Alþýðublaðið - 23.01.1940, Side 4
WUÐIDDAQn 23. ]AN. 1M0.
■ GAMLA BIÖWI
ValsakóngsriBD
JÓHANN STRAUSS
Amerísk kvikmynd um
tónskáldið fræga og hina
ódauðlegu valsa hans. —
Aðalhlutverkin leika:
LUISE RAINER,
FERNAND GRAVEY
og MILIZA KORJUS
Útbreiðið Alþýðublaðið!
ALÞJÓÐASAMBAND KOMMÚN-
ISTA
Frh. af 1. síðu.
arlaust teknir fastir, þegar
þangað kom, píndir til sagna og
síðan drekkt. En sovétstjórnin
hélt þrátt fyrir það áfram að
halda sitt góða samkomulag við
stjóm Tyrkja.
*
Tvískinnungurinn í afstöðu
Rússlands kom greinilegast
fram í Þýzka'andi árið 1923,
þegar alþjóðasamband komm-
únista undirbjó vopnaða upp-
reisn þar í landi, en rauði her-
inn sendi á iaun vopn til þýzka
ríkisvamarliðsins, sem stóð sem
múrveggur á móti öllum upp-
reisnarfyrirœtlunum kommún-
ista. Á því ári var það, að Rad-
ek, erindreki alþjóðsambands
kommúnista kom með sitt
fræga tilboð til þýzku naz-
istanna, árið eftir að Hitler
gerði fyrstu uppreisn sína, um
að vinna saman á móti þýzka
lýðræðinu og Vestur-Evrópu-
ríkjunum, Englandi og Frakk-
landi. Það er engin tilviljun, að
Radek er eini þekkti gamli
kommúnistinn í Rússlandi, sem
ennþó lifir, auk Stalins. Samn-
ingauxnieitanir voru hafnar
meðal annars við hinn æsta
þýzka nazista Reventlow
greifa, en allur þorri nazista
þakkaði fyrír gott boð, þangað
til Hitler þurfti á Stalin að
halda í stríösbyrjun í haust.
Radek sagði fyrir sautján ár-
um: Hvaða leið eiga þessir
ungu menn, nazistamir, að fara?
Það eru aðeins tvær leiðir til
fyrir Þýzkaland: Með Rússlandi
á móti Frakklandi, eða með
Frakklandi á móti Rússlandi.
Ef Þýzkaland velur liinn síðari
veginn, þá eru allar hinar þjóð-
legu hugsjónir þýzkra nazista
tóm glamuryrði. Því aðeins get-
ur þýzki nazisminn vænt sér
einhvers árangurs af viðleitni
sinni, að hann taki hondum
saman við Rússland. Radek
grunaði það ekki fyrir sautján
árum, að rússneski kommún-
isminn og þýzki nazisminn ættu
eftir að taka höndum saman,
eftir að báðir væru búnir að
bregðasi sinni upprunalegu yf-
irlýstu stefnu, og hugsjónamenn
þeirra, að honum einum und-
anskildum, komnir undir græna
torfu af því að þeír voru í vegi
fyrir valdadraumum einræðis-
herranna.
❖
Bók Borkenaus um alþjóða-
samband kommúnista er ákaf-
íega lærdómsrík. Höfundurinn
skrifar um starfsemi þess eins
og maður, sem ekki aðeins hefir
hugsað hana, heldur og lifað,
eins og kunnugt er. Og hann
byggir dóma sína á víðtækri
þekkingu, að vísu ekki á svo
hlægilegum þætti þessarar á-
róðursstarfsemi eins og íslandi
— það kemur ekki fyrir í bók-
inni frekar en á alþjóðaþingum
kommúnista — enda þótt þeir
I. O. 6. T.
ST. EININGIN nr. 14. Fundur
annað kvöld kl. 8V2. Skipu-
lagsskráin til umræðu og at-
kvæðagreiðslu. Spilakvöld. Fé-
lagar fjölmennið. Æt.
ÍÞAKA í kvöld kl. 8V2. Upp-
taka nýrra félaga. Erindi.
Fjölmennið.
Sólríkt steinsteypt hornhús
með öllum þægindum til sölu,
stutt frá háskólalóðinni. Útsýni
fallegt. Einnig fleiri hús, stór
og smá. Jón Magnússon, Njáls-
götu 13 B, heima kl. 6—10
síðd. Sími 2252.
LAUNAUPPBÓT OPINBERRA
STARFSMANNA
Frh! af 1. síðu.
kvæmda áður en alþingi kæmi
saman aftur. En nú virðist ríkis-
stjórnin hafa fallið frá því, þar
sem lfltur benda til þess, að mál-
ið verði látið bíða afgreiðslu
þingsins.
Opinberir starfsmenn eiga rétt
á launauppbót nú þegar, en það
má að vísu segja, að meðan engu
er breytt um dagstyrk til styrk-
þega eða uppbætur á styrkjum
gamalmenna og öryrkja, þá geti
ríkisstjórnin haldið við afstöðu
þá, sem hún hefir tekið nú. Þó
að það út af fyrir sig réttlæti
hana alls ekki.
FINNLAND
Frh. af 1. síðu.
handa eykst og hjálparsjóðirnir
í Svíþjóð eru komnir upp 1
600 000 stpd,
Bílstjórar í Oslo ætla að gefa
hluta af tekjum sínmu næstu
3 daga til Finnlands og kana-
diska þingið hefir samþykkt að
veita Finnum 100 000 dollara
lán til matvælakaupa.
Hjálparsjóðurinn í Bandaríkj-
unum er kominn upp í 1 milljón
dollara.
Helmsöbn hjá sænsku
sjálfbeðallðnnnm.
Fréttaritari brezka útvarps-
ins í Finnlandi, brezkur maður,
sendur þangað til þess að skýra
frá styrjöldinni, hefir sagt frá
sænsku sjálfboðaliðunum, sem
hann hefir heimsótt og talað
við.
Sænskur herdeildarforingi
sagði honum, að meðal sjálf-
boðaliðanna væri æfintýramenn
og hugsjónamenn, en allir hefðu
sannfærzt um, að þeim bæri
skylda til að hjálpa Finnum, og
að með því væri þeir að hjálpa
sinni eigin þjóð.
Sagði herdeildarforinginn, að
hann skyldi ekki verða neitt
hissa á því, þótt hann rækist á
menn, sem hefðu barizt á Spáni,
sumir með Franco, hinir með
lýðveldisst j órninni.
Dóttir póstafgreiðslumannsins
heiíir frönsk kvikmynd, sem
Nýja B!ó sýnir i kvöld. Er hún
gerð eftir samnefndri sögu eftir
rússneska skáldið Alexander
Puschkin. Aðalhlutverkin leika
Harry, Bauer, Jeanine Crispin,
Georges Rigaud 0. fl.
Valsakðngurinn
heitir myndin, sem Gamla Bíó
sýnir núna. Er hún um hið
fræga tónskáld Jóhann Strauss.
Aðalhlutverkin leika Luise Rain-
er, Fernand Gravey og pólska
söngkonan Miliza Korjus.
Brynjólfur og Einar virðist í
einfeldni sinni halda, að heims-
byltingin geti byrjað hér.
ÚtbreiðslnfnDdur
góðtemplara á Tatns-
ieysnströnd og í
firindavík.
UTBREIÐSLUFUND að
Kirkjuhvoli á Vatnsleysu-
strönd héldu st. Ströndin og st.
Verðandi í Reykjavík sunnu-
daginn þ. 21. þ. m. kl. 3 e: h:
Fundinum stjórnaði æðsti-
templar st. Verðandi, Þorsteinn
J. Sigurðsson kaupmaður. Á-
varpaði hann fundarmenn og
sýndi fram á þá þjóðarnauðsyn,
að góðir menn og konur yrðu
sammála og samtaka um að
vinna bindindismálinu allt það
gagn, sem verða mætti.
Þá tók til máls hr. Árni Óla
blaðamaður og talaði um siða-
starf Goodtemplarareglunnar,
um þann kyngikraft, sem því
fylgdi. Var ræða hans bæði
fróðleg og áhrifarík. Þá flutti
ræðu hr. Pétur Zóphóníasson
fulltrúi og talaði um þá fræðslu
og menningu, sem menn verða
aðnjótandi við að gerast Good-
templarar. Var ræða hans rök-
studd að vanda, og vel flutt.
Næstur talaði hr. Pétur Sig-
urðsson erindreki. Ræddi hann
um skýrslur stórþjóðanna um
hinar margvíslegu og sorglegu
afleiðingar áfengisnautnarinn-
ar. Gerði ræðumaður eftirtekt-
arverðan samanburð á mann-
tjóni stórþjóðanna í ófriði, og
komst að þeirri rökstuddu nið-
urstöðu, að manntjón og efna-
tjón þjóðanna er miklu meira af
áfengisbölinu.
Æðstitemplar st. Ströndin,
Viktoría Guðmundsdóttir
kennslukona, ávarpaði Good-
templarana frá Reykjavík og
aðra fundarmenn, þakkaði þeim
fyrir að hafa fjölmennt á fund-
inn og þannig að veita bindind-
ismálinu lið. Þá tók til máls hr.
Guðjón Jónsson bryti. Sagðist
honum vel, er hann eggjaði
unga fólkið á að gerast bind-
indismenn án tafar.
Hr. Sveinn Pálsson umboðs-
maður stórtemplars í st. Strönd-
in skoraði á menn og konur á
Vatnsleysuströnd að styðja
starfsemi Góðtemplarareglunn-
ar, sem hefir forustu bindindis-
starfseminnar í landinu.
Fundurinn var fjölsóttur og
fór hið prýðilegasta fram, og er
st. Verðandi. og st. Ströndin til
sóma.
Til Grindavíkur var síðan
haldið sem leið liggur. Er þang-
að kom, stóð fyrir móttökum
hinn þjóðkunni ágætismaður,
Sigvaldi S. Kaldalóns, héraðs-
læknir og tónskáld. Var síðan
gengið til hins myndarlega
fundarhúss, og settur út-
breiðslufundur, er st. Járngerð-
ur og st. Verðandi gengust fyrir
og undirbjuggu. Fundinum
stjórnaði Þorsteinn J. Sigurðs-
son. Ræðumenn voru Árni Óla
blaðamaður, Pétur Zóphonías-
son fulltrúi og hr. Pétur Sig-
urðsson erindreki og Þorsteinn
J. Sigurðsson. Var gerður góður
rómur að ræðum þeirra.
Síðastur talaði hr. Sigvaldi
Kaldalóns læknir. Ávarpaði
hann gesti og aðra fundarmenn
með mikilli hlýju og vinsemd.
og sagðist ágæta vel. Sagði hann
meðal annars frá því, þá er
hann fyrir mörgum áratugum
gjörðist Góðtemplar, og taldi sér
það hina mestu gæfu.
Fundinn sóttu um 200 manns.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
f DAO
Næturlæknir er Gísli Pálsson,
Laugavegi 15, simi 2474.
Næturvörður er i Reykjavíkur-
og Iöunnar-apóteki.
ÚTVARPIÐ:
19,20 Hljómplötur: Söngvar úr
óperettum og tónfilmum.
19,50 Fréttir.
20,15 Vegna stríðsins: Erindi.
20.30 Fræðsluflokkur: Hráefni og
heimsyfirráð, VIII: Bómul)
(Gylfi Þ. Gíslason hagfr.).
20,55 Tónleikar Tónlistarskólans:
Tríó, Op. 1, nr. 3, omoll,
eftir Beethoven.
21.30 Hljómplötur: Píanókonsert
nr. 2, eftir Beethoven.
DAGSBRÚN
Frh. af í. síðu.
HeiðnrsfélaginB byrjar
vel.
Otvarpið birti í gærkveldi yfir-
lýsingu frá Héðni Valdimarssyni
þess ef-nis, að hinn nýi formaður
Dagsbrúnar hefði ekki skýrt rétt
frá Dagsbrúnarkosningumni, þar
sem sagt var, að A-listinn hefði
verið studdur af sameiningar-
flokki alþýðu. Heldur hélt Héðinn
því fram i þessari gagnyfirlýs-
ingu sinni, að A-listinn hafi verið
studdur.af öllum verkamönnum í
Dagsbrún, sem vilji halda við
hina gömlu stefnu félagsins! —
Hvert mannsbarn í bænum veit
það, að málgagn A-listans var
Þjóðviljinn, og það er eitthvað
einkennilegt, ef hann túlkar nú
hina gömlu stefnu Dagsbrúnar.
Má segja, að heiðursfélaginm fari
vel af stað með slíkum söguburði
Um félagið á opinberum vett-
vangi, og er furðulegt, að út-
varpið skuli birta annað eins eftir
honum og það meira að segja at-
hugasemdalaust.
Málfundarflobkur
Alþýðuflokksfélagsins heldur
æfingu annað kvöld kl. 8,30 í
Alþýðuhúsinu, 6. hæð. Áríðandi
að félagar mæti stundvíslega.
Kvenfélag AJþýöuflokbsins
hélt í gærkveldi fjölsóttan
skemmti- og fræðslufund. Er fé-
lagið mjög vel starfandi og mik-
ill áhugi í félagskonum um efl-
ingu félagsins.
Gylfi Þ. Gíslason
hagfræðingur flytur í kvöld í
útvarpið VIII. fyrirlestur sinn í
fyrirlestraflokkinum Hráefni og
heimsyfirráð.
Fermingarböm þessa árs,
bæði vor og haust, geri svo vel
að koma til viðtals í dómkirkjuna
í þessari viku, sem hér segir:
Til séra Bjarna Jónssonar mið-
vikudag, til séra Friðriks Hall-
grímssonar fimmtudag og til séra
Garðars Svavarssonar föstudag,
— alla dagana kl. 5 siðdegis.
Póstferðir 23. jan. 1940.
Frá Reykjavík: Mosfellssveitar-,
Kjalarness-, ölfuss- og Flóapóst-
ar, Hafnarfjörður, Borgames,
Akranes, Húnavatnssýslupóstur,
Skagafjarðarsýslupóstur. — Til
Reykjavíkur: Mosfellssveitar-,
Kjalarness-, ölfuss- og Flóapóst-
ar, Laugarvatn, Hafnarfjörður,
Rangárvallasýslupóstur, Vestur-
Skaftafellssýslupóstur, Akranes.
F.U.J.
Félagsfundur verður haldinn
annað kvöld í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu. Nánar auglýst á
morgun.
nnpAiiTciEiiet
RIHISINS
£
M.s. lelgl
fer frá Reykjavík til Vestmanna-
eyja miðvikudaginn 24. þ. m. kl.
8 síðdegis.
Flutningi sé skilað fyrir kl. 3
sama dag.
Pétnr H. J. Jafeebsson
læknir
opnar í dag lækningastofu
í SUÐURGÖTU 4.
Viðtalstími 2—3.
Sími 4984.
Heimasími 2735.
NÝJA BIÖ ■
Dðttfr péstal'
greiðslumannsins.
Frönsk afburða kvikmynd,
gerð eftir samnefndri sögu
rússneska stórskáldsins
Alexanders Puschkin. Að-
alhlutverkíð ieikur einn af
mestu leiksnillingum nú-
tímans:
HARRY BAUER, ásamt
Jeanine Crispin,
Georges Rigaud 0. fl.
Myndin gerisit í St, Péturs-
borg og í nánd við hana á
keisaratímiinum í Rúss-
landí.
BBrn fá ekki aðgang.
Kynnist franskri kvik-
myndalist.
Fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við undlát og jarðar-
för minnar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu,
Elinborgar Magnúsdóttur,
Egilsgötu 16, þökkum við af alhug og biðjiun guð að blessa ykkur
öll.
Eggert Eggertsson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir,
Guðmundur Jónsson, |
andaðist að heimili sínu, Bergstaðastræti 32 B 23. þ. m.
Jarðarförin auglýst síðar.
Kona, börn og tengdabarn.
Mæðrastyrksnefndin
Nýja Bíó sýnir hina ágætu kvikmynd
Stanley Livingstone
í kvöld kl. 7. — Aðeins þetta eina sinn.
Aðgöngumiðar á 1,00, 1,25 og 1,50 (stúka) í bíóinu frá kl. 5.
Allur ágóði rennur til Mæðrastyrksnefndarinnar.
HANDTAKA ÞJÖÐVERJANNÁ
Frh. af 1. síðu.
stjórnin liti á þennan atburð
sem mjög óvinsamlega fram-
komu gagnvart Japan og áskildi
sér rétt til þess, að krefjast
þess, að mennirnir yrðu aftur
látnir lausir.
Þjóðverjarnir, sem teknir voru
fastir af hinu brezka beitiskipi,
voru allir sjómenn af þýzku
olúxflutningaskipi, komu frá San-
Francisco og ætluðu yfir Japan,
Síbiríu og Rússland til Þýzka-
lands. Þeir voru allir á herskyldu
aldri. Aðrir 30 Þjóðverjar Voru
jum borð i hinu japanska farþega-
skipi, flestir kaupsýslumenn, og
lofaði brezka beitiskipið þeim að
halda áfram leiðar sinnar.
i sanrami við alþjóða-
Iöb, segja Bretar.
Bretar halda því fram, að þeir
hafi verið í sínum fulla rétti sam-
kvæmt alþjóðalögum, að taka
Þjóðverjana fasta, þótt þeir væru
lum borð í hlutlausu skipi. Benda
þeir i því sambandi á þær stað-
reyndir, að Þjóðverjar hafi hvað
eftir annað gert það sama síðan
stríðið hófst. Þannig hefðu þeir
tekið ellefu brezka skipbrotsmenn
höndum um borð í sænsku skipi
í Kattegat snemma í ófriðinum,
og nýlega hefði þýzkt eftirlits-
Bkip í Eystrasalti tekið allmarga
Pólverja 0g meira að segja einn
starfsmann brezku sendisveitar-
innar i Moskva fastan um borð í
1
öðru hlutlausu skipi. Að vísu
hefði sendisveitarstarfsmaðurinn
verið látinn laus aftur stöðu
sinnar vegna, en Pólverjamir og
brezku skípbro '.smennímir á hinu
sænska skipi hefðu verið fíuttir
sem fangar tl Þýzkalands.
Kenst sklpshStniB af
„Colnmbns“ ehUheim?
Skipstjórinn á „Assama Maru“
segir, að skipherra hins brezka
beitiskips hafi komið mjög kurt-
eislega fram, og hann hefði ekki
séð neina ástæðu til þess að
sýna nokkurn mótþróa. Fulltrúi
frá útgerðarfélagi því, sem á
„Assama Mam“, hefir lýst því
yfir, að það sé mjög vafasamt,
að skip félagsins flytji fleiri
Þjóðverja frá Ameríku til Japan
áleiðis til Þýzkalands. Það er því
talið ólíklegt, að skipshöfnin af
þýzka hafskipinu „Columbus",
sem sökkt var af henni sjálfri, og
nú bíður þess í San Francisco
að komast heim yfir Japan, takist
að fá far.
Útbreiðið Alþýðublaðið!