Alþýðublaðið - 07.02.1940, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBR. 1940.
@GAMLA BÍÚ
Veiðimenn
í Norðnrböfum.
(Spawn of the North).
Stórfengleg amerísk kvik-
mynd. er gerist meðal lax-
veiöimanna i hinu fagra
og hrikalega Alaska.
Aðalhlutverkin leika:
Henri Fonda,
Dorothy Lamour og
George Raft.
I
I* 0» ©• T.
ST. FRÓN nr. 227. Fundur annað
kvöld kl. 8. Dagskrá: 1. Upp-
taka nýrra félaga. 2. Kosning
embættismanna. 3. Ársfjór'ö-
ungsskýrslur embættismanna
og nefnda. 4. Vigsla embættis-
manna. 5. skipun nefnda. 6.
Kosning kjörmanna. Hagskrá:
a) Einleikur á píanó. b) Tví-
söngur. — Að loknum fundi
hefst kynningarkvöld, undir
stjóm hagnefndar. Félagar eru
beðnir að taka með sér spil
og tafl. — Reglufélagar, fjöl-
mennið og mætið annað kvöld
kl. 8 stundvíslega.
Nýtt kjöt.
Saltkjöt.
Kjötfars.
Fiskfars.
Pylsur.
Bjúgu.
Tólg.
Kæfa o. fl..
BRAGI
Kjöt & nýlenduvöruverzlun.
Bergstaðastr-. 15. Sími 4931.
fiótel Bjðrntnn
f kviild
Öskudagsfagnaður
með nýjum öskupokadans.
Hr. Daníel Berg-
mann skemmtir.
Dr'engjaföt, matrosföt, jakka-
föt, frakkar, skíðaföt. Sparta,
Laugavegi 10, sími 3094.
Poul Ammendrup klæðskeri,
Grettisgötu 2, hornið við Klapp-
arstig, sími 3311. Saumar, hreins-
ar og pressar. Breytir og gerir
við karlmannaföt. 1. flokks vinna.
Sanngjarnt verð. Efni fyrirliggj-
andi. Tek efni í saum.
Skemmtifund
heldur K. R. annað kvöld kl.
8V2 í Oddfellowhúsinu. Til
skemmtunar verður m. a. K. J.-
B. S.-kvartettinn syngur nokkur
lög. Sýnd nýjasta kvikmynd
J. S. J. frá knattspymukeppninrii
o. fl. í sumar sem leið. Þá verða
einnig afhent verðlaun fyrir
keppni í frjálsum íþróttum og
knattspyrnu. Að lokum verður
'dans stiginn. Knattspyrnunefndin
sér um fundinrí, og er hann að-
eins fyrir K.R.inga.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
a—»-•
f DA
FJALLA-EYVINDUR.
Frh. af 3. síðu.
þess, er fyrir þá ber, því þeir
vita, að þó það sé áreiðanleg
hugsunarvissa sjálfra þeirra,
getur það ekkert almennt g'ildi
haft. *
Ég held að þeir, sem fella sig
þezt við hið venjulega niður-
lag, hafi annað viðhorf til lífs-
ins en ég. Ég held að þeir hafi
ekki komið auga á, að það geti
ekki verið bundið við hin fáu ár
holdsins ein. Þeim hlýtur því
að sýnast lífið vera gripur, sem
sjálfsagt sé að farga, ef það sé
mönum óþægilegt. Þess vegna
sé og hvarf Höllu og Eyvindar
út í hríðina bezta lausnin á ó-
lánsæfi þeirra. Og svo kemur
hitt, að sú lausn er auðvitað
meira „thrilling“, eins og Bret-
ar kalla það, en allir menn,
bæði ég og aðrir, hafa mikla
hrollhneigð.
Karl ísfeld og ég erum þarna
á öndverðum meiði, en við það
er ekkert merkilegt, því hvers
vegna eiga menn alltaf að vera
sammála? Hann ályktar lauk-
rétt út frá sinni lífsskoðun, ég
út frá minni, og þá ekki eftir
annað en að finna, hvor lífs-
skoðunin sé réttari, en það held
ég hvorugur okkar geri, nema
fyrir sjálfan sig.
Ég held, að niðurlag það, er
Sig. Nordal hefir mælt með,
sé það hið betra, en bæði eru
skærin góð.
Bellmannshljómleih-
ar Karlakórs iðnað-
armanna.
¥/' ARLAKÓR iönaðarmanna
hélt upp á 200 ára afmæli
sænska skáldsins og söngvarains
Bellmanns með samsöng í Gamla
Bíó á sunnudaginn var. Var söng-
skráin eingöngu skipuð Bell-
mannssöngvum, og það sýnir
bæði vinsældir Bellmanns og
Karlakórs iðnaðarmanna, að
húsiö var svo að segja fullskipað,
en það er orðið sjaldan, þegar
um söngskemmtanir er að ræða
hér nú orðið.
Söngurinn tókst vel, og voru á-
heyrendur stórhrifnir yfir túlkun
kórsins á þessum vinsælu sænsku
söngvum. Hefir söngstjóranum,
Páli Halldórssyni og söngmönn-
Unum með þessari söngskemmtun
tekizt að ná ágætum árangri. —
Carl BiIIich var við hljóðfærið.
Áður en söngurinn hófst flutti
aóalræðismaður Svía, Otto Jo-
hannsson, ágætt erindi um Bell-
mann og þýðingu hans fyrir
sænskt þjóðlíf, en hún hefir orðið
geysimikil.
Karlakór iðnaðarmanna mun
hafa ákveðið að endurtaka kon-
sertinn aftur á föstudagskvöld.
Næturlæknir er í nótt Axel
Blöndal, Eiríksgötu 31, sími 3951.
Næturverðir eru i nótt í
Reykjavíkurapóteki og Iðunni.
Næturvarzla bifreiða er í nótt
hjá Steindóri.
OTVARPIÐ:
18.15 íslenzkukennsla, 1. fl.
18,40 Þýzkukennsla, 2. fl.
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Hljómplötur: Sönglög eftir
Hugo Wolf.
19.50 Fréttir.
20.15 Föstumessa í fríkirkjunni
(séra Árni Sigurðsson).
21.15 tJtvarpssagan: „Ljósið, sem
hvarf", eftir Kipling.
21.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Málfundaflokkur
Alþýðuflokksfélagsins heldur
æfingu í Alþýðuhúsinu, 6. hæð,
í kvöld kl. 8,30,
Starfsstúlknafélagið „Sókn“
heldur öskudagsfagnað í AI-
þýðuhúsinu í kvöld kl. 9. Verð-
Ur þar margt til skemmtunar,
svo sem: Erindi frá 'Genf og
skuggamyndir til skýringar, flutt
af Oddnýju Guðmundsdóttur.
Söngkór félagsins syngur nokkur
lög, listdans: nemendur frá Rig-
mor Hanson, og að lokum verður
dans stiginn fram eftir nóttu.
Guðbr. Jónsson.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
Enn ern tíl atvinnnrebendnr, sem
neita að semja við verbafólk.
------^—----
Deilumál milli starfsstúlkna á kaffihús-
um og atvinnurekenda hefir verið sent
til sáttasemjara.
fj AÐ virðist svo sem enn
sé ekki þrátt fyrir allt
búið að kenna atvinnurek-
endum í landinu siðlega
framkomu gegn verkafólki
og samtökum þess.
Það er ótrúlegt, en samt er
það satt, að enn 'eru til atvinnu-
rekendur, sem neita að tala við
samtök verkafólks. — Þykjast
þessir atvinnurekendur að lík-
indum svo hátt yfir starfsfólkið
hafnir, að þeir tapi einhverju af
virðingu sinni við það að setj-
ast að sama samningsborði og
það.
Eins og kunnugt er, var stofn-
'að hér í haust félag starfsslulkna
á veitingahúsum og skipum. Hef-
ir félagið eflst mjög síðan það
var stofnað og telur nú flestar
þessara starfsstúlkna.
Félagið hóf strax starf í þá átt
að bæta kjör meðlima sinna, og
fól það Alþýðusambandi íslands
að fara með samningana fyrir
sína hönd. Alþýðusambandið rit-
aði síðan nokkrum helztu at-
vinnurekendum bréf og fór fram
á það, að þeir tækju upp samn-
inga við það.
Nokkrir atvinnurekendanna
svöruðu bréfi Alþýðusambandsins
sameiginlega, og stendur meðal
annars í þvx eftirfarandi sígilda
klausa, sem verkalýðsfélögin, þau
sem eldri eru, þekkja svo vel frá
fyrstu baráttuárum sínuin:
Klausan er svona:
„. . . Höfum vér athugað mál
þetta nokkuð og rætt það inn-
byrðis, en að svo stöddu sjáum
vér oss eigi fært að hefja um-
ræður um samninga, enda er
oss feigi kunnugt um, að nokkur
óánægja sé ríkjandi hjá stúlk-
um þeim, er hjá oss vinna.“
Það er óþarli á þessu stígi
málsins að birta nöfn þeirra at-
vinnurekenda, sem bera ábyrgð
á þessari klausu, en það er rétt
að benda þessum háu herrum á
það, að samkvæmt hinum nýju
lögum uin stéttarfélög og vinnu-
deilur er öllu verkafölki heimilt
að stofna méð sér stéttarfélög,
og að þessi stéttarfélög eru lög-
formlegur samningsaðili fyrir
hönd verkafólksins.
Málið hefir verið afhent sátta-
semjara ríkisins.
FINNLAND
Frh. af 1. síðu.
Sir Walter Citrine, formað-
ur brezku verkalýðssendinefnd-
arinnar til Finnlands, og aðrir
nefndarmenn, eru nú á heimleið.
Komu þeir loftleiðis til Brúss-
el í dag. Sir Walter sagði, að
ef Finnar fengju aukna hjálp,
væri hann ekki svartsýnn um
lokaúrslitin, en það yrði að veita
Finnlandi alla þá hjálp, sem
auðið væri að láta í té.
Biíssneskar flngvélar
sðkkva sænskn skfpi.
Rússneskar sprengjuflugvél-
ar hafa sökkt sænska skipinu
„Virgö“, 700 smálestir, við Á-
landseyjar.
Þtetta skip og fimm önnur
voru á leið frá Abo til Stokk-
hólms. Hin skipin urðu ekki
fyrir skemmdum. Ekkert mann-
tjón varð á skipunum.
Aðalfundur
Rakarasveinafélags Reykjaviku r
var haldinn í fyrrakvöld. Kosin
var stjórn á fundinum: Formaður
Skúli Eggertsson, ritari Þorsteinr
Hraundal og gjaldkeri. Kristinn
Sigúrðsson.
Háskólafyrirlestrar danska
sendiherrans.
Sendiherra Fr. de Fontenay
heldur áfram í þessum mánuði
með fyrirlestraflokk sinn um
Múhameðstrú og Múhameðstrú-
armenn. Næsti fyrirlestur verður
fluttur á morgun kl. 6 í Odd-
fellowhúsinu, og síðan verða fyr-
irlestrarnir á hverjum fimmtudegi
í þessum mánuði á sama stað og
stundu. Öllum heimill aðgangur.
Háskólafyrirlestrar á þýzku.
Þýzki sendikennarinn, dr. Will,
flytlur annað kvöld kl. 8 fyrir-
íestur i Báskölanum um „Borgen
Und Ritter im Mittelalter". —
Skuggamyndir verða sýndar með
fyrirlestrinum, og er öllum heim-
ill aðgangur.
SJÓHERNAÐURINN
Frh. af 1. síðu.
„Andalusia“ var 21 maður.
Skipið stóð í loftskeytasam-
bandi við Gautaborg þangað til
21. janúar. Frá „Segovia“ hefir
ekki heyrzt í langan tíma.
Þá hefir danska seglskipið
„Karen“ rekizt á tundurdufl
við Englandsströnd í gær, 2
menn fórust samstundis, en
öðrum mönnum af skipshöfn-
inni var bjargað.
Fjórtái skipum sökkt i
vtknnni sem leið.
Brezka flotamálaráðuneytið
birti í dag skýrslu um skipa-
tjón Breta og hlutlausra þjóða
vikuna frá 28. jan. til 4. febrú-
ar. Samkvæmt skýrslunni var
14 skipum sökkt, þar af 8
brezkum skipum, samtals 25000
smál., og 6 skipum hlut-
lausra þjóða, samtals 17 500
smál.
Skip þau, sem sökkt var voru
því samtals 42 500 smál. Er
fróðlegt að bera þessa skýrslu
saman við hinar furðulegu
staðhæfingar Þjóðverja, að frá
21. jan. — 31. jan. hafi verið
sökkt skipum, sem voru samtals
200 000 smál.
Siðustu hermðarverkin
4 sjðnnm.
í framannefndri skýrslu er
E3 nyja bio na
Pygmalion
Hið dásamlega leikrit eftir
enska stórskáldið Bern-
hard Shaw, sem ensk stór-
mynd, hefir tekist svo vel,
Iað hún er talin merkisvið-
burður í sögu kvikmynda-
listarinnar.
Aðalhlutverkin Ieika:
Leslie How'ard og
Wtendy Hiller.
LEBKFÉLAG REYKJAVÍKUR,
„FJalIa- EyvIndurM
SÝNING Á MORGUN KL. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4 til 7 í dag og eftir kl.
1 á morgun.
öskudagsfagnaður
Starfsstúlknafélagsins „Sókn“ verður í Alþýðuhúsinu í
kvöld, öskudag, og hefst kl. 9.
SKEMMTISKRÁ:
1. Stutt erindi, ásamt skuggamyndum frá Genf.
Fröken Oddný Guðmundsdóttir.
2. Söngur. Kór félagsins.
3. Listdans. Nemendur Rigmor Hanson.
4. Dans. Hljómsveit Bjarna Þórðar. — Gömlu og
nýju dansarnir.
Aðgöngumiðar á kr. 2,50 seldir í Alþýðuhúsinu við Hverfis-
götu eftir kl. 4 í dag.
ALLIR í ALÞÝÐUHÚSIÐ ! SKEMMTINEFNDIN.
Árnesiigamðt
verður á Hótel Borg laugardaginn 10. febrúar og hefst
klukkan 8. Til skemmtunar, ræður, söngur, kvartett, dans.
Aðgöngumiðar fást hjá Guðjóni Jónssyni, Hvg. 50.
Allir Árnesingar velkomnir.
ðkeypis kennsia fyrir stúlknr.
Bandalag kvenna í Reykjavík hefir ákveðið að gangast
fyrir ókeypis kennslu fyrir stúlkur á aldrinum 14—18 ára.
Kennd verða tungumál og ýmis handavinna. Allar nánari
upplýsingar í síma 4218, Margrét Ásgeirsdóttir, og síma
4740, Jónína Guðmundsdóttir.
Fyrsti dansieiknr
Félags íslenzkra hljóðfæraleikara á þessu ári verður
á morgun að Hótel Borg. Dagskrá auglýst nánar á morgun.
Aðalfnndnr
Hins íslenzka garðyrkjufé-
lags verður haldinn í Odd-
fellowhöllinni, uppi, 23. febr.
klukkan 8 e. h.
STJÓRNIN.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
ekki meðtalið brezka skipið
„Beaverburn11, tæplega 10 000
smál., sem sökt var í fyrrad. við
suðvesturströnd Bretlands, né
brezka hjálparskipið „Sfinx“,
sem notað var til að slæða tund-
urdufl. „Sfinx“ var 895 smál.
og var sökkt í flugvélaárás á
skip við austurströnd Bretlands.
Þess er þó getið, að ef veður
hefði verið hagstætt, hefði
„Sfinx“ sennilega komizt til
hafnar. Skipið hafði orðið fyrir
skemdum og var verið að draga
það til hafnar, en taugar slitn-
uðu og skipinu hvolfdi. Óttast
er, að 49 menn hafi farizt.
Það er nú komið í ljös, að allri
áhöfninni á „Beaverburn“ var
bjax-gað, nema ef til vill einum
manni. Áhöfnin á skipi, sem
kom á vettvang, þjargaði skip-
verjum.
Biuxggun við Eyjafjörð.
Síðastiiðinn föstudag fór lög-
regian á Akureyri tvær ferðir út
í Arnarneshrepp og gerði hús-
rannsúkn á þremur ibýlum. —
Bruggun var viðurkennd á ölliuri
býlunum, og í einu þeirra fund-
ust um 40 Htrar í gerjun og
suðuáhöld. Stuttu áður hafði ver-
ið framið innbrot í geymsluskúr
við Strandgötu 19 á Akureyri,
og þar stolið fjórum sekkjum af
strausykri. Lögreglan hefir upp-
lýst innbrotið, og eru málin nú í
rannsókn, FO.