Tíminn - 13.01.1963, Qupperneq 1
ITOTALIAl
i«eiknivélarl
crv Offð A Mlchelsen
Igmmrni klappapsllg 2S5»7
W Sími 20560
10. tbl. — Sunnudagur 13. janúar 1963 — 47. árg.
ENN VELDUR SINNULEYSI STJORNARINNAR STÓRTJÓNI
Gerir ekkert til að bæta úr
aðstoðu til móttöku síldar
ÞaS veldur nú miklum töfum við síldveiðarnar og stór-
felldu tjóni, að skortur er nægilegra móttökuskilyrða í landi.
Af þeim ástæðum hefur m.a. verið talað um að hefja síldar-
flutninga til Norðurlands, sem yrðu mjög dýrir og erfiðir.
Að miklu leyti stafar þetta af
því, að ríkisstjórnin hefur van-
rækt allan viðbúnað í þessum efn
um. Margir einstaklingar og fyrir-
tæki hafa viljað ráðast í að byggja
síldarverksmiðju og móttöku-
stöðvar Suðvestanlands, en fram-
kvæmdir þeirra strönduðu á sinnu
íeysi stjórnarinnar, er ekki hefur
viljað greioa neitt fyrir þeim við
fjárútvegun, þótt mörg hundruð
rnilljónir kióna sparifjár sé nú
fryst í Seðlabankanum.
Ríkisstjórnin hefur hér sýnt
samskonar sinnuleysi og tómlæti
cg varðandi slíkar framkvæmdir
norðanlands og austan, en þar
hlaust stórfellt tjón af þvi síðastl.
suiiiar, að rikisstjórnih hafnaði
tillögum stjórnar síldarverksmiðja
ríkisins um bætt móttökuskilyrði
a Austfjörðum. Jafnframt synjaði
hún ýmsum einstaklingum, er
hugðu á slíkar framkvæmdir, um
eðlilega fyrirgreiðslu.
Hin mikla síldveiði í fyrravetur,
sýndi ótvírætt, að nauðsynlegt
væri að bæta móttökuskilyrðin og
auka síldarvinnsluna suðvestan-
Jands: Fyrir því lokað'i ríkisstjórn-
in augunum og lokaði jafnframt
fjármagnið, sem hefði nægt til
framkvæmdanna, inni í Seðlabank
anum. Þetta veldur nú milljóna-
tjóni daglega.
LÝSIÐ ER
UPPSELT
Eftirfarandi upplýsingar
hafa blaðinu borizt frá Fé-
lagi ísl. fiskmjölsframleið-
enda:
Um áramótin stóðu af-
urðasölur síldarverksmið'ja
landsmanna þannig, að af
72.000 tonnum síldarmjöls,
sem framleidd voru á árinu,
voru 12.000 tonn óseld. Er
það ekki mikið magn, þegar
miðað er við hve óvenju
mikil framleiðslan var. Hins
vegar hafði síldarlýsisfram-
leiðslan, sem nam 63.000
tonnum, öll verið seld og
Framhald á 3. síðu.
MADUR FERST IELDI
OG TVENNT SLASAST
GB-Akranesl, 12. janúar.
í NÓTT kom upp eldur í lltlu ein-
lyftu trmburhúsi hér f kaupstaðn-
um, og brann þar inni tæplega þrí-
tugur maður, Kristján Valdimars-
son, en unnusta hans, Bryndís
Helgadóttirr, kastaðf sér út um
giugga og hryggbrotnaði á götunni.
Þrír menn aðrir, sem sváfu í hús-
inu, köstuðu sér allir út um glugga,
og öklabrotnaði einn þeirra.
Þe.jsi válegi at'burður gerðist
um klukkan hálf fimm.
Húsið, Vesturgata 31, svokall-
að Halldórshús, hefur verið notað
til viðlegu af verkafólki Haraldar
Böðvarssonár. Fólkið sem þar
svaf, var starfandj hjá Haraldi
Sólmyrkvi í Kína heitir grein
arflokkur, sem Tíminn byrjar
nú að birta. Greinarnar eru
eftir Sven Lindqvist, sænskan
rithöfund, sem hefur dvalistvið
háskólanám í Kína á þriðja ár.
Greinar þessar birtast samtim-
is, auk þess að koma í Tíman-
um, í danska blaðinu Politiken,
Dagens Nyheter í Svíþjóð,
New York Times í Bandaríkj
unum og Observer í Englandi.
Talið er að Lindqvist hafi aflað
sér mjög haldgóðrar vitneskju
um ástandið austan kínverska
múrsins, meðan stóð á náms-
dvöl hans, og fullvíst, að eng-
inn Norðurlandabúi hefur eins
trausta þekkingu á Kína undir
kommúnistastjórn og þessi
sænski rilhöfundur. Hann nam
• kínversku við háskólann í Pek-
ing, en fylgdist jafnframt náiðj
með stjórnmálunum og ferðað-
ist um landið þvert og endi-
langt. Höfundurinn hefur sjálf-
ur tekið mjög góðar Ijósmynd-
ir, sem fylgja greinum hans.
Hér að ofan er mynd frá að-
aljárnbrautarstöðinni í Peking
en til hliðar er mynd af höf-
undinum sjálfum. — Tíminn
hefur einkarétt á þessum grein
um hér á landi.
nema einn gestkomandi maður.
Ris var á húsinu, en þar sváfu
Kristján og Bryndís í suðurenda,
en gesturinn, Gunnar Guðnason,
í herbergiskytru í norðurendan-
um. Niðri sváfu tveir menn.
Lögreglan hafðj farið eftirlits-
ferð framhjá húsinu skömmu áð-
ur en eldurinn kom upp og varð
þá einskis vör. Stuttu síðar vakn-
aði fólk í næstu húsum við neyð-
aróp konu. Skunduðu menn þá
út og fundu Bryndísi liggjandi á
götunni, en húsið var alelda. Gunn
ar, sem svaf í norðurendanum í
risinu, kastaðj sér út um glugga
í sömu svifurn og öklabrotnaði í
fallinu. Þeir, sem niðri sváfu, —
brutust út um glugga, ómeiddir.
Kristján var þá einn eftir í
risinu og kom ekki fram, en talið
var að Gunnar og þeir, sem niðri
sváfu, hefðu vaknað við hljóð
Bryndísar, ella mundu þeir hafa
brunnið inni.
Slökkviliðið var komið á vett
vang eftir skamma stund, en hús
ið var þegar alelda og lítið vatr
á bæjarkerfinu, svo slökkvistarfif
tafðist af þeim sökum. Lík Kristj
áns var mjög brunnið, þegar þa£
fannst. Krufning fer fram í dag
Þau Bryndís og Gunnar voru
flutt á sjúkrahús, hún hryggbrot
in eins og fyrr segir og hafði feng
ið taugaáfall. Líðan hennar vai
sögð eftir vonum í dag. Gunnai
mátti vart mæla fyrst í stað eftir
þennan atburð.
Húsið stendur enn uppi að
miklu leyti, en er gjörónýtt. Það
var 85 ára gamalt. Yfirheyrslur
fóru fram við bæjarfógetaembætt
ið í dag. Þeim var ekki lokið, þeg
ar blaðið talaði við bæjarfógetann
síðdegis. Ekkert var látið uppi
hramhald á 15. síðu.