Tíminn - 13.01.1963, Blaðsíða 2

Tíminn - 13.01.1963, Blaðsíða 2
r .............. , Trúarlegt uppeldi Ekki er ofsögum af því sagt, hve trúarlegt uppeldi er yfir- leitt vanrækt í nútímaþjóðfé- M lagi, t.d. hér á íslandi. Það er eins og flestir meira að segja lærðir uppeldisfræð- ingar geri sér ekki fuila grein fyrir því, að hvert heilbrigt barn, hver heilbrigð manneskja er gædd trúartilfinningu. Með þeirri fullyrðingu er ekki átt við það, að við höfum ein- hverja sérstaka skoðun eða stefnu í trúmálum, einhverja ákveðna hugmynd um Guð. Og því síður má gera ráð fyrir að börn hafi tileinkað sér ein- hverja sérstaka trúarjátningu skilji hana eða meti. Trúartilfinning er auðvitað eins og aðrar kenndir og til- finningar meira eða minna ó- meðvituð þrá eða kraftur, sem stefnir að því að setja traust sitt á eitthvað æðra og meira en það, sem við skynjum eða sjá- um hversdagslega. Og aðalhættan í trúarlegu uppeldi liggur í því, að sé þessu trausti, þessari þrá eða leit, ekki beint að því, sem er í hei- lagt, eilíft og gott, guðsanda sannleika, kærleika, réttlætis og fegurðar, þá brýzt þessi þrá út á öðrum sviðum, beinist að einhverju öðru, sem bæði get- ur verið hverfult og illt eftir atvikum. Þannig myndast manndýrk- un og „isma“-dýrkun nútímans. Það eru oft nefndar stjórnmála stefnur en eru raunverulega trúarbrögð byggð á rang- hverfri, blekktri trúartilfinn- ingu. Þannig hefur verið bæði með nazisma, kapítalisma, kommúnisma og fasisma, svo eitthvað sé nefnt af þessum svonefndu hugsjónastefnum nú tímans. Sumar þessara stefna gera sér þess fulla grein, að þær keppa við guðstrú, og vilja þess vegna beita valdi og áhrif um til að draga sem mest úr trúarlegu uppeldi á vegum guðsástar og guðstrausts, bein línis til að beina krafti trúar- tilfinningarinnar til sín, og er nýheiðnin í Austur-Þýzkalandi þar ljósast dæmi. Þar er helgi siðum og starfsaðferðum kirkju og kristindóms beinlín is snúið að ,,ríkis“-hugsjóninni með breyttu forteikni: Guð, það er ,,ríkið“, eins og komm- únistar hugsa sér það. Sé trúarlegt uppeldi á veg- um kristinsdóms vanrækt á heimilum, í skólum og kirkju verður þetta auðvelt. Og af því leiðir fljótlega böl og styrjald ir, grimmd og djöfulæði, sbr. Hitlers-Þýzkaland á áratugun- um 1930—’40, þar sem Hitler var gerður að Guði, eða Rúss- land á dögum Stalins. En hvað er þá átt við með orð unum: Trúarlegt uppeldi? Það er að rækta og efla þær til- finningar, sem nefnast einu nafni trú, og beina þeim að hinum eilífu verðmætum mannsandans, sem við nefnum Guð, anda kærleika og rétt- lætis. Trú eða trúartilfinning er annar meginþáttur mannlegs á- gætis ásamt ástinni. Allt, sem við köllum menningu, listir og lifshamingju, er meira eða minna mótað af þessum tveim tilfinningum, án þeirra værum við ekki menn, heldur aðeins dýr. Og trúartilfinning er aftur ofin úr ýmsum vitundarþráð- um, sem nefnast tilbeiðsla, lotn ing, auðmýkt, traust, undir- gefni, virðing; en þetta vakn- ar af hugmyndum um Guð, tigij hans, speki, almætti og kær- leika. Skólar og uppeldisstofnanir mega því ekki láta ónotuð þau tæki og tækifæri, sem bjóðast og tiltæk eru til að efla þessa vitundarfræðj nemenda. Þar eru t.d. jólin og heigi þeirra lilvalið efni, enda sums stað- ar notað á réttan háfet, en víða vi'll verða úr því gervimennska og glaumur. En allt trúarlegt uppeldi krefst hljóðlætis, kyrrð ar og fegurðar. Ein sólajupp- koma, eða sólarlag getur þar verið uppsprettulind, sem þarf til að vekja, og efila, eitt ljóð, lag eða saga, einkum dularfull ar helgisagnir með ævintýra- blæ. Guðsþjónusta og bænar- stundir, með hljóðri andakt, stemningu og helgiblæ, ekki helgislepju, getur verið dýr- mætt. En umfram allt ekta, ekki yfirborðskennt, ýkt og ut anborðs. Helgisýningar geta verið af- bragðs uppeldistæki trúartil- finningar. Þar var vel unnið með helgisýningu um jólaguð- spjallið í einum skóla fyrir jól in hér í borginni, kannske fleirum, en þessi var frábær. Ljósbörnin, englar guðspjalls- ins bókstaflega rituðu það í hjörtu áhorfenda og áheyr- enda, stemningin var djúp þögnin heilög. Það mátti heyra hjartaslátt guðstrúarinnar við þessa sýn- ingu og Ijóminn frá augum barnanna stafaði frá sannfær- ingu þeirri, sem jólabarnið sjálft orðaði 12 ára að aldri á þessa leið: „Mér ber að vera í því, sem míns föður er“. Nú hefjast und irbúningsnámskeið kirknanna fyrir fermingarbörn í borginni. Óskandi væri, að skólar og kirkja, prestar og kennarar yrðu þá samtaka í að efla og rækta þessa tilfinningu barns- sálnanna fyrir helgidómi guðs- andans, kenni þeim stafróf til- beiðslu, auðmýktar og lotning- ar fyrir því sem fagurt er satt, rétt og gott, kenni þeim að elska og þrá þann Guð, sem birtist í Jesú Kristi, barni jöt- unnar. Og mætti sú trú, það guðs- traust, sem þannig mótast verða þeim skjól í vetrarhrið vax- andi ævi, musteri heilags anda. Árelíus Níelsson Friðrik Ólafsson skrifar um 24. Bc2! Rxb2. 25. Hbl. (Hótar nú 26. De5). 25. — f6. (Með þessum leik kemur svartur í veg fyrir áð- urnefnda hótun, en hvítur fær nú ný færi). 26. Ba4! (Þrumuleikur). 26. — Dxa4. 27. Dxe6f, Kd8. (Eft- ir 27. — Kf8 vinnur hvítur á fal- legan hátt: 28. Hxf6, gxf6. 29. Dxf6f Kg8. 30. Dg5f Kf8. 31. Hflf og mátar). 28. Dd6f Kc8. 29. Hf5!. — Svartur gafst upp. Að endingu hef ég hugsað mér að birta hér litla skákþraut eftir T. Oscarsson. Hvitur á leik og mátar. ÞAÐ GETUR verið varhugavert að draga of lengi að hrókera, eins og eftirfarandi skák ber með scr. í kennslubókum er byrjendum að jafnaði ráðlagt að koma þessu í kring, eins fljótt og auðið er, því að hæpið sé að láta kónginn standa of lengi á upphafsreit sín- um. Að sjálfsögðu er regla þessi ekki cinhlít, hún er einungis ætl- uð mönnum til stuðnings fyrsta rekspölinn, en síðar, er þeim vex ásmegin, geta þeir ákvarðað sjálf- ir, hvenær hennar er þörf. Stór- meistarar og aðrir á svipuðu styrk leikastigi telja sig að sjálfsögðu ekki háða slíkum byrjendafræð- um og fara gjarnan sínar eigin leiðir, þegar tilefni gefst. Nota þejr þá tímann til að sinna öðrum málefnum, sem þeim finnst mik- ilvægari en hrókunin, og hrókera þá ekki fyrr en þau mál eru kom in í viðunandi horf. Þeir treysta á „óbrigðula “ dómgreind sína, en stundum gengur tillitsleysið gagn- vart kóngsa full langt og þá er ógæfan á næsta leiti. í skákinni, sem fer hér á eftir, er það meist- ari Paohman, sem hunzar þessa grundvallarreglu skákarinnar og bíður mikið afhroð. OLYMPÍUMÓTIÐ í VARNA 1962. Hvítt: Diickstein (Austurríki). Svart: Pachman (Tékkóslóv.). Sikileyjarvörn. 1. e4, c5. 2. Rf3, Rc6. 3. d4, cxd4. 4. Rxd4, e6. 5. Rc3, Dc7. (Allt er þetta samkvæmt nýjustu tízku). 6. Be3, a6. 7. Bd3, Rf6. 8. o-o, Rxd4. 9. Bxd4, Bc5. (Með öllum þessum uppskiptum léttir svartur á stöðu sinni. Hann er þó tölu- vert á eftir í liðskipan sinni, og í næstu leikjum reynir hann að koma þeim málum í viðunandi horf). 10. Bxc5, Dxc5 11. De2, d6. (Nauðsynlegt til að koma í veg fyrir 12. e5. Með næsta leik sín- um undirbýr hvítur framrás f- peðsins og þá jafnframt e-peðsins síðar meir). 12. Khl, b5. (Enn þá lætur svartur hrókunina sitja á hakanum, en það ætti ekki að koma að sök enn um sinn). 13. f4, Bb7? (Vilji svartur halda sókn hvíts í skefjum verður hann að velja skarpari leik en þenr.an, — Rétt var 13. — b4. 14. Rdl, Bb7, og staðan er nokkurn veginn íjafn vægi). 14. e5. (Slíkt tækifæri læt- ur maður ekki úr greipum sér ganga). 14. — dxe5. 15. fxe5, Rd7. (Að sjálfsögðu ekki 15. — Rd5 vegna 16. Re4 ásamt 17. Rd6f). 16. Hael, b4. (Af tvennu iilu virðist 16 — o-o skárra hér, enda þótt hvítur geti þá unnið peð eftir 17. Bxh7f, Kxh7. 18. Dd3f, Kg8. 19. Dxd7. Svarlur hefur þó góð gagnfæri, svo að beztj bezti möguleiki hvíts væri sennilega 17. Hf4 með vænlegum sóknar- horfum). 17. Re4! Dxc5. 18. Dd2! (Hvítur hótar nú 19. Rf6f og svart ur á ekki annars kost en koma drottningu sinni á friðsællj stað. 18. — Bxe4 mundi ekki nægja vegna 19. Bxe4, Ha7. 20. Df2, Rc5. 21. Bc6f og vinnur). 18. — Dc7. 19. Dxb4, Bxe4. 20. Dxe4, Rb6. (20.— Hd8 leiddi beint til taps vegna 21. Hxf7, Kxf7. 22. Dxe6f KÍ8. 23. De7f Kg8. 24. Bf5, h6. 25. Bg6 og leiikurinn er úti). 21. a4! (Hvítur kann ýmis ráð til að koma í veg fyrir hrókun hjá andstæðingj sínum. Svarti gefst aldrei ráðrúm til að leika — g6 og hrókera síðan). 21. — Dd7. (Meiningin er að svara 22. a5 með — Rd5, en hvítur kemur nú í veg fyrir þann möguleika). 22. c4, Ifb8. (22. — Hd8. 23. Bc2, g6. 24. a5, Rc8. 25. Hdl, Dc7. 26. Ba4f virðist sízt álitlegra). 23. a5, Ra4. (Óneitanlega glannalegur leikur, en hvað átti svartur að gera?) Jörð til leigu Nýbýlið Lynghagi í Hvolhreppi Rangárvalla- sýslu (Eig. Landnám ríkisins), er laust til ábúðar í næstu fardögum. Á jörðinni er nýlegt íbúðarhús 80 ferm. Fjós fyrir 16 kýr, 600 rúmm. heyhiaða og fjárhús fyr- ir 150 fjár. Túnstærð 25 ha. og góð ræktunarskil- yrði. Veiðiréttur i Eystri-Rangá tvlgir ábúðinni. Hagkvæm lán áhvílandi. Upplýsingar gefur undirritaður ábúandi jarð- arinnar. Björgvin Guðlaugsson, Lynghaga Sími um Hvolsvöll. Ruglað og flækt Mbl. skrifar heilmikið um efnahagsbandalagsmálið i gær. Er grcinilegt af þeim skrifum, að stjórnarflokkamir ætla að halda áfram að þvæla fnam og aftur um málið, rugla og flækja, þar til enginn bofcnar orðið upp né niður í því, hvað verið sé að fara. Ferill ríkis- stjórnarinnar í þessu máli er nú orðinn með eindæmum. Er eitt sagt í dag oig aiinað á morgun. f yfir’lýsingum Gylfia Þ. Gíslasonar stendur ekki steinn yfir steini, þar er allt löðrandi j mótsögnum. f skýrslu ríkisstjórnarinnar, sem hún flutti í þinginu, sagði, áð tvær ieiðir kæmu til greina, umsókn á grundvelli 238. gr. Rómarsamningsins um svokall aða „aukaaðiid", sem eniginn veit reyndar, hvað þýðir, og umsókn um totla- og viðskipta- samning. Kallað neikvætt! Þegar Framsóknarmenn lýstu þvf yfir, að þeir vildu leita eftir samningum á grund- veQIi tolla- og viðskiptasamn- inigs, þcgar tímabært þætti, kölluðu ráðherrar þá afstöðu Framsóknarmanna neikvæða oig þjóðhættulega. Svo kom Bjarni og sagði, að tolla- og viðskiptasamningur gæti vel fallið undir 238. greinina um „aukaaðild" — þvert ofan í yf- irlýsingar Gylfa og skýrslu rík isstjómarinnar. Og enn er hialdið áfram að hringsnúast. Ritstjóri Mbl. segir í gær, að tolla- og viðskiptasamningur sé okkur ákaflega óhagkvæmur, en h'ins vegar „aukaaðild“ mjög hagkvæmi! í rauninni hafnar ritstjórinn alveg tolla- og viðskiptasamningsleiðinni — annarri leiðinni, sem ríkis- stjórain segir þó í öðru orð- inu, að vel komi til greina og sést gerla að hverju krókurinn beygist hjá stjórnarliðinu. Leyf ir ritstjórinn sér að hirta full- yrðingar alveg út í bláinn um málið og gylla „aukaaðildarleið ina“. Er þetta allt gert til þess að reyna að villa um fyrir al- menningi og þyrla upp mold- viðri um höfuðatriði málsins. Skattalækkunin Mbl. er að hælast yfir skatta stefnu ríkisstjórnarinnar í rit- stjómargrein sinni í gær. Seg- ir blaðið, að ríkisstjórnin hafi lækkað skatta mjög verulega og fullyrðir að tekjuskattur hafi verið algerlega afnuminn af almennum launatekjum. Sannleikurinn er sá, að þrátt fyrir sbattabreytingarnar, þ. e. að taka upp söluskatt á nauð- synjavörum, sem Ieggst því þyngra á men,n sem þeir hafa fyrir fleirum að sjá, hafa bein- ir skattar hækkað af þcim tekj- um, sem vísitölufjölskyldunni eru nauðsynlegar samkvæmt áliti Hagstofunnar til að lifa mannsæmandi lífi — og er þó húsaleiguliðurinn reiknaður svo lágt, að hvergi nálgast raun veruleikann. Reyndiar kemur þetta fram í þessum leiðara Mbl., því að þar segir, að jafnvel eftir þcssa lækkun hafa skatttekjur ríkis- ins orðið meiri — jafnvcl mciri en fjárlög gerðu ráð fyrir. . >. er á 300% skattahækkun Ef miðað er við álögur ríkis- ins á almenning í heild og bor Framhald á 13. síðu. 2 T f MI N N, sunnudaginn 13. janúar 1963 —

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.