Tíminn - 12.10.1962, Page 5
ÍÞRDTTIR__________j
ÍÞRÚTTIR
RITSTJÓRI: hallur simonarson
A þjálfaranámskeiði á vegum
Knattspyrnusambands Evrdpu
Eins og blaöið hefur skýrt
frá, er Karl Guðmundsson
knattspyrnuþjálfari nýkom-
inn heim frá Noregi, þar sem
hann þjálfaði í sumar. í sum-
arieyfi sínu skrapp hann til
V-Þýzkalands á þjálfaranám-
skeið, sem haldið var á vegum
Knattspyrnusambands Evrópu
en á því voru saman komnir
flestir landsliðsþjálfarar
Evrópulandanna. Við báðum
Karl að skýra okkur frá því
markverðasta, sem þar kom
fram.
Námskeiðið var haldið dagana
1.—7. júlí á íþróttaskólanum í
Hennef við Köln, einum hinna 16
íþróttaskóla, sem þýzka knatt-
spyrnusambandið hefur látið reisa
fyrir fjármagn, sem getraunir
hafa gefið af sér.
Skólinn stendur í fögru um-
hverfi, umluktur skógi klæddum
hlíðum. Rétt við skóLahúsið sjálft
er sundlaug með dýfingarpölium,
og knattspyrnuvöllur. — Uppi á
hæð einni f nágrenninu, er verið
að reisa iþróttasal, eru hliðar hans
klæddar rúðum úr óbrjótandi
gleri. Salurinn er 20 metra hár,
og voru margir knettir hengdir
í loft hans, vegna skallaæfinga,
en hæð knattanna mátti stjórna
með sérstökum tækjum á veggj-
um salarins, mjög haganlega fyrir
komið Gólfið var þakið rauðum
Salla, líkt og á tennisvöllum. í
nágrenni þessa salar voru tveir
knattspyrnuvellir.
Þama voru saman komnir þjálf-
arar frá 24 Evrópuþjóðum, nálægt
50 talsins og — var þeim skipt
niður í hópa, er miðuðust við
tungumál. Hóparnir voru þrír, og
tungumálin, sem töluð voru, enska
— franska — þýzka — allir fyrir-
lestrar og umræður voru jafnóð-
um þýddir á þessi tungumál.
Aðalfyrirlesarar voru: Sepp Her
berger, V.-Þýzkaland, Bela Volen-
— Ræft viS Karl Gutaitdsson um þjálfaranám-
skeið í Þýzkalandi.
ik, Ungverjaland, Rudolf Vytlacel,
Tékkóslóvakíu, Walter Winterbott-
om, Englandi, Sergej Savani,
Rússlandi, Karl Dekker, Austur-
ríki og Giovanni Ferrari, Ítalíu.
Auk þessara knattspyrnufræðinga,
flutti dr. Hollmann, V.-Þýzkalandi
og próf. Choutka ágæt erindi um
þjálfun fullorðinna og unglinga.
Hér skal drepið í fáum orðum á
það helzta er fram fór á námskeið-
inu.
Þýzka knattspyrnusambandið,
með Sepp Herberger í fararbroddi,
sá um námskeiðið að þessu sinni,
og var framkvæmd öll til mikillar
fyrirmyndar. Þýzkar þjálfunarað-
ferðir, sem einkenndust af eftir-
farandi atriðum:
Þjálfun og kappleikir standa í
j nánum tengslum hvort við annað.
I Æfingarnar séu spegilmynd af
! kappleikjum, í því er tekur til
! innihalds — forms — og hraða.
Knötturinn skal notaður svo
mögulegt er, við æfingarnar, ekki
einungis við tækniþjálfun, heldur
einnig í þjálfun úthalds og snerpu.
Um þetta segir Herberger: —
Hvað gagnar knattspyrnumanni að
vinna spretthlaup, ef hann tapar
knettinum. Og dr. Hollmann: —
Vöðvasnerpuna er lítið hægt að
auka. Við getum sagt að snerpa
spretthlaupastjörnunnar, sé að
95% meðfædd, og 5% árangur
þjálfunar. Hins vegar er hægt að
auka samstarfshæfni tauga og
vöðva að verulegu leyti.
Virk mótstaða er mjög áríðandi
atriði í knattspyrnuþjálfuninni.
Hún þroskar þá mikilvægu eigin-
leika hjá knattspyrnumanninum,
að hugsa og framkvæma hratt.
Knattæfingar við virka mót-
stöðu og knattæfingar á hreyf-
ingu án mótstöðu, auka kraft og
þrek. í sambandi við þrekið, var
bent á þrekrannsóknir, sem Þjóð-
verjar gerðu á mönnum úr fjölda
íþróttagreina, en þær sýndu, að
aðeins atvinnuhjólreiðamenn
höfðu meira þrek en þýzka knatt-
spyrnulandsliðið 1962.
Einn þeirra manna, sem stóð
að baki hins góða árangurs tékk-
neska landsliðsins í Chile, próf.
Choutka, ræddi um knattspyrnu-
þjálfun unglinga. Með vísindaleg-
ar rannsóknir að bakhjarli, sagði
hann m. a. að snerpuþjálfun gæti
hafizt þegar á 10—13 ára aldri,
og að kraftþjálfun ætti að hefjast
á 13—15 ára aldri. Um úthalds-
þjálfun sagði hann, að hún gæti
hafizt á 16 ára aldri, o-g að hæfn-
in til að læra tæknileg atriði rén-
aði á 15 ára aldrinum.
' Próf. Choutka benti einnig á,
að uppeldislega hliðin sé óaðskilj
anlegur hluti af íþróttaþjálfun
unglinganna, ekki einungis vegna
almenns uppeldis, heldur sér í
lagi vegna þess, að það þróar með
íþróttamanninum eiginleika, sem
krefjast verður af „topp“íþrótta-
mönnum. Leikgleði — viljastyrk
— seiglu og baráttuvilja
Fulltrúar Sovétríkjanna skýrðu
frá því, að þar í landi væru gerð-
ar 4 ára áætlanir um úthaldsþjálf
un (— milli Olympíuleikja — og
heimsmeistarakeppni).
Rússneskir vísindamenn hafa
rannsakað á undanförnum árum,
viðbrögð knattspyrnumanna við
ýmsar aðstæður, og þannig getað
séð út tímann, sem það tekur að
jafna sig eftir æfingar og leiki
Á þennan hátt telja þeir sig geta
ákvarðað hæfilegt þjálfunarálag
milli leikjanna Próf hafa sýnt
aukningu þreks, allt fram til síð-
ustu leikja keppnistímabilsins.
Savine, fulltrúi Rússa, skýrði einn
ig frá þeirri reynslu í sambandi
við þrekþjálfun, að hópæfingar
við stigaukið álag, gæfu betri ár-
angur en einstaklingsæfingar.
Þess vegna þjálfuðu íþróttamenn
og konur í æ ríkari mæli í hóp-
um, sem myndaðir væru með til-
liti til þeirra er þá skipuðu. Mikil
áherzla er þó lögð á viljaþjálfun
einstaklingsins, t.d. þannig, að
knattspyrnumaðurinn gæti lagt
sig fullkomlega fram í keppni. j
Savine lauk máli sínu með því
að segja, að rannsóknir seinni ára
hefðu sýnt, að leikmenn séu leng
ur að jafna sig eftir harða leiki,
en eftir erfiða æfingu.
Walter Winterbottom, Englandi,.
áleit, að skorpuþjálfunin með 45 ■
mínútna aðferðinni, væri heppi-
legasta þrekþjálfunin. Aðferðin
er bvggð á rannsóknum, sem
sýna, að við hámarksáreynsíu und
ir ,,anaerobickum“ áhrifum (starf
án súrefnisupptöku) myndast 3
gr. af mjólkursýru í blóðinu á
sekúndu. — Og að viðkomandi
íþróttamaður falli í öngvit, þegar
þetla magn er komið upp f 130
gr. Af þessu er álitið, að leikmað-
ur geti haldið fullum afköstum ■
ca. 45 sekúndur.
Ef knattspyrnumaðurinn leggur
hart að sér við æfingu, er líkist
því, sem af honum er krafizt í
leik í 45 sek. og hvílist síðan' í dá-
góða stund, áður en hann endur-
tekur æfinguna, þá þjálfar hann
undir meira álagi en krafizt er
af honum í leik Ef hann hvílir í
aðeins 45 sek. hefur hann tæp-
lega greitt súrefnisskuldina, áður
en hann hefur erfiðað á nýjan
leik. Ef skorpunum er haldið á-
fram nokkrum sinnum með við-
eigandi hléum, hverju fyrir sig í
45 sek., krefst það hvors tveggja
í senn, aerobicks og anaerobicks
líffæra. — Winterbottom sagði,
að mörg ensk atvinnumannalið
æfðu samkvæmt þessari aðferð,
einu sinni í viku, og stæðu þær
æfingar 45 mínútur samfleytt.
Tékkneski, ítalski, austurríski
og enski landsliðsþjálfarinn töl-
uðu enn fremur um leikaðferðir
og var 4:2:4-kerfið einkum í sviðs-
ljósinu. í sambandi við þessi er-
indi og ávörp voru sýndar kvik-
myndir frá heimsmeistarakeppn-
inni [ Chile, en leikir og leikað-
ferðir þar voru mjög til umræðu,
enda 16 af þjálfurunum nýkomn-
Karl Guðmundsson.
ir þaðan, uppfullir af fróðleik og
reynslu.
í lok námskeiðsins bauð þýzka
sambandið öllum hópnum til báts-
ferðar á Rínarfljóti, þar sem hóp-
urinn var hristur saman yfir Rín-
arvíni. — Þessi ferð var fróðleg
og skemmtileg í alla staði — og
eftirminnileg. Telja verður, að
miklum árangri hafi verið náð —
þarna voru saman komnir þjálf-
arar frá mismunandi löndum, sem
túlkuðu hver sína skoðun. Menn
koma þvj fullir fróðleiks til baka,
með nýjar hugmyndir og stefnur
í þessari vinsælu íþrótt.- —alf
íþróttaskólinn í Hennef, þar sem námskeiðið var háð.
Hraðkeppnimót í
kðrfuknattleik
Næstkomandi sunnudags-
kvöld þann 14 okt. fer fram
fyrsta körfuknattleiksmótiö á
þessu hausti. ÞaS verður háð
að Hálogalandi og hefst kl.
20,15. Körfuknattleiksfélag
Reykjavíkur efnir til þessa
móts í tilefni 10 ára afmæli
síns, sem var á s.l. vetri.
*
Mótið verður hraðkeppni í meist
araflokki karla. Leiktími 2x10 min.
og engin leikhlé Það lið sem tap
ar er úr leik Þetta fyrirkomulag
hefur nokkmm sinnum verið haft
og notið vinsælda. Fimm lið taka
þátt í mótinu: Ármann, ÍR, KFR
og tvö úrvalslið bandarísk. Fyrstu
leikirnir verða:
KFR — A-lið Bandaríkjamanna.
ÍR — B-lið Bandaríkjamanna.
Ekki er að efa, að keppnin verði
spennandi. Hér gefst ,einnig færi
á að sjá 11 af 12 landsliðsmönnum
: körfuknattleik, sem halda utan
í lok október. Auk þess hafa flest-
ir leikmannanna æft í allt srumar,
þar af í 3 mánuð.i undir hand-
íeiðslu hins ágæta bandaríska
þ.iálfara, Wood. Leikmenn eru því
í ágætri þjálfun og hafa margir
tekið stórstígum framförum í sum
ai og eru líklegr til að velgja
bandarísku leikmönnunum undir
uggum.
TÍMINN, föstudagur 12. októln" '
5