Tíminn - 12.12.1962, Síða 16
Miðvikudagur 12. desember 1962
280. tbl.
BÓ-Reykjavík, 11. des.
Áhugi fyrir frönskukennslu
í Háskólanum hefur skyndi-
lega færzt í aukana sem marka
má af þvi, að nemendafjöld-
inn hefur fjór- eða fimmfald-
ast m. v. síðastliðinn vetur.
Frönskunemendur í Háskólan-
um eru nú um eða yfir tuttugu.
Franski sendikennarmn, Regins
Boyer, skýrði blaðamönnum frá
þessu á skemmtifundi, sem Alli-
ance Francaise hélt í Þjóðleikhús
kjallaranum s.l. laugardag. Þeir
sendikennarinn og Albert Guð-
mundsson, forseti Alliance Fran-
caise, sögðu meðlimi félagsins yfir
300, og hefði það starfað með vax
andi umsvifum upp á síðkastið. f
vetur mun sendikennarinn stofna
umræðuklúbb, þar sem rætt verð-
ur um franska menningu; tónlist-
arkynning og heimsóknir í skóla
íshús eru c^nn*° í vetraráætlun sendi-
kennarans. Þá hefur verið rætt um
verður stofnun kvikmyndaklúbbs, en talið
að hann muni ekki komast á lagg
------- irnar á næstunni. Hins -vegar má
Framhald á 15. síðu.
f dag var sjósett stærsta stálfiskiskip, sem smíðað hefur verið hérlendis. Það var byggt hjá Stálsmiðjunni fyrir
Hafnarfjarðar. Skipið hefur verið um tvö ár í smíðum og mun verða afhent eigendum nálægt áramótum. Það
125—130 lestir. (Ljósm. Tíminn—RE)
OLLIOHAPPID GIFTU-
BJORGUN?
MB-Beykjavík, 11. des.
Samkvæmt upplýsingum
Kristins Pálssonar, skipstjóra
á Bergi, er sökk á heimleið
af síldarmiðunum s- I. fimmtu-
dagskvöld, lítur út fyrir það,
að óhapp, er báturinn varð
fyrir í sumar, hafi ráðið miklu
um það, hversu giftusamlega
tókst til með björgun skip-
verja.
Sjóprófunum lauk í gær og fóru
þau fram í Vestmannaeyjum.
Samkvæmt upplýsingum Frey-
móðs Þorsteinssonar, fulltrúa í
Vestmannaeyjum, kom ekkert
fram í sjóprófunum, er upplýst
gæti slysið.
Blað'ið náði í dag tali af Kristni
Pálssyni skipstjóra á Bergi og
spurði hann nokkurra spurninga,
að gefnu tilefni.
— Það var brotið ofan af aftur-
mastri Bergs, var ekki svo?
— Jú. Það rakst upp undir krana
á Seyðisfirði í sumar, þegar við
vorum að landa þar og brotnuðu
Bíræfinn stal tíu þús.
TOGARI
TEKINN
MB-Reykjavík, 11. des. Um
klukkan þrjú síðastliðna
nótt kom varðskipið Óðinn
að Fleetwood-togaranum
DINAS, FD-55, þar sem
hann var á meintum ólög-
legum landhelgisveiðum
rúmlegal eina mílu innan
fiskveiðimarkanna. Stöðvaði
Óðinn togarann rétt fyrir
utan takmörkin. — Togara
menn munu ekki hafa sýnt
neinn mótþróa vifj töku
skipsins. Grunur leikur á, að
radartæki togarans séu ekki
‘í lagi. Réttarhöld áttu að
hefjast í máli skipstjórans
klukkan 16 í dag, en þá var
simasambandslaust við Seyð
isfjörð.
ED-Akureyri, 11. des.
Á Iaugardaginn var framið inn-
brot í verzíluninia Bynjó'lf Sveins-
son h.f. o g stolið þaðan nálega
tíu þúsund krónum. In<nbrot þetta
var bíræfið í meira lagi, því það
var framið á meðan eiigandinn brá
sér, frá í kvöldmat.
Annar eigandi verzlunarinnar,
Gunnar Árnason, var að vinna í
verzluninni um kvöldið. Brá hann
sér frá í kvoldmat, en þegar hann
kom aftur, sá hann, að brotizt
hafði verið inn. Gerði hann lög-
reglunni viðvart.
í ljós kom, að þjófurinn hafði
brotið rúðu í hurð bakdyramegin
og farið inn á skrifstofu bak við
verzlunina og stolið þar peningum
úr peningakassa, sem geymdur
var í ólæstum skáp. Ekki er vitað
með vissu, hve miklir peningar
voru í kassanum, en talið líklegt
að þar hafi verið um að ræða 9—
10 þúsund krónur.
Málið er í rannsókn hjá lögregl-
unni.
tveir og haiíur metri eða svo of-
an af því. Eg var ekki búinn að
láta gera við það, ætlaði ag fá
alveg nýtt mastur.
— Skipstjórinn á Halkíon segir
mér, að þeir hafi einmitt þekkt
hátinn á þvi þegar við lögðum
af stað heim. Eg gat ekki sagt frá
því, hvar við vorum staddir, þetta
bar svo brátt að, að ég rétt gat
kallað upp, hvernig komið væri.
En þeir á Halkíon vissu, að við
vorum lagðrr af stað, svo þeir
fundu okkur strax.
Okkur hefði rekið suðvestur fyr
ír flotann, ef okkur hefði ekki
verið bjargað, strax. En við vor-
um bæði með eldflaugar og blys,
svo vig hefðum ábyggilega fundizt.
— Munaði ekki litlu, að mastrið
rækist í björgunarbátinn?
Framhald á 15. síðu.
rakari
BÓ-Reykjavík, 11. okt. —
Blaðig hefur fengið vitn-
eskju um, ag Sandgerðing-
urinn, sem fékk hálfmilljón-
árvinninginn í happdrætti
Háskólans í gær og tvo
aukavinninga, heitir Sigurð-
ur Guðnason, sonur Guðna
Jónssonar, fyrrv. skipstjóra.
Sigurður er ungur maður,
en kvæntur og tveggja
barna faðir. Hefur hann lát
ið í veðri vaka, að hann
muni nota féð til að koma
sér upp þaki yfir höfuðið.
Sigurður er rakari ag jðn
og hefur starfað í Keflavík.
— Hafnfirðingurinn, sem
hlaut hálfa milljón á móti
Sigurði, bannaði umboðs-
manni happdrættisins að
láta sín getið og veit blaðið
ekki til, að það hafi lekið
út.
MILLJ0N KR0NA HUS
LÍKNARFÉLA 61
Ódýrasti óíllinn, sem völ er á1
í dag, kostai aðeins 25 krónur. —
Þeir eru reyndar tveir á því verði.
rmnar blár meö hvítum top;\
binn hvítur með bláum toppi.' Og
bílarnir eru ckki af verra taginu
Rúmgóður > 'lnanna OPEL CARA
VAN með stórri farangursgeymslu.
Fyrst þarf að kaupa miðann, síð-
an að reyna heppnina, þegar dreg- j
ið verður á Þorláksmessudag. — ;
Siminn er 12942.
KH Reykjavík. 11 des.
Stærsta gjöt sem nokkru
líknarfélagi hefur nokkru
sinni gefizt hér, hefur fallið
í hlut Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra, Er hér um að
-^ða gjöf Ástríðar Jóhannes-
'óttur orófastsekkju. sem lézt
á síðastliðnum vetri. Hún arf-
■eiddi félagið að húseign sinni
=>S Eiríksgötu 19, sem er heill-
ar milljón króna virði.
í húsinu ag Eiríksgötu 19 eru
tvær þriggja herbergja íbúðir, sem
hvor um sig er 100 fermetra á
stærð, en auk þess er kjallari
Húseignin er að fasteignamati 175
þúsund krónur. Algengt er að
margfalda fasteignamat með 5 til |
þess að fá út eðlilegt kaupverð
en.samkvæmt áliti nokkurra fast-
eignasala, sem blaðið sneri sér til,
mundi í þessu tilfelli margfaldað
með a.m.k. 6, og þá er verðið orð-
ið rúmlega ein milljón króna
Stjórn Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra veitti í gær viðtöku
formlegri eignarheimild að
nefndri húseign úr hendi skipta-
ráðenda í Reykjavík. Samkvæmt
upplýsingum Svavars Pálssonar,
formanns félagsins, hefur enn
ekki verið tekin endanlega ákvörð
un um, hvernig þessi rausnarlega
gjöf verður nýtt. Ákveðið er þó.
ag hún verður ekki seld. Svavar
kvaðst búast við því, að fyrst um
sinn yrði öanur íbúðin bústaður er
lendra sjúkraþjálfara, sem kingað
koma á vegum félagsins, en hin
íbúðin verðu.r væntanlega leigð,
þar til öðru vísi ræðst.
Ástríður heitin var gift séra
Magnúsi Þorsteinssyni prófasti,
og hafa erfingjar þeirra samþykkt
þessa ráðstöfun á húseigninni.