Alþýðublaðið - 06.01.1940, Síða 4

Alþýðublaðið - 06.01.1940, Síða 4
LAUGAROAGUR 6. JAN. 1940 ■ GAMLA BfOH Bðrii Hardp dómara. Amerísk kvikmynd frá Metro Goldwyn Mayer. AÖalhlntverkið leika: Levvis Stone, Miikey Rooney, Cecilia Parker, Fay Haliden. Hjálpræðisherinn. Opinber jóla- tréshátíð í kvöld kl. 8V2. Inn- gangur 25 aura. Allir velkomnir. BREYTINGAR Á BREZKU STJÓRNINNI Frh af 1. síðu. viljað taka það að sér. Hinn nýi hermálaráðherra, Oliver Stanley, hefir verið verzlunarmálaráðherra síðan 1937 og er sonur hins þekkta brezka stjórnmálamanns, Lord Derby, sem var hermálaráð- herra Breta um skeið í heims- styrjöldinni. Nýjárs dansleikurinn er í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu annað kvöld — sunnu- daginn 7. jan. Hefst kl. 10 e. h. Hljómsveit undir stjórn FRITZ WEISSHAPPELS. Aðgöngumiðar seldir í Alþýðuhúsinu á sunnudag frá klukkan 6. Tilkynning. Frá þessum tíma verða ekki teknar tiikynningar um fundi, íþróttaæfingar, samkomur o. s. frv. í bæjarfréttir dagblaðanna, heldur verða allar slíkar tilkynningar fram- vegis skoðaðar sem auglýsingar og verður að greiða fyrir þær. Morgunblaðið, ¥ísir9 AlpýðuMaðið. frá 5. [i. m. um breyllng á lögum nr. 10, 4. apríl 1939 um gengisskrán* Ingu og ýmsar ráðstafanir í því sam» bandi hefir Kauplagsnefnd reiknað út vísitölu mánaðanna nóv. — des. 1939, miðað við að vísitala fram« færslukosnaðar |an. — marz 1939 sé 100. — Reyndist hún vera 12% hærri. Viðskiptamálaráðuneytið. FYRSTU FJÓRIR MÁNUÐIR STRÍÐSINS. (Frh. af 3. síðu.) ráð brezka flotans á sjónum á bak aftur. Og þó vseri slík til- raun eftir sem áður mjög mikið hættuspil. í heimsstyrjöldinni fór tilraun I’reta til þess að setja þær á laud við Dardanella- sund algerlega út um þúfur, eft- ir að miklu hafði verið fórnað, •enda þótt vandr væru þar mjög ófullkomnar fyrir. Hingað til hefir Þýzkaland, síðan stríðinu í Póllandi lauk, lagt aðaláher.duna á það, að vinna Englandi sem mest tjón með kafbátum og flugvélum.*) Nýstárleg vopn, sem notuð hafa verið í þeim liernaði, eru bæði þau lausu tundurdufl, sem þýzkir flugmenn hafa varpað niður á sjóinn í fallhlífum, svo og hin svonei'ndu segulmögn- uðu tundurdidl, sem virðast vera mjög hadtuleg. Um það, hvern árangur þessi hernaður *) Loftárásir í stærri stíl á England sjálft hafa þó ekki verið reyndar. hafi borið, ber Bretum og Þjóðverjum ekki saman. Bretar setja her á land við Dardanella- unum og kafbátunum sé ekki nálægt því eins mikið og það hafi verið í heimsstyrjöldinni, að baráttan gegn kafbátunum sé háð með vaxandi árangri og það sé fyrirsjáanlegt, að Þýzka- landi takist ekki að fylla þau skörð, sem höggvin hafi verið í kafbátaflota þess, hvað þá heldur, að smíða svo marga nýja kaf- báta og manna þá æfðum kröft- um, að um alvarlega hættu geti orðið að ræða. Og sama sé um flugvélarnar að segja. En um hitt, hvað hæft er í þeim tölum, sem frá báðum hliðum hafa verið birtar um tjón af völd- um hinna þýzku kafbáta og flugvéla, verður að sjálfsögðu ekkert sagt með vissu að svo komnu. sfc Ennþá erfiðara er að sann- prófa þær upplýsingar, sem gefnar hafa verið um efnalegan viðbúnað ófriðarþjóðanna. Að- staða Englands og Frakklands á því sviði er að vísu nokkurn- veginn augljós. Þau eiga að- gang að hér um bil öllum hrá- efnum heimsins. Þýzkaland er í þeim efnuhi miklu verr statt. Það hráefnasvæði, sem það hef- ir aðgang að, er töluvert miklu minna en í heimsstyrjöldinni, þegar því stóð allur Balkan- skaginn opinn og méira að segja mikill hluti Suður-Rúss- lands síðasta ár styrjaldarinn- ar. Auk þess er líklegt að Þýzkaland hafi þá byrjað stríðið með miklu meiri hrá- efnabirgðum en nú. * En úrslitaþýðingu hefir, ekki síður en hinn hernaðarlegi og efnalegi viðbúnaður, sá andi, sem ríkjandi er í ófriðarlöndun- um. Enda er það viðurkennt af öllum og einmitt þessvegna er lögð svo mikil áherzla á hið svo- nefnda ,,taugastríð,“ sem háð er með allri þeirri tækni undirróð- ursins, sem völ er á. Hve þýðingarmikið þetta at- riði er, sýna nýjustu vígstöúv- arnar í þessu stríði, Finnland, mjög vel. Hin þrautseiga og, fram að þessu, sigursæla vörn Finna gegn ofurefli Rússlands, á að sjálfsögðu að nokkru leyti rót sína að rekja til óvenjulegr- ar forystu og æfingar, en að langmestu leyti hefir hún þó á- reiðanlega byggst á eldmóði einstaklinganna, sem allir sem einn maður eru reiðubúnir til þess að fórna lífi sínu fyrir frelsi föðurlandsins. Andspænis slíkum eldmóði hefir bæði for- ysta og fjöldi brugðizt hjá Rússum. En þar hefir einnig bilað nýtt herbragð, sem Rúss- ar virðast hafa vænst sér mikils af: Fallhlífarstökk hermann- anna úr flugvélum á bak við vígstöðvar andstæðinganna til þess að geta ráðizt aftan að þeim. Rússnesku hermennirnir, sem reyndu þetta herbragð í byrjun ófriðarins, voru skotnir niður á leiðinni til jarðar og síðan hefir ekkert heyrst af slíkum tilraunum. Rússneski loftflotinn hefir látið sér nægja að varpa sprengikúlum á varn- arlausar borgir og rússneski herskipaflotinn hefir heldur ekki gert neinar rósir. Ný reynsla er það einnig, sem feng- izt hefir 1 Finnlandi, að ekki sé hægt að nota skriðdreka í mikl- um snjó, af því að þeir sitja fastir í honum. En þó að Rúss- landi hafi þannig hingað til ekki orðið neitt ágengt, þrátt fyrir sinn mikla mannfjölda, þá er þó ekki hægt að ganga þess dulinn, að Finnland er í mikilli hættu, svo fremi, að því komi ekki sú hjálp. sem það þarfn- ast. * Þá hjálp hafa nágrannaþjóðir þess á Norðurlöndum ekki sent enn, sem komið er. Þær hafa haldið fast við hlutleysi sitt. — Hvort þær og aðrar smáþjóðir Evrópu komast hjá því, þegar til lengdar lætur, að lenda í stríðinu, er annað mál og mesta áhyggjuefni þeirra allra. í heimsstyrjöldinni tókst Norður- löndum, Hollandi og Sviss, að varðveita hlutleysi sitt, enda þótt þau væru svo að segja um- krlngd af ófriðarríkjum, og flest önnur hlutlaus lönd álfunnar soguðust inn í stríðið hægt og hægt. Hvernig þeim reiðir af í þessu stríði, getur enginn sagt á þessari stundu. En óvæntustu viðburði getur að höndum bor- ið, hvenær sem er, eins og á- rásina á Finnland nú. * Um það, hvernig stríðinu f DAS Næturlæknir er í nótt Halldór Stefánsson, Ránargötu Í2, sími 2234. Næturvörour er í Laugavegs- og Ingólfsapóteki. ÚTVARPIÐ: 19,10 Veðurfregnir. 19,20 fréttir. 19,50 Fréttir. 12,15 Leik- rit: „Ræningjar,nir“, eftir Schill- er (Haralduf Björnsson, Brynj- ólfur Jöhannesson, Þorsteinn ö. Stephensen, FriÖfinnur Guðjóns- so,n, Sigrún Magnúsdóttir, Her- rnann Gu'ðmundsson, Valdimar Hélgason, Magnús Guðmundsson, Hjörtur Kristmundsson, Sigur&ur Magnússon, Sveinbjöm Þor- steinsson, Jón Alexandersson, Ás- geir Jðnsson). 22,45 Fréttir. 22, 55 Danslög. 24,QP Dagskrárlok. Á MORGUN Næturlæknir er Þórarinn Sveinsson, Austurstræti 4, :sími 3232. Næturvör'ður er í Reykjavíkur- og ISunnarapóteki. ÚTVARPIÐ: 9,45 Moiguntónleikar (plötur): a) Sónáta i E-dúr, Op. 109, eftir Beethoven. b) Celló sónata í e- mioill, Op. 38, eftir Brahms. 10,40 Veöurfnegnlc, 12,ÖÖ-13,ÖQ Há- degisótvarp.. T4,QQ MesSS I Wr* kirkjunni (séra Árni Sigurösson). 15,30 Miðdegis'tónteikar (plötur); Ýms tónverk. 18,30 Barnatimii: Barnaleikriít: „Hildur kemur heim“. 19,10 Ve&urfregnir. 19,20 Hljómplötur: Fagot-konsert, eftir Mozart. 19,40 Auglýsingar. 19,50 Fréttir. 20,15 Eríndi: Tveir siða- skiftaklerkar, Einar í Heydölum og Sigfús í Kinn (Ragnar Jó- hannesson cand. mag.). 20,40 Hljómplötur: Hándel-tilbrígðin eft ir Brahms (Egon Petri leikur á píanó). 21,05 Upplestur: Úr „Sög- um heflæknisins“ (Pálmi Hann- esson rektor). 21,30 Danslög. 21, 50 Fréttir. 23,00 Dagskrárlok. MESSUR I dómkirkjunni kl. 11 Sigur- gei-r Sigurðsison bisk'up, kl. 2 barnaguðsþjónUsta, sér Fr, H., kl. 5 séra Fr. H. I frikirkjunni kl. 2 séra Árni Sigurðsson. I fríkirkjunni í Hafniarfirði barnaguðsþjónusta kl. 2., jóla- minningar. Kvennadeild Slysavarnafélagsins í Hafn- arfirði heldur dansleik að Hót- el Björninn i kvöld kl. 10. Blá- stakkatríóið skemmtir. F.U.J. Leikfimisæfingar bæði karlaog stúlkna em í kvöld á sama: stað og tíma. Þeir F. U. J.-félagar, sem ætla að fá aðgöngumiða á jólatrésfagn- að Alþýðuflokksfélagsins j sæki þá á afgreiðslu Alþýðublaðsins í dag, mánudag og þríðjudtag. Pantanir afgr. 1 síma 3228. muni ljúka, verður ekkert sagt með neinni vissu áð svo komnu máli, og ekki heldur um það, hve lengi það muni standa. En kunnugt er, að England hefir lýst því yfir, að þaí5 geri ráð fyrir þriggja ára styrjöld. Senni legast er, að enginn úrslitasig- ur vinnist á landí og að það verði með efnalegum eða póli- tískum ráðstöfunum, sem endi verður bundinn á styrjöldina. STRIÐIÐ: i FINNLANDI Frh. af 1. síðu. jStöðvUm i Fimnllanídi, en ein mill- j'ón og 300 þúsund manns haf- pist við í hermannaskálum á bak við rússinesku víglínurnar og og starfi að æfingum. Eíns oig nú standa sakir lítur helzt út fyrir, að báÖir styrjaldr araðilar hægi á sér og bi'ði á- tekta. Þúsundir sænskra sjálfböðaliða streyma til Fiinnlanids þiar á mieð- al fjöldi af fremstu íþróttamönn- um Syía. Meðal þeirra má nefna tennismeistarann Kalle Sohröder og sundkappann Bjöm Borg. HufvUdstadsbladet í Helsingfiors birtir ávarp Nor- ræna félajgsins á íslandi um Finn- landssöfnumina. F. Ú. NÝJA Blð Stanley og Livingstone Söguleg stórmynd frá Fox er sýnir einn af merkustu viðburðum veraldarsög- unnar, þegar ameríski blaðamaðurinn Henry M. Stanley leitaði trúboðans David Livingstone á hinu órannsakaða meginlandi Afríku. — Aðalhlutverkin leika: Spencer Tracy, Sir Ced- rie Hardvriche, Nancy Kelly, Richard Greene o. fl. Hjartans þakkir til allra, sérstaklega þó til skólastjóra, kenn- ara og barna Miðbæjarskólans, fyrir þá miklu samúð og hlut- tekningu, er okkur var sýnd við fráfall og jarðarför Sigmtmdar Guðmundssonar I leikfimikennara. Þorgerður G. Sigurðardóttir, börn og tengdabörn. LEIKFÉLAG REYKJAVlKUR. „Dauðinn nýtur lífsinsu SÝNING Á MORGUN KL. 8. Hljómsveit undir stjórn Dr. V. Urbantschitsch aðstoðar. Venjulegt leikhúsverð. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 í dag og eftir kl. 1 á morgun. DANSLEIK heldur Kvennadeild Slysavarnafélagsins í Hafnarfirði í kvöld (þrettándann) að Hótel Björninn kl. 10. Blástakkatrféið skemmtir. GOÐ MUSIK. BILAR A STAÐNUM. Endið jólin vel með því að skemmta yður hjá okkur. NEFNDIN. Verzlnn min er flntt af Langavegi 11 á Öldugotu 29. finðbjðrg Bergpðrsdðttir. Orðsending til bænda. Enn er allt í óvissu um það, hvort gjaldeyrir verður fyrir hendi til kaupa og innflutnings tilbúins áburðar, svo um muni fyrir komandi vor. Eigi að síður er þess vænst, að kaupfélög, kaupmenn, búnaðarfélög og hreppsfélög, sem þess óska, og áður ) hafa keypt áburð frá Áburðarsölu ríkisins, sendi áburðarpant- anir sínar fyrir 15. febrúar næstkomandi, svo hægt sé að hafa þær til hliðsjónar við úthlutun þess áburðar er inn kann að verða fluttur. Búast má við, að verð áburðarins verði um 50% hærra en það var síðastliðið ár. Tegundirnar, sem reynandi er að panta eru: % Kalksaltpétur, Kalkammönsaltpétur, 1] Kalí, Superfosfat og Garðáburður. Nitrophoska túnáburð er aftur á móti tilgangslaust að biðja um. Tilgangslaust er með öllu fyrir aðila að panta meiri áburð, en þeir keyptu síðastliðið ár, í von um að bæta hlut sinn við væntanlega skömmtun áburðarins. Pantanir frá einstökum mönnum verða ekki teknar til greina. Munið, að greinilegar pantanir, sem berast nægilega snemma, eru eitt af frumskilyrðunum fyrir því, að úthlutun þess áburðar, sem inn verður fluttur, geti farið vel fram og réttlátlega. n Áburðarsala ríkisins.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.