Tíminn - 08.12.1962, Side 2

Tíminn - 08.12.1962, Side 2
GUNNA fRÆNKA Örstutt saga eftir Willy Breinhoteí Við fengum bréf frá Gunnu fræn'ku fyrir nokkru. Hún býr fyr ir norðan, og við höfum ekki scð hana í mörg ár. En nú skrifaði hún sem sagt og sagðist hafa hugsað sér að koma og búa hjá c.kkur í viku, því að það væri svo langt síðan hún hefði séð ókkur. Einnig vildi hún gjarnan sjá nýja húsið okkar, og svo þurfti hún nauðsynlega að koma til að fá sér nýjar tennur, og það mundi alltaf taka eina viku. Síð- ast þegar hún heimsótti okkur, höfðum vig minna húsnæði, t. d. höfðum við ekkert gestaherbergi. Hamingjan má vita, hver hefur sagt henni, að við höfum auka- herbergi r.úna. Nái ég einhvern tíma í þann mann, vildi ég gjarn- an segja við hann nokkur orð í einrúmi . . . — Þú neyðist til ag skrifa henni, sagði konan, og segja henni, að hún sé velkomin. En vertu nú ekki óforskammaður, skrifaðu fallegt og einlægt bréf. Eg fer yfir það, þegar þú ert bú- in svo að það þýðir ekkert.... Eg náði þvl í penna og blek og byrjaði að skrifa! „Kæra frænka! Mikið er það fallega gert af þér, að ætla ag koma og heimsækja okkur. Nú höfum við stórt gestaher- bergi, sem er ónotað. Siggi hefur livítu mýsnar sínar þar, en þær eru nú svo fallegar og elskulegar og gera ekki einu sinni ketti mein. Og þó að þær fái sér smá- göngutúra í rúminu öðru hveiju, mun ykkur áreiðanlega koma vel saman. Þú mátt trúa þvi, að hann Siggi varð glaður, þegar hann heyrði, að þú ætlaðir að koma. — Þá get ég spilað allar rokk- og tvistplöturnar mínar fyiir Gunnu frænku, eins hátt og ég get“, sagði hann. — Og kannski get ég fengig hana með mér í fótbolta, þegar þig viljið vera í friði. (Hann er núbúinn að fá trompet, og það veitir ekki af sterkum taugum til að geta þolað blásturinn í honum dag og nótt. Mundirðu nokkuð hafa á móti því að hann æfði sig í herberginu þínu? Það eru beztu hljóðskil- yrðin þar, segir hann). María ljómaði líka eins og sól í heiði, þegar hún las bréfig frá þér. Hún hefur svo mikið af sokkum núna, sem þarf ag stoppa í. Svo eru mörg heimilisstörf, sem set- ið hafa á hakanum, því að það cr svo erfitt að verða sér úti um vinnukonur núna. En þegar þið verðið tvær um það, gengur von- andi allt eins og í sögu. Kannski fær Maria meiri tíma til að verzla, fara í heimsóknir og hár greiðslustofu o. fl., þegar hún veit, að einhver er heima til að sjá um hina erfiðu vinnu. Já, þú mátt vera viss um, Gunna mín, að vig hlökkum til að sjá þig. En vika er bara allt of stuttur tími. Þú ættir ag dveljast hjá okkur í nokkra mánuði. í kring- um húsið hjá okkur er óvenju- lega stór og fallegur gaiíiur og Vegfarendur í London leituðu skjóls í ofboði, þegar stroku- naut æddi um göturnar, og um- ferðin á aðalgötunum stöðvaðist. Nautið var laust í áttatíu mínút- ur, og það róaðist loks, þegar hópur nautgripa var rekinn í veg fyiir það, og lallaði á eftir hjörð inni. Ferdinand, en það er nafn nautsins, var á leið í sláturhús í Durham, þegar hann brauzt út. Hann þaut niður King-Street og inn í skemmtigarð. Lögreglan kom þegar á vettvang og menn frá sláturhúsinu. Þeir komu með nautgripina og mynduðu mót- tökusveit í enda skemmtigarðs- ins. Nautið var of hættulegt til, að hægt væri að komast nálægt því, sagði einn lögregluþjónninn en strax og þag sá kýrnar, róað- ist það. Það blandaðist hópnum og lét reka sig áfram í rólegheit- um. ☆ Eg er hamingjusamasta frá- skilda stúlkan í heiminum, sagði Sophia Loren vig ítalska blaða- menn, þegar hún kom frá París á flugvöllinn i Róm. Carlo Ponti og ég elskum hvort annað, og nú getur enginn gert okkur neitt mein. Sophia varð, sem kunn- ugt er, að skilja við mann sinn, svo að ekki væri hægt að væna hann um fjölkvæni. Nú reyna þau skötuhjúin ag gerast fransk- ir ríkisborgai'ar, þannig að þau geti gift sig í París. Sophia hef- ur nýlega haldið upp á 28 ára afmælisdaginn sinn. ☆ Starfsemi hjarta og tilfinninga blandast venjulega jafn illa sam an og vatn og olía. Velja verður um af kostgæfni hvorann aðilann ráðlegra er að hlýða. ☆ Mannveran er eina dýrið, sem roðnar eða eina dýrið, sem þarf á því að halda. Mark Twain ☆ Sumum stúlkum má vera hugg un í því að heyra, að þegar ljós- in eru slökkt, eru allar stúlkur fallegar. ☆ Það er mikil áhætta fyrir þög- ula og alvörugefna konu ag gift- ast léttlyndum manni. Það geng- ur aftur betur fyrir alvarlegan mann ag þýðast hláturmilda og léttlynda konu. Proust segir, að klókindi sjáist í augunum, en nefið komi upp um heimskuna. ☆ Fegurðarsamkeppni austan járntjalds. Einn vestrænn siður hefur smyglað sér á bak við járn tjaldig og er ekki að sökum að spyrja, að það er hið menningar- lega uppátæki, fegurðarsam- keppni. Hér sjáið þið karl- og ef veðrið er gott, þá hefur þú nægan tíma til að slá blettinn.. Gamla sláttuvélin okkar er að vísu jafn þung og gufuvél, en þú færð nú ekki mikla hreyfingu daglega. Og ef þú getur ekki dreg ig vélina, gætirðu bara bitið gras ið með nýju tönnunum þínum. Þetta var nú auðvitað sagt í gríni. En, sem sagt, þú ert velkomin. Skyldi svo óheppilega vilja til, að þér seinkaði, þá sendu okkur línu. Verti svo hjartanlega vel- komin . og kærar kveðj- ur . . “ Eg ákvað að sýna Maríu bréfið, um kvöldmatarleytið, þegar hún hafði sem mest að gera í eldhús- inu. — Viltu lesa það'? — Eg hef ekki tíma til þess núna. Hvað skrifaðirðu? — Að hún væri hjartanlega velkomin, og Siggi hlakkaði til að sjá hana, þú hlakkaðir til, að við hlökkuðum öll til að sjá hana. Ekki eitt einasta illyrði, þú get- ur bara séð .... — Eg treysti þér, þegar þú segir það'. Sendu þag bara. Eg fór á pósthúsið morguninn eftir, en ég neyddist til að senda bréfið í bögglapósti, þar sem ég handsamaöi eina af hvítu mús- unum hans Sigga og setti hana í tóman skókassa. Eg lét pakkann fylgja bréfinu. Eg skrifaði nokkur orð meg í flýti um það, að hún fengi strax tækifæri til að kynnast þessum litlu, elskulegu dýrum. kvensigurvegara fegurðarsam- keppni í Búlgaríu.. ☆ í hádegisverðarboði einu, sem haldið var til heiðurs Eisen- hower fyrrverandi forseta, fyrir skömmu, sagð'ist honum svo frá: — Meðan á kosningabaáttu minni stóð, fékk ég bréf frá rosk inni konu, sem hljóðaði á þessa leið: Eg hef alltaf kosið repu- blikana og það var einnig ætlun mín að kjósa yður, en ég er hætt við það. Sonarsonur minn gleypti nefnilega einn af þessum hnöpp- um með skriftinni „I like Ike“ og varð að fara á sjúkrahús. Eg er á móli stjómmálamönnum, sem nota svona hættulega hluti til að ná kosningu. ☆ Það er áreiðanlegt, að þetta eru sokkar, sem ekki koma lykkjuföll á. Þetta er nýjasta tízka og sokkana skal hnýta vel fasta undir hnénu. Hugmyndin er koroin frá Matabele-ættstofnin um í Suður-Afríku. ☆ Hinn fjölhæfi listmálari Pablo Picasso, hefur sem kunnugt er teiknað mynztur á gólfteppi. Stór listaverkaverzlun í París aug lýsir eitt þessara teppa á eftir- farandi hátt: „Þetta er ófalsað'ur Picasso, sem er mikils virði — og þó ag yður geðjist ekkj að honum sem listmálara, getið þér traðkað á honum án þess að valda nokkrum óþægindum. ÞaS er dapurlegt DAGUR á Akurcyri ræðir í nýútkomnu Maði um ritling þann, sem ríkisstjórnin hefur gefið út á kostnað rfkisins og hefur að geyma skýrslu þá, sem stjórnin flutti Alþingi fyr- ir nokkru um viðræður sínar við ríki Efnahagsabndalags Evrópu urn þá stofnun. Sýnir Dagur fram á, hvflíkan hrá- skinnsleik stjórnin viðhefur í málinu og bætir síðan við: „Það er dapurlegt, að fslend- ingar skuli hafa rkisstjórn, sem leikur tveim skjöldum í þessu mikla sjálfstæðismáli fslands. Þjóðin þarf að vera á verði gegn ástríðu stjórnarinnar til að innlima ísland samsteypum ríkja, sem yfirskyggja sjálf- stæði þess, þó velviljuð séu. Það er sú torskiljanlega ástr- íða, sem veldur vífilengjum Bjama Benediktssonar dóms- málaráðherra og meðstjómar- manna hans. En almenningur í landinu, sem fengið hefur nokkurn tíma til að átta sig á hinni nýju og stórkostlegu ríkjasainsteypu, sem nú er í mótun, mun áreiðanlcga ckkl sætta sig við neinar vífilengj- ur af hendi íslenzkra stjómar- valda“. AS afnema Þessa setningu mátti enn einu sinni lesa í Mbl. í gær: „Viðreisnarstjómin hefur hins vegar afnumið uppbóta- kerfið og lýst yfir, að það verði aldrei tekið upp á ný“. Þennan söng hefur Moggi raulað í þrjú ár. Sá'mt hefur á hverju ári verig varið kringum 400 milljónum til uppbóta og niðurgreiðslna, og enn er gert láð fyrir álíka fjárhæð til þess á næstu fjárlögum. Svona er ýmislegt, sem ríkis- stjórnin hefur „afnumið“. Tjl dæmis dýrtíðin. Hana lofaði stjórnin að afnema og segist hafa gert það. Hún afnam dýr- tíðina þannig að hækka gömlu vísitöluna um 82 stig. Þess vegna er nú flest öfugmæli í munni Moggans og við hann á dag hvern hendingin fræga: Séð hef é<? köttinn syngja á hók. SHdveiði í stjjórnar- rá»inu Morgunblaðið þykist vera fyndið í gær og sþyr: Á að stunda útgerð í stjórnarráðinu? Þetta finnst Mogga ákaflega skemmtileg fjarstæða. En það er óhætt að seaja fullum fetum, að afkoma þjóðar eins og fs- lendinga verður aldrei góð, nema útgerðin sé vel stunduð í stjórnarráðlnu. Nú veiðist mikil sfld fyrir suðvesturlandi, en enginn get- ur talið sfldartunnumar, sem bátarnir og landsmenn allir Irafa misst af vegna þess, að herrarnir í íslcnzka stójrnarráð inu neituðu að stunda útgerð- ina, en þær tunnur era marg- ar, og vegna þess hve illa út- gerðin hefur verig stunduð i stjórnarráðinu, eru landsmenn nokkru fátækari um þessi ára- mót en annars hefði verið. Það er léleg sfldveiði, sem þeir hafa stundað í stjórnarráðinu á þessu ári, og hluturinn mundi ekki vera hár, ef allir hefðu unnið eins að síldveiðunum. Sú útgerð hefur mest verið í því r, fólgin að skera sundur og ’s hleypa úr nótunum fyrir sjó- mönnum. E:i er von að betur fari, þegar ráðherrunum finnst bað mesta fjarstæða að stunda útgerð í stjórnarráðinu. T f M I N N, laugardagur 8. desember 1962. — 2

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.