Alþýðublaðið - 31.10.1927, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLiAtíI Ð
[alþýðublaðið |
i kemur út á hverjum virkum degi. >
| AfgreiðsÍR í AJþýðuhúsinu við \
j Hverfisgötu 8 opin frá k!. 9 árd. f
j til kl. 7 síðd. \
< Skrit'stofa á s-áriia stað1 opiií kl:. f-
1 9*/a —101/* árd. og kl. 8-9 síðd. {
Simar: 988 (aigreiðslan) og 1294 f
2 (skrifsíofan).
J Verðlag: Áskriftaiverð kr. 1,50 á [
j mánuði. Auglýsingarverðkr.0,15 f
; hver mm. eindálka. f
i Prentsmiðja: Alpýðuprentsmiðjan f
j (í sama húsi, sömu simar).
Kaldárholts-símiirm
og nMorgtmblaðiðu.
Loks hefir „Mgbi.“. ekki séð sér
lengur fært að þegja alveg mn
Kaldárholtssímagjöf íhaldsstjórn-
arinnar. Þá grípur pað tíl pess
óyndisúrraððis að reyna að skelia
skuldinni á landssímastjórann,
pótt það sjálfsagt viti pað full-
vel, að þetta var ráðstöfun íhalds-
stjórnarinnar sjálfrar. Þá slepp-
ir pað alveg að minnast á jiann
mikla mun, sem á jivi er, að hér-
ud þau, er sími er iagður í,
leggi fram nokkuð af kostnaðin-
um, eða að einstaklingur, sem sím-
inn er iagðuf heim til, geri pað.
Nú er Kaldárholti svo í sveit
kornið, að þar verður síminn
naumast öbrum að notum en
þeim, sem jiar eiga heima (og
ééganda jarðarkmar í auicnu sölu-
vefði). „Mgbl.“ er álíka gáfað og
það er vant, þegar það hefurupp
raust sína um jietta mál. Það
virðist ætla, að það sé gróði
fyrir ríkissjóðinn, að símastöðv-
ar séu sem afskektastarj!).
Broslegt er að sjá blað, sein hefir
haldið, a. m. k. til skamms tíma,
að Jerúsalem væri í Egyptalandi,
bykjast ætla að fara að kenna
landafræði. f Qnda skrifsins
skýtur eins og ósjálfrátt upp sið-
gæöishugmyndum þehn, sem Vai-
týr hefir kynst og samþýðst, síðan
hann gekk á mála hjá íhaidsburg-
eTsunum. Það er bitlinganæmið,
sem leggur honum fram í fing-
urgóma. „Margur heldur inann af
sér“ og slnum nánustu samverka-
mönfcum, og þ'ess vegna er ekkert
nndarlegt, þó að hann ætli öðrum
’áð nota flokksfé til eigin þarfa
eða byltingagjafa, ekki sízt þegar
hann er að ljúka við að skrifa
vörn fyiir Kaldárholtssimaiagn-
inguna.
Gpleiad slraskeÝtL
Khöfn, FB., 29. okt.
Frá Rúmeníu.
Frá Eeriin er símað: Samkvæmt
opinberum fregnum frá Rúmeníu
er alt friðsamlegt í landinu, en
samkvæmt öðrum fregnum hefir
komist upp samsæxi Carolsmanna
gegn Biatianustjórnmni, svo og,
að bændmn og stjórnarhernum
hafi lent saman og margir særst
i I>eim vjðureignum, og haf-i alt
fandið verið lýst í hemaðarástand.
Nánara um sjóslys.
Frá Lundúnum er símað: Sam-
kvæmt síðustu fregnum frá Bra-
zilíu ætia menn, að á fjóxða hund-
rað farþegar af ítalska farþega-
skipinu „Maf-alda- prinzessu“
[nafuið rangt í fyrra skeyti] hafi
farist. Hafi alt komist á hina
mestu ringulreið, er slysið bar að,
og mikili ótti og fát gripið far-
þegana, og hafi því reynst mjög
erfitt að koma skipulagi á björg-
unina. Eigendur skiþsiils segja, að
«ð eins tuttugu farþegar hafi far-
ist.
Khöfn, FB., 30. okt:.
Afstaða franskra gerbóta-
manna.
Frá París er símað: Á lands-
fundi gerbótaflokksins var feld
tillaga um samvinnu við nú ver-
andi stjórnarflokka við kosning-
arnar til þingsins, er fara fram
í vor. Samþykt var að Ieita sam-
virtnu við iafnaðarmenn eða
aðra skylda vinstri flokka.
Stjórnmál Rúmena. -
Frá Berlín er símað: Fregnir
frá Belgxad herma, að ýmsar a'ð-
gerðir Bratianu mæti mótspymu-
forráðainanna konungsins i Rú-
meníu. Leikur sá orðrómur á, að
Bratianu hafi í hótunum um að
stofna lýðveldi, ef fylgismenn Ca-
rols, fyrrverandi krónprinz, geri
tilraunir til þess að hrinda af
stað byltingu. Blöðin i Jugoslnviu
virðast flest vera þeirrar skoð-
unar, að aðstaða Bratianu sé
sterk.
Manntjón af ofviðri.
Frá Lundúnum er simað: Ofsa-
rok heíir valdið afarmiklu tjóni
á Englandi. 21 maður biðu bana.
Eggert Stefánssois
ætlar að syngja í Gamia Bíó ann-
að kvöld.
Eggert hefir í sumar farið sig-
urför um landið og sungið og
hrifið tilfinningar fólksins.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, að Eggert Stefánsson legg-
ur þá tilfinningu og sá'arkraft í
söng sinn, sem enginn getur gert
nema störlega gáfaður maður.
Hann á hið sanna listamannseðli
síungt cg siólgandi, og sýnir það
sig einnig í því, hvað hrifning
hans og skilningur á listum yfir-
leitt er á háu stigi. Þar er engin
deyfð og drungi,. er horfir ineð
makindafuFu jafnaðargeði á
framsækni li tamannanna á hvrrju
sviði sem er. Iiann á vakandi eld
hrifningarinnar, sem ieiftrar í ölJú
hans tali og söng.
Hver sem hefir heyrt söngplöt-
ur Eggerts, gengur þess ekki dul-
inn, hvjlíkan sálarkraft þarf til að
knýja hinar dýpstu tillinningar
inn í kaldan málminn. Þar er
röddin ein ekki nægjanleg.
Ekki þarf að bregða Eggert
Stefánssyni um það, að hann stæli
aðra söngvara. List hans er sjálf-
stæð og sérkennileg og borin fram
af persónuleik, sem ekki er öðr-
um líkur.
Sumum þykir Eggert ekki nógu
mikili hávaðamaður í söng, og
þeir um þáð. En sálarstyrkur Egg-
erts og liín mjúklega dillandi rödd
láta einmitt í té sumt það, sem
enginn annar íslenzkur söngvari
á til í [eigu sinni. Þess vegna ættu
sem flestir að nota þau fáu tæki-
færi, sem gefast til að. hlusta á
söng hanS.
Ríkardur Jónsson.
AkMPeyes.E'skéía veitíwp vótt.*
ur til að átsSiriiia stúdeata.
Akureyri, FB., 29. okt.
í morgun áður en kensia skyldi
hefjast i gagnfræðaskólanum,
kom dómsmálaráðherrann þangað
og færði skóiastjóranum bréf það,
sem hér fer á eftir, og var. það
lesið upp hátíðlega að' viðstödd-
um ölTum kennurum og nemend-
um skólans:
„Dóms- og kirkju-málaíáðuneytið.
Reykjavík, 25. október 1927.
Á fundi 22. okt s. I. hefir ráðu-
neytið ákveðið, að gagnfræðaskól-
inn á Akureyri skuli hér eftir
hafa hehnild til þess að halda
uppi lærdómsdeild eftir sömu
reglum og gilda um lærdómsdeild
Mentaskóians samkvæmt reglu-
gerð frá 1908 með tveimur minni
hðt;ar brey ingum viðvíkjandi ald-
urstakmarki og sumarleyfi. Skal
þessi deiid hafa rétt til þess að
útskrifa stúdenta, og fari próf
þeirra, þar til öðru vísi verður
ákveðið með lögum, að öllu fram
eftir ákvæðum gildandi prófreglu-
gerða máladeildar Mentaskólans,
enda veiti allan sama rétt.
Áður en að prófi kemur næsta
vor mun ráðuneytið geía út r^glu-
gerð handa gagnfræðaskólanum
vegna þessarar áðumefndu breyt-
ingar.“
Bæjarstjóraarkosiíingar
í Hamborg.
Ungur þýzkur jafnaðarmaður
skrifar A’þbl. 10.. þ .m.:
„. . . Undan famar vikur hafa
staðið yfir miit’ar stjórnmálaerj-
ur hér i borgiimi; bæjarstjórnar-
kosningar stóðu fyrir dyrum. Nú
eru þær afstaðnar, föru fram í
gær. Ég hefi undan farið ekki
mátt um frjálst höfuð strjúka, svo
eins og þú skilur hefir námið
Iegið á.hyllunni. Við ungu félag-
amir iétum hendur standa fram
úr ermum, og nú eftir kosning-
arnar getum við líka hrósað góð-
um sigri. Við jafnaðarmenn náð-
um 67 fulltrúum og erum nú lang-
stærsó ílokkurinn. Við unnum
mörg ný sæti. Sameignarsinnar
unnu einnig á og eiga nú 27 full-
trúa, en burgeisaflokkanur allir
til samans töpuðu stórlega, og
hafa þeir nú alls að eins 70 sæti.
Verkaiýðsflokkarnir hafa samtals
yfir 90 sæti. . . .“
I sa aa 1 e k d tídindi.
isafirði, FB„ 29. okt.
Togari telrinn.
,,Þór“ kom hingað í gær með
enskan botnvörpung, „St. Hever-
ne“ nr. 175 frá Hull. Tók „Þór“
botnvörpunginn við Aðalvík. Var
haim ljóslaus og veiðarfærum
ekki komið fyrir lögum sam-
kvæmt, er ,,Þór“ kom að honum.
Skipstjórinn var dæmdur til þess
að greiða 5 þúsund gullkróna
sekt og afli og veiðarfæri gert
upptækt. Afli var nær því enginn„
Botnvörpungur þessi kvað áður
hafa orðið brotlegur hér við land.
Nætarlæknir
fer í nótt Guðmundur Guðfinns-
son, Spítalastíg 6, sími 1758.
Krísíiiesshælið.
Vígsla þess á að fara fram á
morgun.
Bifreiðarslysið.
Við krufningu á iiki Jóns heitins
Bergssonar kom í ljós, að hann
hafði beinbrotnað mjög mikið,
einkum mjaðmagrindin, og hafði
blætt ínikið inn. Mún hann hafa
fallið á hiiðina undir bifreiðina.
Þrír voru sjónarvottar, og ber
þeim saman um, að bifreiðin hafi
ekki farið hratt, þegar slysið varð,.
og að Jón heitinn hefði hlaupið
yfir götuna, þegar hann vaTð fyrir
bifreiðinni.
Áfmæli.
Einar Benediktsson skáld er 63
ftra i dag.
Eldur
kom upp i gærmorgun kl. 8ýi-
á Laugavegi 58, húsi Siguxðai
Skjaldhergs. Slökkviliðið kom:
fljót'.ega á vettvang og tókst brátt
að slökkva eldirm. Var hann f
milliþili verzlunarbúðar Jóhann-
esar Jónssonar og bakherbergis.
Brann dálítið stykki úr þilinu,
Verið er að rannsaka orsök elds-
ins, og heíir einn maður verið sett-
Ur í gæzluvarðhald.
Togaramir.
„Tryggvi gamli“ kom af veiðum
í morgun með 1000 kassa ísfiskj-
ar. „KarEefni" kom frá Englandi
í fyrra dag, en Maí i gær.
Skyldleiki Íhaldskollsins
við „Mgbl." og „Vesturland“ .
kom ótvírætt í ljós í fyrra dag.
Þá reynir formaður íhaldsflokks-
ins, Jön Þoriáksson, í tveimur
blöðum í senn að svívirða eitt af
þjóð.káldum íslendinga, Alt er á
eina bókina lært í Ihaldskoti.