borg fram til klukkan eitt,
þar sem hann kveðst lrafa neylt
víns, en í smáum stíl. Hann var
einn á ferð í bifreiðinni og virtist
hafa ekið hratt, þar sem hemla-
förin á slysstaðnum mældust 37
metrar.
Bifreiðarstjórinn kveðst hafa
séð Halldór í ljósgeislanum, koma
á móti sér, en i sömu svifurn varð
hann fyrir framhorni bifreiðar-
innar, kastaðist upp á vélarhús’-ð
og braut framrúðuna. Við þetta
kom slíkt fát á bifreiðarstjórann,
að hann hélt umsvifalaust burtu,
en á Sogaveginum hélt hann að
sima frá Bæjarleiðum og bað um
Framhald á 15. síðu.