Alþýðublaðið - 06.01.1940, Qupperneq 1
RITSTJÓRI: F„ R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLQKKURINN
XXI. ÁRGANGUR.
LAUGARDAGUR 6. JAN. 1940
4. TÖLUBLAÐ
Sænsbt sklp skotlð f kaf af rúss»
neskum kafbát f Helslngjabotnl.
---4---
Sænska stjórnln lætur sendlherra sinn f Moskva
krefjast tafarlausrar rannsóknar á kafbátsáráslnni.
Jónatan Hallvarðsson.
Sakamáladómari og lðg-
reglnstjðri skipaðir i dag?
----$----
Súlst vlð að Jénataia Mail varðsson
v@pði safeamáladómari og Agia^
ar Mofood Mansen UBgreglustjóri.
¥ DAG munu tveir nýir
embættismenn taka við
störfum hér í Reykjavík.
Agnar Kofoed-Hansen mun
taka við embætti lögreglu-
stjóra og Jónatan Hallvarðs-
son við emætti sakadómara.
Enn mun ekki vera afráðið
hvort þeir verða settir eða
skipaðir í embætti sín.
Eins óg kunnugt er voru á
alþingi samþykkt lög um skipt-
ingu lögreglustjóraembættisins
og gtengu þessi lög í gildi 1. jan-
úar. Vegna mikilla anna í ráðu-
neytinu hefir ekki verið hægt
að setja eða skipa menn í þessi
embætti, og hefir því raunveru-
lega enginn lögreglustjóri verið
hér í Reykjavík síðan um ára-
mót.
Þetta hefir haft þau áhrif, að
ekki hefir verið hægt að úr-
skurða menn 1 gæzluvarðhald,
ekki hægt að halda réttarpróf
o. s. frv. Af þessari ástæðu hefir
m. a. orðið að sleppa mönnum
úr fangahúsinu, án þess að yf-
irheyrslur hefðu farið fram yf-
ir þeim. Þetta hefir þó ekki
komið að sök, þar sem engin
alvarleg afbrot hafa verið fram.
in.
Hlutverk hins nýja lögreglu-
stjóra, Agnars Kofoed-Hansen,
verður að hafa stjórn á götu-
lögreglunni, einnig hinni hreyf-
anlegu lögregiu, utanbæjar.
Agnar Kofoed-Hansen er aðeins
24 ára að aldri, en er þegar
kunnur fyrir dugnað. S.l. sumar
dvaldi hann lengi erlendis til
að kynna sér stjórn á lögreglu
og allt. er að því máli lýtur.
Þessi maður er þó óreyndur í
því ábyrgðarm'ikla starfi. sem
honum er nú falið, en það er
óhætt að segja, að þeir, sem
þekkja hann bezt, treysta hon-
um til að standa vel í stöðu
sinni.
Hlutverk sakadómara, Jóna-
tans Hallvarðssonar, verður að
hafa með höndum rannsókn
allra opinberra mála og dóm-
sögn í þeim. Hann hefir með
höndum stjórn rannsóknarlög-
reglunnar og framkvæmd refsi-
dóma, umsjón með hegningar-
húsinu í Reykjavík, þá hefir
hann og með höndum meðferð
barnsfaðernismála. Jónatan
Hallvarðsson er 36 ára að aldri.
Hann tók embættispróf í lög-
um 1930 og varð það ár fulltrúi
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins.
KHÖFN í morgun.
Agnar Kofoed-Hansen.
lögreglustjóra. Árið 1935 bauðst
lagadeild háskólans til að mæla
með honum í prófessorsembætti
við lagadeildina, en hann sótti
ekki um það. í september 1936
varð hann lögreglustjóri hér og
því embætti hefir hann gegnt
síðan með mikilli prýði.
Báðir þessir nýju embættis.
menn munu hafa skrifstofur
sínar 1 lögreglustöðinni að
minsta kosti fyrst um sinn.
CÁ ATBURÐUR gerðist skömmu eftir hádegi í gær, að
^ sænska gufuskipið „Fenris“, eigna Sveabolaget, var
skotið í bál af óþekktum kafbát í nánd við Umeá við Hels-
ingjabotn, sem liggur á milli Finnlands og Norður-Svíþjóð-
ar, Skipið var á leið milli sænskra hafna, Holmsund og
Stokkhólms.
Allri áhöfninni var hjargað yfir í vitaskip, sem er
skammt frá þeim stað, þar sem árásin var gerð, en skipið
sökk.
Þessi atburður hefir vakið mikinn óhug í Svíþjóð, þar
sem menn eru þegar mjög kvíðandi vegna hinnar rússnesku
árásar á Finnland. Talið er að um rússneskan kafbát hafi
verið að ræða, enda hafa áður borizt frásagnir um það, að
rússneskir kafbátar væru á sveimi inni í Helsingjabotni.
Sænska stjórnin hefir fyrirskipað sendiherra sínum í
Moskva að krefjast þess af sovétstjórninni, að mál þetta
verði rannsakað tafarlaust.
Ástandið í utanríkismálum
að því er Norðurlöndin snertir
er nú yfirleitt talið mjög í-
skyggilegt einnig vegna þess, að
þýzku blöðin hafa nú hafið
mjög hvassa áróðursherferð
g'egn Vesturveldunum fyrir af-
stöðu þeirra til Norðurlanda.
Halda þýzku hlöðin því fram,
að Englendingar séu að leitast
við að umkringja Þýzkaland
með því að skapa sér aðstöðu á
Norðurlöndum og á Balkan-
skaga. Enn fremur segja þýzku
blöðin, að áhugi Englands fyrir
Finnlandi og samúð þess með
því byggist aðeins á ósk Breta
um að sölsa undir sig flotastöðv
ar á strönd Noregs, er síðar
verði notaðar til að skaða
Þýzkaland.
Þá vekur það og mjög mikla
athygli í þessu sambandi, að
þýzku blöðin slá því föstu 1 dag,
að afstaða Þýzkalands til þess-
ara mála velti 'algerlega á því.
hvernig Norðurlöndin snúist
við þessum skandinavisku veiði
brellum Englendinga.
Kort af Helsingjabotni, sem liggur inn á milli Finnlands og
Norður-Svíþjóðar. Umeá, þar sem kafbátsárásin var gerð, sést
ekki á kortinu, en er á sænsku ströndinni svo að segja beint á
móti Vasa, þar sem skJemmst er yfir flóann.
Óvæntar breytingar gerð^
ar á brezku ríkisstjórninni.
Hore Bellsha
Oliver Stanley teknr
fer »«,
af honnm.
Jólatrésfagnaðnr Al-
pýðuflokksfélagsins.
A lþýðuflokksfélag
■*■*■ Reykjavíkur heldiur jólatrés
fagnað fyrir börn félagsmanna
á þri'ðjudaginn kl. 4.
Verður þar fjölda margt til
s'kemmtunar og veitingar handa
börnunum.
Aðgöngumiðar á 1 krónu fást
á afgreiðslu Alþýðubla'ðsins, í
Alþýðubrauðgerðmni og á 'skrif-
stofu Alþýðufliokksfélagsius.
Orastan milli Flnna og Rússa
fi Salla heldnr enn áfram.
;N,- /
-------
Mý tflraMai Rilssa tll pess að br|ét
ast vestur að Helsingjabotni?
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
KHÖFN í morgun.
SÍÐUSTU fréttir frá Finn-
landi herma, að orustan
haldi áfram hjá Salla. Kaup-
mannahafnarblöð tilkynntu í
gær, að Finnar hefðu tekið
borgina, en sú fregn er enn ó-
staðfest,
Yfirleitt eru fréttirnar af or-
ustunni við Salla mjög ógreini-
legar. Samkvæmt sumum
þeirra lítur út fyrir, að Rússar
séu þarna að gera nýja tilraun
til þ'ess að brjótast í gegn vest-
ur að Helsingjabotni, en Lund-
únafregnir segja, að öllum á-
rásum Rússa á þessum slóðum
hafi verið hrundið af Finnimi.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun.
UM MIÐNÆTTI í nótt barst fregn um það frá London
— að Hore Belisha hermálaráðherra Breta og Lord
Mac Millan upplýsingamálaráðherra hefðu heðizt lausnar
og verið leystir frá störfum.
Oliver Stanley, sem hing-
að til hefir verið verzlunar-
málaráðherra, hefir verið
skipaður hermálaráðherra,
en við verzlunarmálaráðu-
neytinu tekur í hans stað
Andrew Duncan. Upplýs-
ingamálaráðherra verður
John Reith.
Það er fullyrt, að þessar
breytingar á brezku síjórninni
muni engin áhrif hafa á stríðið.
En gefið er í skyn, að fleiri
mannaskipti geti komið til mála
enn í stjórninni.
Þessar breytingar á brezku
stjórninni koma mönnum mjög
á óvart úti um heim, þar sem
ekkert hefir kvisast um það áð-
ur, að þær stæðu til. Einkum
kemur lausnarbeiðni Hore Bel-
isha mjög óvænt, þar sem svo
hefir verið litið á, að því er
frekast er vitað bæði á Englandi
og úti um heim, að hann hafi
unnið mikið og þarflegt verk 1
þjónustu brezka hersins, meðal
annars þegar hann endurskipu-
lagði. allt herforingjaráð hans
og skipaðí það nýjum og yngri
mönnum, þar á meðal Lord Gort
núverandi yfirmanni brezka
hersins í Frakklandi.
Miklir bardagar voru aftur
háðir í gær á Kyrjálanesi, en
einnig þar var árásum Rússa
hrundið.
Rússar hafa boðfl út
2 milfjðniun mannatli að
berjast við finna.
KHÖFN. í gæikv. F.O.
Tali'ö er að Rússar hafi nú
kvatt tvær milljónir manna til
herþjónustu gegn Finnlandi. Af
þessum Liðsafla er talið að 700
þúsund manns taki þegar þátt í
bardögunum á hinum ýmsu víg-
. (Frh, á 4. síðu.)
Hore Belisha,
Lausnarbeiðni Lord Mac
Millan kemur ekki eins óvænt,
því að stjórn hans á upplýsinga-
málaráðuneytinu hefir sætt
töluverðri gagnrýni frá því
fyrsta.
Hore Belisha hefir verið
hermálaráðherra síðan 1937, en
var. áður samgöngumálaráð-
herra. Það er búizt við því, að
hann muni gera nánari grein
fyrir lausnarbeiðni sinni, þegar
brezka þingið kemur saman 16.
janúar. Fullyrt er, að honum
hafi verið boðið verzlunarmála-
ráðuneytið, en hann hafi ekki
(Frh. á 4. síðu.)