Tíminn - 14.12.1962, Blaðsíða 4
ÍÞRDTTIft
ÍÞRÚTTIR
RITSTJORI HALLUR SIMONARSON
Fram háði marga harða leiki í knattspyrnunni í sum ar. Þessi mynd er frá leik Fram og danska lið'sins
SBV. Geir Kristjánsson markvörður Fram, sem af mörgum var talinn bezti maður liðsins, sést hér grípa
inn í á réttu augnabliki.
(Ljósm.: TIMINN—RE)
Mesta sigurárið hjá
Fram í!
Frá aðalfundi Fram. — Sigurður E. Jónsson
var endurkosinn formaður félagsins
ASalfundur Knattspyrnufé-
lagsins Fram var haldinn 2.
des- s.l. Fundurinn var settur
af formanni félagsins, Sigurði
E. Jónssyni. Hann minmtist
látins félaga á árinu, Gunnars
Halldórssonar, sem var einn
af stofnendum Fram. — Vott-
uðu fundarmenn honum virð-
ingu sína með því að rísa úr
sætum.
Formaður las síðan upp skýrslu
stjórnarinnar — og bar hún vott
um mikið og öflugt starf á s. 1.
ári. Árið 1962 er eitt hið blóm-
legasta í sögu félagsins hvað við-
víkur árangri í knaltspyrnu og
handknattleik. — Félagið varð
íslandsmeistari í báðum greinun-
um og vann auk þess fjölda móta
í yngri flokkunum. Á árinu fóru
þrír flokkar á vegum félagsins í
keppnisferðalag erlendis og stóðu
•sig með ágætum. — Nefnd á veg-
um stjómarinnar hefur starfað
ötullega að framgangi mála varð-
andi hinu nýja fþróttasvæði, sem
borgarráð úthlutaði félaginu norð-
an Miklubrautar.
Á árinu sæmdi stjórnin Edvard
Yde, formann SBU, gullmerki fé-
lagsins fyrir margvísleg störf í
þágu félagsins í áratugi. Einnig
voru heiðraðir þeir Hallur Jóns-
son og Ragnar Jónsson — svo og
allir leikmenn meistaraflokks, sem
unnu íslandsmót í knattspymu og
handknattleik, en þeir hlutu Silf-
urmerki félagsins.
Knattspyrnan
Árangur í knattspyrnunni hef-
ur aldrei verið eins góður í sögu
fólagsins, eins og á s.l. ári. Alls
unnust 15 mót af 33 mögulegum,
eða því sem næst helmingur allra
knattspyrnumóta. Möguleiki er að
vinna sextánda mótið, en 2- flokk-
ur félagsins á eftir að leika úr-
slitaleik í íslandsmótinu.
ir leikir tíma-
settir framvegis
Skíðanámskeið
hjá Ármanni
Milli jóla og nýárs efnir skíða-
deild Ármanns til skíðanámskeiðs
við skála sinn í Jósefsdal. Allir
beztu skíðamenn félagsins munu
annast kennslu á námskeiðinu
,sem verður jafnt fyrir unga sem
gamla.
í lok námskeiðsins, er gert ráð
fyrir að fram fari skíðakeppni
og gefst öllum þátttakendum nám
skeiðsins tækifæri til að vera með
í henni. Þann tíma sem dvalizt
verður í skálanum, verður skíða-
biekkan upplýst og dráttarbraut
í gangi. Dráttarvél á snjóbeltum
mun flytja iolk og farangur í öll-
um auglýstum ferðum. Kvöldvök-
ur verða öll kvöld — og ef veður
leyfir, verður gamlárskvölds-
brenna á toppi Vífilsfells.
Ferðir eru frá BSR annan jóla-
aag kl. tvö, laugardag 29. des. kl.
tvö og sex, sunnudaginn 30. kl.
tiu f. h. og gamlársdag kl. tvö.
Allar nánari upplýsingar um
ferðir, er hægt að fá á skrifstofu
Ármanns í húsi Jóns Þorsteins-
sonar við Lindargötu.
Á SUNNUDAGINN kemur hefst
að Hálogalandi, íslandsmótið í
handknattleik. Mót þetta markar
að vissu leyti tímamót í sögu ís-
lenzks handknattleiks — þar sem
nú verður viðhöfð í fyrsta skipti
tvöföld umferð í 1. deild.
Það eru fleiri nýjungar í sam-
bandi við mótið, m. a. verða allir
meistaraflokksleikir tímasettir hér
eftir, og er fólk þá ekki bundið
við að sjá alla leiki sama dag. —
Þá má segja, að ein nýjung hafi
verið gerð enn, en það er, að nú
verða markadómarar auglýstir
fyrir hvern leik, ásamt dómara. Er
þetta til mikilla bóta, en það
hefur oft viljað verða, á und-
anförnum mótum, að dómari hafi
þurft að vera í eltingaleik við
menn, er komið hafa sem áhorf-
endur á leiki og fengið þá til að
standa í hornunum.
Allar þessar breytingar eru
handknattleiksunnendum vissulega
gleðiefni — og ekki er að efa, að
vinsældir handknattleiksins eigi
eftir að aukast með tilkomu
þeiipra.
Eins og áður segir, hefst mótið
á sunnudaginn kemur og verða all
ir leikirnir í 1. deild. Fyrsti leik-
urnn er kl. 2,05, þá mætast ÍR og
KR. Annar leikurinn er kl. 3,15,
þá leika FH og Þróttur. Þriðji og
síðasti leikurinn verður á milli
Fram og Víkings og hefst hann kl.
4,25.
Dómari í fyrsta leiknum verður
Daníel Benjamínsson og marka-
dómarar með honum þeir Einar
Hjartarson og Stefán Gunnarsson.
Annan leikinn dæmir Axel Sig-
urðsson og markadómarar í þcim
leik, Eyjólfur Karlsson og Gunnar
Jónsson. Valur Benediktsson dæm
ir síðasta leikinn og markadóm-
arar verða Stefán Gunnarsson og
Magnús Ólafsson.
Mótið verður sett kl. 2 að Há-
logalandi af Ásbirni Sigurjónssyni,
formanni Handknattleikssambands
ins.
Á árinu vann meistaraflokkur
íslandsmótið, en lék einnig til úr-
slita í Reykjavfkurmóti og Bikar-
keppni. 1. flokkur vann eitt mót,
Haustmót, en á eftir að leika úr-
slitaleik í íslandsmóti, sem leik-
in verður næsta vor. B-lið 2.
flokks vann tvö mót, Reykjavíkur-
og Haustmót. 3. flokkur A vann
eit mót, hins vegar vann B-liðið
tvö, Reykjavíkur- og Haustmót.
4. flokkur A varð bæði Reykja-
yíkur- og íslandsmeistari og er
athyglisvert, að sá flokkur tap-
aði engum leik yfir sumarið.
Árangur B-liðsins varð ekki síðri,
það vann öll þrjú mótin —
Reykjavíkur- Miðsumars- og Haust
mót. — Af 15 leikjum vann flokk
urinn 14, en gerði eitt jafntefii,
skoraði 61 mark yfir sumarið og
fékk á sig 7. Þessi flokkur hlaut
„Gæðahornið" svo nefnda, sem ár
lega er veitt bezta flokki félags-
ins. 5. flokkur A vann eitt mót,
Haustmót, en ekkert í B-liði.
Alls lék Fram 141 leik yfir
sumarið — vann 81 leik, gerði 28
jafntefli og tapaði 31 leik. Fram
hlaut því samtals 197 stig (69,4%)
úr öllum leikjum — og vann með
því annað árið í röð Reykjavíkur-
styttuna, sem bezta knattspyrnu-
félagið í Reykjavík hlýtur hverju
sinni.
Allir flokkar félagsins fóru í
keppnisferðalög — flestir út á
land, en 2. flokkur fór til Dan-
merkur. Frammistaða 2. flokks í
Danmörku var mjög góð. — Af
þeim fjórum leikjum, sem flokk-
urinn lék í ferðinni vann hann
tvo, gcrði eitt jafntefli og tapaði
einum. Fékk Fram mjög góða
dóma í dönskum blöðum fyrir
leikina.
Á þessu ári var lögð mikil rækt
við knattþrautir Knattspyrnusam-
bands íslands og hlutu 26 drengir
hæfnismerki — þar af fimm með
gullmerki.
Aðalþjálfari í knattspyrnunni
var Guðmundur Jónsson, en aðr-
ir þjálfarar voru Alfreð Þorsteins
son, Helgi Númason, Hallur Jóns-
son, Hinrik Einarsson og Sveinn
Ragnarsson. — Knattspyrnunefnd
i var tvískipt á árinu. Formaður
fyrir eldri flokkana var Björgvin
Árnason, en fyrir þá yngri Alfreð
Þorsteinsson.
Handknaífleikurinn
Handknattleikurinn hjá félag-
1 ínu stendur með miklum blóma. —
I Félagið varð bæði íslándsmeistari
og Reykjavíkurmeistari og vann
þar að auki nokkur mót í yngri
flokkunum. Fram sendi tvo flokka
til keppni erlendis í handknatt-
leik. Kvennaflokkur fór til Fær-
eyja og lék þar sex leiki. Fimm
leikir unnust í þeirri ferð, en
einn tapaðist. Meistaraflokkur
karla tók þátt í Evrópubikarkeppn
inni. Það féll í hlut Fram, að
leika gegn dönsku meisturunum,
Skovbakken. Leikurinn fór fram í
Árósum og tapaði Fram naum-
lega, eftir framlengingu. Aðra
leiki í þeirri ferð vann Fram. —
Lið Fram vakti mikla athygli og
fékk mikið lof í dönskum blöðum
— varð þess ferð íslenzkum hand
knattleik.til mikils álitsauka.
Þjálfarar f handknattleiknum
vor.u þeir Karl Benediktsson,
Sveinn Ragnarsson og Hilmar Ól-
afsson. Formaður handknattleiks-
nefndar var Jón Þorláksson.
Verkefni framundan
Aðaláhugamál félagsins um þess
ar mundir — og það verkefni sem
félagið hefur mesta þörf fyrir að
hrint verði í framkvæmd, er upp-
bygging hins nýja félagssvæðis,
sem Borgarráð úthlutaði félaginu
endanlega 20. nóvember s. 1. Hið
nýja félagssvæði, sem er 4,4 ha.
er norðan Miklubrautar nærri
Kringlumýri. Þar er ráðgert, að
reist verði stórt og vandað félags-
heimili, auk þriggja valla. Öll að-
staða félagsins til æfinga er óvið-
unandi eins og sakir standa —
og er hvergi nærri hægt að koma
öllum æfingum fyrir á þeim eina
velli, sem félagið hefur til um-
ráða. Allar líkur benda til þess,
að hafizt verði handa, strax á
næsta vori að vallargerð á nýja
svæðinu.
Stjórnarkosning
Sigurður E. Jónsson var ein-
róma endurkjörinn formaður fyr-
ir næsta ár, en aðrir í stjórn með
honum eru Guðni Magnússon, vara
formaður, Jón Sigurðsson, kaupm.,
ritari; Jón Friðsteinsson, gjald-
keri; Birgir Lúðvíksson, spjald-
skrárritari; Gunnar Ágústsson, for
maður handknattleiksnefndar og
Rúnar Guðmundsson, formaður
knattspyrnunefndar. í varastjórn
eiga sæti_ Alfreð Þorsteinsson,
Björgvin Árnason og Ingibjörg
Jónsdóttir.
4
T í M I N N , fösti.daginn 14. desember 1962