Alþýðublaðið - 15.01.1940, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 15.01.1940, Blaðsíða 2
MÁNUDAGUR 15. JAN. 1940. ALÞÝÐUBLAÐIÐ y. LITLA IIAFMEYJAN H.C. ANDERSEN $$ ÍÍhH %, , ' . - . - ~ ■ •■- - ■ ' 1 ..................................................................... m áMxr," 15) Um kvöldið, þegar litla hafmeyjan stóð við gluggann og horfði upp í dimmblátt hafið, hugsaði hún um stóru borgina og allt hennar skraut. 16) Árið eftir fékk næst elsta systirin að fara upp á yfirborö sjávarins. Hún kom upp á yfirborðið um leið og sólin gekk til viðar. Það þótti henni fögur sjón. Himinninn leit út eins og hann væri gulli roðinn, svo sá hún hóp af hvítum svönum svífa hjá. 17) Árið eftir kom þriðja systirin upp á yfirborðið. Hún var djörfust af þeim öllum og synti upp eftir stóru fljóti. Þá sá hún vínvið, hallir og bændabýli, og hún heyrði fuglana syngja og sólin skein. 18) í ofurlítilli vík sá hún mörg börn busla 1 vatn- inu og hún ætlaði sér að leika við þau, en þau hlupu óttaslegin burtu — og þá kom lítið, svart dýr, það var hundur. Hann gelti og þá varð hún hrædd og flýði til hafs. En aldrei gat hún gleymt hinum yndislegu skógum, sem hún sá, og börnunum. Bæklingi m lynd- ligi fttbýtt oi bæ- inn á næstnnni. TU’ÆSTU daga verður úfbýtt ■*• ^* um bæinn bæklingi með leiðbeiningum um hagnýta kyndingu. Verður bæklingnum útbýtt ókeypis. Bæklingur þessi kemur út á vegum Rannsóknarnefndar rík- isins, en hana skipa: Pálmi rektor Hannesson, Emil Jónsson vitamálastjóri og Ásgeir Þor- steinsson. Framkvæmdastjóri nefndarinnar er Steinþór Sig- urðsson magister. Bæklingurinn er 10 mínútna námskeið í kyndingu, saminn af Gísla Halldórssyni verkfræð- ingi. Er talið, að með réttri kynd- ingu megi spara kolin um 20% og er það ekki svo lítið. Bæklingurinn er leiðbeining- ar um kyndingu, eins og áður er sagt, og ættu menn að at- huga hann vel og fara eftir hon- um, eins og við verður komið. Virðist ekki veita af því nú í dýrtíðinni að draga úr óþarfa eyðslu svo sem unnt er á hvaða sviði sem er. Verkalýðsfélag Kaldrananess- hrepps hélt aðalfund sinn jiann 7. jan. þ. á. að Drangsnesi. Rædd voru aðallega þau mál. er snerta kjarabætur og kaupgjald verka- lýðsdns. Á fundinum lýsti sér al- mennur áhugi manna fyrir hags- bótum þessum málum til handa. Þá fór einnig fram kosning í stjóm félagsins tii næsta árs. Kiosnir voru: Fonnaður Guðm. Þ. Sigurgeirsson, Drangsnesi, fé- hirðir Hállfreður Bjamason s .st., Ritari Jóhannes Jónsson, Hafnar- hóli. LÝÐRÆÐISFLOKKAR líta svo á, að póíitísk sann- færing eða skoðun eigi að ráða því, hvar menn skipa sér í flokk, þ. e. menn eigi að hafa skoðun á þjóðmálum og fylgja frarn sinni síefnu vegna sannfæringar um réttau málsíað, en ekki vegna trúar á einstaka menn. E nræðisflokkarnir ala hins vegar' upp í fólki trú á foríngja, blinda trú á kenningum hans og gerðum, sem séu óskeikular. Lý ðræðisíi okkar byggja starf- semi sina á almennum kosning- um; aliir sannir lýðræðissinnar sityðja því að almennri fiæðslu þjóðarinnar, til þess að hver þjóðfélagsþegn verði fær um að myrida sér sjálfstæða sfeoðun um venjuleg mái og atkvæði hans geíi talizt fuílgilt. Samkvæmt þessu skipulagi hafa lýðræðis- flokkamir umræður um þjóðmál og orðaskipti sín á milli fyrir opnum tjöldum, til þess að fölk- ið •— kjösendurmr — geti valið á milli þeirra. Einræðisfloikparnir hlíta vald- boði ofan frá. Foringinn segir fyrir um, hver sé afstaða, og stefna flokksins á hverjum tíma. Meðlimirnir fá náðarsamilegast leyfi til að hlýða úrskurði for- ingjans, berjast eins og hann seg- ir, fyrir því sem hann vill, og trúa því, að það sé ávalt hið eina sanna og rétta, allt annað sé frá þeim vonda. Petta skipulag Ieiðir til þess, að fólkið verður auðmjúkir þræl- ar, er framkvæmiir skipun hús- bóndans eða fær þunga refsingu ella, oft líflát. Hitler og Stalin hafa báðir . nokkra. áhangendur hér á landi. Forystumenn þessara hópa þykj- ast berjast fyrir hugsjón og æsa upp fylgismenn sina á þeim for- sendum. Sumir þeirra eru ein- /ægir trúmenn á málstaðinn, en aðrir eru pólitískir spákaupmenn, sem sjá aðeins sína eigin hajgs- muni, fé, metoirð, völd. Stærsti galli einræðisins er líka sá, að misjafnir menn ná stjórn- artaumurmm og nota þá mis- kunnariaust, en fólkið verður að Heilög skylda hvers lýðræðis- sinna er að foirða ungu fóiki frá einræðishættunni. Islendingar ! hafa aldrei verið ofsatrúarmenn, ; þó að á mestu niðurlægingar- ; tímum þjóðarinnar væru fram- ; kvæmdar galdrabrennur fyrir at- beina taugabilaðra manna og vegna fáfræði almennings. Nú er ekki hægt að telja almenninig á íslandi fáfróðan, en enn eru til taugabila'ðir aumingjar og póli- tí’skt geggjaðir ’ ofstækismenn og pólitískir gróðabrailsmenn. Þetta fólk hefir reýnt að gera öðrum upp illar hvatir,.sem það sjáift þjáist af. Það er eftirtéktarvert og sýnir, að reynt er til þess ýtrasta að spilá á lægri nóturnar í manns- eðlinu. íslendingar eiga að rísa upp sem einn maður og þurka áhríf þessa fólfcs út úr íslenzku þjóðlífi. Sjálf sagt er, að þeir, sem haldnir eru þessari pólitísku pest, en teljast læknandi, fái bróðurlegar mót- tökur, þegar þeir hverfa' frá villu síns vegar, því að gleðjast ber yfir einum, sem bætir ráð sitt. En þeir, sem upptök eiga og á- byrgð bera á þessum þjóðskað- legu eftirhermum og þjönkun við Jandagráðuga leinræðisherra, þeir verðskulda ekkert annað en fyr- irlitningu og útskúfún. Því að þeir eru útlendingar í sínu föður- landi, sem sitja á svikráðum við sjálfstæði þess. xxxx SírWsfyndBi. Nýríkur borigari vildi jjjarnan vekja á sér eftirtekt. Honum var falið að athuga og skoða öll sjiúkrahús í héraðimu, hviort þau væru í sæmilegu ástandi nú á stríðstímunum. Hann hafði lokið heimsókn á eitt sjúkrahús og hélt áhrifamildnn ræðustúf yfir forstöóukonunni og vonaði að ræðan birtist í blöðunum. — Well, saigði hann; hér er svo fínt, vel tilhaft og huggulegt, allt sem ég hefi séð, að ég leyfi mér að segja það, að svo framar- lega að mig hendir eitthvert slys, mun ég knefjast' þess að verða la,gður hér inn. — — Það hendir yður áreiðanlega engin slysni, sem getur valdið þvi, að þér komið hingað, herra, svaraði forstöðukonan feimnis- lega og hikandi, eða það væri að minnsta fcosti yfimáttúrlegt, vegna þess að þetta er fæðingar- heimili. * Liðþjálfi var dauður og átti að jarðast. Hann hafði ekki ver- ið mjög vinsæll meðal liðsveitar- innar, og fylgdi húú því til grafar samkvæmt skipun með misjöfn- um tilfinningum. Drengirnir sátu í kirkju og hlustuöu á hjartnæma ræðu prestsins. Þegar hann fór að telja upp dyggðir hins látna, ráku drengirnir upp stór augu. En þegar hershöfðinginn kom frarn og hélt glæsilegá ræ'ðu um þá „miklu og göfugu eiginleika“, sem hinn látni hefði haft, þá hvíslaði Bill svo hátt, að allir máttu heyra: — Vib erum víst við jarðarför frá annari herdeild. ❖ Ástandið á vesturvígstöðvunum gefur efni í marigar skrítlur og sumar mjög einkennandi. Frönsk könnunarsveit fór inn á einangraðan h.Iuta einskismanns lands, þar sem ekki varð vart neinna stríðsaðgierða. Fyrirliðinn spurði gamlan bónda, er sveitin hiiíi, hvort hann hefði orðið var við Þjóðverja. — Já; það voru nokkrir hér í síðustu viku og spurðu mig, hvort ég hefði séð nokkurn Frakka. , * Gamall liðþjálfi sagði nýliðun- um áhrifamiklar sögur. — Já; skiljið þið? Þarna stóð ég og átti aðeins eitt sfcot eftir, en tveir Þjiöðverjar fcomu hlaupandi í átt- ina til mín. Hvað haldið þið að ég hafi gert. Einn unglinganna svaraöi: — Veit það ekki, liðþjálfi; en ég hefði orðið dauðhræddur. — Já, drengir! Ég tók byssu- stinginn af rifflinum og stiakk honum í jörð ni'ður, þannig, að eggin vissi að mér. Því næst sigtaði .ég nákyæmlega á eggina Ojg hieypti af, kúlan klofnaði í tvennt og hver helmingur drap Þjóðverja. * Taugaveiklaður ungur; liðsfor- ingi.æfði herdeild sína við mis- munandi göng’uhra'ða. Þetta var í fyrc'.a skipti, og hann hafði skip- að: „Hraðan mars; áfram!" Þannig var háttað landslagi, að a-ingasta'ðurinn lá á sjávar- bakka, og voru sjávarhamrar 100 metra háir. Liðsveitin nálgaðist óðum brún- ina, — en þe.r tóku eftir því, að ungi liðsforinginn mundi ekki hvaða skipun hann átti að gefa. Nýli'ðamir þögðu þö, en þegar örfá skref voru eftir, kallaði einn þieirra: — Segið þér eitthvað við okk- ur, Sir, þó að ekki sé nema að bjóða góða nótt.“ Og svo var það Skotinn, sem sótti um eftir’aun 45' ára. Hann rökstuddi umsóknina með því, að vegna stríðsins hefði hann elzt um 20 ár. Trdsmiðavm&nstofan Laufásvegi 2A. Selur: Stofu- BORÐ frá kr. 42,00. Eldhússtóla frá kr. 6,00. Bakstóla frá kr. 17,00. Gluggar, hurðir og eldhúsinnréttingar smíðaðar eftir pöntun. Upplýs- ingar á vinnustofunni til ki. 5 og síma 1283 tii kl. 6V2 daglega. Stór verðlækkuH á sykri og eggjum. BEEKKA Símar 1678 og 2148. TJARNARBÚÐIN. Sími 3570. Orðsendfng til kaupenda út um iand. Munið, að Alþýðublaðið á að greiðast fyrirfram ársfjórðungslega. —- Sendið greiðslur yðar á réttum gjalddögum, svo sending blaðsins trufl- ist ekki vegna greiðslufalls. Þeir, sem óska, geta fengið blaðverðið krafið með póstkröfu. JOHN DICKSON CARR: Morðiu I yasiptaíBiBB. vasa sínum og fór að leita í því. í sama bili datt lítill hlutur á gólfið. Það var lítill silfurlykill. Robiquet ætlaði að beygja sig niður til þess að taka hann upp, en Bencolin varð fljótari til. Á lykilinn var grafið: „Paul Demoulin Robiquet“ og „númer 19“. — Þakka yður fyrir, sagði Robiquet. — Nei, svo virðist sem ég hafi ekki bréfið. En ég get náð í það, ef þér óskið þess. Hann leit upp undrandi þegar hann sá, að Bencolin ætlaði ekki strax að fá honum lykilinn. — Afsakið, herra, sagði Bencolin, — ef ég er að hnýsast í leyndarmál yðar. En mér leikur meiri hugur á þessum lykli en bréfinu. Hvar fenguð þér lykilinn? Robiquet varð truflaður á svipinn. — Það getur varla verið, að þér hafði nokkurn áhuga á slíku. Það er leyndarmál. Það er í sambandi við klúbb, sem ég er í. — Grímumannaklúbbinn, er ekki svo? —i Þekkið þér hann? Ég hefi ekki komið í klúbbinn lengi. Þetta má ekki komast í hámæli. Ef yfirmenn mínir komast að þessu getur svo farið, að ég verði sviftur stöðunni. Hann hækkaði röddina. — Kæri, ungi vinur. Verið þér óhræddur. Leyndarmálið er vel geymt hjá mér. Bencolin brosti. Ég hefi aðeins áhuga á þessum félagsskap vegna þess, að þar hafa nýlega gerzt atburðir, sem ekki snerta yður hið minnsta. — Ég vil samt engar upplýsingar gefa. — Hvað hafið þér verið lengi meðlimur? — Um tveggja ára skeið. Ég hefi komið þar alls fimm eða sex sinnum. — Hvað táknar þetta númer á lyklinum? Robiquet skalf. — Herra minn, þér hafið játað sjálfur, að viðburðir þeir, sem hafa vakið athygli yðar 1 sambandi við þsnnan klúbb, komi mér ekki við. Það er leyndarmál. Og ég neita að gefa yður nokkrar upplýsingar. Bencolin hló. — Mér þykir fyrir því, herra, vegna þess, að þar var framið morð í gærkveldi og þar sem við vitum ekki deili á öðrum meðlimum félagsskaparins en yður, þá er okk- ur nauðsynlegur sá kostur, að yfirheyra yður á lögreglustöð- inni. Og þar með er það komið í blöðin. — Morð! æpti Robiquet upp yfir sig. — Hugsið yður hvort blöðunum þætti ekki matur í þessu. Hugsið um framtíð yðar. — En ég hefi ekkert gert af mér. Þér ætlið þó ekki að fara með mig á lögreglustöðina? Bencolin stundi-j — Eins og ég hefi sagt yður, þarf þetta ekki að komast í hámæli. Ég held, að þér séuð ekki á neinn hátt við þetta morðmál riðinn. En þér verðið að svara spurn- ingum mínum. — Hamingjan góða! Ég skal svara öllu. Þegar mesta hræðslan var rokin úr Robiquet, spurði Ben- colin hann aftur um númerið. — í þessum klúbb eru nákvæmlega fimmtíu karlmenn og fimmtíu konur. Allir meðlimirnir hafa herbergi, stór eða lítil. Mitt herbergi er númer 19. En hver var myrtur? — Ó, það skiptir ekki máli, sagði Bencolin. Ég minntist nú orða Galants við Ginu Prévost; „Við hittumst í númer 18.“ —• Þér hafið sagt mér, að þér hafið verið meðlimur í tvö ár. Hver kom yður í klúbbinn? — Það sakar ekki, þó að ég segi yður það. Það var Julien D’Arbalay, kappakstursmaður, þér kannist við hann. Það fór illa fyrir honum. Hann lézt af slysförum í Ameríku síðast- liðið ár. Vagninn hans valt við Sheepshead Bay. — Það var leiðinlegt!! Hversu margir af vinum yðar eru meðlimir þessa klúbbs? — Herra minn, þér megið trúa mér. Ég veit það ekki. Þarna bera allir grímur. En ég hefi verið að hugsa um það, hvort einhverjir af minni eigin fjölskyldu væru meðlimir klúbbsins. — Þér hafið aldrei séð neinn þarna, sem þér þekktuð? — Ég hefi svo sjaldan komið þangað. En ég hefi frétt, að þeir, sem fyrir þessu standa, hafi með sér sérstakt félag. og að það sé kona, sem sér um að útvega nýja meðlimi. En ég þekki hana ekki. Nú var þögn stundarkorn. Bencolin drap fingrunum á borð- plötuna. — Jæja, herra minn, ég skal segja yður, hvað ég tek fyrir að þegja yfir þessu máli. Þér verðið að lána mér þennan lykil. — Gerið þér svo vel. — Ég þarf aðeins að hafa hann í örfáa daga. Svo skal ég skila honum. En meðal annarra orða. Er herbergi númer 19 beint á móti númer 18, eða við hliðina á því? Robiquet hugsaði sig um. Það hefi ég nú reyndar ekki at-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.