Tíminn - 12.12.1962, Blaðsíða 1

Tíminn - 12.12.1962, Blaðsíða 1
I ar emsog LOFTLEI ÞJOFKENK IGÞ-Reykjavík, 11. des. — Þau furðulegu tíð'indi hafa gerzt, að forstjóri IATA, al- þjóðasambands flugfélaga, hef- ur þjófkennt Loftleiðir og gert sig sekan um götustrákslegt orðbragð, sem ekki liæfir manni í hans stöðu. Forstjór- inn, sir William Hildred, þjóf- kenndi Loftleiðir á fimdi mcð blaðamönnum í Stokkhólmi í gær, er hann var að ræða deil- una um fargjöldin á Norður- Atlantshafi. Sagði hann ag það væri ekki annað en þjófnaður af hálfu Loftleiða að flytja far þega frá stað utan íslands til annars staðar utan íslands. Þess ber að geta, að sir. William stýrir sambandi flugfélaga, sem flytja að sjálfsögðu farþega milli landa utan heimalanda sinna og stunda því almennan þjófnað samkvæmt kenningu forstjórans. f fréttaskeyti frá NTB í dag segir: Flugfélög þau, sem halda uppi áætlunarferðum um Norð- ur-Atlantshaf og eru meðlimir í IATA, koma saman til fundar í París í byrjun janúar til að ræða um deiluna milli SAS og Loftleiða og fargjöld á flugleið inni. Fyrirvarinn, sem SAS gerði um aðild sína að nýrri fargjaldaskrá IATA rennur út 31. janúar, sagði forstjóri IATA á blaðamannafundi i Stokk- hólmi á mánudag. Loftleiðum verður ekki boðið til þessa fundar, sagði forstjór- inn, sir William Hildred enn fremur. Lýsti hann þeirri skoð- un sinni, að lággjaldaferðir Loftleiða á Norður-Atlantsliafi væru reglubundinn þjófnaður. Þeir stela flutningum frá öðr- um, sagði sir William, og bætti við að bandarísk flugmálayfir- völd hefðu áhyggjur af þessu máli. Sir William staðhæfði, að Loftleiðir hefðu notið góð's af starfi IATA. Það cr einnig okk ar stefna, að auka ferðalög og lækka fargjöld og hún hefur borið árangur, sagði hann. Þeg- ar forstjórinn var spurðúr um hin lágu fargjöld Loftleiða, sagði hann, að það flugfélag, sem einungis týndi upp farþega í landi, sem ekki væri þess eigið land, og flytti þá til ann- ars lands, sem væri ekki held- ur þess eigið land, stæli flutn ingum frá öðrum. Það er þjófn afíur, reglubundinn þjófnaður, sagði sir William. Varðandi fargjaldaákvæði IATA sagði hann, að sambandið gæti auðvitað lækkað fargjöld- in, en lækkunin mundi setja flugfélögin á höfuðið. Karl Nilsson, forstjóri SAS, lagði áherzlu á það á blaða- mannafundinum á mánudag, að SAS væri reið'ubúið að Ieggja fram hvers konar já- kvæðar lillögur til lausnar deil- unni. En aðspurður svaraði hann, að SAS hefði ekki sent Loftleiðuni ncinar tillögur. — Hann sagði enn fremur, að hann áliti að ekki mundi hafa neina þýðingu að fara þess á leit við stjórnir SAS-Indanna, að þær reyndu að þrýsta f slend- ingum til samkomulags. FELL UR STIGA OG LÉZT ED-Akureyri, 11. des. Það hörmulega slys vildi til hér rétt um hádegið í Slipp- stöðinni, að Jón Jóhannsson, skipstjóri frá Siglufirði, féll úr stiga og beið bana- Jón heitinn var að fara um borð í bát sinn, Særúnu, er var til viðgerðar í Slippnum. Var stig ir.n allhár. Þegar Jón var kominn um hálfan fimmta metra upp í stigann, féll hann til hliðar úr hon um. Kom hann niður á höfuð og herð'ar. Þegar voru gerðar ráðstaf- anir til þess að flytja hann á sjukrahújsið hér, en þegar þangað kom var hann örendur. Jón Jóhannsson var maður hátt á sextugsalori. Kæfa sýkir 13 manns Tíminn hefur beint á það undan- far.ið, að ýmiss konar kjötiðnaður hér er mjög i'lla á vegi staddur vegna vöntunar á reglugerð um kjötvinnslu. Blaðið hefur fenigið nnargar kvartanir um nær óæta,n tilbúinn mat, ýmist vegna sýru í honum eða þá, að efnið í honum hefur ekki verið boðlegt. f ga;r barst blaðinu fréttatii'kynning um matareitrun af kæfu, og sýnir það eitt með öðru, að eki verður hjá því kpmizt að tiaka allt sem viðkemur kjötiðinaðinum til gagn- gerðrar endurskoðunar hið fyrsta, og þoka máli þessu í viðunandi horft tifl hagsbóta fyrir neytendur oig framleiðendur. Tilkynning borgarlæknis fer hér á eftir: „í lok síðustu viku veiktust að því er vitað er 13 manns með einkenni um matareitrun. Enginn veiktist þó hættulega. Grunur féll strax á kæfu, sem keypt var í verzluninni „Ásgeir“, Langholts- vegi 174 hér í borg, og búin var Framh. á 15. síðu Það cr tvennt.sem bankar virðast einkum leggja höfuðáherzlu á; sparifé og fallegar stúlkur. Það gengur í nokkrum brösum með hið fyrrnefnda, en hið síðarnefnda ætti ekki að orka tvímælis. Þessu til sönnunar birtum við mynd af aðeins tveimur af þeim fiölda stúlkna, sem vinna í bönkum. Og tilefnig er það, að í gær lauk árlegum skóla fyrir starfsfólk bankanna. Skólanum var slitið við' hátíðlega athöfn, verð- launaafhcndingar fyrir góða frammistöðu o.s.frv. Við vorum að sjálfsögðu viðstaddir og tókum þessa mynd. Um sjötíu manns sóttu skólann í þetta sinn. — (Ljósm.: TÍMINN,—RE) VATNEYRARFEÐGAR SEUA JK-Reykjavík, 11. desember. — Nú um helgina var undirrit- að samkomulag um sölu á þriðj ungi hins fræga Vatneyrarfyr- irtækis, sem var lengi eitt af auðugustu fyrirtækjum lands- ins. Það er Þorbjörn Áskelsson, útgerðarmaður frá Grenivík, sem ætlar ag kaupa frystihús og sfldar- og fiskimjölsverk- smiðju fyrirtaekisins fyrir um fimmtán milljónir króna. Egnir Vatneyrarfyrirtækis- ins eru metnar á um 70 milljón ir króna, og ekki alls fyrir löngu íramkvæmdu Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna og Landsbanki ísiands mat á þeim hluta, sem nú er seldur, og nam þag mat 30 milljónum kr. Eigandi fyrirtækisins er nú Friðþjófur Jóhannesson, síðan Garðar bróðir hans fór úr því, og stjórnar Friðþjófur fyrirtæk- inu ásamt ,syni sínum Kristni. Viðræður um þessa sölu hóf ust fyrir mörgum mánuðum, en einnig hafa aðrir aðilar, inn- lendir og erlendir, leitað fyrir sér um kaup. Landsbankinn heí ur haft milligöngu um söluna til Þorbjarnar Um helgina var svo faflizt á t.ilboð Þorbjarnar og samningar undirritaðir um verð og ýmsa skilmála, sem nú er verig að reyna að leysa. Miðað er við, ag afsal og eig- endaskipti fari fram nú um áramótin. Þorbjörn gerir nú út tvo báta frá Gr|ndavík og fær þriðja bátinn nýsmíðaðan í febrúar Bátarnir tveir eru Vörður og Áskell. naðir um 70 tonn. Má fastlega reikna með því að hann flytji útgerð sína til Patreks- fjarðar, pegar hann er búinn að koma sér fyrir í landi þar. Vatneyrarfyrirtækið er raun- ar mörg hlutafélög, og aðeins tvö þeirra eru nú seld, Grótti h.f. sem er síldar og fiski- mjölsverksmiðjan, ög Kaldbak- ur h.f., sem er frystihúsið. Eft- ir er Vörður h.f., sem gerir út togarann Gylfa, Gylfi h.f., sem gerði út rogarann Ólaf Jóhann- esson, áður en hann var gerður upp, véismiðjan Sinciri h.f., Verzlun Ó Jóhannesson h.f., og auk þess á fyrirtækið landið undir alirj Vatneyrinni og meira tll. Fyrirtæk: þeirra Vatneyrar- bræðra var i miklum uppgangi á stríðsarunum og árin þar á eftir. Fynr um þag bil áratug urðu mikil málaferli í kringum fyrirtækið, og var þá annar bróðirinr, keyptur út úr því Síðan hefur fyrirtækið átt í fjárhagserfiðleikum og nú upp á síðkastig verið nærri gjald- þrota. Rekstur fyrirtækjanna tveggja, sem nú verða seld var einkum ','rfiður.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.