Tíminn - 27.09.1962, Page 3
NYTT KYN-
ÞÁTTAPEX
MYNDIN er tekin hálfum öðrum tíma eftir aö kviknaði I hlöðunnj að Auðbrekku. Logar stóðu þá út
um gaflinn og þekjan var að falla. (Ljósm.: TÍMINN, Hörður Gunnarsson).
Fjárhús stóðu við hlöðuna og
eru þau óbrunnin. Bændur á Auð-
brekku eru Þórir og Stefán Val-
geirssynir, og hafa þeir félagsbú.
Heyið mun hafa verið vátryggt,
hversu hátt veit ég ekki, en tjón
bændanna er engu að síður mjög
tilfinnanlegt.
Heybruninn
Framhald af 1. síðu.
■búið var að dæla miklu vatni á
heyið, var það ekki lengur hægt.
Þá var þag ráð tekið, að fá
„trukk“ með spili til aðstoðar og
var reynt að skera stykki úr hey-
inu og slá á þau böndum og draga
út úr hlöðunni.
Ekki er vitað með vissu um elds
upptök, en bændur telja ólíklegt,
ag nokkur hiti að ráði hafi verið
í heyinu, þar eð það hafi verið
hirt vel þurrt. Súgþurrkun var
ekki í hlöðunni.
Eldurinn hefur áður leikið
Auðbrekkubændur hart, þvf að
fyrir nokkrum árum brann þar
íbúðarhúsið og skömmu síðar
verkstæði. — E.D.
Alvarlegar deilur eru nú
risnar upp milli Bandaríkja-
stjórnar og stjórnarinnar í
Missisippi-ríki, vegna hins 29
ára gamla svertingjastúdents,
Meredith, sem meinuð hefur
verið innganga í háskólann í
Missisippi.
Ross Barnett, ríkisstjóri í Miss-
issippi, hefur þrisvar sinnum neit-
að beiðni stúdentsins um inn-
göngu í skólann, og mun litarhátt
ur Merediths vera ástæðan fyrir
neituninni, sem er komin frá rík-
isstjóranum persónulega.
Þrátt fyrir, að dómstolar í Wash
ington hafi að bejðni stjórnarinn-
ar hvað eftir annað kveðið upp
úrskurði um réttmæti kröfu stúd-
entsins um skólavist, þverkallað-
ist_ Barnett ríkisstjóri enn.
í dag fór Meredith ásamt lög-
fræðingi frá dómsmálaráðuneyt-
inu í Washington flugleiðis til
Mississippi og í fylgd með þeim
voru 12 ríkislögreglumenn.
Er þeir hugðust fara inn í há-
skólabygginguna var veginum lok
að fyrir þeim með þrem bryn-
vögnum lögreglunnar í Mississ-
iPPi-
Barnett ríkisstjóri sjálfur var
ekki viðlátinn um þetta leyti, en
vararíkisstjórinn, Paul Johnson,
neitaði fjórum sinnum eindreg-
inni beiðni lögfiæðings svertingja-
stúdentsins um að þeim yrði
hleypt inn í háskólann.
Var ekki um annað að gera fyr-
ir Meridith en að snúa við og var
haldið til baka til New Orleans
skömmu síðar.
Fyrr um daginn hafði^mda-
ríska ríkisstjórnin lýst því yfir,
að ef annað dygði ekki, myndi
vopnavaldi verða beitt til þess að
úrskurður dómstólanna um inn-
göngu svertingjans yrð; virtur.
Síðdegis var enn ekki ákveðið,
hvort ríkisstjórn Bandaríkjanna
gerði alvöru úr hótun sinni og
léti til skarar skríða gegn yfir-
völdunum í Mississippi.
Síðustu fréttir
af gabbinu
Klukkan að ganga þrjú í nótt,
hafði Tíminn tal af Birni Ingvars-
syni, lögreglustjóra á Keflavíkur-
flugvelli. Tjáði hnn blaðinu að
Ieitinni að sprengjunni væri lok-
ið og ekkert hefði fundizt. Hann
sagði að þetta hefði eðlilega verið
uinfangsmikil og tímafrek leit.
Þá sagði hann að vélin, sem fer
með farþegana til New York legði
af stað eftir nokkrar mínútur.
GIFURLEG FLOD A SPANI
Hundruð manna fórust og
enn fleiri er saknað í gífur-
legum flóSum, sem urSu síð-
astliðna nótt í Catalonia á
Spáni, eftir mikið skýfall, sem
olli því, að allar ár i héraðinu
flæddu yfir bakka sína.
Meira en 30 verksmiðjur á
flóðasvæðinu skemmdust eða
hrundu algerlega, samgöng-
ur eru í molum og mikill f jöldi
húsdýra hefur farizt.
Talið er að eignatjón, sem
þegar er orðið nemi sem svar-
ar 720 milljónum íslenzkra
króna.
Enn er ekki nokkur leið að gera
sér grein fyrir, hve margir hafa
farizt, né ætia eignatjónið'nákvæm
lega, enda rignir enn á flóðasvæð-
inu og því ekki öll kurl til grafar
komin.
Þúsundir húsa hafa orðið fyrir
meiri og minni skemmdum í hér-
aðinu og heil þorp og bæir í ná-
grenni Barcelóna eru á floti, ef
svo má segja.
Ástandið var ófagurt á flóða-
svæðinu í dag. Allar ár höfðu
runnið yfir bakka sína og enn rign
ir látlaust. Fjöldi húsa hafa rifn-
að af grunni og borizt á brott i
vatnselgnum.
Víða er krökt af dauðum dýrum
og látnu fólki, sem berst niður
með árflaumnum, auk alls braks.
Enn eru ekki fyrir hendi nákvæm-
ar tölur yfir látna, en óttazt er.
að tala drukknaðra og látinna-af
öðrum orsökum eigi eftir að
hækka verulega.
Flóðin byrjuðu síðastliðna nótt,
með því að geysilegt skýfall varð,
sem olli ofsavexti í öllum ám á
fióðasvæðinu og brátt flæddu þær
yfir bakkana.
Fólki var gert aðvart með
klukknahringingum og reyndi þá,
hver sem betur gat að forða sér
og sínu.
Mest munu flóðin vera í iðnað-
arhéraðinu Sabadell, um það bil
50 km. frá Barcelóna.
Margar verksmiðjur jöfnuðust
gjörsamlega við jörðu og allt síma-
rafmagns- og vegasamband rofið.
Um fimmtíu starfsmenn einnar
verksmiðjunnar munu hafa færzt í
kaf með byggingunni og drukknað,
er gífurleg flóðbylgja skall á
verksmiðjunni.
Samkvæmt opinberum skýrslum
munu a.m.k. 100 manns hafa látizt
í flóðunum á þessu svæði, en víst
er talið, að miklu fleiri hafi farizt.
í Catalonia-héraðinu rofnuðu all
ai samgöngur af völdum flóðanna
og loka varð um tíma flugvelli í
nágrenni Barcelona. Víða hafa
járnbrautarteinar rifnað upp og
margar brýr hafa skolast burt.
Þótt enn sé ekki fengið yfirlit
yfir manntjón í þessum ægilegu
fióðum, er þegar kunnugt um
marga f/51skylduharmleiki. Á ein-
um stað höfðu faðir og sonur leit-
að hælis í símastaur. Rétt áður en
björgunarmer.n komu á vettvang
hreyf flóðbylgja soninn, en föðurn
um var bjargað.
í einu þorpi fórust 10 af 11 fjöl-
skyldumeðlimum og 16 af 20 sí-
gaunum, sem leitað höfðu hælis
undir brú einni, urðu vatnselgnum
að bráð- og svo mætti lengi telja.
„Alblóöugur skipaði hann okkur að ausa“
NTB-Cork, írlandi, 26. sept.
17 SLASAÐIR menn af þeim
48, sem björgúðust úr flugslys-
inu, sem varð á súnnudags-
kvöldið, er Super-Constellation
flugvél varð að nauðlenda á
hafinu fyrir vestan frland,
voru í dag fluttir með þyrlum
frá björgunarskipinu Celerina,
í sjúkrahús í Cork á írlandi.
Fólk þetta er allt meira og
minna slasað og var ekki talið
vogandí að láta það bíða leng-
ur læknisaðgerðar, en Celerina
er ekki væntanleg til hafnar
með aðra, sem komust lífs af,
fyrr en á föstudag.
Enn er 16 manns' saknað og
er talið fullvíst, að alls hafi 28
farizt í slysi þessu, en leit er
nú hætt.
Hið sjúka fólk, sem kom til
Cork í dag var mjög illa til
reika, með blóðugar og skítug-
ar umbúðir og sársaukadrætti
í andlitum.
Strax við komuna til Cork,
voru átta af hinum slösuðu flutt
ir áfram til bandarísks her-
sjúkrahúss hjá Swindon í Wilts
hire.
Fréttamönnum NTB tókst að
ná tali af einum mannanna,
sem þangað var fluttur og lýsti
hann á átakanlegan hátt hinu
hörmule"a flugslysi.
Maður þessi, Robert C. Eld-
red, 48 ára gamall eftirlauna-
hermaður, sem var á leið til
Englands ásamt konu sinni í
skemmti- og hvíldarferðalag,
fótbrotnaði í slysinu og hefur
mátt mikið þola.
Kona mín og ég sátum hlið
við hlið er flugvélin nauðlenti,
en síðan hefi ég ekki séð konu
mína, sagði Eldred við frétta-
mennina og brast síðan í grát.
Við sátum aftast í flugvél-
inni, sagði Eldred en þegar hún
lenti á öldutoppunum losnuðu
sætin og fólkið valt fram eft-
ir vélinni. Sjórinn byrjaði að
fossa inn og þá missti ég sjón-
ar á konu minni. Síðan varð
allt myrkt og ég veit eiginlega
ekki hvað skeði næstu augna-
blikni, sagði Eldr^d.
Ég bjóst við dauða mínum,
en þá sá ég gúmmífleka á floti,
en mér fannst hann vera í
meira en kílómeters fjarlægð.
Skynsemin sagði mér, að ég
myndi aldrei geta synt svo
langt, en samt lagði ég af stað
og tókst að ná flekanum, sagði
hinn sorgmæddi maður.
Flugstjórinn var á flekanum
og hafði nær misst meðvitund /
vegna höfuðhöggs. Nicholson,
aðstoðarflugmaður tók þess
vegna að sér stjórnina um borð.
Okkur var skipað að ausa og
ausa og ég minnist þess, að
drengur einn byrjaði að ausa
sjónum með veskinu sínu. Eld-
red sagðist halda, að þannig
hefði gengið til í 5 klukku-
stundir.
Það fyrsta, sem ég spurði
um, var hvort kona mín væri
um borð og var því fyrst svar-
að játandi, en síðar komst ég
að raun um, að hún var þar
ekki.
Einungis eitt vasaljós var um
borð og gaf flugstjórinn skip-
un um, að það yrði notað til að
lýsa upp sjóinn í kring, ef ske
kynni að fleiri væru þar á
sundi.
Mér er minnisstætt er andliti
flugstjórans brá fyrir i ljós-
glætunni, alblóðugt og illa út-
lítandi, en svipurinn var ein-
beittur, er hann skipaðj okkur
að ausa áfram.
Og nú komum við auga á
svissneska skipið og þá vakn-
aði vonin um björgun.
T í M I N N, fimmtudagurinn 27. scpt. 1962.