Alþýðublaðið - 15.01.1940, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 15.01.1940, Blaðsíða 4
jspr 1ÁNTJDAGUR 15. JAN. 1940. HGAMLA BÍÓB Böflnn frá Brlmstone Amerísk stórmynd frá land'námstíð Norður-Ame- rBoj. A'ðalklutverkin leika: WALLACE BEERY, Lewis Stone Dennls 0‘Keefe o. fl. Börn fá ekki aðgang. 1. O. G. T. ÞINGSTÚKUFUNDUR í kvöld kl. Skipulagsskráin, um- ræður og atkvæðagreiðsla. Ferðafélag Islands heldur ■s'tiemmtifund aö Hötel Borg á þriðjudagskvöldið 16. þ. m. Aðalsteinn Sigmundsson kennari flytur fyrirlestur um Færeyjarog sýnir skuggamynöir. Dansað til k.U 1. Aðgöngumiðar á morgun í bókaverzlun Sigfúsar Eymunds- sonar og ísafoldarprentsmiðju. Hitel Bori Gildaskálinn opinn í kvold. «■■■!■ .... 1 -- pAGSBRÚNARKOSNINGARNAR Frh. af 1. siðu. ekki svik við verkalýðinn að njóta stuðnings þessara verka- manna. Alþýðuflokksverkamenn hafa ekki á nokkurn hátt gengið blindandi til þessarar sam- vinnu. Þeir telja meira virði að stcypa hinni kommúnistisku ó- stjórn, sem ríkt hefir í Dags- brún, en pólitískur ágreining- ur, sem er og verið hefir milli Alþýðuflokksins og Sjálf- stæðisflokksins innan félags- ins. Þeir telja aðalatriðið að kippa Dagsbrún út úr klofn- ingssambandi kommúnista og láta þetta stærsta félag innan íslenzkra alþýðusamtaka hætta að vera tæki í höndum þeirra áróðursmanna, sem reka hér er- iiidi erlendra einræðisherra, sem hóta nú öllum Norðurlönd- um kúgun — og eyðileggingu hinna voldugu verkalýðssam- taka, sem verkalýður þessara landa hefir byggt upp og notað til að skapa sér betri kjör Verkamenn í Reykjavík! Nú er tækifæri til að svifta komm- únista völdum í verkamannafé- laginu. Þvoið þá smán af ykk- ur, að kommúnistar fari með stjórn í félagsskap ykkar. Fylk- iö ykkur einhuga saman ’og gerið sigur B-listans sem allra glæsilegastan. Pöstferóir á morgun. Frá Reykjavík: Moisfellssveitar-, Kjalamess-, ölfuss- og Flóapóst- ar, Hafnarfjör&ur, Borgarnes, Akranes, DalasýslupóstUT, Húna- yatnssýslupóstur, Austur-Barða- strandasýslupóstur, Skagafjarðar- sýsliupóstur, Strandasýslupóstur. Tíl Reykjavikur: Mosfellssveitar-, Kjalarness-, Reykjaness-, ölfuss- og Flóapóstar, Laugarvatin, Hafn- arfjörður, Akranes, Rangárvalla- val lasýshipóstur, Vestur-Skafta- fellssýslupóstur. Útbreiðið Alþýðublaðið! OðDOormuriDn i fjðr- veitinganefnð. AÞVí HERRANS ÁRI, sem hinar alkunnu Alþingisrím- Ur komu fram í dagsbirtuna, var svo til orða tekið í einni vísu, að þingmaður nokkur hefði spýtt eiturormum. Líklega hefir sá ormur verið í ætt við þann, er þingmenn segja, að nú hafi fæðst í fjárveitinganefndinni. Það er nú ekki tilgangur minn með þessium línum að gera hann allan að um- talsefni. Það er sérstaklega einn liiöur í honum, sem snýr að okk- ur vegagerðarmönnum. Sá liður er svo meingallaður og illkvittn- islegur, að ég sem vegagerðar- maður get ekki látið honum ó- mótmælt. 1 samningi milli ríkisstjómar- innar og Alþýðusambands is- lands frá 16. maí 1935 stendur, að verkamenn fái um hélgar ó- keypis flutning til og frá nœsta kaupstað, þar sem bifreiðum verði við komið. Þetta um helg- ar er auðvitað nokkuð loðið 'Og hefir aldrei átt að koma til greina fyrir menn að siunnan, sem vinna fyrir austan Hellisheiði, heldur hefir sú venja verið, að þeir fengju slíkan flutning um aðra- hvora helgi. Svo 'kemur höggormurinn með sínar villukenningar og segir, að sú venja hafi verið tekin upp á nokkrum stöðum í sveit við vinnu þess opinbem, að menn hætti vinnu á hverjum laugardegi um hádegi (engin undantekning), fái fullt kaup fyrir daginn og séu þar að auki fluttir á bílum fyrir rikisfé (ekki nefnt hvert, gætí verið upp á Hveravelli eða Kerlingarfjöll eða hver veit hvað) Ég hefí alls verið í vegavinnu í 14 ár að sumrinu til og viður- kenni, að verkamenn hafa ólikt meiri hlunnindi nú í seinni tíð. En þakklátur er ég ekki þeim herrum, sem vilja ræna okkur þeim. Ég veit, að við vegagerð- armenn erum þama hafðir á milli tannanna, þó ekki sé það hrein- skilnislega tekið frarn. Ég álít, að þarna sé jafnframt dróttað að yfirmönnum okkar ótrú- mennsku, þar sem við fáum auð- vitað hjá þeim leyfi til að hætta vinnu alla laugardága um hádegi, og fáum þó fullt 'klaup. En í þessum orðum liggur áugsýnilega sú meining, að þeir borgi ofckur kaup fyrir enga vinnu. Ef svo kallaðir æðri starfsmenn ríkisins hefðu aðra eins trú- mennsku tíl að bera við sín störf eins og vegageröarmenn og yfir- menn þeirra, sem hér er átt við, hafa, þá væri margt öðru vísi en það er. Ég endurtek það fyrir lesend- um, sem ég vona að fái að sjá þetta þakkarávarp, að al'drei hefir það komið fyrir, að vega- vimnumenn austan fjalls hafi ver- ið látnir hætta vinnu um hádegi alla laugardaga, en oftast annan- hvem, stöku sinnum þriðjahvern faugardag og t -d. á hálfum mán- uði höfum víð gert það með glöðu geði, að vinna það marga hálftíma fram yfir til þess að kvdtta þá tíma, sem við eigum eftír frá hádegi heimfarardaginn. Þeim væri nær þessum háu herrum, sem allt af eru að gramsa í fé ríkisins, að fleygja því ekki eins ótakmarkað út fyrir enga vinnu eins og oft hefir verið gert- Það er hent á hverju ári fleiri hundruðum þúsunda fyrir mjög litla vinnu, iklakahögg oe því um líkt. Ef það er að fara vel með ríkisfé, þá þurfum við vegager'ðarmenn ekki að bera kinnroða, þótt vlð hættum annan- hvem laugardag eftir 120 tíma „töm“ og stígum upp í bíl, þó rikið borgi eins og um er samið. En meðal annara orða: Gæti Tveir hæstaréttar- déiar í morgun. T MORGUN voru kveðnir upp tveir dómar í hæsta- rétti: Valdstjórnin gegn Berent Karli Berentssyni fyrir óleyfi- lega áfengissölu og valdstjórn- in gegn Þorsíeini Guðmunds- syni fyrir að aka bíl ölvaður. Var Berent Karl Berentsson dæmdur í fangelsi við venju- legt fangaviðurværi í 20 daga og 1000 króna sekt til Menn- ingarsjóðs. Þorsteinn Guðmundsson var dæmdur í 100 króna sekt til rík- issjóðs og vár ennfremur svipt- ekki þingsetutíminn verið styttri en hann er fariinn að verða? Er unnið þar af trú og dyggð? Oft er þó einhver fjarverandi við at- kvæðagreiðslur. Það virðist vera syndlaust að skrópa þar. Það er ekki að sjá, að þörf sé að spara fé ríkiisins þar. Frá því ég var barn hefi ég heyrt talað um hinn óheyrilega og óskiljanlega ferða- kostnað, sem þingmenn fái. Svo ráðast sumir þessir herrar á okk- ur vegagerðarmenn, sem fáum íynir náð að vinna 12—14 vik- ur um miðsumarið fyrir rúmar 40 kr. á vi'ku, að frá dregnum til- kostnaöi, og er þetta helmingur árstekna hjá flestum. Það er ekki að furða, þó að slilkir legátar sjái ofsjónum yfir þessari bílkeyrslu á 'Okkur og vilji ræna okkur þeim h'lunnindum, sem Alþýðusam- bandið hefir barizt fyrir, að við fengjum. En hvað er höggormurinn að vor'kenna þeim, sem vinna sveita- vinnu? Því, sem höfundar högg- ormsins segja að öðru leyti um þau fríðindi, sem við vegamenn fáum um helgar, þarf ég ekki að svara, en veit, að sveitamiönnum pr fremur til manna, sem (laga vegi’na. Svo vita þeir mikið betur en höfundur högg- ormsins um okkar vinnuaðferð. Illgirninni í garð sjómanna vona ég að verði verklega svar- að af þeim sjólfum. Það mætti svo sem leggjast niður sá tý- rannaháttuT, sem gilt hefir, áó menn væru reknir út í sjó idaginn fyrir stórhátíðir af ómerkilegum rei’öurum. Allir fiskimenn ættu að vera inni á stórhátíðum. Vegageröarmaóur. I Borg amesi varð afarmi'kil uppskera aí kartöflum síðast liðið haust, enda spretta kartöflur þar yfirleitt mjög vel. Skorti mjög geymslu- stað fyrir uppskeruna og réðust því 43 þorpsbúar í að stofna með sér féjag, til þess að bæta úr þeim vandræðum. Félagið heitir Matjurtageyms'Ia Borgar- ness H/F og skipa stjórn þess þeir Jónas Gunnlaugsson, Bjarni Jónsson og Jón Guðjónsson. — Þegar sláturtíð var lokið í haust hófust þeir handa og reistu geymsluhús, 15 metra laugt og 5,60 metra breitt. Eftir miðju húsisins er 80 sentímetra breiður gan'gur og stíur til beggja handa, 30 að itölu. Húsið er gert úr grjóti og torfi og þakið tyrft á járn. Stoðir állar og sperrur eru hinar traustustu. FO. Kvennadeild Slysavarnafélagsins heldur fund í Oddféllowhúsiniu í ikvöld. Á fundinum verða rædd ýms fé- lagsmál. Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík heldur fund í kvöld kl. 8,30 í Kaupþingssaln- um. Á dagskrá fundarins er m. a.: Kosning 1 stjórn Styrktar- sjóðs verkalýðsfélaganna. f DAfi Nætuii-aeknir er Páll Sigurðsson Hávallagötu 15, sím-i 4959. Næturvörður er í Laugavegs- og Ingólfsapóteki. ÚTVARPIÐ: • 19,20 Þingfréttir. 19.50 Fréttir. 20,15 Um daginn og veginn (V. Þ. G.). 20.50 Kvennaþáttur: Hnossið mesta (frú Aðalbjörg Sig- urðardóttir). 21,10 Útvarpshljómsveitin: Þjóð- lög frá Tyrol. — Einsöng- ur (frú Elísabet Einarsdótt- ir): a) Sveinbj. Sveinbj.: Húldumál. b) Sigv. Kalda lóns: Máninn. c) Sig. Þórð- arson: Mamrna. d) A. Tate: Þjóðvísa. e) Bjöigvin Unð- mundsson: Þey þei 04 ró ró. 21.50 Fréttór. HOLLAND OG BELGIA Frh. af 1. síðu. Þjóðverjar hafa nú viðurkennt að hafi átt sér stað. Franskar flugvélar hafa farið inn yfir Vestur- og Mið-Þýzkaland og þýzkar inn yfir Norður-Frakk- land! Það vekur mikla athygli, að skyndilega núna um helgina var öllum heimferðarleyfum í franska hernum frestað. Virðist allt benda til þess, að bandamenn búizt við því að Þjóðverjar muni á næstu dög- um hefja sókn, hvort sem hún verður á vesturvígstöðvunum eða að þeir ráðist samtímis inn yfir landamæri Hollands og Belgíu. Flogferðin til Prao og yinarborgar. •í FÚ-skeytum segir um flug- ferðir Breta til Prag og Vínar- borgar; Þjóðverjar hafa orðið að viðurkenna, að brezkir flug- menn hafi flogið yfir Prag og Vínarborg. En í fyrstu fregnum var skopast að brezku flug- mönnunum og sagt, að þeir hefði verið nálægt Bretlandi, er þeir hugðu sig yfir Prag og Vín. Nú hefir hin opinbera þýzka fréttastofa viðurkennt, að þessar könnunarflugferðir hafi átt sér stað, en reyndi að draga úr afrekinu með því að segja, að þær væri ekki hættulegar. í þýzkum athuganastöðvum var fylgst nákvæmlega með þessu flugi, segir í dilkynningunni. í London er leidd athygli að því, að brezku flugmennirnir sögðu, að hvergi hefði verið hleypt af skoti á þá. í brezkum blöðum er látin í ljós mikil aðdáun á brezku flugmönnunum, sem tóku þátt 1 könnunarflugferðinni miklu til Prag og Vínarborgar. Birta blöðin langar frásagnir af könn- unarfluginu. Flugvélarnar, sem flugu yfir Vínarborg flugu einnig yfir Linz og Frankfurt og það var þar, sem kastljósum var beint að flugvélunum, en þeim tókst að forðast þau, nema einni flugvél, en það kom þó ekki að sök, því að hún komst leiðar sinnar heilu og höldnu, sem hinar. Flugvélarnar, sem flugu yfir Prag, flugu líka til Bratis- lava, Nurnberg og Munchen. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins Bófinn frá Brimstone heitir myndin á Gamla Bíó. AðaLhlutverkið leika Wallace Beery, Dennis 0‘Keefe og Lewis Stone. Verðlækkm: Dömutöskur, leður, kr. 10,00 Bamatöskur — 1,00 Handsápa, Emol — 0,50 Violetta — 0,50 — Palmemol — 0,50 Kartöfluföt með loki — 2,75 Desertdiskar — 0,35 Ávaxtadiskar — 0,35 Áleggsföt — 0,50 Shirl. Temple Broshýr — 1,50 Smábamasögur — 0,40 Sjálfblekungar — 1,50 R. Emarsson & BJðriisson Bankastræti 11. NYiA BIO I RAMÓNA Tilkomumikil og fögur amerísk kvikmynd frá FOX, öll tekin í eðlilegum litum í undursamlegrí náttúrufegurð víðs vegar í Californiu. — Aðalhlut- verkin leika: Loretta Young, Don Ameche, Kent Taylor og Pauline Frederick. FULLTRÚARÁÐ VERKLÝÐSFÉLAGANNA: ’ " F verður haldinn í kvöld, mánudaginn 15. janúar kl. 8V2 í Kaupþingssalnum. FUNDAREFNI: 1. Samþykkt reikninga. 2. Kosníng í stjórn Styrktarsjóðs sjómanna og verkamannafélaganna í Reykjavík. 3. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurbæjar. Stjórnin. Lelkskéli Soffín CfuGlangsðéttnr. Nýir umsækjendur verða nú aftur teknir til reynslu. Nánari upplýsingar hjá SOFFÍU GUÐLAUGSDÓTTUR, Kirkjustræti 10. Sími 3361. Kaupum tómar SlSskur eg glos Baæcta verði. Iáti5 sendlana taka það þcg- ar peir koma með vorter til yðar eða hringið í búðirnar og látið sækija þ»r. iQlkaupfélaqíd PaasbrHnarmenn! Kosnlngaskriísiofa Al- pýðBflobksverkamaiiBa er i AlþýðnhásÍBB^ið. hæð. Sfml 5020. Opin klukkan 10 —10 dagloga. Konið pangað til viðtals!

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.